Morgunblaðið - 13.09.1983, Side 47

Morgunblaðið - 13.09.1983, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983 47 Fjölmenni á friðar- samkomum ÞESSAR nivndir eru frá þeim tveim- ur friðarhátíðum sem haldnar voru um helgina, „Við krefjumst friðar" í I^ugardalshöll og „Lífið er þess virði" í Þjóðleikhúsinu. í Laugardalshöllinni var margt um manninn, enda uppselt á tón- leikana þar, en slíkt hefur ekki gerst í langan tíma. Ýmsar hljómsveitir og söngvarar komu fram, m.a. Megas, Ikarus, breska hljómsveitin Crass og Bubbi Morthens, sem sést hér syngja af innlifun. Þá var leikhópurinn Svart og sykurlaust með margvíslegar uppákomur og leikþætti sem kalla má, en öll vinna varðandi tónleik- ana var unnin í sjálfboðavinnu. Tókst hátíðin vel, nema hvað nokk- uð bar á ölvun meðal unglinga og voru skemmdir unnar á bilum fyrir utan Höllina, t.d. var eyðilagður bíll sem Svart og sykurlaust notaði í einni uppákomunni. Var því fá- mennur hópur til að skyggja á ann- ars vel heppnaða friðarhátíð. f Þjóðleikhúsinu var á sunnudag friðarsamkoman „Lífið er þess virði“ og var þar fjölmenni. Ýmsir gestir fluttu ávörp og skemmtiat- riði, m.a. Halldór Laxness skáld og Pétur Gunnarsson rithðfundur auk sérlegra gesta skemmtunarinnar, þeirra Dan Smith, formanns frið- arhreyfinga í Evrópu, Arja Sail- ojanmaa, sem er félagi I alþjóða friðarsamtökum listamanna, og Christine Cassel, stjórnarmanns í samtökum bandarískra lækna sem berjast gegn kjarnorkuvígbúnaði. Þau þrjú fluttu einnig ávörp í Laugardalshöllinni. Á myndinni frá Þjóðleikhúsinu sést Karl Ágúst Olfsson ávarpa gesti. er ekki tími til kominn, aö þú gerist áskrifandi? líf er svolítiö ööruvísi TlZKUBLAÐ — FASHION MAGAZINE ARMULA 18 105 REYKJAVIK SIMI 82300 Peugeot bjóöa nú fyrstir allra á islandi 6 ára ryðvarnar- ábyrgö á allar gerðir bíla sem þeir framleiða. Til að hindra ryðmyndun þá fara bilarnir í gegnum 10 þrepa meðferð á mismunandi framleiðslustigum Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum, sem gerir bílana ákjósan- lega í akstri á vondum vegum. Bílarnir eru bæði framhjóla- og afturhjóladrifnir. Frönsk smekkvísi hvar sem litið er á bílana. HAFRAFELL VAGNHÖFÐA7o 85-2-11 i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.