Morgunblaðið - 29.10.1983, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.10.1983, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983 Mesta mein aldarinnar Þriggja kvölda námskeið um áfengismál „MEKTA mein aldarinnar" er yfir- skrift þriggja kvöida námskeiðs um áfengismál, sem hefst í Reykjavík mánudagskvöldið 31. október. Á námskeiðunum mun Hrafn Pálsson flytja erindi og ræða við þátttakend- ur um áfengismál, og auk þess mun lyfjafræðingur ræöa um ýmsar verkanir áfengis- og lyfjaneyslu á mannslíkamann. í frétt, sem Morgunblaðinu hef- ur borist um námskeiðið, segir að það sé öllum opið, jafnt þeim, sem eiga við áfengisvandamál að stríða og öðrum. Námskeiðið er ætlað öllum áhugamönnum, en ekki síst þeim, sem umgangast fólk, sem á við áfengisvanda að stríða, börn, makar, vinnuveitend- ur, vinnufélagar og svo framvegis. Þátttaka er bundin við 30 manns í hverju námskeiði, og er þátttöku- gjald 800 krónur, eða sem svarar verði rúmlega einnar áfengis- flösku. Innifalin í námskeiðsgjald- inu eru ýmis gögn, sem þátttak- endum verða afhent, en í fyrir- lestrum verður stuðst við bókina „Mesta mein aldarinnar" eftir Jos- eph P. Pirro leiðbeinanda við Freeport-sjúkrahúsið í Bandaríkj- unum. Námskeiðið hefst sem fyrr segir nú á mánudagskvöldið, en þátt- taka tilkynnist í síma 16440 milli klukkan 18 og 29, laugardag, sunnudag og mánudag, segir að lokum í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu hefur borist. Hrafn Pálsson þýðandi og Joseph P. Pirro höfundur bókarinnar Mesta mein aldarinnar, en námskeiðið um áfengismál er byggt á bókinni að hluta til. Hraðfrystihús Skjaldar hf. á Patreksfirði, sem Byggðasjóður hefur selt heimamönnum, en sjóðurinn eignaðist frystihúsið á nauðungaruppboði fyrr á þessu ári. Morgunbl»*ið/t'ritlþj«fur Patreksfjörður: Byggðasjóður selur heima- mönnum frystihús Skjaldar Kaupverðið 7—8 milljónir, eða Byggðasjóði „að skaðlausu“ STJÓRN Framkvæmdastofnunar ríkisins ákvað á fundi sínum í gærmorgun að selja undirbúnings- nefnd um stofnun fiskvinnslu á Patreksfirði frystihús það, er Byggðasjóður leysti til sín á uppboði í haust, gamla Skjaldarhúsið svo- kallaða. Hyggjast heimamenn nú hefja fiskvinnslu og frystingu í hús- inu og stefna að því að byrja rekst- ur strax eftir áramót. Á næstu dög- um verður boðað til stofnfundar nýs hlutafélags á Patreksfirði, sem mun kaupa húsið og reka það, að sögn Hilmars Jónssonar, spari- sjóðsstjóra á Patreksfirði, sem er einn af forystumönnum undirbún- ingsnefndarinnar. „Við gerum ráð fyrir að það taki okkur 2—3 mánuði að koma húsinu í gang þannig að við mun- um byrja í upphafi vetrarvertíðar á frystingunni," sagðí Hilmar Jónsson í samtali við blm. Morg- unblaðsins í gær. „Við erum þeg- ar búnir að tryggja okkur afla eins báts, Jóns Þórðarsonar BA, sem er um 200 lestir, hópur manna hér á staðnum hyggst kaupa annan bát og einnig fáum við afla allmargra smærri báta og af trillum frá því í mars og fram á haustið. Það er náttúrlega aldrei hægt að fullyrða hvort hráefni verður nóg, en við gerum ráð fyrir að vinna 2—3000 tonn yfir árið. Úr vertíðarbátunum reiknum við með samtals 1500 tonnum og 7—800 tonnum úr minni bátunum." Tilboð undirbúningsnefndar hins nýja félags í frystihúsið hljóðaði upp á að húsið yrði keypt „Byggðasjóði að skaðlausu", sem mun þýða, að kaupverð hússins verður 7—8 milljónir króna. Hilmar sagði áætlanir hópsins gera ráð fyrir að uppbygging hús- sins myndi kosta um 6,5 milljónir króna í tveimur áföngum. „Véla- búnaðurinn mun kosta um 3,5 milljónir og af þeim kostnaði fáum við sjálfkrafa % hluta að láni erlendis frá. Fjármögnun að öðru leyti er ekki endanlega lokið en hlutafé okkar er nú þegar orð- ið 2,5 milljónir og á vafalaust eft- ir að verða meira. Ábyrgð fyrir því láni fæst væntanlega í við- skiptabanka hlutafélagsins, hver sem það verður. Væntanlega verður það einhver af þremur bankastofnunum hér á Patreks- firði," sagði Hilmar. Hann sagðist reikna með að 20—30 manns muni starfa í hinu * endurreista frystihúsi þegar það væri komið í fullan gang. „Við er- um ekki að stofnsetja þetta fyrir- tæki til höfuðs Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar, kaupfélagshús- inu,“ sagði Hilmar. „Það er ljóst að það verður ekki um neina sam- vinnu að ræða þar á milli enda treystum við okkur ekki til að bjarga HP þegar búið er að koma því á kaldan klaka. Meginmálið er að með þessu tekst að koma í veg fyrir atvinnuleysi á Patreks- firði.