Morgunblaðið - 15.10.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 15.10.1983, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983 Þing Landssambands fslenzkra verzlunarmanna: Suðurnesjamenn vildu ekki sitja þingið Kröfðust brottvikningar eins fulltrúa VR Frá llirti (•ísla.syni, bladamanni Mbl. á Húsavík, 14. október. RÉTT fyrir setningu 14. þings Landssambands verzl- unarmanna á Húsavfk tóku fulltrúar Verzlunar- mannafélags Suöumesja, sex að tölu, þá ákvöröun að taka ekki þátt í þingstörfum og hverfa af staönum. Astæða þessa var eldra ágreiningsmál milli þeirra og eins af fulltrúum Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Geröu þeir þá kröfu, aö þessi fulltníi viki af þinginu. Málamiölun var reynd en án árangurs. Þingfulltrúar hörmuðu þessi málalok og að sögn þeirra, sem eftir sátu, áttu þeir erfitt meö að skilja hvers vegna til þessa uppgjörs hafði þurft að koma með framan- greindum hætti. Deiian mun runnin frá verkfalli er Verzlunarmannafélag Suðurnesja boðaði til 10. og 11. júní 1982. Til þings voru mættir í morgun 84 fulltrúar. Forseti þingsins var kjörinn Magnús L. Sveinsson, varaforseti Borghildur Kjartansdóttir og fundar- ritarar Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir og Guðrún Eggertsdóttir. Aðalmál þingsins eru kjara- og skipulagsmál. Þrjú framsöguerindi voru flutt á þinginu í dag. Pétur Blöndal fjallaði um lífeyris- mál, Hannes Þ. Sigurðsson um tölvur og tækninýj- ungar og Sigfinnur Sigurðsson um vinnutíma. Þinginu lýkur á sunnudag með kosningu stjórnar og endurskoðenda. Núverandi formaður LÍV er Björn Þórhallsson. „Aðfórin að mér ólýðræðisleg og ófélagsleg á allan máta“ Segir Þórarinn Óskarsson, en Suðurnesjamenn kröfðust þess að hann viki af þinginu Frá llirti (•ísla.syni. blaðamanni Mbl. á Húsavík, 14. október. „MÉR FI.NNST þessi aðför að mér fyrir neðan allar hellur, ólýðræðisieg og ófélagsleg á allan máta. Ef þessir menn eiga eitthvað vantalað við mig, ef þeir eiga eitthvað óuppgert við mig hefði verið eðlilegra að þeir hefðu gert það hér á þinginu úr ræðustól í stað þess að krefjast þess að ég viki af þingi, og staðhæfa að þeir yrðu ekki undir sama þaki og ég,“ sagði Þórarinn Oskarsson, deildarstjóri í birgðadeild varn- arliðsins, en það var hann sem Suðurnesjamenn gerðu að kröfu sinni að viki af þinginu, ættu þeir að sitja það. „Hvorki mig né aðra í VR óraði fyrir því að þessi staða kæmi upp. Ef svo hefði verið hefði ég ein- faldlega boðað forföll og varamaður tekið sæti í minn stað. Ég tel að forsvarsmönnum Verslun- armannafélags Suðurnesja hljóti að hafa verið kunnugt um það, að ég var löglega kjörinn fulltrúi á þetta þing. Forsaga þessa máls er sú, að í upphafi voru allir starfsmenn úr Reykjavík hjá Varnarliðinu í VR. Suðurnesjamenn kröfðust þess, að þetta væri þeirra félagssvæði og starfsmenn varnarliðsins ættu því að vera í Verslunarmannafélagi Suður- nesja. Ég kaus samt sem áður að vera áfram í Verslun- armannafélagi Reykjavíkur og það kann ásamt öðru að vera ástæða þessarar aðfarar. Það sem deilan virðist sprottin uppaf er verkfallsboðun VS hjá varnarliðinu í fyrrasumar. Varnarliðið mót- mælti þeirri verkfallsboðun enda er það ekki samningsaðili og á því ekki aðild að vinnudeilu. Það er einnig mitt sjónarmið enda ganga allir borgaralegir starfsmenn ameríska flotans hvar sem er í heiminum undir það að taka ekki þátt í verkföllum. Þó framhjá því væri litið hér á landi, þjónar verkfall hjá varnarliðinu að mínu mati engum tilgangi í innlendum kjaradeilum. Komi til þess að störf verði lögð niður vegna verkfalla verða einfaldlega sjóliðar settir í þau, því flest eru störfin þess eðlis að þau verða að vinnast. Á þetta benti ég íslenskum starfsmönnum sem