Morgunblaðið - 13.09.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983
• Fyrirliðí Kölnar Strack og Toni Schumacher, sem er nú á
sölulista hjá félaginu. Hann hefur verið óvæginn í gagnrýni að
undanförnu á stjórnina og því settur út í kuldann.
Varamarkmaðurinn bjargaði Köln:
Schumacher á
sölulista
Markvöröurinn frægi Toni
Schumacher á nú í miklum
deilum við félag sitt FC
Köln. Toni hefur deilt mjög
hart á stjórn félagsins og
þjálfara að undanförnu og
það varö til þess aö hann var
settur út úr liðinu og lék ekki
með um síöustu helgi er
Kölnarliðið mætti Mannheim
á útivelli. Jafntefli varö í
leiknum, 2—2. En Mannheim
átti sigurinn skiliö. Það var
aöeins stjórkostleg mark-
varsla sem bjargaði Köln frá
tapi. Varamarkvöröur Köln-
arliösins varöi hvaö eftir
annað á yfirnáttúrulegan
hátt og fékk hæstu einkunn
1 í öllum blöðum í V-Þýska-
landi eftir leikinn. Þaö er þvf
með öllu óvíst hvort Toni fer
nokkuð í markið á næstunni.
Heyrst hefur aö forseti FC
Barcelona hafi áhuga á aö
kaupa Toni en söluverð hans
frá liði Köln er 2 milljónir
marka. Og það eru ekki
mörg lið sem geta snarað út
slíkri upphæð.
Úrslitin í V-Þýskalandi
ÚRSLIT leikja í V-Þýskalandi, 1. deild, um helgina. Innan
sviga er staðan í hálfleik:
Werder Bremen — FC Nuremberg
Bayer Uerdingen — VFB Stuttgart
Fortuna DUsseldorf — Hamburger SV
VFL Bochum — Borussia Mönchengl.
Arminia Bielefeld — FC Kaiserslautern
Eintracht Brunswick — Bayern MUnich
SV Waldhof Mannheim — FC Cologne
Kickers Offenbach — Eintracht Frankfurt
Bayer Leverkusen — Borussia Dortmund
2—0 (0—0)
3—2 (2—1)
2— 3 (1—2)
0—4 (0—0)
3— 2 (3—1)
1—2 (0—1)
2—2 (1—2)
2—1 (1—0)
4— 2 (1-1)
Tvöfaldur
GR-sigur
SVEITIR Golfklúbbs Reykjavíkur
sígruðu í karla- og kvennakeppni
Landsmóts sveita sem fram fór á
Akureyri um helgina. Konurnar
léku 36 holur á tveimur dögum,
en karlarnir léku 72 holur.
í sveit GR voru Ásgerður Sverr-
isdóttir, Ágústa Guðmundsdóttir
og Aöalheiöur Jörgensdóttir. Þrjár
voru í hverri sveit en árangur
tveggja taldi eftir hverjar átján hol-
ur. Ásgeröur lék best allra kvenna
á mótinu — lék holurnar 36 á 169
höggum. Inga Magnúsdóttir, GA,
fór á 178 höggum og Kristín Páls-
dóttir, GK, fór á 184.
Hjá körlunum voru fjórir í sveit
og taldi árangur þriggja eftir hverj-
ar 18 holur.
Sveit GR sigraöi mjög örugg-
lega. Siguröur Pétursson lék best
þeirra á 311 höggum, en aörir í
sveitinni voru Ragnar Ólafsson,
sem fór á 314, ívar Hauksson fór á
328 og Siguröur Hafsteinsson fór á
338. Sveit GR fór því á 950 högg-
um, Sveit GS — sem stóö sig svo
frábærlega f írlandi í síöustu viku
— varö í ööru sæti, fór á 961
höggi, og í þriöja til fjóröa sæti
uröu sveitir Keilis og GA á 973
höggum.
Magnús Jónsson, GS, lék best
allra á mótinu — fór á 309 högg-
um. Síöan kom Siguröur Péturs-
son á 311, Jón Guölaugsson, NK,
fór á 313 og Ragnar Ólafsson, GR,
og Björgvin Þorsteinsson. GA, á
314.
— SH.
Mikið skorað í „Bundesligunni“
Bayern liðið er nú
komið í efsta sætið
Frá Jóhanni Inga Gunnarsayni fréttaritara Mbl. í V-Þýskalandi.
ÞAO ER ekki hægt að segja ann- I var enginn annar en bróöir hans,
aö en að „Bundesligan" fari vel af sá frægi Karl Heinz Rummenigge,
stað. Liðin leika stífa sóknar- sem átti heiöurinn af uppbygg-
knattspyrnu og mikið er skoraö | ingu marksins. Hann gaf listilega
af mörkum. Enda láta áhorfendur
ekki á sér standa og ftykkjast nú
á leikina. Eftir síöustu umferð
náði lið Bayern MUnchen að kom-
ast í efsta sætiö eg trónar þar nú
með 10 stig. Liðíð sigraöi Ein-
tracht Braunschweig á útivelli,
2—1. Það var Michael Rummen-
igge sem skoraöi fyrsta mark
leiksins með þrumuskoti viðstöð-
ulausu, glæsilegt mark. Og það
á bróður sinn eftir að hafa leikiö
laglega á þrjá leikmenn. Síðara
mark B-MUnchen skoraöi Grobe.
