Morgunblaðið - 13.09.1983, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.09.1983, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983 25 KR-ingar fögnuðu eins og Islandsmeistarar — eftir jafnteflið við ÍBV í Eyjum KR-INGAR fögnuðu markalausu jafntefli í Eyjum á laugardaginn eins og þeir heföu oröiö fslands- meistarar. Þetta 10. jafntefli KR í 18 leikjum tryggöi félaginu lang- þráð sæti í Evrópukeppni aö ári, en KR hefur ekki leikiö í Evrópu- keppni frá því áriö 1969. Þaö verður aö segjast eins og þaö er, að KR-ingar voru mjög heppnir í Eyjum á laugardaginn og ÍBV var mun nær sigri í þessum leik þrátt fyrir að Eyjamenn léku aöeins 10 gegn fullskipuöu liöi KR allan síö- ari hálfleikinn. Fyrri hálfleikurinn var ákaflega dapur á aö horfa og langtímum saman skeöi bókstaflega ekki neitt. Hvorugt liöiö haföi áræöi til þess aö taka frumkvæöiö. Eyja- menn léku nokkuö laglega úti á vellinum en áttu ekki teljandi tæki- færi viö mark KR. Þeir röndóttu úr KR gáfu þaö strax í skyn aö þeir ætluöu aö sætta sig fyrirfram viö annaö stigiö og spiluöu dæma- lausa „sparkaöu-hlauptu" knatt- spyrnu og þeim tókst ekki heldur aö skapa sér nein teljandi færi viö mark ÍBV. Þaö eina markveröa sem skeöi allan fyrri halfleikinn var brottrekstur fyrirliöa ÍBV, Þóröar Hallgrímssonar, á 39. mín. leiksins. Þóröur geröi sig sekan um óafsak- anlegt óþarfabrot þegar boltinn var úr leik, og Sævar Sigurösson haföi ekki annan kost en sýna Þóröi rauöa spjaldiö. Staöan var 0—0 i hálfleik og segir þaö alla sðguna. Þrátt fyrir aö Eyjamenn léku ein- um færri allan síöari hálfleikinn voru þeir mun atkvæöameiri uppi viö mark KR þó svo aö KR-ingar væru miklu meira meö knöttinn. En sem fyrr var alfur leikur KR- liösins brenndur því marki aö liöiö ætlaöi sér aldrei meira en annaö stigið og láta svo úrslit úr öörum leikjum ráöa því hvort liöiö næöi Evrópusætinu. Eyjamenn fengu nokkur góö tækifæri til þess aö tryggja sér sig- ur í leiknum en herslumuninn vant- aöi. KR-ingar áttu fá tækifæri og strjál og satt aö segja hefur Aöal- steinn markvöröur ÍBV trúlega ekki haft þaö rólegra í markinu allt sumariö. Hlynur Stefánsson átti þrumu- skot aö marki KR á 53. min. eftir hornspyrnu Ómars en rétt framhjá. 5 mín. síöar komst besti maöur vallarins, Tómas Pálsson, einn í gegn en Stefán Jóhannsson varöi skot Tómasar uppi í bláhorninu á síöustu stundu. Öskar Ingimund- arson fékk besta tækifæri KR á 74. mín. en hitti ekki boltann fyrir opnu marki. Stefán Jóhannsson varöi vel þrumuskot Sveins Sveinssonar á 78. mín og Ómar Jóhannsson átti síóasta orðiö í leiknum, komst í dauöafæri á 80. mín. en tveir varnarmenn KR renndu sér á Ómar og skot hans fór yfir markiö. Leiknum lauk því rétt eins og hann byrjaöi, 0—0. KR-ingar fögnuöu mjög í bún- ingsklefanum í leikslok þegar þeim bárust úrslit úr