Morgunblaðið - 29.10.1983, Síða 12

Morgunblaðið - 29.10.1983, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983 Er allt kerfíð að bila í saumunum? — eftir Leif Sveinsson „Foreldrarnir keppast við að leggja ólöglega bifreiðum sínum með ótrúlegustu tilbrigðum, þannig að fyrstu minn- ingar barnanna eru lögbrot foreldranna. Ekki er það gott vega- nesti að fara með út í Jífið.“ Með lögum skal land byggja, en ólögum eyða, sagði hinn vísi lögmaður Njáll. Þessi setning hefur komið upp í huga margra á síðustu árum, þegar virðingar- leysi fyrir lögum og reglum hef- ur aukist óhugnanlega mikið. Fyrir handan íbúðarhús mitt f Tjarnargötu er rekið barnaheim- ilið Tjarnarborg. í fjörutíu ár hefi ég haft þá ánægju að fylgj- ast með þessum skemmtilegasta hópi mannfólksins, 3—6 ára börnunum. En hvernig tekst að ala þau upp í virðingu fyrir lög- um og reglum. Foreldrarnir keppast við að leggja óiöglega bifreiðum sínum með ótrúleg ustu tilbrigðum, þannig að fyrstu minningar barnanna eru lögbrot foreldranna. Ekki er það gott veganesti að fara með út i lífið. Þegar neðar dregur í göt- una tekur ekki betra við. í hús- unum nr. 10 A-D er mikið af Leifur Sveinsson gömlu fólki, sem bæði sér illa og á bágt með að fóta sig í hálku. Bifreiðastöður eru bannaðar beggja megin götunnar, en bif- reiðaeigendur hafa það að engu. Leggja þeir bifreiðum sínum um allar gangstéttir, meira að segja leggja þeir fyrir framan gömlu brunastöðina bíl við bíl og verð- ur sjóndapurt fólk þá að hrekj- ast út á götu fyrir þessum lögbrjótum. Ef pantaður er bíll að Tjarnargötu 10 í flughálku, kemst hann ekki að húsunum til að taka farþegann, heldur verð- ur hann einnig að taka hann úti á miðri götu. Lögregluþjónar sjást einstaka sinnum á þessum slóðum og nenna þeir í fæstum tilfellum að sekta lögbrjótana, fara heldur eftir reglunni, sem wm Bifreið lagt ólöglega við Tjarnargötu 33. séra Arni Þórarinsson sagði frá, er hann spurði um fyrirrennara sinn í prestsembætti fyrir vest- an: Hann var ósköp vinsæll, skipti sér ekki af neinu, var svar Snæfellinganna. Um hundahald hefur verið Bifreiðum lagt ólöglega við Tjarnargötu 10 A-D. rætt mikið undanfarið og er það mál sára einfalt. Hundahald er bannað samkvæmt lögum í Reykjavík. Þeir sem halda hunda eru lögbrjótar og ber lögreglunni skilyrðislaust að fjarlægja þá hunda, sem yfir er kvartað, hvort sem er af hávaða eða þeir ráðast að fólki. Við Reykvíkingar, sem reynum að hlýða lögunum, kærum okkur ekki um þetta fólk f bænum og bendum þeim á önnur bæjarfé- lög, þar sem hundahald er leyft. Taki það heimilishundinn fram yfir Reykjavík, þá verði því að góðu. Treysti lögreglustjórinn í Reykjavík sér ekki til þess að framkvæma lög og reglur þá ber honum að segja af sér. Æviráðn- ing í slík embætti er mjög óheppileg og ætti að breyta löggjöf í þá átt, að í sýslumanna- og lögreglustjóraembætti væri aðeins skipað til 5 ára, síðan yrðu þessir embættismenn flutt- ir til. Þá fengjum við Reykvík- ingar kannske lögreglustjóra, sem gæti þaggað niður í eins og einum hundi. Leifur Sreinsson er torstjóri Timb- urrerzlunarinnar Völundur hf. Laugardaginn 29. októbern.k. höldum við vörukynningu í versluninni frá kl. 9.00-16.00. Við bjóðum þér uppá kaffi og kex um leið og við kynnum fyrir þér það nýjasta í vetrartískunni. Ogekkinógmeðþað. Viðætlumaðgera enn betur og veita 10% kynningarafslátt. Tískusýningarfólk sýnir fyrir utan verslunina kl. 14.00. Austurstræti 10 S' slmi 27211 meira en venjuleg verslun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.