Morgunblaðið - 14.09.1983, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983
35
„ÉG ER MJÖG ánægður með
frammistööu okkar í leiknum. Við
fengum betri færi og lékum betur
aö mínu mati og hefðum átt skiliö
að vinna,“ sagði Steve Fleet,
þjálfari Vestmanneyinga, eftir
leikinn viö Carl Zeiss Jena í
Kópavogi í gærkvöldi, en leikur-
inn endaði meö markalausu jafn-
tefli. „Ég tel aö íslendingar geti
verið stoltir yfir þessum úrslitum.
Ég býst ekki viö neinu sterstöku í
seinni leiknum. Við komum meö
sama hugarfari til hans og ann-
arra leikja, en viö veröum aö bú-
ast viö því aö þeir veröi mjög
ákveðnir á heimavelli sínum,“
sagði Fleet.
Leikurinn í heild sinni var heldur
lítiö fyrir augaö. Austur-þýska liöiö
olli vonbrigöum, og var ekki ná-
lægt því eins sterkt og fyrirfram
var ætlaö. Einn þekktasti leikmaö-
ur liösins, Andres Bielau, sat á
bekknum hvernig sem á því stóö
og kom ekki inn á.
Þaö var heldur lítill broddur í
sókn hinna röndóttu Austur-
Þjóöverja og Aðalsteinn þurfti
aldrei aö leggja sérlega mikiö á sig
í markinu. Hans-Ulrich gamli Graþ-
enthin varöi hins vegar einu sinni
frábærlega i fyrri hálfleiknum,
þrumuskot Sveins Sveinssonar af
25 metra færi. Þessi fertugi risi
fleygöi sér á boltann alveg út viö
stöng, og sló hann reyndar í stöng-
ina og út.
Vestmanneyingar náöu upp
nokkuð góöum köflum í fyrri hálf-
leiknum, en náöu ekki aö ógna
markveröinum verulega nema í
þetta eina skipti. Þjóöverjarnir
fengu nokkur ágæt færi en höfðu
ekki heppnina meö sér. Ludwig
skallaöi einu sinni framhjá í góöu
færi eftir misheppnaö úthlaup Aö-
• Hott, hott á hesti. Tómas Pálsson notar einn Þjóöverjanna sem undirstööu er hann stekkur upp í skallabolta. Þýski markvöröurinn stekkur út
og kýlir frá, en lenti á samherja sínum og höltruðu báðir á eftir. Ekki voru meiðsli þeirra þó alvarleg. Morguntxa«i«/FrWþió(ur.
■rurv r gn
|yI14C ’ 7 fFlfQmmé
„Hefðum átt skilið að vinna“
— sagði Steve Fieet, þjálfari ÍBV, eftir jafnteflið við Carl Zeiss Jena
alsteins, en hann varöi svo seinna
mjög vel frá Trocha. Hann skaut
þá af stuttu færi eftir fyrirgjöf en
Aöalsteinn var snöggur niöur og
varöi.
Eftir fimmtán mín. leik í seinni
hálfleiknum kom Sigurjón Krist-
insson inn á hjá ÍBV í staó Bergs
Árnasonar og lifnaöi mjög yfir liö-
inu viö þá skiptingu. Sigurjón var
hreyfanlegur og duglegur og þaö
var einmitt eftir undirbúning hans
og Tómasar Pálssonar tveimur
mín. fyrir leikslok aö Jóhann
Georgsson komst í ágætt færi.
Sigurjón gaf stuttan bolta á Tómas
inn í teiginn, fékk hann aftur og
sendi fyrir á Jóhann sem var á
markteignum. Hann spyrnti
skemmtilega meö hælnum á mark-
iö, en Grapenthin sá viö honum og
varöi. Stuttu seinna var flautaö til
leiksloka, og gátu Vestmanney-
ingar vel unað viö þessi úrslit, þó
svo þeir heföu allt eins getaö fariö
meö sigur af hólmi og Þjóöverjar,
en jafntefli voru ekki ósanngjörn
úrslit.
Ein^ og áöur sagöi ollu Þjóöverj-
'arnir vonbrigðum. Vestmanney-
ingar höföu í fullu tré viö þessa
kappa — sóttu á köflum meira, og
léku betur úti á vellinum. Rokiö í
Kópavogi geröi mönnum erfitt fyrir
á stundum, en þaö kom auövitaö
jafnt niöur á báöum liöum. Þjóö-
verjarnir þykjast sjálfsagt öruggir
meö sigur á heimavelli eftir þennan
leik — en þeir veröa þá aö leika
betur en þeir gerðu nú. Liðinu hef-
ur ekki gengið vel þaö sem af er í
deildinni — hefur enn ekki unniö
leik í þeim fimm umferðum sem
búnar eru. Nái Vestmanneyingar
góöum leik ytra ættu þeir aö geta
velgt þeim undir uggum.