öörum leikjum dagsins. Þaö er Ijóst aö KR leikur næsta haust í Evrópukeppni fé- lagsliða. Þaö er athyglisvert viö ár- angur KR í deildinni í sumar aö liöiö hefur hlotiö fleiri stig en mörk. Stigin uröu 20 en liöiö skoraöi aö- eins 18 mörk en fékk á sig 19 mörk. Þaö er margt skondiö viö þetta íslandsmót sem nú er aö Ijúka. KR er dæmigert jafnteflisliö og gerir lítiö til þess aö breyta þeirri ímynd. Liöiö hefur þó mörg- um góöum leikmönnum á aö skipa. Miöveröirnir Óttó Guö- mundsson og Jósteinn Einarsson áttu báöir góöan leik í Eyjum og Sæbjörn Guómundsson lék mjög vel. ÍBV á enn eftir tvo leiki í deild- inni og staöan hjá liöinu er sú aó þaö vantar enn eitt stig til þess aó foröa sér frá falli í 2. deild en sigur í þessum tveimur leikjum færir liö- inu annaö sætiö í 1. deild. Já, þaö er makalaust jjetta íslandsmót. Eyjamenn böröust vel í s.h. þeg- ar þeir voru einum færri og voru nálægt sigri. Tómas Pálsson lék mjög vel og var besti maöur á vell- inum. Vakti þaö aö vonum mikla furöu þegar hann var tekinn útaf 13 mín. fyrir leikslok. Sveinn, Hlyn- ur og Ómar léku vel á miðjunni og Viöar var góöur í vörninni. Einkunnagjöfin: ÍBV: Aðalsteinn Jóhannsson 6, Snorrí Rútsson 6, Viöar Elíasson 7, Valþór Sigþórsson 6, Þóröur Hallgrimsson 4, Jóhann Georgsson 5, Sveinn Sveinsson 7, Hlynur Stefánsson 7, Ómar Jóhannsson 7, Tómas Pólsson 8, Sigur- jón Kristinsson 5, Þórarinn Þórhallsson (vm.) 5, Bergur Ágústsson (vm.) lék of stutt. KR: Stefón Jóhannsson 6, Óskar Ingimundar- son 6, Siguröur Indriöason 6, Ottó Guö- mundsson 7, Jakob Pétursson 6, Jósteinn Ein- arsson 7, Ágúst Már Jónsson 6, Helgl Þor- björnsson 6, Björn Rafnsson 5, Sœbjörn Guö- munsson 7, Magnús Jónsson 5, Sverrtr Her- bertsson (vm.) 4. i stuttu móli: Hósteinsvöllur 1. deild. ÍBV — KR 0—0. Gult spjald: Þórarinn Þórhallsson ÍBV. Rautt spjald: Þóröur Hallgrímsson ÍBV. Ahorfendur: 650. Dómari: Sævar Sigurösson og ótti hann ekki miklum vinsældum aö fagna hjá óhorfendum. Sævar hefur oftast dæmt betur en aö þessu slnnl. — hkj. ísfirðingar fallnir í 2. deild: baráttuleik lauk með sigri Keflavík 3—0 KEFLVÍKINGAR sigruöu ísfirö- inga í miklum baráttuleik síöast- liöinn laugardag í Keflavík, 3—0. Liö ísafjarðar er því fallíö niður í 2. deild. Fyrri hálfleikur liöanna var frekar daufur og fátt var um góö marktækifæri. Þaö var greinilegt aö mikiö var í húfi hjá leikmönnum beggja liöa og því nokkur taugaspenna í leik- mönnum. Leikmenn ísfiröinga voru öllu kraftmeiri í fyrri hálfleik og náöu þá oft ágætum leikköfl- um. í stóari hálfleik var öllu meira líf í leiknum og litlu munaöi aó Isfirö- ingar næöu aö skora hjá ÍBK f upp- hafi hálfleiksins. En þá bjargaöi aöeins snjöll markvarsla Þorsteins Bjarnasonar marki. Þorsteinn bjargaði frá Kristni Kristjánssyni sem komst einn inn fyrir vörn ÍBK og var í