Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983
Ný þingmál;
Ráöherrar hafi ekki atkvæð-
isrétt — vinnustaðafélög
semji um kaup og kjör
• Kolbrún Jónsdóttir og Stefán Benediktsson, þingmenn Bandalags jafnaó-
armanna, hafa flutt frumvarp um skipulagsbreytingu í verðákvörðun Verð-
lagsráös sjávarútvegsins. Samkvæmt frumvarpinu skal „lágmarksverð á
sjávarafla vera ákveðiö í frjálsum samningum af fulltrúum fiskkaupenda og
fiskseljenda".
Þingmenn Alþýðubandalags sýna íhaldssemi í því að sitja jafnan við sama borðið í kaffistofu þingsins. Stöku sinnum
hætta aðrir sér inn í þeirra „landhelgi“. Hér sést Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, fyrir borðsenda hjá
þingmönnum Alþýðubandalags.
Fyrirspumir:
„í þágu bænda og landeigenda...“
• Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalags, flytur frumvarp
til breytinga á lögum um verzlun-
aratvinnu. Svavar leggur m.a. til
að „leyfi til verzlunarreksturs,
skv. 2. gr., gildi í 5 ár, nema inn-
flutnings- og útflutningsverzlunar
í 3 ár“. „Verzlunarleyfi skal endur-
nýjað ef Verðlagsstofnun mælir
með endurnýjun þess.“
• Stefán Benediktsson og Kol-
brún Jónsdóttir, þingmenn BJ,
flytja frumvarp til breytinga á
lögum um stéttarfélög og vinnu-
deilur. Frumvarpið gerir ráð fyrir
þeirri meginbreytingu „að laun-
þegar á sama vinnustað (og þá er
vinnustaður skilgreindur þannig
að til hans teljist allir þeir sem
taka laun sín hjá einum og sama
vinnuveitanda) geti ákveðið (þ.e.
% hlutar þeirra) að stofna eigið
félag sem fari með samninga um
kaup og kjör og önnur réttindi og
aðrar skyldur sem stéttarfélag
þeirra fór áður með, og þá skipti
ekki máli hvers konar störf við-
komandi launþegi hefur leyst af
hendi."
• Guðrún Helgadóttir (Abl) flyt-
ur ásamt þingmönnum úr fjórum
þingflokkum tillögu til þings-
ályktunar, sem felur ríkisstjórn-
inni, ef samþykkt verður, að „hlut-
ast til um að fyrir næsta skólaár
verði komið á einsetningu í grunn-
skólum og samfelldum skóladegi
þar sem húsnæði og aðrar aðstæð-
ur leyfa“.
• Guðmundur Einarsson og
Kristín S. Kvaran, þingmenn BJ,
flytja frumvarp til stjórnskipun-
arlaga um þingmannanefndir „til
að rannsaka mikilvæg mál, er al-
menning varða" og að „fasta-
nefndir Alþingis hafi eftirlit með
framkvæmd laga“. Þá gerir frum-
varpið ráð fyrir að „ráðherrar eigi
samkvæmt embættisstöðu sinni
sæti á Alþingi, en eiga þar ekki
atkvæðisrétt".
• Eiður Guðnason (A) flytur,
ásamt fleiri samflokksmönnum,
tillögu, sem felur forsætisráð-
herra, ef samþykkt verður, „að
hlutast til um að felldar verði úr
gildi þær reglur sem nú kunna að
gilda um fríðindi hliðstæð þeim,
er ráðherrar hafa notið varðandi
bifreiðakaup, gagnvart yfirmönn-
um ríkisstofnana, svo sem ríkis-
banka og Framkvæmdastofnun-
ar“.
• Guðrún Helgadóttir (Abl) flyt-
ur, ásamt samflokksmönnum,
frumvarp til breytinga á al-
mannatryggingarlögum. Megin-
efni þess er að „fæðingarorlof
framlengist um einn mánuð sé um
að ræða tvíburafæðingu og einn
mánuð fyrir hvert barn að auki, ef
fæðast fleiri í einu“.