R. Karl H. Rummenigge lét hafa
eftir sér í sjónvarpi eftir leikinn
að lið Bayern myndi sigra í deHd-
inni í vetur. Annaö kæmi ekki til
greina.
Nýliöarnir i 1. deild Uerdingen
sigraöi Stuttgart á heimavelli 3—2.
I hálfleik var staöan 2—1. Gulich
skoraöi á 25. mínútu og síöan
komu tvö næstu mörk úr víta-
spyrnum á Stuttgart. Úr þeim
skoraði Funkel á 41. og 79. mín-
útu. Svínn Cornelius skoraöi sitt 6.
mark í deildinni, er hann skoraöi
fyrra mark Stuttgart í leiknum, á
28. mínútu. Síöara markiö skoraöi
Schaffer á 70. mínútu. Ásgeir var
frekar þungur í leiknum og fékk
ekki góöa dóma fyrir leik sinn. Er
greinilega ekki enn búinn aö ná sér
eftir meiöslin og mjög erfitt leikj-
aprógramm undanfarna daga.
Liö Atla Eövaldssonar, Fortuna
Dússeldorf, tapaöi á heimavelli,
2—3, fyrir meisturunum Hamborg
SV. Atli var frekar slakur í leiknum
og náöi ekki aö skora. Var þetta
15. leikur Hamborgarliösins í röö
sem þeir leika án þess aö tapa.
Dusseldorf komst yfir í leiknum
með marki Weikl á 14. mínútu en
bakvöröurinn frægi, Manfred
Kaltz, lagöi upp tvö næstu mörk er
hann gaf gullfallegar sendingar inn
í vítateiginn og þar skölluöu þeir
Hartvig og Schroeder í mark.
Mörkin komu á 18. og 30 mínútu.
Á 52. mínútu jafnaöi Dússeldorf
leikinn úr vítaspyrnu sem Zewe
tók. Sigurmark Hamborg kom svo
úr aukaspyrnu, þrumuskot Schatz
fór beint í vinkilinn.
Liö Werder Bremen, sem gekk
frekar illa í upphafi, viröist vera aö
ná sér á strik og sigraöl nú Nurn-
berg 2—1.
Staöan f V-þýskalandi er nú
þessi: Bayern Mllnchen 4 2 0 11: • 10
Hamburger SV 4 1 0 12: 7 •
Uerdingen 4 1 1 18:11 9
VFB Stuttgart 3 2 1 14: 7 8
Bor. Mönchengl. 3 1 2 19: • 7
Werder Bremen 3 1 2 •: 7 7
Fortuna DUaaeldorf 2 2 2 8: • •
Armenia Bielefeld 3 0 3 9:12 6
Bayer Leverkuaen 2 1 2 tO: 9 5
SV Waldhof Mannheim 1 3 2 •:11 5
1. FC Kötn 2 1 3 7: • 9
VFL Bochum 2 1 3 11:17 5
1. FC Kaiaeralautern 1 2 3 3: 9 4
Eintracht Frankfurt 1 2 3 11:13 4
1. FC NUrnberg 2 0 4 •:11 4
Eintr. Braunachweig 2 0 4 9:13 4
Boruaaia Dortmund 1 2 3 9:14 4
Kickera Offenbach 2 0 4 8:13 4
• Markakóngurinn frá því í fyrra, Rudi Völler, skýtur hér á mark með
hjólhestaspyrnu. Völler skoraði 23 mörk í deildinni í fyrra. Hann skor-
aöi faiiegt mark fyrir lið sitt um helgina.
IW
4 « .
• • • ‘
Bautabikarinn á Skagann
AKURNESINGAR sigruðu í Bauta-
mótinu í kvennaknattspyrnu sem
fram fór í þriðja skipti á Akureyri
um helgina. Breiðabliksstúlk-
urnar sigruðu fyrstu tvö árin, en á
sunnudag töpuðu þær úrslitaleik
fyrir ÍA.
Mótiö hófst á föstudag og var
leikiö í tveimur riðlum, fimm liö í
hvorum riöli. Úrslitaleikir fóru svo
fram á sunnudag. I keppninni um
þriöja sætiö sigraði KA Val 1:0
meö marki Sigrúnar Sævarsdóttur
og hreppti því 3. sætið. Úrslitaleik-
urinn var svo mjög skemmtilegur
og spennandi. Jafnt var 0:0 eftir
leikinn og framlengingu — og var
þá gripiö til vítaspyrnukeppni. Ekki
reyndust stúlkurnar öruggar í vít-
unum, því eftir fimm spyrnur á liö
stóö 2:2. Sigurlín Jónsdóttir skor-
aöi svo 3:2 fyrir ÍA og loks var
variö frá Svövu Tryggvadóttur.
Nánar veröur sagt frá mótinu á
morgun.
Á myndinni eru Skagastúlkurnar
kampakátar ásamt þjálfara sínum,
Steini Helgasyni.
Morgunblaöið/Skapti Hallgrimaaon.