upplögöu marktækifæri en mistókst. Þá átti Benedikt Einars- son gott skot en Þorsteinn varöi mjög vel. Þegar 17 mínútur voru liönar af síöari hálfleik var dæmd víta- spyrna á iBl. Ingvár Guðmundsson var felldur inní teig. Einar Ásbjörn tók spyrnuna en skaut himinhátt yfir markiö. Á 70. mínútu er Krist- inn aftur nálægt því aö skoca fyrir ÍBÍ þegar hann er í dauöafæri, en heppnin var ekki meö honum og tækifærið rann út í sandinn. Bolt- inn fór innan á marksúluna og rann síöan á marklínunni áöur en Oskari tókst aö hreinsa. Á 73. mínútu ná Keflvíkingar for- ystu meö giæsilegj marki Ragnars Margeirssonar. Rúnar gaf laglega á Ragnar sem skoraði meö fallegu bananaskoti. Tveimur minútum síöar skorar svo Rúnar eftir stungusendingu frá Ragnari, hann -komst í gegn og renndi boltanum fram hjá markverði ÍBÍ. Rúnar skoraði svo sitt annað mark úr vítaspyrnu á 84. mínútu og innsigl- aöi sigur ÍBK í leiknum. Liö ísfiröinga lék þennan leik all- vel og sýndi góöa baráttu en varö þó aö sætta sig vió tap og fall. Jón Oddsson var besti maöurinn í liði ÍBÍ. Hjá Keflavíkingum átti Þor- steinn Bjarnason bestan leik en bæöi Ragnar Margeirsson og Rún- ar Georgsson spiluöu mjög vel. Einkunnagjöf og í stuttu máli: Liö Keflavíkur: Þorsteinn Bjarnason 9, Óskar Færseth 6, Kári Gunnlaugsson 6, Gísli Eyjólfsson 6, Björgvin Björg- vinsson 5, Siguröur Björgvinsson 6, Einar Ásbjörn 6, Freyr Sverris- son 6, Ragnar Margeirsson 7, Óli Þór Magnússon 5, Ingvar Guö- mundsson 6, Rúnar Georgsson (vm) 7, Skúli Rósantsson lék of stutt. ísafjörður: Hreiöar Sigtryggsson 6, Jóhann Torfason 7, Rúnar Vífilsson 5, Ámundi Sigmundsson 5, Benedikt Einarsson 6, Guójón Reynissorr 6, Atli Einarsson 6, Guðmundur Magnússon 5, Kristinn Kristjáns- son 5, Örnólfur Oddsson 7, Jón Oddsson 8. Gul spjöld: Jóhann Torfason ísafjöröur. Dómari Kjartan Tómasson. Dæmdi hann mjög vel. ÓT/ÞR :: 1 ■ * m 1|| 1 ■ ' \ 'g ^ A. M A l, r.«'„•“1 ivi n 1 WW á, 1 oH f Ti,- -Ttjnfr- %11't • L Æf * 1 ^ W - TLir v. | fcmt ht Svljk Wr IH1* «•** W Ím wxjr á ■•■ rn . i v J ,'*** 1 1 111 ¥ ■ | 1 Æm Lkf/i • Hiö sigursæla liö Akurnesinga ásamt stjórnarmönnum. Liöiö er tvöfaidur sigurvegari í knattspyrnunni í sumar — og er það í fyrsta skipti sem ÍA afrekar það. MocsunbtoMA/FrMMótur. Þróttur úr fallhættu eftir ÞRÓTTARAR og Skagamenn geröu markalaust jafntefli í 1. deildar keppninni á Laugardalsvelli á sunnudaginn. Þróttur þurfti að fá eitt stig til aö tryggja áframhald- andi veru sína í deildinni og þaö tókst þeim, þrátt fyrir aö oft mætti ekki miklu muna að Skaga- mönnum tækist aö skora. leikurinn var ekki skemmtilegur á aö horfa. Fyrri hálfleikurinn var algjör ein- stefna aö marki Þróttar og nokkr- um sinnum fengu þeir mjög góö færi, en þeim tókst ekki aö nýta þau. Fyrlr leikinn færöu Þróttarar Is- landsmeisturunum veglegan