Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
95
Víðtækum viðskiptaviðræð-
um við Sovétmenn lokið
í síðustu viku fóru fram víðtæk-
ar viðræður í Moskvu um viðskipti
íslands og Sovétríkjanna. Hér var
um tvennskonar viðræður að ræða.
Annars vegar við utanríkisvið-
skiptaráðuneytið um framkvæmd
gildandi viðskiptasamnings í ár, og
horfur á áframhaldandi viðskipt-
um, og hins vegar viðræður ís-
lenskra útflytjenda og olíufélag-
anna við sovésk ríkisviðskiptafyr-
irtæki um nýja sölu- og kaupsamn-
inga. Þessar upplýsingar koma
fram í frétt viðskiptaráðuneytisins.
í hinum árlegu viðræðum
við utanríkisviðskiptaráðuneytið
tóku þátt af íslands hálfu full-
trúar viðskiptaráðuneytisins,
sendiráðsins í Moskvu og helstu
viðskiptaaðilar við Sovétríkin og
samtaka þeirra. Það var sam-
dóma álit beggja aðila að við-
skiptin hefðu gengið vel og horf-
ur væru góðar um framhald
þeirra á grundvelli viðskipta-
samningsins, sem gildir fyrir ár-
in 1981-1985.
Af hálfu íslensku nefndarinn-
ar var lögð mikil áhersla á að
auka nú þegar sölu á íslenskum
vörum, einkum saltaðri síld,
freðfiskflökum og lagmeti til að
draga úr greiðsluhallanum við
Sovétríkin. Eftir miklar umræð-
ur féllust Sovétmenn á að kaupa
160 þús. tunnur af síld saltaðri á
þessari haustvertíð, og er þetta
stærsti síldarsamningur sem
gerður hefur verið við Sovétrík-
in. Framkvæmdastjóri síldar-
útvegsnefndar annaðist samn-
ingsgerðina við Prodingtorg.
Hins vegar var talið útilokað að
kaupa meiri freðfiskflök á þessu
ári, þar eð árskvótinn, 17 þús.
tonn, hefði verið fullnýttur. Gert
er ráð fyrir viðræðum um freð-
fisksölur á næsta ári í nóvem-
bermánuði nk.
Upplýst var að hægt væri að
gera viðbótarsamning um sölu á
lagmeti til afgreiðslu á þessu ári
og er unnið að þeim samningi á
vegum Sölustofnunar lagmetis.
Er hér um verulega aukningu að
ræða.
íslenska nefndin gerði grein
fyrir íslenskri framleiðslu á ým-
iskonar vélum og tækjum fyrir
sjávarútveg og fiskvinnslu, sem
þróast hafa á undanförum árum
og ætla mætti að gæti hentað vel
fiskiðnaði Sovétríkjanna.
Ennfremur var mælst til þess
að Sovétmenn keyptu meðalalýsi
____'esió
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
og kindakjöt af íslendingum.
Lofað var að þessi mál yrðu tek-
in til athugunar.
Þá ræddu fulltrúar viðskipta-
ráðuneytisins og olíufélaganna
einnig við Sojuznefteexport um
fyrirhuguð kaup á svipuðu
magni af olíuvörum á næsta ári
og keypt hafði verið í ár. Bráða-
birgðasamkomulag var undirrit-
að, en ekki verður gengið frá
endanlegum samningi fyrr en í
nóvbembermánuði nk.
Varnarliðið hefur ósjaldan
veitt okkur liðsinni við
björgunarstörf þannig að
það var að sögn Hannesar
Hafstein ánægjulegt verk-
efni hjá Slysavarnafélags-
mönnum fyrir skemmstu
að geta aðstoðað varnar-
liðsmenn við að flytja
þyrluspaða upp á Kaldadal,
þar sem þyrla þeirra-lenti
vegna bilunar á einum
þyrluspaða. Þessi mynd var
tekin við það tækifæri.
áfe,
'>* n
ara
m
forusta!
innihurðir
VELIUM ÍSLENSKT
Bjóðum úrval glæsilegra innréttinga með fjölbreyttum
uppsetningarmöguleikum. 20 ára reynsla segir meira en
mörg orð. - Lítið við og skoðið úrvalið. Gerum verðtilboð,
teiknum, og ráðleggjum þeim sem þess óska.
Aðili að svensk Mobelinstetute
Fallegt handbragð í fyrlrrúml.
S m
i \ fm
t; R
^ FORÐIST EFTIRLÍKINGAR
JPinnréftingar
Skeifan 7 - Reykjavík - Símar 83913 -31113