Þegar eru fram komnar á Alþingi
fyrirspurnir til einstakra ráðherra.
Meðal þeirra eru þessar:
• „Hver eru áform ríkisstjórnar
varðandi stofnun deildar fyrir
hjartaskurðlækningar á Landspít-
ala?“ Svavar Gestsson (Abl) spyr
heilbrigðisráðherra.
• „Hyggst ríkisstjórnin leggja
fram og fá afgreiðslu á þessu þingi
á tillögum um breytingu á jafn-
réttislögum sem unnar vóru í tíð
ríkisstjórnar Gunnars Thorodd-
sen?“ Sami þingmaður spyr fé-
lagsmálaráðherra.
• „Hverju nemur kostnaður við
framkvæmdir sem átt hafa sér
stað í tengslum við virkjun
Blöndu, en eru í raun í þágu
bænda og landeigenda á svæðinu?
... Hvaða aðilar hafa fengið
greiðslur og hve mikið hefur kom-
ið í hvers hlut? Hvaða aðilar
munu fá greiðslur vegna sölu
vatnsréttinda?" Eiður Guðnason
(A) spyr iðnaðarráðherra.
• „Hve miklu fjármagni hefur
verið varið til byggingar Seðla-
bankahússins?" Karvel Pálmason
(A) spyr viðskiptaráðherra.
• „Hverjar vóru á árinu 1982 svo
og fyrstu 6 mánuði þessa árs tekj-
ur sýslumanna, yfirsakadómara,
yfirborgardómara, yfirborgarfóg-
eta og tollstjórans í Reykjavík
vegna innheimtu þeirra á ríkis-
sjóðstekjum, sbr. lög nr. 84/1976,
um laun starfsmanna ríkisins, og
reglugerð nr. 320/1976, um laun
innheimtumanna ríkissjóðs fyrir
innheimtu ...?“ Jóhanna Sigurð-
ardóttir (A) spyr fjármálaráð-
herra og óskar skriflegs svars.
á morgun
i é Mi
Guðspjall dagsins:
Matt. 22.:
Brúðkaupsklæöin.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur, organleikari
Marteinn H. Friöriksson. Sr.
Hjalti Guömundsson. Messa kl.
2. Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. For-
eldrar lesa bæn og ritningar-
texta. Fólk er hvatt til þess aö
hafa meö sér sálmabækur. Sr.
Þórir Steþhensen. Laugard.
Barnasamkoma á Hallveigar-
stööum kl. 10.30 (inng. frá Öldu-
götu). Sr. Agnes Siguröardóttir.
ARBÆ J ARPREST AK ALL:
Barnasamkoma í safnaöarheimili
Arbæjarsóknar kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta í safnaöarheimil-
inu kl. 14. Kirkjukaffi Kvenfélags
Arbæjarsóknar eftir messu. Aö-
alfundur Árbæjarsafnaðar kl.
15.30. Félagsvist á vegum
Bræörafélags Arbæjarsafnaöar í
safnaöarheimilinu kl. 20.30. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Barnaguös-
þjónusta að Noröurbrún 1, kl. 11.
Guösþjónusta á sama staö kl. 2.
Sr. Árni Bergur Sigurbiörnsson.
BREIOHOLTSPRESTAKALL:
Barnasamkoma laugardag kl. 11
f.h. Messa sunnudag kl. 14.00 i
Breiöholtsskóla. Fermingarbörn
og aöstandendur þeirra beönir
aö koma. Sr. Lárus Halldórsson.
BÚSTADAKIRKJA: Barna- og
fjölskylduguösþjónusta kl. 11.
Guösþjónusta kl. 2. Organleikari
Guöni Þ. Guðmundsson, prestur
sr. Solveig Lára Guömundsdótt-
ir. Bræörafélagsfundur mánu-
dagskvöld kl. 20.30. Félagsstarf
aldraöra miövikudagseftirmiö-
dag og fundur i æskulýösfélaginu
miövikudagskvöld kl. 20. Sókn-
arnefndin.
