Morgunblaðið - 15.10.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983
Parkinson bað ástkonu sinnar
Olíutankar í Ijósura logura í Puerto Corinto í Nicaragua. Slökkviliðsmenn reyndu að ráða niðurlögum eldsins.
Eldarnir í tönkunum loguðu í marga sólarhringa.
Filippseyjar:
Yoram Aridor fráfarandi fjármálaráðherra ísraels:
tvisvar en snerist jafnan hugur
London, 14. október. AP.
CECIL Harkinson, ráðherra í stjórn Margrétar Thatcher, sagði af sér
ráðherradómi í dag í framhaldi af yfirlýsingu Söru Keays, fyrrum einka-
ritara hans, um ástarsamband þeirra, en Parkinson á von á barni með
ungfrú Keays í janúar. Kvaðst ungfrúin nauðbeygð til yfirlýsinga fjöl-
skyldu sinnar vegna þar sem „ýmsum staðreyndum málsins hefði verið
hagrætt“.
I yfirlýsingunni segir ungfrú
Keays að Parkinson hafi neitað
þeirri bón sinni að skýra Thatch-
er frá langvarandi ástarsam-
bandi þeirra fyrr en eftir kosn-
ingar 9. júní sl. Stangast það á
við fyrri yfirlýsingar Parkin-
sons, sem sagði Thathcer hafa
fengið vitneskju um samband
þeirra löngu áður.
Ungfrú Keays sagðist hafa
grátbaent Parkinson í maí að
segja Thathcer frá sambandi
þeirra, það hefði verið nauðsyn-
legt fyrir frú Thathcer vegna
væntanlegrar stjórnarmyndunar
hennar. Parkinson hefði ekki
viljað fallast á það.
Ungfrúin sagði ennfremur að
Parkinson hefði tvisvar beðið
hana að giftast sér en síðar snú-
ist hugur. Hefði hann beðið
hennar 1979, en síðan skipt um
skoðun í maí þegar ljóst var að
ungfrúin bar barn hans undir
belti.
Síðan hefði hann komið til sín
á kosningadaginn og beðið sín á
ný. Hefði Parkinson sagst hafa
sagt Thatcher að hann hefði í
hyggju að skilja við konu sína.
En honum hefði snúist hugur
enn á ný í ágúst sl. eftir sumar-
leyfi sitt með konu sinni og
dætrum þremur. Hefði Parkin-
son tjáð sér 1. september að
hann ætlaði ekki að yfirgefa
konu sína.
Ungfrú Keays neitaði að hafa
nokkru sinni reynt að neyða
Parkinson til hjúskapar. Kvaðst
hún hafa verið neydd til þessara
yfirlýsinga vegna blaðaskrifa
um ástarsamband þeirra. Meðal
annars sagði Daily Telegraph að
„fóstureyðing í kyrrþey hefði
verið rökréttari en opinberun
hneykslisins". Sagði ungfrúin að
af sinni hálfu hefði aldrei til
greina komið að íhuga fóstur-
eyðingu, kvaðst ekki þeirrar
skoðunar að einkahagsmunir
væru næg ástæða til slíkrar
gjörðar.
Það var samdóma álit fróðra
manna að Parkinson hefði átt
glæsta pólitíska framtíð, ef ekki
hefði komið til þessa hneyksl-
ismáls. Einkum hækkaði sól
hans á lofti eftir kosningasigur
íhaldsflokksins í sumar, en hann
var aðalskipuleggjandi kosn-
ingabaráttu flokksins.
Parkinson er sonur járn-
brautastarfsmanns frá Lanca-
shire, fæddur 1. september 1931 í
borginni Carnforth. Hann út-
skrifaðist frá Cambridge 1955
með gráðu í enskri tungu. Gekk
hann að eiga Ann Jarvis, dóttur
auðugs byggingaverktaka. Hún
var virk í starfi fyrir Ihalds-
flokkinn og var það mikið til að
hennar frumkvæði að hann hóf
afskipti af sveitarstjórnarmál-
um.
