Morgunblaðið - 14.09.1983, Side 27

Morgunblaðið - 14.09.1983, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983 27 Ferðamálin gefa ís- lendingum mikið fé - segir Ludvig Hjálmtýsson ferðamálastjóri í spjalli við Mbl. „ÞAÐ ER AÐ verda að staöreynd sem spáð var, að fjöldi ferðamanna til Islands mundi aukast um 7% á árinu 1983 frá árinu þar á undan. Munar þar mestu um hlut ferjanna tveggja, Eddu og Norröna. Og það er enginn vafi á því aö ferðamálin og ferðamannaþjónustan eru farin að gefa okkur íslend- ingum mikið fé,“ sagði Ludvig Hjálmtýsson, ferðamálastjóri, í spjalli við Mbl. nýlega. Sagði Ludvig að tekjur íslendinga af erlendum ferðamönnum hefðu aukist um 15% á milli áranna 1981 og 1982. Námu tekjurnar, beinar sem óbeinar 655,5 milljónum króna árið 1982, en voru 569,6 milljónir króna 1981. Hér er um rauntölur að ræða, sem miðaðar eru við miðgengi þessa árs. Á árinu 1982 komu til Islands 82.039 erlendir ferðamenn. Þar af komu 83,2% með flugvélum, 5,3% með skipum í áætlunarferðum (Smyrli) og 11,5% með skemmti- ferðaskipum sem hafa hér skamma viðdvöl. „Þetta er tölu- verður fjöldi," sagði Ludvig, „en við verðum að hafa það í huga að ferðamannaþjónustan er orðin þriðja stærsta atvinnugreinin í heiminum, að umsetningu, næst á eftir stáli og olíu. Þetta helst í hendur við aukna velmegun, fólk hefur orðið meiri peninga og tíma til að ferðast. Þess vegna er það mikilvægt fyrir okkur að hlúa vel að ferðamannaþjónustunni sem atvinnugrein, því það er hún, ásamt iðnaðinum, sem kemur til með að taka við flestum vinnandi höndum í framtiðin ni. En hitt er annað nál að við upp- byggingu ferðamai.i aþjónustunn- ar eigum við ekki aðe-'ns að hugsa um útlendingana. Við verðum að muna eftir okkur sjálfum, íslend- ingum, sem ferðamönnum í eigin landi. Og hlutverk Ferðamálaráðs er ekki einvörðungu það að vera landkynningaraðili, heldur heyrir það undir okkur líka að sjá um lagfæringar og uppbyggingu á fjölsóttum ferðamannastöðum á landinu sjálfu. Og á þessu ári hef- ur verið gert geysilegt átak í þeim málum. Samkvæmt fjárhagsáætl- un Ferðamálaráðs fyrir yfirstand- andi ár verður varið 2,2 milljónum króna til umhverfismála og endur- bóta á ferðamannastöðum víðs vegar á landinu. Þetta er meira fjármagn en nokkru sinni hefur verið varið til þessara verkefna, og er mörgum verkefnum þegar lok- ið. Mig langar til að nefna nokkur. Stærsta verkefnið var bygging á vatnssnyrtihúsi í Herðubreiðar- lindum og kaup á sorpbrennslu- ofni. Og víða annars staðar hafa verið sett upp salerni og sorp- brennsluofnar, á Hornströndum, við Landmannalaugar, Dettifoss og Flatey á Breiðafirði. í Flatey hefur elnnig verið gert tjaldstæði. I Mývatnssveit var haldið áfram göngustígagerð í Dimmuborgum, en það verk hófst á síðasta ári og ætti það að verða til þess að vernda þetta einstæða náttúru- undur, jafnframt því að auðvelda ferðafólki að skoða sig um. Einnig var samþykkt að setja upp upplýs- inga- og aðvörunarskilti í Náma- skarði. Ýmislegt fleira má nefna um starfsemi Ferðamálaráðs á árinu. Til dæmis hefur Ferðamálaráð í Ludvig Hjílmtýsson ferðamálastjóri. samvinnu við fleiri aðila í sumar rekið upplýsingaskrifstofu í ferj- unum báðum, Eddu og Norröna, þar sem gefnar eru upplýsingar um færð vega, náttúruverndun, ferðamöguleika og fleira. Þá er rétt að geta þess að Birgir Þorgils- son, markaðsstjóri, hefur unnið að því síðastliðið ár að koma upp í fjórðungnum ferðamálanefndum, og hafa Samtök sveitarfélaga í Suðurlandskjördæmi ráðið sér ferðamálafulltrúa. Einnig var ný- lega stofnuð i Reykjavík ferða- málanefnd, sem þegar hefur tekið til óspilltra málanna, eins og sjá má meðal annars af stórbættum merkingum á götum borgarinnar," sagði Ludvig Hjálmtýsson að lok- um. Samm Sinclair Baker: ekki rétt leið að hóta fólki öllu illu. Mbl / f'rlftbi6fur verið stoltur af henni sem dóttur minni. Mér var hinsvegar aldrei um Jean Harris gefið. Ég hitti hans fyrst skömmu eftir að sam- vinna okkar Hi’s (eins og vinir kölluðu lækninn) hófst. Þá vorum við hjónin boðin í mat heim til hans í Scarsdale. Þar í einum enda stofunnar stóðu þrjár konur sem ég þekkti ekki og ræddu kennslu- og uppeldismál. Ég blandaði mér I hópinn og þá hætti frú Harris að tala í miðri setningu og sagði eitthvað á þá leið að hún skyldi ekkert í dr. Tarnower að vera að skrifa megr- unarbók. Það væri fyrir neðan hans virðingu. Mér fannst þetta ósmekklegt og hrokafullt, svo ég dró mig fljótlega út úr hópnum. Allt í sambandi við þá konu fannst mér síðan á sömu bókina lært og ég forðaðist hana ævin- lega eftir þetta." Næsta bók Bakers kemur út í nóvember, eins og áður er getið. Þá bók skrifaði hann i félagi við konu að nafni Sylvia Schur, sem telst til meiri spámanna í mat- reiðslubransanum vestanhafs. „Henni þótti mjög spennandi að heyra að ég væri að fara til ís- lands," sagði Baker í lok spjalls okkar. „Hún segir að á íslandi sé að finna einhverjar bestu mat- vörur í heimi — en að íslendinga skorti þekkingu til að koma þeim á framfæri úti í hinum stóra heimi. Og ég held að hún viti hvað hún er að segja, því Nýsjá- lendingar réðu hana sem „ráð- gjafa“ við að koma tambakjötinu sínu á markað í Bandaríkjunum og þar selst það grimnjt núna.“ -ÓV. eeuPp’ 1H 838^ 23^ r, Dalc . Lamegie námskeiðið Kynningarfundur Kynningarfundur veröur haldinn fimmtudaginn 15. september kl. 20.30 að Síöumúla 35, uppi. Allir velkomnir. ★ Námskeiöiö getur hjálpaö þér aö: ★ Öölast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST. ★ Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og staö- reyndir. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfæringarkrafti í samræöum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU. ★ Talið er aö 85% af VELGENGNI þinni séu komin undir því, hvernig þér tekst aö umgangast aöra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustaö. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíða. Fjárfesting í menntun gefur þér arö æfi- langt. Innritun og upplýsingar í síma 82411 Einkaleyfi á íslandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson Höfóar til . fólks í öllum starfsgreinum! í pliórguttM&foifo

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.