Morgunblaðið - 14.09.1983, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983
Evrópukeppnin í knattspyrnu hófst í gær:
124 lið taka þátt í
keppninni að þessu sinni
• V-þýska liöið Hamborg SV sigradi í Evrópukeppni meistaraliða á
síðasta keppnistímabili. Hér má sjá þá Felix Magath og Ernst Happel
þjálfara liösins með hinn eftirsótta Evrópubikar. Tekst þeim aö verja
titilinn? Hamborg situr hjá í fyrstu umferöinni.
EVRÓPUKEPPNIN í knattspyrnu
hófst í gærkvöldi, að vísu fóru
ekki margir leikir fram, því aö
flestir þeirra eru á dagskrá í
kvöld. Leikiö er heima og
heiman. Þrjú liö frá íslandi taka
þátt í keppninni. Víkingar leika
gegn Raba Györ frá Ungverja-
landi í keppni meistaraliöa, ÍA
leikur gegn Aberdeen, og ÍBV lék
í gærkvöldi gegn Carl Zeiss Jena
í UEFA-keppninni. í fyrstu umferð
keppninnar fara fram 15 leikir í
keppni meistaraliöa, Evrópu-
meistararnir frá því í fyrra, Ham-
borg SV, sitja hjá í fyrstu umferð.
í keppni bikarhafa fara fram 16
leikir og í UEFA-keppninni fara
fram hvorki meira né minna en 32
leikir. Alls 62 leikir. Leikiö er meö
útsláttarfyrirkomulagi. Þaö liö sem
hefur fleiri stig eöa hagstæðara
markahlutfall kemst áfram í
keppninni. Veröi liöin jöfn aö stig-
um og markahlutfalli gilda mörk
skoruö á útivelli.
Viö skulum líta á nokkra leiki
sem fram fara í kvöld. Sænska liö-
iö IFK leikur gegn Roma í Róma-
borg í keppni meistaraliöa. í sömu
keppni mætast danska liöiö
Odense og Liverpool í Danmörku.
Ajax leikur í Grikklandi gegn
Olympiakos.
I keppni bikarhafa leika meöal
annars Juventus og Lech Danzig,
Man. Utd. gegn Dukla Prag, í
UEFA-keppninni mætir Stuttgart
liöi Levski Spartak, Bayern
Munchen leikur á Kýpur, Aston
Villa fer til Portúgal, Antwerp leikur
í Sviss gegn Zurich, og svona
mætti lengi telja. Sem sagt margir
spennandi leikir á dagskrá. Úrslit í
öllum Evrópuleikjunum veröa á
íþróttasíöum Mbl. á morgun.
— ÞR.
• Höröur Helgason og kona hans fengu málverk aö gjöf frá knattspyrnuráði Akraness, hér er verið aö
afhenda Heröi málverkiö.
Sigurhátíð á Skaganum
Akranesi, 12. september.
BÆJARSTJÓRN Akraness hélt
mikla sigurveislu til heiöurs
nýbökuðum íslands- og bikar-
meisturum í knattspyrnu sl.
sunnudag. Til veislunnar var
boðið knattspyrnumönnunum
og mökum þeirra, ásamt fleiri
gestum. Guömundur Vésteins-
son, sem gegnir störfum forseta
bæjarstjórnar í fjarveru Valdi-
mars Indriöasonar, var veislu-
stjóri og ávarpaöi knattspyrnu-
mennina og flutti þeim ham-
ingjuóskir bæjarstjórnar svo og
allra bæjarbúa.
Aö loknu boröhaldi tók bæjar-
stjórinn, Ingimundur Sigurpáls-
son, til máls, ítrekaöi árnaöar-
óskir og afhenti knattspyrnuráöi
Akraness aö gjöf kr. 60.000 sem
viöurkenningu og þakklætisvott
frá Akraneskaupstaö. Haraldur
Sturlaugsson form. knattspyrnu-
ráös veitti gjöfinni viötöku og
þakkaöi bæjaryfirvöldum viöur-
kenninguna svo og margvíslegan
stuöning á liönum árum. Því
næst ávarpaði Haraldur sérstak-
lega Hörö Helgason þjálfara og
konu hans, Sigrúnu Siguröar-
dóttur, og afhenti þeim aö gjöf
málverk frá knattspyrnuráöi
Akraness. Höröur þakkaöi gjöf-
ina og sagöi aö hann liti á hana
sem viðurkenningu til allra þeirra
mörgu sem unniö heföu margvís-
leg störf í knattspyrnunni til aö
gera þennan glæsilega árangur
aö veruleika. Andrés Ólafsson
form. íþróttabandalags Akraness
sagöi nokkur orö að lokum, ósk-
aöi knattspyrnumönnunum til
hamingju meö sigrana og jafn-
framt þakkaði hann bæjaryfir-
völdum skilning þeirra á gildi
íþróttastarfsins.