Parkinson auðgaðist fljótt á
fasteignasölu og bygginga-
framkvæmdum. Hann hóf af-
skipti af landsmálum 1970 og
vann þá þingsæti í Enfield West,
sem er kjördæmi rétt fyrir utan
London. Óx virðing hans innan
flokksins smátt og smátt og 1979
var hann orðinn talsmaður
Sarah Keays
stjórnarandstöðunnar í við-
skiptamálum, en þá var íhalds-
flokkurinn utan stjórnar. Varð
hann aðstoðarráðherra er flokk-
urinn komst til valda 1979 og
ráðherra viðskiptamála eftir sig-
urinn í sumar.
Ný rannsóknar-
nefnd og stjórnar-
skrárbreytingar
Manila, Filippseyjum, 14. október. AP.
FERDINAND Marcos, forseti Filippseyja, undirritaði í gær reglugerð sem
kveður á um skipan nýrrar nefndar til að rannsaka morðið á stjórnarand-
stöðuleiðtoganum Benigno Aquino, auk þess sem hann lofaði breytingum á
stjórnarskrá landsins fyrir kosningarnar, sem á dagskrá eru næsta ár.
Osló, 12. október. Frá Per A.
Borglund, fréttaritara Morgunblaðsins.
Uppskerubrestur af völdum slæms
tíðarfars í Norður-Noregi í sumar
gæti orðið til þess, að 5—10 jarðir á
þeim slóðum legðust hreinlega í
eyði. Er skýrt frá þessu í „Lofoten-
posten“.
Strandhéruð í Helgalandi urðu
verst úti, þar sem uppskerubrest-
ur varð þriðja sumarið í röð af
völdum veðurs. Ekki er um að
ræða stórbú, heldur bæi með
12—20 kýr á fóðrum.
Formaður samtaka bænda í
N-Noregi, Björn Kristiansen, seg-
ir, að nauðsynlegt sé að reyna að
létta undir með bændunum. Segist
hann í þeim efnum líta vongóður
til yfirmanna bankakerfisins.
Ferdinand Marcos
Tel Aviv, 14. október. AP.
YITZHAK Shamir, forsætisráðherra ísraels, leit í kring um sig í gær, í leit að
nýjum fjármálaráðherra í kjölfarið á uppsögn Yorams Aridor á fimmtu-
dagskvöldið. f gærkvöldi var enn ekki ráðið í stöðu hans.
Aridor tilkynnti afsögn sína á
skyndifundi stjórnarinnar. Sagði
hann fréttamönnum að fundinum
loknum, að hann gengi með ör-
ugga lausn á efnahagsvanda Isra-
els í maganum, lausn sem myndi
rétta efnahaginn við í einu vet-
fangi. En hann hefði sagt af sér
vegna þess að hann talaði fyrir
daufum eyrum í ríkisstjórninni.
Sagði Aridor að Shamir vildi
grípa til fráleitra aðgerða sem
miðuðu að því að tengja ísraelska
gjaldmiðilinn þeim bandaríska.
Shamir lét ekki eins og að eftir-
sjá væri í Aridor úr stjórninni.
Hann tók athugasemdalaust við
uppsagnarbeiðni hans og við
fréttamenn sagði hann: „Svona
varð þetta að vera, hann tók aldrei
tillögur mínar alvarlega." Þrír
ísraelskir stjórnmálamenn eru
taldir manna líklegastir til að
hreppa sæti Aridors og búist er
við því að Shamir velji einn þeirra
snemma í næstu viku. Eru það
Yitzhak Modai, orkumálaráðherra
sem lengi hefur haft augastað á
embættinu og gagnrýnt Aridor
ótæpilega, Ezer Weizman, fyrrum
varnarmálaráðherra sem sagði af
sér embætti árið 1979, og David
Levi, aðstoðarforsætisráðherra
sem þykja líklegastir.
