Morgunblaðið - 15.10.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983
17
og þeim mun frekar, sem starsemi
þeirra er fjölbreyttari. Á hinn
bóginn stöndum við líka andspæn-
is mikilli bílastæðaþörf fyrir þetta
hús. Bezt væri auðvitað að geta
haft bílastæði undir húsinu, en
það mundi hleypa kostnaðinum
mjög verulega upp að sögn kunn-
ugra.
Gamla skókassalagið
öruggast
— Verður efnt til samkeppni
um teikningu af húsinu?
— Um það hefur verið rætt frá
upphafi en spurning, hvort á að
binda hana við Norðurlönd eða
hafa hana opnari. Það sem öllu
skiptir fyrir okkur er að fá hús
með góðum hljómburði og í því
skyni höfum við sérfræðing í
hljómburðartækni með í ráðum
frá upphafi.
— Hljómburðartækni hefur
sem betur fer fleygt fram á und-
anförnum árum, sagði Jón, menn
vita mun meira nú en fyrir aðeins
fáeinum árum. Nú er til dæmis
orðin viðurkennd staðreynd, að
mestar líkur eru til að fá góðan
hljómburð í hljómleikasal, ef hann
er með gamla góða skókassalag-
inu. Sérfræðingar segja, að slíka
sali sé alltaf hægt að gera góða en
það sé alltaf happdrætti með saii
sem eru vænglaga eða eins og geiri
í hring.
— Er ekki nokkuð mikið atriði
fyrir okkur að fara sem öruggasta
leið í þessu efni?
— Jú, tvímælalaust og við það
höfum við miðað í umræðu okkar.
— Stefán hefur sagt okkur,
skaut Gunnar inn í, að tölvutækn-
in hafi verið hljómburðartækni
mikil lyftistöng. Gerðar hafa verið
tilraunir með líkön og þannig
fengizt mikil vitneskja og síbatn-
andi árangur.
— Svo er annað, sagði Jón, sem
manni finnst í raun furðulegt að
skuli ekki hafa verið sjálfsagt mál,
að það er fyrst nú nýlega, sem
menn slógu þvf föstu, að það væri
miklu meira atriði, hvernig veggir
endurköstuðu hljóði heldur en loft
— um árin hefur verið lögð
óhemju vinna og kostnaður í loft
hljómleikasala, en þau eru nú sögð
hafa tiltölulega iítil áhrif miðað
við veggina.
— Hefur verið gerð fjárhagsá-
ætlun fyrir byggingu hússins?
— Ekki ýtarleg, en fljótt var
miðað lauslega við stærðargráð-
una kringum 150 milljónir, — sem
er á við verð miðlungs skuttogara.
— Og hvað um fjáröflun?
— Við höfum aldrei farið dult
með að við myndum leita til opin-
berra aðila um fjármagn. Svona
hús verður ekki byggt fyrir fé fé-
laganna í samtökunum nema að
mjög litlu leyti. Af þeim væntum
við fyrst og fremst hugarfarslegs
stuðnings, þótt við eigum vafa-
laust einnig eftir að leita til þeirra
um framlög í einu eða öðru formi,
sjálfboðaliðsvinnu og aðstoð við
fjáröflunarstarfið. Við höfum nú
ekki fjallað sérstaklega um fjár-
öflunarleiðir — í því hefur verið
sérstök nefnd, en ýmsar hafa verið
íhugaðar og ein hinna fyrstu verð-
ur að efna til happdrættis á næst-
unni. Þá hefur okkur verið til-
kynnt um hálfrar milljónar króna
gjöf til hússins, — ég get ekki enn
skýrt frá því, hver þar á í hlut, þar
sem það mál er ekki að fullu frá-
gengið, sagði Jón.
— Við gerum okkur alveg grein
fyrir því sagði Gunnar Egilsson að
ýmsar raddir verða á móti þessu
húsi og telja þetta alrangan tima
til þes svo mikið sem hugsa um
það, en þess er þá líka að gæta, að
undirbúningur á vafalaust eftir að
taka talsverðan tíma og fyrr en
síðar birtir í efnahagslífinu á ný
og þá er e.t.v. sálrænt hollt fyrir
okkur að ráðast í verk, sem við
getum verið stolt af. Og við erum
sannfærð um, að allir muni finna
og sjá, þegar húsið er komið upp,
hversu mikil þörf var fyrir það.
— Já, þá munu allir vilja Lilju
kveðið hafa, sagði Jón Þórarinsson
að lokum.
Útimarkaðurí Njarðvík
Vogum, 3. október.
Á föstudögum er haldinn í Njarðvík markaður á opnu svæði við kirkjuna. Meðal þess sem selt er á markaðinum
má nefna blóm og grænmeti, tertur og kökur, auk mikils úrvals af fatnaði. Það munu vera 10—15 ár síðan vísir að
útimarkaði byrjaði í Njarðvík, þegar sala á blómum hófst úr bíl. Nýtur markaðurinn vinsælda og koma menn
langt að með vörur á markaðinn. Oft er þar fjölmenni. e.g.
RALLY ’83
í dag milli kl. eitt og hálf tvö lýkur BRIDGESTONE RALLY ’83
hjá Bílaborg hf., Smiðshöfða 23.
Þetta er síðasta rallykeppni sumarsins og sú mest spennandi
því að þar ráðast úrslit í keppni um íslandsmeistaratitlana í rally í ár.
Af þessu tilefni verður mikið um að vera hjá okkur í dag og verður opið frá kl. 9-5.
• Við sýnum úrval af BRIDGESTONE hjól-
börðum, þar á meðal hina vinsælu „ísgrip“ vetrarhjólbarða.
• Við seljum allar gerðir BRIDGESTONE
hjólbarða með sérlega góðum greiðsluskilmálum.
Athugið að þetta tilboð gildir aðeins í dag.
• Þeir rallybílar, sem skipa 3 efstu sætin
verða til sýnis hjá okkur í dag, eftir að keppninni lýkur.
• Og auðvitað verður heitt kaffi á könn-
unni handa öllum!
Gerið ykkur dagamun í dag og fylgist með úrslitum í geysispennandi keppni.
Verið velkomin!
bridge stone á íslandi
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99.