Morgunblaðið - 14.09.1983, Síða 25

Morgunblaðið - 14.09.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983 25 Naglasúpa — eftir dr. Pétur H. Blöndal Öll þekkjum við söguna um naglaspúpuna, þar sem töframað- urinn sauð súpu eina ágæta af nagla einum saman. En við vorum heldur ekki orðin gömul, þegar við sáum í gegnum galdrana og upp- götvuðum, að sá sem þakkaði fyrir súpuna hafði í raun lagt allt efni til hennar sjálfur. Því kemur mér þessi dæmisaga í hug, að nú er aftur farið að sjóða naglasúpur út um allan bæ. Um eina slíka ætla ég að ræða í dag. Hrærir töframaðurinn í þeirri súpu nú hið ákafasta svo sletturn- ar ganga yfir og húsbyggjendur, útgerð og önnur fyrirtæki horfa á með aðdáun, von og eftirvæntingu í augunum. í kjötkatlinum kraum- ar fjármagn það sem lána skal út og virðist eiga að koma úr engu. Meistarinn ætlar að bragðbæta súpuna og biður um ögn af geng- ismunasjóði, óveru í skerðingu frá •sparifjáreigendum og pinulitla sneið úr hinni ótæmandi hít líf- eyrissjóðanna, svo sem eins og 45%. (Fyrri meistarar fengu 40%). Bara til þess að bæta bragð- ið, eins og hann segir. Og útgerðin lofar meistarann, lántakendur hjá húsnæðismálastjórn hrópa húrra yfir gæðum súpunnar. Allt virðist komið í himnalag. En ein og ein rödd hefur þó heyrst frá útgerðinni um að þetta séu jú þeirra peningar og ekkert beri að þakka, og sumir sjóðfélag- ar lífeyrissjóðanna eru dálítð hissa á því að lánið, sem þeir fá frá sjóðnum sínum hefur sjaldan verið lélegra og ónýtara til bygg- inga en í dag. Hlutlaus könnun sem gerð hefur verið á notkun líf- eyrissjóðslána, sýnir að megin- hluti lánanna (yfir 90%) rennur til öflunar eða viðhalds íbúðar- húsnæðis, enda er önnur notkun þeirra lána ákaflega óviturleg eft- ir að verðtryggingin var tekin upp. Þar sem allir launþegar og sjálf- stæðir atvinnurekendur eru í líf- eyrissjóði og eiga því rétt á lífeyrissjóðsláni breytir það nán- ast engu fyrir hinn almenna hús- byggjanda hvort hann verður að sækja (og þakka fyrir) peningana hjá húsnæðismálastjorn eða fá þá lánaða hjá sínum lífeyrissjóði. Féð vex ekkert við það að hrært er í pottinum. Það rýrnar heldur við gusuganginn. (Rekstrarkostnaður hinna aðskiljanlegu sjóða.) En hvaðan væri hægt að fá þá kjötbita, sem raunverulega bættu bragðið af súpunni og ykju hana að því marki, að hinir ungu lán- takendur gætu lifað mannsæm- andi lífi og fyrirtækin þyrftu ekki að eyða öllum sínum kröftum í að betla út peninga en gætu snúið sér að raunverulegri stjórnun og hag- ræðingu? Þessari spurningu hafa afar okkar og ömmur svarað fyrir löngu. Bóndanum datt ekki í hug að rollurnar lifðu hótinu lengur þó að hann færði heyið til í garðan- um, og húsfreyjan vissi engin töfrabrögð sem bættu upp mat- arskort í búrinu. Það eina sem gilti var að treina matinn og setja ekki of margt fé á. Við íslendingar verðum að reyna með öllum ráð- um að örva sparnað og fá heila kynslóð, sem hefur greinilega óbeit á sparnaði vegna illrar reynslu, til þess að fara nú að spara. Það verður að auka tiltrú þessa fólks á því að sparað fé verði greitt til baka og að það sé sjálfs- agt öryggisatriði fyrir hvern mann að eiga minnst 6 mánaða laun upp á að hlaupa. Það þarf að kenna unga fólkinu að spara upp í væntanleg fasteignakaup til þess að létta þá byrði. Sem þátt í þess- ari auknu tiltrú geta komið til skattaívilnanir, hærri vextir og sú sjálfsagða mannþekking að láta sér ekki detta í hug að skerða sparifé, fyrr en mönnum þykir það vera orðið of mikið. Og ef menn geta ekki látið vera að hugsa um eina litla indæla skerðingu spari- Dr. Pétur Blöndal „Við íslendingar verðum að reyna með öllum ráð- um að örva sparnað og fá heila kynslóð, sem hefur greinilega óbeit á sparnaði vegna illrar reynslu, til þess að fara nú að spara. Það verður að auka tiltrú þessa fólks á því að spar- að fé verði greitt til baka og að það sé sjálfsagt ör- yggisatriði fyrir hvern mann að eiga minnst 6 mánaða laun upp á að hlaupa.