blóm- vönd í tilefni sigurs þeirra í mótlnu og hver veit nema þaó hafi haft eitthvaö aö segja um gang leiksins. Snemma t leiknum fékk Sveinbjörn alveg tilvaliö tækifæri til aö skora þegar hann fékk boltann á markteig aleinn, en sendi hann langt yfir mark Þróttar. Skömmu fyrir leikhlé fékk Sigþór alveg eins færl, en hann skaut beint í fangiö á Guömundi markveröi. Þróttur fékk einnig sín færi í hálfleiknum, þrátt fyrir aö Skagamenn hafi sótt svo til stans- laust. Jóhann var óheppinn aö skora ekki um miöjan hálfleikinn eftir vel tekna aukaspyrnu hjá Þorvaldi, en skot Jóhanns geigaöi. Rétt fyrir leikhlé fékk Júlíus mjög gott færi eft- ir undirbúning Þorvaldar, en á óskilj- anlegan hátt tókst honum aö skjóta framhjá markinu. Skagamenn voru mun sterkari i aöili í hálfleiknum en Þróttarar. Meö Ásgeir í broddi fylkingar vöröust mjög vel. Þaö var greinilegt, aö Þróttarar ætluöu sér aö hanga á ööru stiginu. Lítil áhersla var á fram- línuna, enda fámenn, en því meirl á vörnina. Skagamenn léku oft og tíö- um nokkuö vel saman, en þaö vant- aöi aó reka smiöshöggiö á þegar nálgast fór markiö. Þeir komu þó nokkrum skotum aö markinu, en Guömundur stóö sig vel og greip oft skemmtilega inn i leikinn. Ef fyrri hálfleikur var tíöindalítill, þá má segja aö sá síöari hafi veriö Þróttur — ÍA 0—0 tíöindalaus. Aöeins tvö umtalsverö færi litu dagsins Ijós og fékk hvort lið eitt. Páll átti gott skot rétt fram- hjá og á síöustu mínútu leiksins fékk Júlíus, sem kom inn á sem varamaö- ur, gulliö tækifæri til aö gera út um leikinn, en þaö mistókst og jafntefli varö staðreynd. Aö leik loknum var Akurnesingum afhentur Islandsmeistarabikarinn til varöveislu næsta áriö og einnig barst þeim mikiö af blómum frá mörgum aöilum. Þaö mátti þó vart á milli sjá, hvorir voru ánægöari, Þróttur eöa ÍA. Þróttarar fögnuöu mikiö eftir aö leikurinn haföi veriö flautaöur af, því þeir tryggöu sér rétt til áframhaldandi setu f deildinni meö þessu jafntefli. ÞRÓTTUR: Guömundur Erlendsson 6, Arnar Friðriksson 5, Kristján Jónsson 6, Jóhann Hreiöarsson 6, Ársæll Kristjánsson 7, Ásgeir Elías- son 7, Júlíus Júlíusson 5, Páll Ólafs- son 6, Daöi Haröarson 6, Sverrir Pétursson 5, Þorvaldur Þorvaldsson 6. ÍA: Bjarni Sigurösson 6, Guöjón Þórðarson 6, Jón Áskelsson 6, Slg- uröur Lárusson 6, Siguröur Hall- dórsson 6, Höröur Jóhannesson 7, Sveinbjörn Hákonarson 5, Guöbjörn T^yagvason 6, Slgþór Ómarsson 5, Siguröur Jónsson 7, Árni Sveinsson 6, Ólafur Þóröarson (vm) 5, Júlíus Ingólfsson (vm) lék of stutt. I STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 1. deild. Þróttur — ÍA 0—0. GUL SPJÖLD: Daði Harðarson, Þrótti, og þeir Jón Áskelsson og Siguröur Halldórsson úr (A. DOMARI: Magnús Theodórsson og var hann slakur. ÁHORFENDUR: 864. — SUS jafntefli við Skagamenn Einkunnagjöfin: • Algeng sjón í leik