Morgunblaðið - 15.10.1983, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983
35
Flytja inn fyrstu
Ákerman-gröfuna
Tveggja daga vinna á 20 mínútum
TOGGIIR hf. flutti nýverið inn fyrstu
Ákerman-gröfuna. Hún er af gerðinni
H14 og vegur 27 tonn, er með Volvo
penta turbo dieselvél, 194 DIN hest-
öfl. Þau tæki er með þessari vél
komu eru 1200 lítra grjót-skófla, ripp-
er og vökva brothamar.
Þessar upplýsingar fengust hjá
Agústi Ragnarssyni hjá Töggur hf.
„Hamarinn er af gerðinni Mont-
abert. Þessi hamar mun vera sá
stærsti og öflugasti sem fluttur
hefur verið til íslands. Sem dæmi
um afkastagetu hamarsins má
nefna, að fyrsta daginn sem vélin
var í vinnu þurfti að brjóta fyrir
hitaveitulögn yfir Vesturlandsveg-
inn. Reiknað hafði verið með
tveggja daga vinnu með hefð-
bundnum hætti. Þessu verki lauk
Ákerman-vélin á 20 mínútum.
Ákerman-verksmiðj urnar
sænsku eru dæmigerðar fyrir
sænskan iðnað sem um síðustu
aldamót þreifaði sig áfram á ýms-
um sviðum, þar til útkoman varð
að lokum framleiðsla og þróun á
einu sviði, gröfum. Um þriðja hver
grafa sem seld er á Norðurlöndum
er Ákerman. Verksmiðjurnar hafa
einnig haslað sér völl erlendis.
Ákerman á nú stóran hluta í
Bröyt-verksmiðjunum norsku og í
Bandaríkjunum var nýlega hafin
framleiðsla á Ákerman í eigin
verksmiðjum.
Ákerman-gröfurnar eru af ýms-
um stærðum og gerðum, á hjólum
og beltum frá 14 tonnum upp í 57
tonn. Er sú vél sem hér um ræðir
nokkurn veginn í miðjunni í þess-
ari fjölskyldu. Vélarnar í gröfunum
eru ýmist Volvo penta eða Scania
Turbo diesel með beinni innspýt-
ingu. Þetta eru hæggengar og afl-
Fyrsta Ákerman-grafan til tslands.
miklar vélar og er vinnuálag sjald-
an yfir 50%.
Vökvakerfið vinnur í þremur að-
skildum hringrásum þannig að út
fást þrjár hreyfingar algerlega
óháðar hver annarri. „Servó-syst-
em“ gerir þær einnig afar nákvæm-
ar.
Mikið af aukabúnaði er hægt að
fá með þessum vélum, til dæmis
sérstakar útfærslur ætlaðar til
jarðgangagerðar, það sem að ofan
er talið og fleira," sagði Ágúst að
síðustu.
Dollar og pundið
lækkuðu í sl. viku
Danska krónan og vestur-þýzka markið hækkuðu
DOLLARAVERÐ lækkaði um
0,68% í sfðustu viku, en sölugengi
Bandaríkjadollars var skráð 27,980
í vikubyrjun, en sfðan 27,790 krón-
ur sl. föstudag. Frá áramótum hef-
ur dollaraverð hækkað um 66,91%,
en f ársbyrjun var sölugengi
Bandaríkjadollars skráð 16,650
króna.
BREZKA PUNDIÐ
Brezka pundið lækkaði um 0,45%
í verði í liðinni viku, en í vikubyrj-
un var sölugengi þess skráð 41,837
krónur, en það var hins vegar skráð
41,650 krónur sl. föstudag. Frá ára-
mótum hefur verð á brezku pundi
hækkað um 55,23%, en í ársbyrjun
var sölugengi brezka pundsins
skráð 26,831 króna.
DANSKA KRÓNAN
Danska krónan hækkaði um-
talsvert í síðustu viku, eða um
1,39%. Sölugengi dönsku krónunn-
ar var skráð 2,9377 krónur í upp-
hafi síðustu viku, en sl. föstudag
var skráningin hins vegar 2,9786
krónur. Frá áramótum hefur
danska krónan hækkað um 50,05%
í verði, en í ársbyrjun var sölugengi
hennar skráð 1,9851 króna.
VESTUR-ÞÝZKA MARKID
Vestur-þýzka markið hækkaði
mest af gjaldmiðlunum f siðustu
viku, eða um 1,69%. Sölugengi
vestur-þýzka marksins var skráð
10,6005 króna í vikurbyrjun, en sl.
föstudag var skráningin hins vegar
10,7763 krónur. Frá áramótum hef-
ur verð á vestur-þýzku marki
hækkað um 53,85% hér á landi, en f
ársbyrjun var sölugengi þess skráð
7,0046 krónur.
