Morgunblaðið - 15.10.1983, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983
ÁSDÍS J. RAFNAR
AFINNLENDUM
VETTVANGI
Launakjör - Launamisrétti
— frumkvæðisskylda hins opinbera
„Ráðstefnan samþykkir að efna til þverpólitísks samstarfs um launamál kvenna á vinnumarkaðnum. Samþykkir ráðstefnan að boðað verði til fundar
kvenna úr öllum stjórnmálaflokkum, þar sem leitað verður samstöðu kvenna í launþegahreyfingunni og öðrum áhugaaðilum um launajafnrétti kynjanna, sem
skipuleggi síðan aðgerðir sem leiði til úrbóta og uppræti launamisréttið."
Þessi ályktun var samþykkt á
ráðstefnu sem Samband al-
þýðuflokkskvenna gekkst fyrir 24.
september sl., og var það launa-
misrétti sem ríkir á vinnumark-
aðnum harðlega fordæmt. Á þessa
ráðstefnu buðu alþýðuflokkskonur
konum úr öllum stjórnmálahreyf-
ingum og fulltrúum launþegasam-
taka og vinnuveitenda. Hana sátu
um 170 manns. Ofangreinda álykt-
un undirrita konur úr öllum stjórn-
málahreyfingum. í henni felst
stefnumörkun um samvinnu
kvenna úr öllum flokkum gegn
kynbundnu launamisrétti. Slíkri
samvinnu ber að fagna, því sam-
hent átak til leiðréttingar á launa-
misrétti er árangursríkara en bar-
átta einangraðra kvenna innan
hvers stjórnmálaflokks fyrir sig
fyrir þessu máli.
Ríkir launamisrétti?
Ályktun þessa þverpólitíska
hóps byggir á þeirri fullyrðingu að
hér á landi ríki kynbundið launa-
misrétti. I jafnréttislögunum er
kveðið svo á um verkefni Jafnrétt-
isráðs, að það eigi m.a. að „taka til
rannsóknar af sjálfsdáðum, hver
brögð kunna að vera að misrétti í
jafnréttismálum að því leyti er
lögin varðar". (í 2. gr. laganna er
kveðið á um að konum og körlum
skulu greidd jöfn laun fyrir jafn-
verðmæt og sambærileg störf).
Frá því að þessi lög tóku gildi 1976
hefur ráðið ekki gengist fyrir
rannsóknum á launakjörum kynj-
anna á vinnumarkaðnum, fjár-
skortur hefur staðið því í vegi.
18. maí 1981 samþykkti félags-
málanefnd Alþingis eftirfarandi
með rökstuddri dagskrá: „í trausti
þess, að ríkisstjórnin beiti sér
fyrir því nú þegar, að kannanir
verði gerðar á raunverulegum
launakjörum karla og kvenna, svo
og að kannanir þessar verði gerð-
ar reglulega og Kjararannsóknar-
nefnd, Jafnréttisráði eða öðrum
aðila verði gert kleift með fjár-
framlögum eða á annan hátt að
standa fyrir þeim, tekur deildin
fyrir næsta mál á dagskrá." Varð-
aði þessi afgreiðsla tillögu nefnd-
arinnar um meðferð þingsins á
frumvarpi sem fram kom 1981 til
breytingar á jafnréttislögunum.
Þetta traust þingmanna á þáver-
andi ríkisstjórn brást með öllu, og
er engin slík könnun enn í undir-
búningi.
Þó engin heilstæð könnun liggi
fyrir um launakjör karla og
kvenna á vinnumarkaðnum, hafa
minni kannanir verið gerðar sem
gefa vísbendingu um hvernig þess-
um málum er háttað. Kjararann-
sóknarnefnd hefur um árabil
kannað laun og vinnutíma ákveð-
inna starfshópa. 1966 voru dag-
vinnulaun verkakarla 25% hærri
en verkakvenna. 1978 var munur-
inn kominn niður í 11,2%. í verk-
smiðjuvinnu höfðu verkakarlar
1967 28,3% hærri laun en starfs-
systur þeirra. 1978 var munurinn
enn 16,6%. f dæmigerðri kvenna-
stétt, afgreiðslu í matvöruverzlun-
um, kom í ljós 1978 að karlar
höfðu 17,9% hærri laun en konur.