Þróttar og ÍA á sunnudag. Margir Þróttarar eru til varnar á móti einum Skagamanni. Siguröur Lárusson reynir skalla aö marki, en til varnar eru Ásgeir Elíasson, Jóhann Hreiöarsson og Ársæll Kristjánsson. MorgunbiaAM/ FrMþiótur • Siguröur Lárusson, fyrirliöi ÍA, tekur viö íslandsbikarnum úr hendi Árna Þorgrímssonar, varaformanns KSÍ. Lengst til vinstri má sjá fram- kvæmdastjóra KSÍ, Pál Júlíusson. MorgunblaOió/ Friðþjótur Gula spjaldið sjö sinnum á lofti — er Pór og UBK gerðu jafntefli „ÉG ER ákaflega stoltur af strák- unum. Þeir hafa staöiö sig vel ( sumar. Auövitaö heföi maöur vilj- aö sigur en þaö er ekki hægt aö fara fram á allt,“ sagöi Björn Árnason, þjálfari Þórs á Akureyri, eftir jafntefliö viö Breiöablik á Akureyri á laugardag. Leikurinn endaði 2:2 og var þetta einn mesti baráttuleikur sumarsins. Mikiö var í húfi fyrir bæði lið þar sem var möguleiki á Evrópusæti og var ekkert gefiö eftir frá fyrstu mínútu til hinnar síöustu. Hákon átti þrumuskot framhjá Þórsmarkinu strax á fyrstu mínút- unni, en Þórsarar náöu forystu fljótlega. Fyrsta markiö kom á 8. mín. og var þaö stórglæsilegt. Heigi Bentsson fékk knöttinn viö vítateiginn og gaf hann strax út til hliöar með hælnum til Halldórs Askelssonar. Halldór sendi viö- stööulaust fyrir markið þar sem Guöjón Guömundsson stökk upp og skallaöi í fallegum boga yfir Guömund og í fjærhorn marksins. Blikarnir jöfnuöu á 15. mín. úr vægast sagt vafasamri vítaspyrnu. Árni Stefánsson og Sigurjón Krist- jánsson eltu boltann (teignum og náöi Árni aö sparka í horn. Sigur- jón féll viö, eftir aö Árni haföi spyrnt, og dæmdi Óli Ólsen um- svifalaust vítaspyrnu. Furöulegur dómur. Siguröi Grétarssyni uröu ekki á nein mistök f vítaspyrnunni. Staöan orðin 1:1 eftir kortér. Liöin náöu ágætum leikköflum úti á vellinum en ekki var mikiö um færi, utan einu sinni er Guöjón átti skot framhjþa Blikamarkinu eftir snjallan undirbúning Jónasar Rób- ertssonar. Eftir hálftíma leik kom- ust svo Blikarnir yfir. Eftir auka- spyrnu fékk Jóhann Grétarsson fyrir innan Þórsvörnina — og er vægt til oröa tekiö þegar sagt er aö rangstööufnykur hafi veriö af því atviki. Eftir aö hafa haft góöan tíma til aö athafna sig, þar sem 2: Þórsvörnin var mjög sofandi, skor- aöi Jóhann af stuttu færi. Þarna svaf línuvöröurinn illa á veröinum. Aöeins tveimur mín. eftir aö Jó- hann skoraði voru Þórsarar heppnir aö fá ekki á sig þriöja markiö. Trausti Ómarsson fékk boltann um 30 m frá marki og hugsaöi sig ekki tvisvar um áöur en hann skaut. Þorsteinn fleygöi sér í horniö en boltinn small í stönginni innanveröri og skaust þaöan þvert fyrir markiö þar sem varnarmaður náöi honum. Á síöustu mín. hálfleiksins fékk Bjarni Sveinbjörnsson gott færi er hann komst inn fyrir vörnina eftir sendingu Halldórs en Guömundur kom út á móti og bjargaöi mjög Magnús