“ fjár, þá ættu þeir að geyma þá hugsun fyrir sjálfa sig og segja engum frá. Það er síst til fallið að auka tiltrú sparifjáreigenda að hrópa yfir borg og bý að nú eigi að hirða af þeim aurana. Skuldir okkar íslendinga er- lendis eru orðnar feiknaháar og valda mörgum mætum manni áhyggjum. Hversu lengi getum við látið erlenda menn fjármagna eyðslu okkar og bruðl? Hvenær segja þeir hingað og ekki lengra og fara að setja okkur afarkosti? Hræddur er ég um að frelsishetj- um okkar þætti illa farið með frelsið, ef því er glatað fyrir glaum og gleði. Það gildir nefni- lega það sama fyrir þjóðfélagið í heild og hvern einstakling, að sá sem skuldar, er ekki fullkomlega frjáls. Og við sem þjóð getum ekki minnkað okkar skuldir erlendis nema með því að skera niður neyslu okkar, spara, hver um sig eins og hann hefur getu til. Dr. Pétur H. Blöndal er stærdfræd- ingur og framkvæmdastjóri Lífeyr- issjóðs rerzlunarmanna. Vinsælustu bíltæki í heimi rnm.i-. C - ■ "f * # t'. ■»» mr t* r% * KP4230 útvarpskassettutæki. FM/MW/LW. PNS truflanaeyðir. Spilar báðum megin. ATSC öryggiskerfi „Loudness” 6,5w. Verðkr. 8.470. KP3230 útvarpskassettutæki. Sambyggt, FM/AM/LW. Hraðspólun í báðar áttir. Sjálf- virk endurspilun. Verðkr. 7.110. KE430Ö útvarpskassettutæki. FM/MW/LW. Fast stöðvaval. ARC kerfi stjórnar móttöku- styrk. Spilar báðum megin. „Loudness”. 6,5 w.Verðkr. 12.230. KE7800 útvarpskassettutæki. FM/MW/LW. Fast stöðvaval. Lagaleitari. Spilar báðum megin. ATSC öryggiskerfi. „Loudness”. 6,5 w. Verðkr. 10.510. BP320 kraf tmagnari 2 x 20 w. Verðkr. 2.300. BP720 sambyggður kraftmagnari og tónjafn- ari. 60—10.000 Hz. 20 w. „Echo”. Verðkr. 7.290. Kox 33. „Component" útvarpskasaettutaakl FM/MW/LW 15 fastar stillingar ..Dolby, Metal, Chrome" lagaleitari. „Loudness" Tveirtónstillitakkar stjórnar sjálfvirkum loftneti ofl. Kr. 13.795. GM120 „Component”. 2x60 w magnari. 30—30.000 Hz. Bjögun 0,4%. Verð kr. 6.280. TS-106 hátalarar, innfelldir, 20 w. Passa í flestar gerðir bif- reiða. Verö kr. 880. Ts162 Dx Niðurfelldir. tvofaldir 40 — 20 000 Hz 20w Kr. 990 KP313G „Component”. „Metal Dolby” kassettutæki. Tveir tónstillitakkar. „Loudness”. Sjálfvirkur lagaleitari. Verðkr. 8.720. -ssr itr -ar -ar X&L I '3 ‘ GEX 63 útvarpskassettutæki. FM/AM/LW. Tölvustýrður móttakari. Fast stöðvaval. APC móttökustyrksjafnari. Verðkr. 11. TSM 2 hátíðnihátalarar, still- anlegir. Má líma á mælaborð. 450—20.000 Hz. 20 w. Verð kr. 930. TS 2000 hátalarar „Cross- Axial”, þrefaldir. Niðurfelldir. 30—21.000 Hz. 60 w. Verðkr. 4.110. GM4 „Component”. 2x20 w magnari. 30—30.000 Hz. Bjögun 0,06%. Verðkr. 2.780. L i . Li J i i 1 i iii i i i CD 5 tónjafnari, 7 banda. Jafn- vægisstillir á 2 magnara og 4 hátalara. 60—10.000 Hz. Verðkr. 4.790. TS1644 hátalarar, niðurfelldir, tvöfaldir, „Coaxial”. Sérstak- lega þunnir (4 sm). 20—20.000 Hz. 25 w. Verðkr. 1.810. TS 202 hátalarar, innfelldir, tvöfaldir 20-20.000 Hz. 60 w. Verðkr. 3.570. HLJÐMBÆR uarua HVERFISGOTU 103 HUOM'HEIMILIS'SKRIFSTOFUTÆKI SÍMI 25999

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.