“ Jens Valdimarsson, kaupfé- lagsstjóri og stjórnarformaður Hraðfrystihúss Patreksfjarðar hf., sagðist í samtali við frétta- mann Mbl. ekkert geta sagt um þessa ákvörðun stjórnar Fram- kvæmdastofnunar ríkisins. „Þetta verður þeirra mál og þeirra höfuðverkur, þessa nýja félags," sagði Jens. „Ég vona að þetta verði þessum mönnum og byggðarlaginu til framdráttar." Hann sagði að almennt hlutafjár- útboð félagsins á kaupfélags- svæðinu gengi sæmilega, um 30 einstaklingar og fyrlrtæki hefðu ákveðið að leggja fram hlutafé til uppbyggingar HP en það væri ljóst að ekki yrði um að ræða neina samvinnu eða sameiningu HP og hins nýja félags. Bæði skip HP, togarinn Sigur- ey og vélbáturinn Þrymur, eru nú á veiðum. Sigurey mun leggja upp á ísafirði að aflokinni yfirstand- andi veiðiferð en afla Þryms er landað á Patreksfirði og hann síðan fluttur landveginn til Bíldudals. Ákvörðun stjórnar Fram- kvæmdastofnunar um þessa ráð- stöfun Skjaldarhússins var tekin með fjórum atkvæðum gegn þremur. Á móti voru tveir full- trúar Framsóknarflokksins og fulltrúi Alþýðubandalagsins en með þrír fulltrúar Sjálfstæðis- flokks og fulltrúi Alþýðuflokks- ins. ísafjörður: Lögreglumaðurinn hef- ur sagt upp störfum LÖGREGLUMAÐURINN, sem viðurkennt hefur að hafa misfariö með blóðsýni á ísafirði, hefur sagt upp störfum. Svo sem fram kom í Mbl. í gær, þá stóðu yfirheyrslur í fyrrakvöld yfir tveimur lögreglumönnum vegna meintrar aðildar að mál- inu, en þessum sömu mönnum var sagt upp störfum um helgina vegna meints brots í starfi í hinu svokallaða ís- bergsmáli, sem upp kom þegar tollvörður tók með samþykki skipstjóra tvo bjórkassa og tvær áfengisflöskur af tollbirgð- um Isbergs þann 1. september síðastliðinn. Tildrög málsins eru þau, að þann 15. október síðastliðinn var maður — vitni í ísbergsmálinu, tekinn grunaður um ölvun. Blóð- sýni var tekið af honum og við- urkenndi hann við yfirheyrslu að hafa neytt áfengis. Hinn grunaði hafði í hótunum við lögreglu- mennina og vaknaði grunur um að tengsl væru á milli hótana hans og Isbergsmálsins, en ekk- ert hefur efnislega komið fram sem styður það. Hvað sem veldur, þá fór hinn grunaði á lögreglustöðina dag- inn eftir og fékk sprautu og glas hjá lögreglumanninum, sem sagt hefur upp störfum. Hann kom síðar um daginn með nýtt blóð- sýni og það var sent suður en ekki blóðsýnið, sem tekið var um nóttina þegar hann viðurkenndi að hafa neytt áfengis. Við yfirheyrslur viðurkenndi annar lögreglumaðurinn, sem yfirheyrður var í fyrrakvöld, að hafa rætt um leiðir til þess að týna hinu upphaflega blóðsýni. Hann neitaði allri aðild, sagði þetta hefði aðeins komið fram í samræðum og hann hefði ekki hvatt til þess að misfarið væri með blóðsýni né heldur latt til verknaðarins. Hinn neitar allri aðild. Það skal tekið fram, að tollvörðurinn er ekki viðriðinn þetta mál. Bæði þessi mál verða send rík- issaksóknara um helgina. Tónleikar í Bústaðakirkju Sunnudaginn 30. október heldur Nýja strengjasveitin tónleika f Bú- staðakirkju. Á efnisskránni er fiðlu- konsert eftir P. Nardini, sinfónfa fyrir strengi eftir C.P.E. Bach og sinfónfur nr. 1 og 51 eftir J. Haydn. Einleikari á fiðlu er Laufey Sigurðardóttir. Síðastliðin 3 ár hefur Nýja strengjasveitin haldið nokkra sjálfstæða tónleika og vakið athygli fyrir vandaðan flutning. Er þess skemmst að minnast þegar tékkn- eski hljómsveitarstjórinn Josef Vlach stjórnaði sveitinni í ágúst síð- astliðnum við mjög góðar undirtekt- ir tónleikagesta og gagnrýnenda. Nýja strengjasveitin er nú skipuð 16 hljóðfæraleikurum en að þessu sinni koma einnig fram Daði Kol- beinsson og Janet Wareing, óbó, Jos- eph Ognibene og Jean Hamilton, horn. Á tónleikunum verður leikið án stjórnanda en konsertmeistari er Michael Shelton. Tónleikarnir hefjast kl. 17. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.