Morgunblaðið - 14.09.1983, Side 28

Morgunblaðið - 14.09.1983, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983 + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi, HINRIK ELBERGSSON, Hjallabraut 35, Hafnarfiröi, andaöist í Landspítalanum 12. september. Ragnheiður Ásgeirsdóttír, Ágúsfa Hinriksdóttir, Ragnheiöur Berg, Ása Hinriksdóttir, bór Hinriksson. Maöurinn minn, faöir okkar, stjúpfaöir, tengdafaöir og afi, BRAGI JÓNSSON, Skipasundi 3, lést 11. september. Útförin auglýst síðar. Gíslína Árnadóttir, Þórunn Bragadóttir, Halldór Stefánsson, Jónas Bragason, Kristín Björnsdóttir, Viöar Björnsson, Sigurjón Björnsson og barnabörn. + Sonur okkar og bróöir, HALLGRÍMUR PÉTURSSON, andaöist á heimili sínu 20. ágúst. Jaröarförin hefur fariö fram. Fyrir hönd vandamanna, Pótur Ragnarsson, Guöríóur B. Gunnarsdóttir og börn. + Faöir minn, ÞORGÍMUR ÞORSTEINSSON, Drumboddsstööum, andaöist í sjúkrahúsi Selfoss þann 24. ágúst. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Ormar Þorgrímsson. + Dóttir okkar, ÞORBJÖRG ANDRÉSDÓTTIR, andaóist í svefni 10. september. Útför ákveöin föstudaglnn 16. september kl. 13.30 frá Dómkirkj- unni. Þeim sem vilju mlnnast hennar er bent á iþróttafélag fatlaöra, co. Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra. Þorbjörg Pálsdóttir, Andrós Ásmundsson. + Útför fööur okkar, afa og langafa, GUÐJÓNS BJARNASONAR, múrarameistara, Lógabergi 4, fyrrverandi söngstjóra barnakórsins Sólskinsdeildarinnar, fer fram frá Fossvogskapellu, flmmtudaglnn 15. september kl. 3.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeir sem vilja minnast hans láti Krabbameinsfélag islands njóta þess. Börn, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför móöur minnar og ömmu, INGIBJARGAR GUDMUNDSÓTTUR, Snorrabraut 33, veröur gerö frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. september kl. 10.30 f.h. Gunnar Hvammdal Sigurösson og daetur. + Innilegar þakkir fœrum viö öllum, sem vottuöu okkur hluttekningu og vinarhug við andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, RAGNHEIÐAR LÝÐSDÓTTUR, Kirkjubóli, Strandasýslu. Grímur Benediktsson, Kristjana Ingólfsdóttir. Siguröur Benediktsson, Sigrún Valdimarsdóttir, Lýóur Benediktsson, Helga Valdimarsdóttir, Rósa Benediktsdóttir og barnabörn. Eiríkur Kristinsson flugumferðarstjóri Fteddur 25. maí 1941 Dáinn 4. sepL 1983 Við Eiríkur Kristinsson kvödd- umst á Þingvöllum þann 5. sept- ember sl. Hann hvarf af fundi okkar til að takast á við heillandi verkefni, þá krefjandi þolraun að byggja upp nýtt fyrirtæki. En eng- inn má sköpum renna, aðeins um stundu síðar var Eiríkur allur. í september í fyrra auglýsti Samstarfsnefnd um iðnráðgjöf í landshlutum eftir fólki með hugmyndir um að setja á stofn smáfyrirtæki, eða sem vildi þróa nýjungar í þegar starfandi fyrir- tækjum. Fundum okkar Eiríks heitins bar fyrst saman þegar hann svar- aði þessu kalli. A einu ári hittust þátttakendur og leiðbeinendur á fjórum þriggja daga vinnufund- um, þar sem unnið var að upp- byggingu fyrirtækja. Á fundunum og milli þeirra var krafist mikillar vinnu af þátttakendum. Þeir kynntu hugmyndir sínar hver fyrir öðrum, þær voru brotnar til mergjar, gagnrýndar, þeim breytt með tilliti til nýrra upplýsinga og settar fram áætlanir um að hrinda þeim í framkvæmd. Það leiddi af tilhögun verkefnis- ins að kynni okkar sem að því unnum urðu mjög náin. Það er nú einu sinni svo að eiginleikar manna koma oft best í ljós þegar á reynir. Eiríkur