Þjóöverjarnir eru meö þraut-
þjálfaö liö — dæmigert austan-
tjaldsliö, sem leikur agaöa
knattspyrnu, en ekki alltaf
skemmtilega. Nokkrir leikmanna
liðsins náóu aö sýna góöa takta,
sérstaklega fyrirliöinn, Rúdiger
Schnuphase, í vörninni, Stephan
Meixner á miöjunni og Martin
Trocha í framlínunni. Þjóöverjarnir
dreiföu spilinu þokkalega vel, og
þaö sama má segja um Eyjamenn
Hjá þeim var Tómas frískur
frammi, en fékk ekki úr mjög miklu
aö moöa. Ömar geröi margt lag-
legt á miðjunni og áttu Þjóöverj-
arnir oft í vandræðum meö aö
stöðva hann. Þá var Sigurjón
Kristinsson, varamaöur, sprækur
sem fyrr segir. í vörninni var Val-
þór Sigþórsson yfirburöamaöur.
Eyjamenn leika útileikinn eftir
hálfan mánuö — og segja má aö
þeir séu að sumu leyti heppnir aö
eiga tvo frestaöa leiki eftir í deild-
inni. Þeir leika á laugardag og
þriöjudag, og veröa því í betri leik-
æfingu en ella, þegar þeir fara til
Þýskalands.
Áhorfendur á Kópavogsvelli j
gærkvöldi voru 495.
— SH.
Hvað sögðu Vestmanneyingar eftir leikinn?
99
Oánægður með úrslitin"
„ÉG ER óánægður meö úrslitin,
en ekki meö leikinn í sjólfu sér.
Það heföi ekki veriö ósann-
gjarnt aö viö hefðum unniö. Viö
lékum ágætlega, sérstaklega
var ég ánægöur meö fyrri hálf-
leikinn hjá okkur,“ sagöi Ómar
Jóhannsson, en hann átti góöan
leik gegn Austur-Þjóöverjunum
í gærkvöldi.
„Ég held nú aö möguleikar
okkar séu ekki miklir á þvf aö
komast áfram — en viö gerum
auövitaö okkar besta í útileikn-
um. Það yröi ágætt aö Ijúka
keppnistímabilinu meö góöum
leik gegn þelm úti.
Mér fannst þeir alls ekki eins
góöir og ég hélt. Þeir voru réttara
sagt mun slakari. En þeir veröa
örugglega erfiöir heim aó sækja
— enda eru þeir yfirleitt mjög
sterkir þar, þó þeim hafi ekki
gengiö vel í deildarkeppninni til
þessa," sagöi Ómar.
— SH.
„ÉG ER nokkuö ánægöur meö
þennan leik. Það er þó Ijóst aö
leikurinn úti eftir hálfan mánuö
veröur erfiöur, en viö munum
gera okkar besta til aö vinna
hann. Leikmenn Jena voru ekki
eins sterkir og viö áttum von á og
þeir eru ekki eins sterkir og þau
liö sem viö höfum leikið á móti í
Evrópukeppnum til þessa. Mór
fannst leikmaöur númer 4 (Heiko
• Tómas Pálsson í leiknum í
gærkvöldi. Morgunbls*iö/Friðþ|6fur.
Peschke) bestur hjá þeim og
einnig var leikmaður númer 9
(Martin Trocha) mjög áberandi,"
sagði Tómas Pálsson eftir leik
ÍBV og Carl Zeiss Jena i pvrópu-
keppni félagsliða.
— sus.
„ÞETTA var mjög góöur leikur
hjá okkur miöað viö aöstæður.
Þeir voru ekki eins sterkir og viö
höföum búist viö og þaö kom
mér raunar á óvart hversu slakir
þeir voru,“ sagöi Aöalsteinn Jó-
hannsson markvöröur Vest-
manneyinga eftir leikinn. Aöal-
steinn kvaöst búast viö því aö
leikurinn úti yröi erfiður en: „Við
reynum allt hvaö við getum til aö
vinna hann,“ sagöl Aöalsteínn.
— sus.