Á vegum bankamanna var könnun
gerð 1981, en þá voru konur 64%
bankastarfsmanna. Ef tekið er
meðaltal þessarar könnunar á
þremur lægstu flokkunum þá voru
konur þar 87,6% en rúmlega 12%
karlar. Ef tekið er meðaltal
þriggja efstu launaflokkanna þá
var 14—15% kvenna þar inni en
85% karla. Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur hefur gengist fyrir
slíkum könnunum og þar endur-
tekur sagan sig og fram kemur
m.a. hvað yfirborganir eru áber-
andi í röðum karla. í vinnumark-
aðskönnun Framkvæmdastofnun-
ar ríkisins fyrir árið 1981 kemur
fram að meðallaun karla eru um
52% hærri en meðallaun kvenna.
Fleiri kannanir mætti rekja svo
sem könnun innan starfsmannafé-
lags Reykjavíkur 1978, á kjörum
annarra en þeirra sem taka laun
skv. taxta BHM og hins vegar
könnun á launaflokkum sem há-
skólamenntaðir ríkisstarfsmenn
fá greitt eftir.
Auðvitað ættu stjórnvöld að
veita Jafnréttisráði nægjanlegt fé
til ráðstöfunar til að framkvæma
markvissa könnun á launakjörum
karla og kvenna og taka þar alla
kjaraþætti með. Slíka könnun
Hvers vegna hama
Sovétmenn öllum
afvopnunartillögum?
eftir Birgi Isl.
Gunnarsson
Það hefur vakið mikla athygli um
allan heim, að Bandaríkjamenn hafa
lagt fram ýmsar hugmyndir, sem
ættu að geta opnað augu til frekari
viðræðna og hugsanlegs samkomu-
lags i þeim fundum, sem nú fara
fram í Genf um takmörkun meðal-
drægra eldflauga í Evrópu. Sovét-
menn senda allar slíkar tillögur
jafnharðan til baka og skella öllum
dyrum til samkomulags.
Hvar voru friðar-
hreyfingarnar þá?
Á sama tíma halda Sovétmenn
áfram að setja niður meðaldrægar
eldflaugar, sem beint er gegn
skotmörkum í V-Evrópu og Asíu.
Tala SS-20-eldflauga er nú komin
í 351 og hver ber þrjár kjarnorku-
sprengjur, sem senda má hverja á
sitt skotmark. Talið er að 243
eldflaugum sé beint gegn Vestur-
Evrópu og 108 sé beint gegn Asíu.
Samtals hafi því Sovétmenn 1050
skotmörk undir, þar af 729 í
Vestur-Evrópu. Og þeir halda enn
áfram að setja niður slíkar eld-
flaugar og enginn fær neitt við
ráðið.
Þessa þróun sáu menn fyrir á
árinu 1979. Þá voru Sovétmenn
komnir á fulla ferð með að setja
niður SS-20-eldflaugar sínar. Það
segir mikla sögu, að þrátt fyrir
ítarlegar fréttir um þessar að-
gerðir Sovétmanna heyrðist ekki
frá vinstri mönnum í Evrópu. Al-
þýðubandalagið t.d. samþykkti
með þögninni þessar aðgerðir Sov-
étmenna og engar friðarhreyf-
ingar í Evrópu sáu neina ástæðu
til andmæla.
Ákvörðun
Atlantshafsbandalagsins
Atlantshafsbandalagið hafði
áhyggjur af þeirri þróun mála.
Ýmsir stjórnmálaleiðtogar í Evr-
ópu, eins og t.d. Helmut Scmidt,
kanslari V-Þýskalands og þáver-
andi leiðtogi sósíaldemókrata, sáu
fram á, að Sovétríkin næðu slíkum
hernaðaryfirburðum í Evrópu, að
þeir gætu í krafti þeirra náð fram
ýmsum pólitískum markmiðum.
Sjálfstæði einstakra ríkja í
V-Evrópu gæti jafnvel verið í
hættu.
Þess vegna tók Atlantshafs-
bandalagið þá ákvörðun í desem-
ber 1979 að til mótvægis skyldi í
árslok 1983 hefja niðursetningu
meðaldrægra flauga. Hér er um að
ræða 108 Pershing-flaugar, sem
eru mjög hraðskreiðar eldflaugar,
svo og 464-stýriflaugar. Jafnframt
„Enginn vafi er lengur á
því, að svarið liggur í
starfsemi friðarhreyf-
inganna. Andropov og aðr-
ir Sovétleiðtogar telja að
cngin nauðsyn sé á sam-
komulagi um takmörkun
meðaldrægra eldflauga.
