Morgunblaðið - 14.09.1983, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983
Tekst liði IA
að standa í
Evrópumeisturunum?
FYRRI leikur leikur ÍA og Aber-
deen í Evrópukeppni bikarmeist-
ara fer fram á Laugardalsvellin-
um í kvöld og hefst kl. 18.00.
Veröur mjög fróðlegt aö sjá ný-
bakaða íslands- og bikarmeistara
í baráttu við Evrópumeistara bik-
Víkingur
sigraði
Val 29—22
ÞRÍR leikir fóru fram í Reykjavík-
urmótinu í handknattleik í
gærkvöldi. KR sigraði Fylki
16—14, Víkingur sigraði Val
29—22, en þriöja leik kvöldsins, á
milli Þróttar og Ármans, var svo
seint lokið að ekki tókst að ná inn
úrslitum áður en blaöið fór í
prentun.
— ÞR.
arhafa og liöið sem kjörið var
besta knattspyrnulið Evrópu síð-
asta keppnistímabíl.
Dómari í leiknum verður P.
Daly, en hann og línuverðir eru
frá írlandi. Þar sem búast má við
mikilli aösókn er fólki beint á að
koma tímanlega til þess að forð-
ast þrengsli viö miðasöluna.
Liö ÍA veröur með alla sína
sterkustu menn í leiknum í kvöld
og eru þeir staðráönir í að standa
í hinu fræga liði og halda uppi
heiðri ÍA.
Úrslit í kvöld
Úrslitaleíkurinn í Reykjanes-
mótinu í handknattleik fer fram í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði í kvöld
og hefst kl. 20.30. Þaö eru lið FH
og Stjörnunnar sem leika til úr-
slita, en liðin sigruöu í sínum riðl-
um í mótinu.
— ÞR.
Tíu þúsund Danir á Wembley:
Danir með sterkt lið
á móti Englendingum
Landsliðsþjálfari Dana í
knattspyrnu hefur valið sama
landsliöshóp og var valinn gegn
Frökkum á dögunum til þess aö
leika gegn Englandi 21. sept.
næstkomandi. 3—1 sigur Dana á
Frökkum kom mjög á óvart en
um vináttuleik var að ræða.
Danska liöið þótti leika frábær-
lega vel og eiga sigurinn skilið.
Lið Dana gegn landsliðshóp Dan-
merkur er skipaöur þessum leik-
mönnum:
Gísli leikur
körfu með ÍA
SKAGAMÖNNUM hefur heldur
betur bæst liðsauki í körfubolta
þar sem Gísli Gíslason fyrrver-
andi leikmaður með ÍS og lands-
liöinu hefur flutt upp á Akranes
þar sem hann rekur lögmanns-
stofu. Gísli mun þjálfa og leika
meö 2. deildar liöi ÍA auk þess
sem hann mun þjálfa yngri flokka
Skagamanna. Vænta körfubolta-
menn á Akranesi mikils af starfi
hans í vetur.
J.G.
Varnarmenn: Ole Rasmussen
(Hertha Berlin), Morten Olsen
(Anderlecht), Ivan Nielsen (Fey-
enoord), Soeren Busk (Gent), Jan
Moelby (Ajax), Ole Madsen
(Broendby).
Miðjumenn: Soeren Lerby (Bay-
ern Múnchen), John Lauridsen
(Espanol), Jens Joern Bertelsen
(Seraing), Frank Arnesen (Ander-
lecht), Per Frimann (Anderlecht),
Allan Simonsen (Vejle), Jesper
Olsen (Ajax).
Framherjar: Michael Laudrup
(Lazio), Klaus Berggren (Pisa).
Dönsk blöö tala um leikinn gegn
Englandi sem leik ársins, reiknaö
er meö aö rúmlega tíu þúsund
Danir muni leggja leiö sína á
Wembley-leikvanginn til aö hvetja
lið sitt. Og víst er aö landsliösein-
valdur Englands, Bobby Robsson,
er mjög smeykur viö hina snjöllu
Dani. Pinotek sagöi viö fréttamenn
AP aö hann myndi ekki tilkynna
hvaöa ellefu leikmenn myndu hefja
leikinn fyrr en klukkustund áöur en
hann ætti aö hefjast. Miðvikudag-
inn 21. september fara margir
landsleikir fram í Evrópukeppninni.
Meöal þeirra er leikur íslands og
írlands á Laugardalsvellinum.
— ÞR.
Öldungaflokkur kvenna
í golfi stofnaður
LAUGARDAGINN 17. september
verður fyrsta sjálfstæða öldunga-
mót íslenskra kvenkylfinga hald-
ið á Nesvellinum og hefst það kl.
9 árdegis. Rétt til þátttöku hafa
allar konur fæddar 1933 og eldri.
Æskilegt er að allar konur á land-
inu sem rétt eiga á þátttöku mæti
á Nesvelli þennan dag eða láti
skrá sig í þennan viröulega flokk
geti þær ekki mætt. Hafið sam-
band viö Kristínu Sveinbjörns-
dóttur í síma 22490 (6152).
• Sveinn Sveinsson skýtur hér bylmingsskoti að marki Jena, en markvörðurinn gerði sér lítið fyrir og
varði meistaralega. Knötturinn stefndi í netið alveg úti við stöng, en hinn fertugi risi í markinu sló hann
í stöngina og út. Þetta var þaö næsta sem Eyjamenn komust til að skora í leiknum.
MorgunblaAið/Fríðþiófur.
• Leikmenn Aberdeen komu til landsins í gær og tóku létta æfingu á Laugardalsvellinum í gærdag. Á
myndinni má sjá leikmenn Aberdeen spretta úr spori í rokinu í gær. Leikur ÍA og Aberdeen hefst á
Laugardalsvellinum kl. 18.00 í dag.
dliii niniin——^
Keppnin um mjólkur- f ípPÓttÍr
bikarinn hafin v 1
FYRSTA umferö í mjólkurbikarn-
um hófst í gærkvöldi í Englandi
úrslit leikja urðu þessi:
Bristol R. — Bournemouth 2—2
Burnley — Crewe 3—4
Bury — Wigan 2—0
Cardiff — Exeter 2—1
Charlton — Brentford 2—1
Chelsea — Gillingham 4—0
Darlington — Halífax 3—3
Doncaster — Scunthorpe 3—0
Grimsby — York 1—0
Huddersfield — Mansfield 5—1
Northampton — Millwall 1—2
Orient — Aldershot 3—3
Plymouth — Swindon 4—1
Portsmouth — Hereford 3—1
Sheffield United — Bradford 1—1
Walsall — Blackpool 3—1
Wimbledon — Southend 3—2
Wrexham — Port Vale 1—5