Meisturunum barst mikill fjöldi
skeyta og blóma víösvegar aö,
bæöi innanlands og utan. Aö
loknu boröhaldi og ræöuhöldum
var stiginn dans fram á nótt. JG
• John Hewitt, einn af efnilegustu leikmönnum Skotlands í dag. Það
var einmitt Hewitt sem skoraöi sigurmark Aberdeen gegn Real Madrid
í úrslitaleiknum í Evrópubikarkeppninni.
Aberdeen er besta
lið Skotlands í dag
SÉRFRÆÐINGAR eru á einu máli
um það að Aberdeen sé bezta liö
Skotlands í dag, og hafi þar meö
rofiö margra áratuga veldi Celtic
og Rangers. Liöiö er blanda yngri
og eldri leikmanna og því er spáö
mikilli velgengni á næstu árum.
Alls hafa 8 leikmenn liðsins
leikiö í skozka landsliðinu og eigi
færri en 5 leikmenn liösins voru í
skozka landsliöinu gegn Kanada-
mönnum sl. vor. Vörn liðsins er
byggö í kringum miöveröina
sterku Willie Miller og Alex
McLeish og í markinu hefur Jim
Leighton fest sig í sessi. Á miðj-
unni er hinn rauðhæröi Gordon
Strachan óþreytandi, ótvírætt
bezti knattspyrnumaöur Skot-
lands.
Leikmenn Aberdeen: Mark-
veröir: Jim Leighton 24 ára, 6
landsleíkir, Bryan Gunn, 19 ára.
unglingalandsl. Varnarmenn: Al-
ex McLeish 24 ára, 22 landsl.,
Willie Miller 28 ára, 25 landsl.,
Stuart Kennedy 30 ára, 6 landsl.,
Doug Rougvie 27 ára, John
McMaster 28 ára. Tengiliöir: Neil
Simpson 21 árs, 1 landsl., Neale
Cooper 19 ára, 21 árs, 1 landsl.,
Neale Cooper, 19 ára, 21 árs
landsl., Dougie Bell, 23 ára. Fram-
línumenn: Eric Black 19 ára, 21
árs landsl., Mark McGhee 26 ára,
2 landsl., John Hewitt 20 ára, 21
árs landsl., Peter Weir, 25 ára, 5
landsl.
John Hewitt og Eric Black eru
taldir meö efnilegustu knatt-
spyrnumönnum Skotlands í dag
og margir spá því aö Eric Black
taki við stööu Kenny Dalglish í
skozka landsliöinu. Fyrirliöi Ab-
erdeen er Willie Miller og hann er
jafnframt fyrirliði skozka lands-
liösins um þessar mundir.
Landsleikurinn gegn írum:
Heimsfrægir leikmenn
koma hingað til lands
ÍRSKA landsliöiö í knattspyrnu
sem leikur gegn íslandi í næstu
viku hefur verið tilkynnt. Þar er
ekkert smálið á ferðinni. í liöinu
eru margir heimsfrægir leikmenn
og allir eru þeir vel þekktir hér á
landi. Sjaldan eöa aldrei hafa jafn
snjallir kappar leikiö hér á landi.
Má nefna kappa eins og Liam
• Frank Stapleton, Man-
chester United. Miöherji sem
á fáa sína líka, haröskeyttur
og fylginn sér. Ákaflega leik-
inn meö boltann. Lék áöur
með Arsenal.
Brady sem leikur núna á italíu,
Frank Stapleton, Man. Utd., Tony
Grealish, Mark Lawrenson, besta
varnarmann í Englandi og þó víó-
ar væri leitað, Kevin Moran, Man.
Utd., David O’Leary, Arsenal. Já,
þaó eru sterkir leikmenn sem
skipa lið íra.
• Liam Brady, Sampdoria, ít-
alíu, einn fremsti miðvallar-
leikmaöur heims. Lék áöur
meö Arsenal. Var buröarásinn
í liöi Juventus áöur en hann
fór til Sampdoria.
Firmakeppni GR um helgina
Á LAUGARDAGINN fer fram loka-
spretturinn í firmakeppni GR en
hún hefur nú staðið yfir í rúmar
þrjár vikur. Úrslitakeppnin sem
veróur á laugardaginn veröur
þannig að 12 bestu fyrirtækin
keppa og eru það eingöngu
meistaraflokksmenn sem keppa
fyrir þeirra hönd.
Þetta er í 39. skiptiö sem firma-
keppni GR er haldin og eru 250
fyrirtæki sem taka þátt í mótinu aö
þessu sinni og hafa sum þeirra
verið meö allt frá upphafi eða frá
árinu 1944. Keppnin á laugardag-
inn hefst kl. 14 og má vænta þess
aö fyrstu menn komi inn um kl. 18.