Friðarhreyfingarnar í Evr-
ópu muni sjá um að koma
í veg fyrir niðursetningu
eldflauganita í V-Evrópu.“
var samþykkt að hefja viðræður
við Sovétríkin um takmörkun
meðaldrægra eldflauga og var
ákvörðun um niðursetningu eld-
flauganna háð því, að ekki næðist
fyrir þann tíma samkomulag um
takmörkun slíkra eldflauga.
Friðarhreyfingarnar
Þær samkomulagsviðræður
hafa gengið illa, reyndar hafna
Sovétmenn öllum sáttahugmynd-
um, sem hingað til hafa fram
komið. Hin ótrúlega þvermóðska
Sovétmanna vekur vaxandi at-
hygli og vekur jafnframt upp
spurninguna: Hvers vegna?
Enginn vafi er lengur á því, að
svarið liggur í starfsemi friðar-
hreyfinganna. Andropov og aðrir
Sovétleiðtogar telja að engin
nauðsyn sé á samkomulagi um
takmörkun meðaldrægra eld-
flauga. Friðarhreyfingarnar í
Evrópu muni sjá um að koma í veg
fyrir niðursetningu eldflauganna í
V-Evrópu. Hvers vegna að vera að
semja um að draga úr sínum eigin
vopnabúnaði, ef líkur eru á að
friðarhreyfingarnar sjái um and-
stæðinginn?
Það yrði gífurlegur pólitískur
sigur fyrir Sovétríkin, ef þetta
herbragð tækist. Sá sigur gæti
hins vegar reynst V-Evrópu
hættulegur, því að með því hefðu
Sovétríkin svo mikla hernaðaryf-
irburði í Evrópu, bæði á sviði
kjarnorkuvopna og almennra
vopna, að þeir gætu farið að setja
pólitískan þrýsting í V-Evrópu. Þá
gæti að því komið að V-Evrópubú-
ar þyrftu að fara að hugsa um það
í alvöru hvort betra sé „að vera
rauður en dauður".
Birgir ísl. Gunnarsson er þingmad-
ur Sjálfstæðisílokksins fyrir
Keykjaríkurkjördæmi.
Fundur um
E1 Salvador
ALMENNUR fundur um baráttuna í
El Salvador verður haldinn í Gamla
bíói laugardaginn __ 15. október
næstkomandi kl. 14. Á dagskrá verð-
ur m.a.: Fulltrúi þjóðfrelsisaflanna í
El Salvador, Gabriel Lara, flytur
ávarp, sýnd verður kvikmyndin
Ávinningur byltingarinnar og Sif
Ragnhildardóttir og Juan Diego
taka lagið ásamt fleirum.
Að fundinum standa: Alþýðu-
bandalagið, Alþýðuflokkurinn,
Bandalag jafnaðarmanna, stjórn
verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar, E1 Salvador-nefndin á Islandi,
stjórn Félags bókagerðarmanna,
Fylkingin, Kvennaframboðið,
Samband ungra jafnaðarmanna,
stjórn Stúdentaráðs Háskóla Is-
lands, stjórn Verkamannasam-
bands íslands og Æskulýðsfylking
AlþýðubandalagSÍnS. (FrétUtilkynning)
Tískusýning í
íþróttahúsinu
í Hafnarfirði
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í Hafn-
arfirði stendur fyrir tískusýningu I
íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafn-
arfirði á morgun, sunnudag, klukkan
15. Þar verður einnig boðið upp á
kaffi, heimabakaðar kökur og ýmis
skemmtiatriði. Miðar verða seldir við
innganginn.
Kvenfélagið Hringurinn í Hafn-
arfirði er eitt elsta kvenfélag bæj-
arins, rúmlega 70 ára. I upphafi
létu Hringskonur sérstaklega til
sín taka við hjálparstarfsemi við
heimili, sem áttu við erfiðleika að
etja vegna berklaveikinnar. Síðar
styrkti félagið fátæk og veikluð
börn í Hafnarfirði til sumardvalar.