DIGRANESPRESTAKALL: Laug-
ardagur: Barnasamkoma í safn-
aöarheimilinu viö Bjarnhólastíg
kl. 11 árd. Sunnudagur: Guös-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 2. Sóra Pétur Ingjaldsson,
fyrrverandi prófastur, prédikar.
Félag fyrrverandi sóknarpresta.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl.
10. Organleikari Birgir Ás Guö-
mundsson. Sr. Þórir Stephensen.
GRENSÁSPRESTAKALL:
Barnasamkoma kl. 11. Guös-
þjónusta kl. 2. Kirkjukaffi. Aldr-
aöir sérstaklega boönir velkomn-
ir. Organleikari Árni Arinbjarnar-
son. Almenn samkoma nk.
fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Æskulýösfundur á föstudag kl.
20.30. Sr. Halldór S. Gröndal.
FELLA- OG HÓLAPRESTA-
KALL: Laugardagur: Barnasam-
koma í Hólabrekkuskóla kl. 2.
Sunnudagur: Barnasamkoma í
Fellaskóla kl. 11. Guösþjónustan
í menningarmiöstööinni viö
Geröuberg fellur niöur vegna
setningar kirkjuþings. Sr. Hreinn
Hjartarson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Guðsþjónusta kl. 14. Fermd
veröur Hjördís Kristinsdóttir,
Þórufelli 6, R. Skírn. Altaris-
ganga. Orgel- og söngstjóri Pav-
el Smid. Sr. Gunnar Björnsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Fermd verða: Anna Bentina
Hermansen, Garösenda 12,
Brynjar Carl Gestsson og Júlía
Björk Árnadóttir, Grettisgötu
58B. Altarisganga. Prestarnir.
Barnasamkoma kl. 11. Börnin
komi í kirkjuna og taki þátt í upp-
hafi messunnar. Messa kl. 2.
Kirkjuþingssetning. Séra Ölafur
Skúlason vígslubiskup pródikar.
Sr. Karl Sigurbjörnsson og sr.
Ragnar Fjalar Lárusson þjóna
fyrir altari. Þriöjudagur 18. okt.,
fyrirbænaguösþjónusta kl. 10.30,
beöiö fyrir sjúkum. Miövikudagur
19. okt., kl. 20.30 (ath. tímann)
Lútherskvöld á vegum kirkju-
þings. Dagskrá í máli, myndum
og tónum. Endað meö náttsöng.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguös-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 2.
Organleikari Orthulf Prunner. Sr.
Tómas Sveinsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Laug-
ardagur: Barnasamkoma í safn-
aðarheimilinu viö Kastalageröi kl.
11 árd. Sunnudagur: Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 2. Aöal-
fundur safnaöarins aö lokinni
guösþjónustu. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Óska-
stund barnanna kl. 11. Söngur,
sögur, myndir. Sögumaöur Sig-
urður Sigurgeirsson. Guösþjón-
usta kl. 14. Organleikari Jón
Stefánsson, prestur sr. Sigurður
Haukur Guöjónsson. Sóknar-
nefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Barna-
guösþjónusta kl. 11. Guösþjón-
usta kl. 14. Ræðuefni: Samfagn-
aöur meö Kristi. Bænaguösþjón-
usta þriðjudag kl. 18.00. Föstu-
dagur 21. okt. opiö hús kl. 14.30.
Sr. Ingólfur Guömundsson.
NESKIRKJA: Laugardagur:
Samverustund aldraöra. Páll
Líndal lögfræðingur spjallar um
Reykjavík fyrr og síðar. Reynir
Jónasson leikur gömul Reykja-
víkurlög á harmoniku. Sr. Frank
M. Halldórsson. Sunnudagur:
Barnasamkoma kl. 11. Guös-
þjónusta kl. 14. Orgel- og kór-
stjórn Reynir Jónasson. Mánu-
dagur: Fundur æskulýðsfélagsins
kl. 20.30. Miövikudagur, fyrir-
bænamessa kl. 18.20. Sr. Guö-
mundur Óskar Ólafsson.
