Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983
3
Þessa mynd af Sandey II á Sundunum tók Ölafur K. Magnússon,
Ijósmyndari Morgunblaðsins, á hádegi sl. fimmtudag, daginn áður en
slysið varð.
Þormóður rammi á Siglufirði:
Fjármálaráðuneytið
leitar nýrrar stjórnar
65—70 milljónum skuldanna breytt í nýtt hlutafé ríkissjóðs?
EMBÆTTISMENN í fjármálaráðu-
neytinu leita nú ákaft manna, sem
hafa tíma, þekkingu og aðstöðu til að
taka að sér stjórn fiskvinnslu- og
útgerðarfyrirtækisins Þormóðs ramma
hf. á Siglufirði. Eins og fram hefur
komið í Mbl. hefur fjármálaráðuneytið
ákveðið að setja fyrirtækinu nýja
þriggja manna „starfsstjórn" og
fjármálastjóra í stað þeirrar stjórnar,
sem nú situr á Siglufirði. „Það verður
og hlýtur að takast á næstu dögum að
leysa þetta mál,“ sagði Höskuldur
Jónsson, ráðuneytisstjóri í fjármálar-
áðuneytinu, í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi.
Laun og olíuskuldir Þormóðs
ramma voru greidd í gær eftir að
fjármálaráðuneytið hafði tekið að
sér hlutverk banka og lánað fyrir-
tækinu gegn veðim í afurðum vik-
unnar. „Þessi gjörð hefði ekki komiff
til ef bankaviðskipti fyrirtækisins
hefðu verið með eðlilegum hætti,"
sagði Höskuldur. „Það má vafalaust
finna fleiri fyrirtæki, sem eru í svip-
uðum erfiðleikum og Þormóður
rammi, en þau geta haldið áfram
starfsemi vegna þess að þau eru í
bankaviðskiptum." Höskuldur sagði
að enn hefði ekki tekist að finna
fyrirtækinu, sem ér að 70 hundr-
aðshlutum í eigu ríkissjóðs, við-
skiptabanka. Ctvegsbankanum
hefði verið ætlað fyrirtækið í upp-
stokkun bankanna en stjórn bank-
ans hefði óað við að bæta Þormóði
ramma í hóp fyrirtækja í erfiðri
stöðu. Það væri ekki ætlun ríkis-
sjóðs að leika þetta bankahlutverk
áfram.
Tillögur Framkvæmdastofnunar
ríkisins, sem forsætisráðherra voru
sendar sl. miðvikudag, gera ráð
fyrir að 65—70 milljónum króna af
skuldum fyrirtækisins við endur-
lánasjóð ríkisins verði breytt í
hlutafé ríkissjóðs. Þessi upphæð er
tilkomin vegna erlendra lána, sem
tekin voru á síðasta ári til að ljúka
byggingu frystihúss Þormóðs
ramma á Siglufirði. Lán þessu voru
tekin í Japan gegn veði í togurum
fyrirtækisins, Sigluvík og Stálvík.
Höskuldur Jónsson kvaðst ekki geta
tjáð sig um tillögur Framkvæmda-
stofnunar varðandi Þormóð ramma,
enda hefðu þær ekki borist
fjármálaráðueytinu.
Fundur SVS og Varðbergs:
Ritstjóri Financial
Times talar í dag
MALCOLM Rutherford, stjórnmála-
ritstjóri Financial Times í Lundún-
um, talar á fundi Samtaka um vest-
ræna samvinnu og Varðbergs í há-
deginu í dag, laugardag. Ræðir hann
um stefnu Breta í varnarmálum og
öryggismál Evrópu.
Vetrarstarfið hófst með því hjá
Samtökum um vestræna sam-
vinnu og Varðbergi að Max Kamp-
elman, sendiherra Bandaríkjanna
á Madridráðstefnunni, lýsti störf-
um ráðstefnunnar.
Fundurinn með Malcolm Ruth-
erford fer fram í hliðarsal Súlna-
salar Hótel Sögu en gengið er til
hans um aðaldyr hótelsins. Salur-
inn verður opnaður klukkan 12 á
hádegi. Fundurinn er opinn fé-
lagsmönnum og gestum þeirra. Malcolm Rutherford
UPP MEÐ SÓLGLERAUGUN
Það getur vel verið að verslanirnar við
Laugaveginn séu búnar að taka niður
fulla sólgleraugnastandana eftir rigningar-
sumarið og setja þá bakvið. En þú skalt
setja upp sólgleraugunog ganga f Kanarf-
klúbb Flugleiða, Útsýnar, Úrvals og
Samvinnuferða/Landsýnar!
Við fljúgum til Las Palmas á Gran Canaría
f beinu leiguflugi á þriggja vikna fresti
frá og með 14. desember og vikulega frá
2. nóvember í áætlunarflugi um London
þar sem hægt er að hafa viðdvöl í
bakaleiðinni.
Við bjóðum úrval frábærra
gististaða: hótelíbúðir með 1 eða 2
svefnherbergjum, hótelherbergi og smáhýsi
með 1 eða 2 svefnherbergjum.
Við bjóðum dvöl í: 1,2, 3,4, 6, 9 eða jafnvel
24 vikur!
Við bjóðum hagstætt verð: Frá 19.460.- kr.
í eina viku og frá 22.155.- kr. í þrjár vikur, miðað
við 2 í hótelíbúð. 21 vika á Broncémar miðað
við 2 í íbúð kostar aðeins 78.000.- kr.
Þú kemur heim 9. maí!
Þú sérð Kanarfeyjar f réttu Ijósi
f gegnum gleraugun!
URVAL ÚTSÍTlf Samvinnuferóir-Landsýn FLUGLEIDIR