Jónatansson: „Grátlegt“ „NÚ LÉKUM viö sem ein heild — en ein mistök geta jafnvel kostað okkur Evrópueæti,“ sagöi Magn- ús Jónatansson, þjálfari Breiöa- bliks, eftir leikinn viö Þór. „Þaö var því grátlegt aö þeir skyldu jafna meö þessum hætti, þvi ég var alveg öruggur á aö vlö ynnum þennan leik þó viö heföum dregiö okkur aöeins til baka. Ef viö heföum unniö þennan leik og svo leikinn viö ÍBV heföum vlö lent í 2. sæti í deildinni.“ SH. Þór UBK vel. Töluverö harka var í leiknum strax frá byrjun og hafði Óli Ólsen, dómari, ekki nógu góö tök á hon- um. I seinni hálfleik var afskaplega lítiö um færi, og eítt af fáum minn- isveröum atriöum er þegar Þórsar- ar fengu dæmda vítaspyrnu. Þaö er líka atvik sem ekki gleymist í bráö. Þórsarar höfðu pressaö Guömund markvörö nokkuö stíft í leiknum er hann fékk boltann, og á 70. mín. var dæmd á hann víta- spyrna. Knötturinn kom skoppandi til Guðmundar í markteiginn og Guöjón Guömundsson fyldi á eftir. Hann stóö í sakleysi sínu fyrlr framan Guðmund sem geröi sér þá lítið fyrir og rak annaö hnéö af krafti í maga Guöjóns. Óli dæmdi aö sjálfsögöu vítaspyrnu án þess aö hika og sýndi Guömundi gula spjaldið. Var Guðmundur heppinn aö vera ekki rekinn út af. Guöjón skoraöi svo sjálfur úr vítinu. Bæöi liöin hafa oft leikiö betur en aö þessu sinni, mikiö var nú í húfi og sat harkan og baráttan í fyrirrúmi. Sjö sinnum sýndi dómar- inn gula spjaldið — fimm Blikum og tveimur Þórsurum. I stuttu máli: Akureyrarvöllur, 1. deild. Þór—UBK 2:2 (1:2) Mörk Þórs: Guöjón Guómundsson á 8. oq 70. min. Mörk UBK: Siguröur Grétarsson á 15. mín. og Jóhann Grétarsson á 30. mín. Gul spjöld: Sigurjón Krlstjánsson, Ólafur Björnsson, Jón G. Bergs, Guómundur Ás- geirsson og Vignir Baldursson, allír Breiöa- bliki, Ðjarni Sveinbjörnsson og Helgi Bents- son, Þór. Einkunnagjöfin: Þór. Þorsteinn Ólafsson 6, Sigurbjörn Viöarsson 6, Jónas Róbertsson 7, Nói Björnsson 6, Þórarinn Johannesson 6. Ámi Stefánsson 6, Halldór Áskelsson 6, Guó- jón Guömundsson 6, Óskar Gunnarsson 5, Bjarni Sveinbjörnsson 5, Helgi Bentsson 6. UBK: Guómundur Asgeirsson 6, Benedikt Guömundsson 6, Ómar Rafnsson 6, Jón G. Bergs 6, Ólafur Björnsson 6, Vignir Baldurs- son 6, Trausti Ómarsson 5, Jóhann Grétars- son 6, Siguröur Grétarsson 7, Hákon Gunn- arsson 6, Sigurjón Kristjánsson 6, Heiöar Heiöarsson (vm) lék of stutt. __ Morgunblaöiö/Skapti • Gula spjaldiö á lofti í eitt af þeim sjö skiptum sem Óli Ólsen sýndi það á Akureyri á laugardag. Hór fær Guðmundur Blikamarkvörður Asgeirsson aö sjá spjaldiö fyrir viöbjóðslegt brot sitt á Guöjóni Guðmunds- syni, sem liggur á vellinum. Guðmundur var heppinn aö vera ekki rekinn út af fyrir brotið. Mikil harka var í leiknum og fengu sjö leikmenn áminningu — fimm Blikar og tveir Þórsarar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.