SELJASÓKN: Barnaguðsþjón-
usturnar hefjast kl. 10.30. Þær
veröa í Ölduselsskólanum og
íþróttahúsi Seljaskóla. Guös-
þjónusta í Ölduselsskóla kl. 14.
Mánudaginn 17. okt. er aöal-
fundur Seljasóknar í Tindaseli 3,
kl. 20.30. Fimmtudaginn 20. okt.
er fyrirbænasamvera í Tindaseli
3, kl. 20.30. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSOKN:
Barnaguðsþjónusta í sal Tónlist-
arskólans kl. 11. Sr. Frank M.
Halldórsson.
DÓMKIRKJA KRISTS KON-
UNGS, Landakoti: Lágmessa kl.
8.30. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Alla rúmhelga daga
er lágmessa kl. 18, nema á laug-
ardögum, þá kl. 14. I október-
mánuöi er lesin Rósakransbæn
eftir lágmessuna kl. 18.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa
kl. 11.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Út-
varpsguösþjónusta kl. 11. Ræöu-
maður Einar J. Gíslason. Organ-
isti Árni Arinbjarnarson. Almenn
guösþjónusta kl. 20. Jóhann
Pálsson. Einsöngvari Jón Geir
Þórisson.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg
2B: Bænastund kl. 20. Samkoma
kl. 20.30 á vegum Sambands (sl.
kristniboösfélaga. Kristniboös-
flokkurinn Vorperla sér um efni.
Fram koma: Helgi Elíasson,
Susie Bachmann og Ástráöur
Sigursteindórsson. Tekið á móti
gjöfum til kristniboösins.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Bæn kl. 20 og
hjálpræöissamkoma kl. 20.30.
Betsy Jónsdóttir og Anne Gurine
Óskarsson stjórna. Heimilasam-
bandssystur taka þátt í samkom-
unni.
GARÐASÓKN: Biblíulestur kl.
10.30 árd. laugardag í Kirkju-
hvoli. Barnasamkoma í Kirkju-
hvoli kl. 11 árd. á sunnudag. Sr.
Bragi Friöriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garöabæ: Hámessa kl. 14.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði:
Sunnudagaskóli kl. 10.30. Safn-
aðarstjórn.
HAFNARFJARDARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 10.30. Vegna
héraðsfundar fellur messa niður.
Sr. Gunnþór Ingason.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga er
messa kl. 8.
KÁLFATJARNARSÓKN: Sunnu-
dagaskóli í Stóru-Vogaskóla kl.
14. Sr. Bragi Friöriksson.
YTRI-NJARDVÍKURKIRKJA:
Barnaguösþjónusta í umsjá Láru
Guðmundsdóttur kennara kl. 11.
Sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Hér-
aösfundur Kjalarnesprófasts-
dæmis hefst með almennri guös-
þjónustu kl. 10.30. Sr. Ólafur
Oddur Jónsson, Keflavik, pródik-
ar. Klukkan 17 veröur stutt kynn-
ing á lífi og starfi dr. Marteins
Lúther. Dr. Gunnar Kristjánsson
á Reynivöllum annast þá kynn-
ingu og sýnir litskyggnur. Kynn-
ingin er öllum opin. Sóknar-
nefndin.
KOTSTRANDAKIRKJA: Messa
kl. 14. Sóknarprestur.
HEILSUHÆLI NLFÍ, Hveragerði:
Messa kl. 11. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Lesmessa
meö altarisgöngu kl. 14. Sókn-
arprestur.
AKRANESKIRKJA: Fermingar-
guösþjónusta kl. 10.30. Fermd
verður Maren Finnsdóttir,
Sunnubraut 4, Ak. Sr. Björn
Jónsson.
BORGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Organisti Jón Þ. Björnsson.
Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason. í
dag, laugardag, er barnamessa
kl. 10.30.