spurðu mig álits á þessu máli og jafnframt að ef til verkfalls kæmi hjá íslenskum starfsmönnum hjá varnarlið- inu gæti það orðið til þess að yfirmenn varnarliðs- ins endurskoðuðu þá afstöðu sína að gera fleiri amerísk störf tæknilegs eðlis íslensk, þar sem þeir gætu alltaf átt það á hættu að íslenskir starfs- menn færu í verkfall þegar þeim þætti henta og tel ég það hafa komið á daginn. Þess má jafnframt geta að á meðan á þessum vinnudeilum stóð voru ýmis orð höfð eftir mér, sem ég hafði aldrei sagt, af stjórnarmönnum VS, en hvorki formaður þess né neinn af stjórnarmönnum hafa hvorki fyrr né síðar rætt þessi mál við mig. Ásakanir þeirra á sínum tíma voru þær, að ég væri að hræða fólk frá því að taka þátt í vinnudeil- um þeirra og ég hefði þar með spillt fyrir sam- stöðu félagsmanna þeirra hvað varðaði þátttöku í vinnustöðvuninni. Ég get því ekki annað en vísað á bug þeim rökum sem ég hef heyrt að þeir beiti fyrir þessari makalausu aðför að mér,“ sagði Þór- arinn Óskarsson. Morgunblaðið reyndi ítrekað í gærkvöldi að ná tali af Magnúsi Gíslasyni, formanni VS, en án árangurs. „Upphlaup Suðurnesjamanna setur ljótan skugga á þingið“ segir Magnús L. Sveinsson Frá Hirti (ii.sla.syni, blaóamanni Mbl. á llúsavík, 14. október. „ÉG HARMA að fulltrúar Verzlunarmannafélags Suðurnesja skuli ekki hafa séð sér fært að vera á þinginu. Reyndar komu fulltrúar VS aldrei inn á þing- ið og gerðu þess vegna enga athugasemd við kjörbréf þess manns, sem þeir vildu þó útiloka frá þinginu, vegna þess að þeir höfðu lent í einhverjum útistöðum við hann í deilu 1982,“ sagði Magnús L. Sveinsson, þingforseti LÍV og formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, er blm. Mbl. innti hann álits á þeirri ákvörðun fulltrúa VS að sitja ekki þingið. „Nokkrum mínútum áður en setja átti þingið setti formaður VS öllum að óvörum fram þá kröfu að einum af fulltrúum VR yrði meinað að sitja þingið og hótaði að fulltrúar VS færu þegar heim ef VR gengi ekki að ítrustu kröfum VS. Þessi full- trúi VR var fullkomlega löglega kjörinn á þingið eins og aðrir fyrir fimm vikum síðan. En athuga- semdin kemur ekki fyrr en allir eru mættir til þings. Eðlilegra hefði verið að formaður VS hefði haft samband við mig áður en félögin völdu full- trúa á þingið og tjáð mér afstöðu sína gagnvart því, að þessi tiltekni fulltrúi VR yrði kjörinn á þingið. Það gerði hann ekki, en setur fram sína óbilgjörnu kröfu nokkrum mínútum áður en þingið átti að hefjast. Menn lögðu sig alla fram um að leysa þetta leiðindamál þannig að allir gætu við unað, en málamiðlun var ekki til umræðu af hálfu formanns VS. Það hlýt ég að harma því þetta upphlaup gerir ekki annað en setja ljótan skugga á þing þessara þýðingarmiklu samtaka verzlunar- manna," sagði Magnús L. Sveinsson. Vörutegundir lækka í verði KIN afleiðing þess að verðbólga er nú til muna minni en verið hefur, er að sumar vörutegundir hafa lækkað í verði. Svo dæmi séu tekin, sem fengust hjá Ililmari Fenger hjá inn- flutningsfyrirtækinu Nathan og Olsen, þá kostuðu 6x2 kfló af hveiti úr sendingu sem kom 6. júní 180 krónur, en sama magn úr sendingu 29. ágúst 147 krónur. 6x1,9 kfló af hrísgrjónum, sem hingað komu 20. júlí kostuðu 463 krónur, en sama magn úr sendingu 23. ágúst kostaði 413 krónur. 