GENGISÞROUNIN VIKURNAR 26 30 SEPTEMBER 0G 3 7 0KTÓBER 1983
„Hvers vegna
láta börnin
svona?“
Frumsýning í Stúdenta-
leikhúsinu á morgun
STÚDENTALEIKHÚSIÐ frumsýnir
á morgun kl. 20.30 dagskrána
„Hvers vegna láta börnin svona", en
frumsýningin var ranglega sögð vera
í gær, á síðum þáttarins „Hvað er að
gerast um helgina."
„Hvers vegna láta börnin svona"
er dagskrá um hin svokölluðu At-
ómskáld og þeim úlfaþyt sem ljóð
þeirra vöktu á sínum tíma.
Dagskrána sömdu þau Hlín Agn-
arsdóttir og Anton Helgi Jónsson,
en alls taka um tuttugu manns
þátt í henni.
Leigjendasamtökin boða til stofnfund-
ar um húsnæðissamvinnufélag í dag
„HUGMYNDIN að stofnun húsnæð-
issamvinnnufélags vaknaði upphaf-
lega innan Leigjendasamtakanna og
á fundi sem haldinn var 22. júní var
ákvörðunin endanlega tekin,“ sagði
Birna Þórðardóttir á blaðamanna-
fundi, þar sem kynnt var fyrirhuguð
stofnun slíks félags. Stofnfundur
verður haldinn á Hótel Borg í dag,
laugardag.
Fyrirmyndin að húsnæðisam-
vinnufélaginu er komin frá Svf-
þjóð, þar sem slík félög hafa starf-
að í allt að 60 ár. Þangað fóru þeir
Jón Kjartansson, Jón Á. Sigurðs-
son og Jón Rúnar Sveinsson til að
kynna sér húsnæðissamvinnufélög
í maf sl.
„Húsnæðissamvinnufélag er í
megindráttum ekki ósvipað bygg-
ingarsamvinnufélagi," sagði Jón
Rúnar Sveinsson, „áherslumunur-
inn er sá að félagið heldur áfram
starfi sínu að lokinni byggingu og
þá sem rekstrarfélag. Eignarrétt-
ur félagsmanna yrði takmarkaður
við búseturétt og íbúðirnar sam-
eign félagsins. Þannig greiddu
íbúar fyrir búseturéttinn visst
gjald en síðan mánaðarlega í 30
eða 42 ár þá upphæð sem svarar
til fjármagns- og rekstrarkostnað-
ar á íbúðinni.
Slíkt er ekki framkvæmanlegt
nema að breyting verði á lána-
kjörum, en með þeirri forsendu að
hægt sé að fá langtímalán sem
næmi 65% af byggingarkostnaði
til 30 eða 42 ára. Það er von okkar
að slíkum lánakjörum verði komið
á til að auðvelda fólki að eignast
þak yfir höfuðið," sagði Jón Rúnar
Sveinsson.
Gluggar og útihurðir frá Ramma hf. eru búnir undir það versta.
íslenskt veður gerir miklar kröfur til glugga og útihurða. Og það gerum við einnig
hjá Ramma hf. Smíðum aðeins úr 1. flokks efni. Þá notum við eingöngu LOZARON
þéttilistann sem er sá besti sem við þekkjum. Hann heldur framúrskarandi
vel lögunsinniog gefur fullkomnaþéttingu. Listanner hægtaðtakaúrfræstri
raufinni sem hann situr í og setja í aftur að málningu eða fúavörn lokinni. Þessi nýjung
lengir líftíma listans meir en nokkuð annað. LOZARON þéttilistinn er ekki ódýrasti
kosturinn fyrir okkur, en hann er sannarlega hagkvæmur fyrir húseigendur.
Hitunarkostnaður erekki svo lítill hluti af rekstrarkostnaði húsnæðis i dag.
LOZARON þéttilistinn
Nýcjkröftugurþéttilisti sem
lækkar hitunarkostnaö hússins.
Listann er auövelt aö taka úr viö
málningu eöa fúavörn. Þessi
nýjung auöveldar mjög allt viöhald.
ga-
unöaverksmiðja
Póslhólf 14230 Njarövlk Sími: 92-1601 Söluskritstofa í Reykjavik: Iðnverk hf. Nóatuni 17105 Reykjavik Simar: 91-25930og 91 -25945