Taismenn stjórnarandstöðunar
í ísrael lýstu í gær vanþóknun
sinni á efnahagsaðgerðum stjórn-
arinnar og lýstu því yfir að þeir
myndu freista þess að fella stjórn-
ina með vantrauststillögu í næstu
viku. Fréttaskýrendur töldu þó
allar líkur á að stjórnin myndi
standast áhlaupið.
Mótmæli
í Nowa
Huta brot-
in á bak
aftur
Varsjá. 14. október. AP.
LÖGREGLAN í Kraká beitti tára-
gasi og háþrýstidælum til að brjóta
upp mótmælafund nokkurra hundr-
uða stuðningsmanna Samstöðu í
Nowa Huta, að sögn opinberra
starfsmanna.
Efnt var til mótmælafundar-
ins í framhaldi af minningar-
guðsþjónustu um tvítugan pilt,
sem óeinkennisklæddir lögreglu-
menn eru sagðir hafa myrt við
mótmælaaðgerðir stuðnings-
manna Samstöðu fyrir ári.
Hermt var að tíu þúsund
manns hefðu sótt minningar-
guðsþjónustuna, og að henni lok-
inni tóku eittþúsund syrgjendur
sér stöðu í garðinum þar sem
pilturinn var myrtur, en lögregl-
an lét þann hóp afskiptalausan.
Hins vegar réðst lögreglan
gegn nokkurra hundruða manna
göngu, sem hélt í átt til miðborg-
arinnar frá kirkjunni. Göngu-
menn hrópuðu í sífellu nöfn
Samstöðu og Lech Walesa.
Hermt er að engan hafi sakað er
lögreglan skarst í leikinn.
Oftar en einu sinni hefur kom-
ið til mikilla átaka í Nowa Huta,
þar sem Lenín stálverksmiðjurn-
ar risafengnu eru, frá því Sam-
staða var bönnuð er herlög voru
sett í Póllandi í desember 1980.
Síðast skarst í odda með lögreglu
og stuðningsmönnum Samstöðu
er 10 þúsund stálverkamenn
börðust við lögreglu þar í fimm
stundir 31. ágúst sl. á stofndegi
Samstöðu. Gífurlegur lögreglu-
vörður hefur verið viðhafður í
Nowa Huta mánuðum saman.
Marcos ritaði nafn sitt á reglu-
gerðina í beinni útsendingu í sjón-
varpinu að viðstöddum nokkrum
ráðherrum og Arturo Tolentino,
formanni rannsóknarnefndarinn-
ar sem lét af störfum í byrjun vik-
unnar vegna ásakana um hlut-
drægni. Lét forsetinn ekkert uppi
um hverjir myndu skipa hina nýju
nefnd. A hinn bóginn sagði hann
að hann myndi kalla til fundar við
sig forráðamenn flokks sins í dag
og ræða þessi mál. I fréttatilkynn-
ingu sem gefin var út í kjölfarið á
N-Noregur:
5—10 jarðir
gætu lagst
í eyði
sjónvarpsþættinum fyrrgreinda
var grcint frá þvi, að ákveðið yrði
á fundinum hverjir myndu taka
sæti í nefndinni. Hana myndu
ekki skipa fleiri en sjö aðilar og
myndu þeir vera valdir af handa-
hófi eftir ábendingum þeirra hópa
sem það gerðu. Sagði í fréttatil-
kynningunni að nefndin myndi
endanlega „hvítþvo" stjórnvöld af
ábyrgð á morðinu.
Hvað varðar stjórnarskrár-
breytingarnar lét Marcos lítið
uppi um það, en sagði þær nauð-
synlegar. Er litið á aðgerðir for-
setans sem sigur fyrir stjórnar-
andstöðuna, en flestir flokkar
hennar tóku ekki þátt í kosning-
unum 1978 og hafa oft hótað því
að kjósa ekki á næsta ári nema að
tryggt verði að kosningarnar verði
marktækar og án allra óheilinda
af hálfu stjórnvalda.
„Efnahagsaðgerðir
Shamirs fráleitar“