var allan tímann kappsamur og vann allt frá upp- hafi til loka verkefnisins mjög gott starf. Við lok verkefnisins var haldinn blaðamannafundur og komu þar fram þeir sem tilbúnir voru að kynna fyrirtæki sín. Eiríkur var einn þeirra. Kynning hans var með þeim hressileika sem honum var lagið. Þar fór maður sem horfði á árangur starfs sem unnið var af dugnaði og þrautseigju, maður sem horfði björtum augum fram á veginn. Það hvarflaði ekki að okkur sem hlýddum á mál hans, að á leiðinni heim ætti hann eftir að hitta manninn með ljáinn. Fyrir hönd þeirra sem stóðu að smáiðnaðarverkefninu vil ég votta eiginkonu, börnum og öðrum að- standendum hins látna okkar dýpstu samúð, um leið og við kveðjum góðan dreng og félaga og þökkum honum góð, en alltof stutt kynni. Halldór Árnason Undarlegt er það hve dauðinn kemur alltaf jafn mikið á óvart. Undarlegt fyrir þá sök að hann er það eina sem allir ganga að sem vísu. Undarlegt fyrir þá sök að nálægð hans og háskinn sem hon- um fylgir gerir lífið að því ævin- týri sem það er, öllu öðru dýrmæt- ara. En skyndilega er öllu lokið. Dauðinn hefur kvatt dyra með lamandi ógn. Héðan af verður engu breytt, ekkert sem betur mátti fara lagfært, ekkert endur- tekið. Það getur tekið langan tíma að trúa því ótrúlega, og það er erfitt að trúa því að hann Eiríkur Krist- insson, mágur minn, skuli fallinn frá langt um aldur fram. Hann Eiríkur, sem var svo fullur af óbil- andi lífsorku og krafti. Hann Ei- ríkur sem ég hitti fyrir nokkrum dögum með skjalatöskuna fulla af skjölum og pappírum, framtíðar- áformum varðandi fyrirtækið nýja sem hann og Axel, sonur hans, höfðu komið á fót. Hann var að fara á ráðstefnu á Valhölll á Þingvöllum, þar sem þátttakendur í iðnaðarátaki ætl- uðu að bera saman bækur sínar. Árs undirbúningur var að baki, framleiðslan komin í fullan gang og brautin framundan blasti við greið. Hann sýndi mér yfirlit yfir stöðu mála, og framleiðsluáætlan- ir fyrirtækisins með stolti og gleði þess sem unnið hefur að settu marki af alúð, og sér fram á drauma sína rætast. + Útför GUNNARS E. GUÐMUNDSSONAR, málara, Bræöraborgarstíg 53, fer fram frá Fossvogsklrkju flmmtudaglnn 15. september kl. 13.30. Systkini hins litna. Bridge Arnór Ragnarsson Bridgefélag kvenna Aðalfundur félagsins var haldinn sl. mánudag i Domus Medica. Ingunn Hoffman sem verið hefir formaður sl. sex ár lét af störfum og var Sigrún Pétursdóttir kjörin í hennar stað. Valgerður Kristjánsdóttir var kosin ritari og Gerður ísberg gjaldkeri. Þriggja kvölda tvímenningur hefst á mánudaginn kemur, 19. september. Verður fyrsta kvöld- ið spilað í Hótel Heklu en annars verður spilað öll kvöld í Domus Medica eins og undanfarin ár. Keppnin hefst kl. 19.30. Konur eru beðnar að tilkynna þátttöku sem allra fyrst í síma 81889 eða 43474. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgenson. Tafl- og bridge- klúbburinn Starfsemi TBK hefst í vetur með einskvölda tvímenningi, fimmtudaginn 15. september. Spilað verður í Domus Medica og hefst spilamennskan kl. 19.30. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgenson. Dagskrá vetrarins verður nán- ar auglýst seinna. Mætum öll á fyrsta spilakvöldið. Allir vel- komnir. Bridgefélag Kópavogs Vetrarstarfsemi BK hefst fimmtudaginn 15. september. Spilað er í Þinghóli við Hamra- borg og hefjast spilakvöld kl. 20.00, stundvíslega. Spilaáætlun fram að áramótum er eftirfar- andi: 15.09. Eins kvölda tvímenningur. 22.09. Eins kvölda tvímenningur. 22.09.