Morgunblaðið - 13.09.1983, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 13.09.1983, Qupperneq 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983 Það þýðir ekkert að slá af... brautin sem ekin var reyndist fullgróf, en það stendur væntonlega til bóto. Morgunbitóii/ GunnUugur Rally cross Kjalarnesi: Olympia CPD 3212 Fyrirferðalítil og örugg reiknivél Áreiðanleg og fjölhœf reiknivél sem eyðir ekki borðplássi að óþörfu. Olympia vél sem reikna má með þótt annað bregðist. Leitið nánari upplýsinga. Verð kr. 3.900.- KJARAINI ARMULI 22 - REYKJAVIK - SlMI 83022 Snæri og tóg héldu keppnis- bílunum saman ÞÓRÐUR Valdimarsson sigraði ör- ugglega í rally cross keppni, sem fram fór á sunnudaginn á Kjalar- nesi. Ók hann VW að venju og hefur að öllum líkindum tryggt sér ís- landsmeistoratitilinn í þessari íþrótt, en einni keppni er þó enn ólokið. Annar varð Norðmaðurinn Erik Carlsen á Fiat, en hann er í öðru sæti { íslandsmeistarakeppninni. Birgir Bragason á Datsun varð þriðji. Fjöldi bíla tók þátt í keppninni, en ófáir þeirra hrundu úr vegna bilana. Brautin sem ekin var þótti mjög þungfær og gátu ökumenn lítt sýnt snilldarakstur. Að lokn- um undanriðlum komust fjórir keppendurí úrslit, Birgir Vagns- son á Cortina eftir skemmtileg til- þrif, Birgir Bragason á Datsun, Þórður Valdimarsson á VW og Er- ik Carlsen á Fiat. f einni af fyrstu beygjunum í úrslitunum snerist Datsun Birgis Bragasonar þvers- um er annar keppnisbíll ók á aft- urhorn bílsins. Stöðvaðist hann þar dágóðan tíma og missti alla framúr sér. Cortina Birgis Vagnssonar komst ekki langa vegalengd í úrslitum, hásing bíls- ins hafði verið bundin föst með tógi og snærum I von um eilífa endingu, en það dæmi gekk ekki upp og allt hrundi. Þóður hafði tekið forystu í byrjun og kom á VW sínum langt á undan Fiat Er- iks Carlsens, sem annar. Birgir Bragason náði þriðja sætinu eftir að hann komst af stað, en átti enga möguleika á efra sæti þrátt fyrir ágætan akstur. G.R. Mennirnir í verðlaunasætunum. Frá hægri Þórður Valdimarsson, Erik Carl- Sen Og Birgir Bragason. Mopnblatit/ Gunnlaugur Þing um frumulíf- fræði haldið í dag ÞRIÐJUDAGINN 13. september verður haldið þing um frumulíffræði og verður það haldið á Landspítalan- um. Þingið hefst kl. 11 f.h. og lýkur væntanlega um kl. 5 síðdegis. Á þinginu flytja erindi allmargir íslenskir vísindamenn frá hinum ýmsu rannsóknastofnunum og munu þeir skýra frá rannsóknum sinum. Aðalviðfangsefni verða: 1. Hjartavöðvafrumur, taugafrum- ur. 2. Æxlisfrumur. 3. Einfrumungar. 4. ónæmisfrumur. Erfðamörk. Vísindamenn sem erindi flytja verða m.a. frá hinum ýmsu rann- sóknastofum Ríkisspítala og Há- skólans, frá Tilraunastöðinni á Keldum og frá Krabbameinsfélag- inu. Þing þetta er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Undirbúning þingsins annaðist Frumulíffræðideild Rannsókna- stofu Háskólans v/ Barónsstíg. FrétUtilkynning linqjólf/ @/ltair//<©>in^iir Laugavegi 69, s. 11783. Klapparstíg 44, s. 10330. aiena SUNDFATNAÐURINN Val Olympíuleikanna í Los Angeles 1984 Ath.: Höfum opnað nýja verzlun að Laugavegi 69

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.