6x2 kfló af strásykri úr sendingu frá 28. júní kostuðu 233 krónur, en kostuðu 215 krónur í sendingu sem kom 16. ágúst. Þá hef- ur verðið á 5x2 kflóum af rúgmjöli lækkað úr 165 krónum í 158 krónur. „Þetta kemur til af því, að vegna gengisbreytinga má leggja á næstu sendingu í samræmi við þá gengisbreytingu sem hefur orðið frá sendingunni þar á undan,“ sagði Hilmar Fenger. „Segjum til dæmis að ég flytji inn vöru nú og samþykki víxil um að greiða hana eftir tvo mánuði. Á þessum tveim- ur mánuðum verður breyting á genginu, svo varan verður svo og svo mörgum prósentum dýrari í íslenskum krónum en verið hefði. Þegar næsta sending kemur má bæta þessum prósentum við verð hennar. Þegar gengið er stöðugt verður engin viðbót vegna breyt- inga á því,“ sagði Hilmar Fenger ennfremur í samtali við Morgun- blaðið. Morgunblaðið/Júllus. Varð fyrir stórri olíubifreið Sextugur maður varð fyrir stórri olíuflutningabifreið í Tryggvagötu laust fyrir klukkan 17 í gær. Hann gekk út á götuna milli bifreiða, þannig að ökumaður olíubifreiðarinnar sá hann ekki fyrr en um seinan. Læknar í neyðarbíl komu á staðinn og gerðu að meiðslum mannsins, sem síðan var fluttur í slysadeild. Hann skarst í andliti og óttst var að hann hefði hlotið beinbrot. Eyjólfur Eyjólfsson frá Hnausum látinn EYJÓLFUR Eyjólfsson, bóndi að Hnausum í Meðallandi, er látinn í Reykjavík 94 ára að aldri, en hann var fæddur að Botnum í Meðallandi í Vestur-Skaftafellssýslu 27. febrúar 1889. Eyjólfur var fréttaritari Morg- unblaðsins um langt árabil. Eyjólfur var kennari í Meðal- landi og nærsveitum á árunum 1905-1906, 1907-1916, 1920-1921 og 1929-1930. Var skólastjóri unglingaskólans í Vík í Mýrdal 1916—1918. Eyjólfur var síðan bóndi að Hnausum frá 1923. Eyjólfur var hreppstjóri í Leiðavallahreppi frá 1919 og síðan í hreppsnefnd frá 1925 um ára- tugaskeið. Hann var oddviti á ár- unum 1946—1950. Eyjólfur sat í sýslunefnd um árabil. Var for- maður sjúkrasamlags frá stofnun þess. Eyjólfur var deildarstjóri „Á réttri leið“ Fundaherferð Sjálf- stæðisflokksins: Fundir á Akranesi og í Grund- arfirði Ragnhildur Albcrt Helgadóttir Guðmundsson TVEIR fundir verða í fundaher- ferð Sjálfstæðisflokksins, „Á réttri leið“, um helgina. í dag verður fundur á Akranesi, þar sem Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra verður ræðumaður og á sunnudaginn er fundur í Grundarfirði, þar sem Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra er ræðumaður. Á þessum fundum munu ráð- herrarnir og þingmenn Sjálf- stæðisflokksins í Vesturlands- kjördæmi fjalla um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar, ár- angurinn, sem náðst hefur í efnahagsmálum, og horfurnar framundan. Fundurinn á Akranesi verð- ur í Hótel Akranesi og hefst klukkan 14 og fundurinn í Grundarfirði verður í félags- heimili kirkjunnar og hefst klukkan 16 á sunnudag. Meðallandsdeildar Sláturfélags Suðurlands um langt árabil. Sat í stjórn Búnaðarfélags Leiðavalla- hrepps. Eyjólfur tók á mót miklum fjölda skipsstranda í hreppstjóra- tíð sinni og fékk m.a. heiðurspen- ing úr silfri frá stjórn Frakkneska lýðveldisins 1935 fyrir aðstoð við skipbrotsmenn. Kona Eyjólfs Eyjólfssonar var Sigurlín Sigurðardóttir. m Eyjólfur Eyjólfsson, bóndi að Hnausum. Hákon með 120 tonn af síld HÁKON frá Gjenivík veiddi um 120 tonn af sfld í ísafjarðardjúpi í fyrri- nótt og í gær var skipið á leið til heimahafnar með aflann. Þá fékk Þórshamar 80 tonn í ísafjarðardjúpi en landaði um 30 tonnum í fyrradag á Bolungarvík. Þá lönduðu tveir bátar í Grindavík í gær; Arney með 57 tonn og Hrafn Sveinbjarnarson III var með um 100 tonn af síld. Rjúpnaveiðin hefst í dag RJÍIPNAVEIÐIN hefst í dag, 15. október, og standa veiðarnar fram til 22. desember. Búist er við því að fjölmargir veiðimenn leggi leið sína til fjalla í dag eins og endranær, en í ár hefur víða sést meira af rjúpu en undanfarin ár. Eins og fram hef- ur komið varð í fyrra um 50% fjölgun í rjúpnastofninum og tal- ið er að um áframhaldandi fjölg- un sé að ræða í ár, að minnsta kosti norðaustanlands, en líkur benda til að um litla fjölgun sé að ræða sunnanlands og vestan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.