Morgunblaðið - 15.10.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983
15
frkríVJ
ÆL v|; /. V Áiid J m 'Hl J
gæti ráðið unnið í samvinnu við
kjararannsóknarnefnd, félagsvís-
indadeild háskólans, launþega-
hreyfinguna og varla myndu
vinnuveitendur hafna slíkri sam-
vinnu.
Ástæður launamismunarins eru
margar og vafalaust má finna þær
m.a. í sérkjarasamningum ákveð-
inna starfshópa (fágætt er að kon-
ur tilheyri þeim hópum), yfirborg-
unum (karlar láta ekki bjóða sér
laun sem konur gera sér að góðu),
yfirvinnu (vegna barna hafa kon-
ur vafalaust minna svigrúm til yf-
irvinnu en karlar), og menntun
skiptir miklu máli og fátitt er, svo
sem fram kemur hér að framan,
að konur skipi svokallaðar stöður,
þ.e. eru yfirmenn og stjórnendur á
sínum vinnustað (ástæður þess er
að leita m.a. í menntun, ójafnri
foreldraábyrgð, tvöföldu vinnu-
álagi, hlutastörfum kvenna,
ósamfelldum skóladegi yngri
barna og hins vegar því sem ekki
sízt hefur áhrif, „hin hefðbundnu"
sjónarmið i garð kynjanna).
Hinu opinbera ber
að hafa frumkvæði
Jafnrétti karla og kvenna og full
þátttaka kvenna í þjóðfélaginu á
við karla, er ekki eingöngu kven-
réttindamál, heldur almenn mann-
réttindi. Samkvæmt jafnréttis-
könnun Reykjavíkurborgar
1980—1981 vinna um 70% kvenna
í Reykjavík utan heimilis. Með
setningu jafnréttislaganna var
tekin opinber stefna um að jafna
rétt kynjanna. Stjórnvöldum ber
skylda til að sjá svo um, að konur
og karlar hafi sömu möguleika til
menntunar og starfa. Það er at-
hyglisvert, að flest þau mál, sem
til kasta Jafnréttisráðs koma
vegna mismununar í starfi
v/launa eða stöðuveitinga, varða
opinbera starfsmenn — er beint
til ráðsins frá starfsmönnum
opinberra stofnana. Mikla athygli
vöktu líka stöðuveitingar tveggja
ráðherra í síðustu ríkisstjórn,
sumarið 1981.
Þótt stofnun Jafnréttisráðs
væri viss opinber viðurkenning á
mikilvægi jafnréttismála, hefur
ráðið ekki getað starfað sem
skyldi vegna fjárskorts. Stjórnvöld
hafa ekki veitt ráðinu nægilegt fé til
ráðstöfunar sl. 7 ár til þess að það
gæti framkvæmt hlutverk sitt sam-
kvæmt lögunum og stjórnvöld hafa
ekki heldur sýnt neitt það fordæmi,
sem jafnréttislögin kveða á um, t.d.
hvað launakjör varðar eða stöðuveit-
ingar. Ef ná á fram fullu jafnrétti
verða opinberir aðilar að ganga á
undan með góðu fordæmi.
Samvinna kvenna úr öllum
stjórnmálahreyfingum hlýtur að
geta reynst afl til að jafna kjör
karla og kvenna i raun á vinnu-
markaðnum með samstöðu við
konur í launaþegahreyfingunni.
Tillaga Vöku um umfjöllunarefni á fullveldisdaginn:
„Friður, frelsi,
mannréttindi"
Fundur í Vöku, félagi lýðræðis-
sinnaðra stúdenda í Háskólanum, 6.
október síðastliöinn samþykkti að
bjóða fram efnið „Friður, frelsi,
mannréttindi" sem umfjöllunarefni
við hátíðarhöld stúdenta á fullveldis-
daginn, 1. desember, en kjör um
hvert efni verður fyrir valinu fer
fram fimmtudaginn 20. október.
„Það er skoðun Vöku að tilvalið
sé að boðskapur stúdenta á full-
veldisdaginn sé helgaður þeim
þremur hugtökum sem talist geta
einkunnarorðs lýðræðis.
Mikil umræða hefur átt sér stað
að undanförnu um frið og afvopn-
un og á hverjum degi má sjá í
fjölmiðlum hrikalegar frásagnir
af alvarlegum mannréttindabrot-
um í alræðis- og einræðisríkjun-
um,“ segir í fréttatilkynnlngu frá
Vöku og ennfremur, að „oft vill
gleymast að friður er til lítils ef
frelsi og mannréttindi eru ekki í
hávegum höfð. Því gerir Vaka það
að tillögu sinni að stúdentar beiti
athygli sinni að fyrrnefndum hug-
tökum sem mynda órjúfanlega
heild".
Domus Medica:
Basar og kaffisala í dag
KVENNADEILD Barðstrendingafé-
lagsins verður með basar og kaffi-
sölu í Domus Medica, sunnudaginn
16. október. Húsið verður opnað
klukkan 14.00.
Á basarnum verður mikið af
prjónlesi, vettlingum, sokkum,
nærfötum barna, sokkabuxum o.fl.
Brúðurúmin vinsælu ásamt
brúðufatnaði. Kökur og blóm
verða einnig á basarnum.
Öllum ágóða varið til að gleðja
aldraða, en Kvennadeildin bauð
eldri Barðstrendingum til sam-
sætis á skírdag og einnig var öldr-
uðum boðið í Jónsmessuferð að
Skógum undir Eyjafjöllum í júní.
Fáðu þér SpHte,
og finndu muninn.