Morgunblaðið - 13.09.1983, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
208. tbl. 70. árg._ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983
Þotufarþegarnir biðu |
dauðans í 12 mínútur -
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sérfrædingur Kóreuflugfélagsins skoóar brak úr kóreönsku farþegaþotunni,
sem fannst rekið á fjörur í Japan. Brakið er úr einum stjórnfleti flugvélarinn-
ar. AP/Símamjnd.
Árásir á gæzluliða og
friðarviðræður í strand
Tókýó, 12. september. AP.
LJÓSTT er nú að farþegar kóreönsku
þotunnar, sem Rússar skutu niður,
biðu dauða síns í 12 mínútur eftir að
flugskeyti sovézku orrustuflugvélanna
hæfðu þotuna, samkvæmt upplýsing-
um úr varnarmálaráðuneyti Japans.
Þotan féll hægt til jarðar í víðu
gormflugi, sem svo er kallað, þar sem
hún hélt einhverjum flugeiginleikum
eftir að flugskeyti, sem leita uppi hita,
eyðilögðu einn eða fleiri hreyfla henn-
ar.
Hægri
flokk-
urinn
tapar
Osló, 12. september. Frá Jan Erik Laure
fréttaritara Mbl.
ALLT stefndi í stórtap Hægri
flokksins í bæjar- og fylkiskosn-
ingunum í Noregi, en helmingur
atkvæða hafði verið talinn þegar
Mbl. fór í prentun.
Verkamannaflokkurinn
bætti stórum við sig, og ef kos-
ið hefði verið til þings hefði
flokkurinn náð stjórnartaum-
unum í sínar hendur. Fram-
faraflokkurinn bætti einnig
verulega við sig, en þó ekki
sem nam tapi Hægri, og má
segja að hægri bylgjan í Nor-
egi sé að dvína.
Tölur bentu til þess að
Hægri, sem bætt hefur við sig
í öllum kosningum i rúman
áratug, fengi 27—28% at-
kvæða, eða rúmlega fjórum
prósentustigum minna en
fyrir fjórum árum. Einnig að
Verkamannaflokkurinn mundi
bæta við sig um fimm pró-
sentustigum miðað við 1979.
Flokknum hafði verið spáð
fylgisaukningu í skoðanakönn-
unum.
Samkvæmt þessu hafa farþegarn-
ir ekki dáið í svefni nóttina sem þot-
an var skotin niður, eins og fjöl-
margir aðstandenda farþeganna
höfðu látið í ljós vonir um.
Bandariska utanríkisráðuneytið
afhenti Rússum formlega kröfugerð
í dag um bætur fyrir dauða 61
Bandaríkjamanns, sem voru meðal
farþega þotunnar, en samtals voru
269 manns um borð, farþegar og
áhöfn.
Bandarískur þingmaður hvatti
Ronald Reagan forseta til þess í dag
að meina sovézkum íþróttamönnum
þátttöku í ólympíuleikunum í Los
Angeles að ári ef Rússar biðjist ekki
opinberlega afsökunar á því að
granda kóreönsku þotunni og borga
fjölskyldum hinna látnu bætur.
Hermt er að Rússar séu að gera
tilraunir með eldflaug, sem mikil
leynd hvíli yfir, á þeim slóðum sem
kóreanska þotan var skotin niður.
Nýja flaugin sé afbrigði af SA-12
flauginni og er henni ætlað að
granda MX og öðrum langdrægum
kjarnorkuflaugum Bandaríkja-
manna.
Blaðið Washington Post sagði í
dag að á undanförnum fimm árum
væri vitað um 21 atvik, þar sem
bandarískar þotur, sem búnar voru
nákvæmlega sömu siglingatækjum
og kóreanska þotan, flugu talsvert
Beirút, 12. september. AP.
LEYNISKYTTUR í hverfum shíta
gerðu skotárásir á stöðvar banda-
rísku gæzluliðanna í Líbanon
skömmu eftir dögun og aftur eftir
sólsetur, sem var svarað, og særð-
ust þrír gæzluliðar. Einnig kom til
harðra átaka líbanskra stjórnar-
hermanna og sveita drúsa og
vinstrisinnaðra stuðningsmanna
þeirra við hernaðarlega mikilvægt
þorp á veginum frá Beirút til fjall-
anna í kring.
af leið, í einu tilviki 400 kílómetra
frá áætlaðri flugleið.
Grikkir stóðu lengi í vegi fyrir
sameiginlegri yfirlýsingu ríkja
Efnahagsbandalags Evrópu vegna
árásar Rússa á kóreönsku þotuna,
og neituðu einir að skrifa undir, en á
síðustu stundu var samþykkt veikt
orðuð málamiðlun, þar sem ekki er
minnst á hlut Rússa.
Sjá nánar fréttir á bls. 18.
Noregur:
Framfærslu-
vísitala lækk-
aði um 0,2%
()sló, 12. september. AP.
Framfærsluvísitalan f Noregi lækk-
aði í ágústmánuði um 0,2% frá því,
sem hún var í júlí.
Vísitala fyrir föt og skó lækkaði
um 1,9% vegna útsalnanna, sem
fram fara á þessum tíma árs og
vísitala fyrir matvæli lækkaði um
0,5% vegna lækkunar á grænmeti,
en verðlag á því lækkar yfirleitt
eitthvað á þessum árstíma.