—20.10. Aðaltvímenningur BK. 27.10.—17./24.11. Hraðsveita- keppni. 08.12.—15.12. Jólatvímenningur. Bridgedeild Breiðfirðinga Vetrarspilamennska deildar- innar hefst næstkomandi fimmtudagskvöld þann 15. sept- ember kl. 19.30 í Hreyfilshúsinu, með tvímenningskeppni. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Keppnisstjóri verður Guðmund- ur Hermannsson. Bridgefélag Hafnarfjarðar Vetrarstarf Bridgefélags Hafnarfjarðar hefst mánudag- inn 19. september. Byrjað verður á léttri upphitun, t.d. eins kvölda tvímenningum en fljótlega hefst svo aðaltvímenningurinn. Að venju er byrjað stundvíslega kl. hálf átta í íþróttahúsinu við Strandgötu. Ég mun ekki í þessum fátæk- legu kveðjuorðum rekja lífshlaup Eiríks Kristinssonar. Hann lifði í vissum skilningi hraðar en flestir aðrir. Hinn ótrúlegi lífskraftur hans birtist allsstaðar hvort held- ur hann var að byggja yfir sig hús, skemmta sér, eða stofnsetja nýtt fyrirtæki. Þegar hratt er lifað verður háskinn samfara lífinu meiri. Það var engin tilviljun að Eiríkur Kristinsson varð fyrstur allra íslendinga til þess að læra fallhlífarstökk. Hann þurfti engan umhugsunartíma þegar Flug- björgunarsveitinni bauðst að senda mann utan til þess að læra fallhlífarstökk og afla sér kennsluréttinda. Hann sló strax til og um árabil þjálfaði hann fé- laga í Flugbjörgunarsveitinni, sveif um loftin blá og sýndi fall- hlífarstökk meðan vinir og vanda- menn stóðu skjalfandi beinum á fósturjörðinni. Eiríkur Kristinsson var ekki fullkominn frekar en við hin, en það sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann af slíkum krafti og vandvirkni að til var tekið. Nú þegar ekkert fær haggað þeirri staðreynd að tveggja ára- tuga kynni eru á enda runnin er ekki annað eftir en að þakka fyrir allt hið gamla og góða og biðja þeirrar blessunar er hinn eilífi friður einn veitir. Halldór Guðmundsson Á köldum vetrardegi í nóvember sl. mættust rúmir þrír tugir manna á Hallormsstað. Hér voru samankomnir leiðbeinendur og nemendur í námskeiðaröð um þróun og stofnun smáfyrirtækja í iðnaði. Við, nemendurnir, komum hvert og eitt með okkar hugmynd, misjafnlega hugsaða og útfærða. Samstarfi okkar lauk á Þing- völlum 3—5. sept. sl., var það fjórði starfsfundur okkar. Þá hafði þegar fjórði hluti þátttak- enda náð þeim árangri að geta kynnt á blaðamannafundi fram- leiðslu sína. Og áður en við skild- um mánud. 5. sept. ákváðum við að hittast að ári liðnu og bera saman bækurnar; þiggja ráð hvert af öðru eins og við höfðum ætíð gert í þessum starfssama og sam- heldna hópi. Á þeirri stundu flaug mér í hug hvort allir í hópnum yrðu lífs og gætu mætt á þeim tíma. Að þessi sami dagur yrði ekki að kvöldi kominn þegar einn úr hópnum yrði látinn óraði engan fyrir, en svo fór samt. Eiríkur Kristinsson flugumferðarstjóri lést skömmu eftir að til höfuðborgarinnar kom. Eftirá sáum við, sem störfuðum með Eiríki á námskeiðinu, að ekki var allt með felldu með heilsu hans á blaðamannafundinum á Þingvöllum, skömmu fyrir brott- för. Hann lýsti sinni vöru, en ekki með þeirri hressilegu framkomu sem við vorum vön af hans hálfu. Það verður ætíð takmarkað sem menn kynnast á slíkum vinnu- Leiðrétting Við lok minningargreinar Har- aldar Bessasonar í blaðinu í gær um Vilhjálm Bjarnar bókavörð , varð meinleg prentvilla. Þannig á þessi málsgrein að hljóða: Minningin um hann er undin mörgum þáttum og þessa stundina er söknuður ívaf þeirra allra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.