Fulltrúar Bandaríkjanna og
ýmissa Arabaríkja reyna nú af
fullum krafti að stilla til friðar í
borgarastríðinu í Líbanon, en þær
tilraunir hafa siglt í strand vegna
kröfu Walid Jumblatts, drúsaleið-
toga, sem studdur er af Sýrlend-
ingum, um að stjórnarherinn
hverfi úr Chouf- og Aley-fjöllun-
um.
Bandarísku gæzluliðunum hefur
borizt liðsauki 2.000 landgönguliða
flotans frá Indlandshafi. Reagan
forseti lét flytja sveitirnar til í
framhaldi af árásum á gæzlulið-
ana á síðustu vikum.
ísraelar vöruðu drúsa við í dag
og kváðust mundu gera loftárásir
á stöðvar þeirra ef þeir létu til
skarar skríða gegn óbreyttum
kristnum borgurum í borginni
Deir Al-Kamar, sem er umsetin, í
Chouf-fjöllunum. Matarbirgðir
eru á þrotum í borginni, en talið er
að þar hafist um 30 þúsund flótta-
menn úr röðum kristinna við.
Kristnir falangistar halda því
fram að sveitir drúsa, Sýrlendinga
og Palestínuskæruliða hafi framið
fjöldamorð á óbreyttum kristnum
borgurum í þorpinu El-Bire. Hef-
ur því verið vísað á bug að Palest-
ínuskæruliðar hafi átt aðild að
fjöldamorðum í Líbanon. Ásakan-
ir um fjöldamorð hafa verið gagn-
kvæmar að undanförnu milli
stríðandi fylkinga í Líbanon.
Hundruð líbanskra manna,
kvenna og barna úr röðum krist-
inna manna og múhameðstrúar,
flýðu í dag inn á yfirráðasvæði
ísraela í Suður-Líbanon. Kvaðst
fólkið á flótta undan sprengju-
regni drúsa í Chouf-fjöllunum.
Shamir
semur
Jerúsalem, 12. seplember. AP.
YITZHAK Shamir utanrikisráðherra
náði í dag samkomulagi við fimm
flokka um myndun nýrrar samsteypu-
stjórnar í ísrael, og flokkarnir ráöa 62
atkvæöura af 120 í þinginu.
Shamir sagðist mundu freista
þess að fá Verkamannaflokkinn til
stjórnarsamstarfs, en flokkurinn
hefur kveðið upp úr um að hann
gangi ekki í eina sæng með sam-
steypuflokkunum undir forystu
Shamirs, nema sveigt verði harka-
lega af stefnu stjórnar Begins, en
leiðtogi samsteypuflokkanna fimm
sagði að áfram yrði starfað í anda
Begins.
Nær búið að reisa Kielland við
SUvangor, 12. september. Frá Kristjáni
(.udlaugssyni frétUriUra Mbl.
„Olíuborpallurinn Alexander
Kielland, sem hvolfdi í marz 1980,
mun aftur komast á réttan kjöl,“
sagði Olav Streimler blaðafulltrúi
Stolt-Nielsen fyrirtækisins, sem
vinnur að því að rétta pallinn úti í
Gandsfirði fyrir utan Stavanger.
í viðtali við fréttaritara Mbl.
sagði Streimler of snemmt að
segja að framkvæmdirnar hefðu
heppnast. Enn væri eftir að snúa
honum rúmar 30 gráður, og þeg-
ar hann væri kominn á réttan
kjöl, yrði að ganga þannig frá að
honum hvolfi ekki að nýju. Pall-
inum hefur verið snúið rúmar
140 gráður.
Seint á morgun verður ljóst,
hvort endanlega hefur heppnast
að snúa borpallinum. Norska
tryggingafélagið Veritas lét þá
skoðun í ljós fyrir þremur vikum,
að líkurnar á að heppnast mætti
Hluti íbúðabyggingarinnar á borpallinum Alexander Kielland komin upp úr
sjávarfletinum. Myndin var tekin á sunnudag og í millitíðinni hefur pallurinn
verið reistur enn meira. f Ijós kemur í dag hvort takast mun að reisa pallinn
alveg við. AP/Símamynd.
að snúa borpallinum væru minni
en 50% og sérfræðingar félagsins
töldu að allar líkur væru á að
ibúðabyggingin ofan á pallinum
myndi hrynja af er honum væri
snúið.
Þetta hafa reynst hrakspár.
íbúðabyggingin er komin að
mestu upp úr sjónum og nú er
unnið af kappi að tryggja fest-
ingar hennar, svo hún falli ekki
af meðan lokið verður við að
reisa pallinn við.
Um borð í Alexander Kielland
voru 212 manns þegar ein af und-
irstöðum hans gaf sig í illviðri og
honum hvolfdi. Alls létust 123 en
89 var bjargað. Meðal þeirra sem
fórust var einn íslendingur. Þeg-
ar pallinum hefur verið snúið við
mun lögreglan fara um borð og
leita þeirra sem saknað er, og
reiknað er með að hægt verði að
bera kennsl á líkin með aðstoð
tannkorta.