Morgunblaðið - 29.10.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983
31
Áfengi og heilsa
— eftir dr. Jón
óttar Ragnarsson
Vegna meinlegrar stokkunar í
grein Jóns Óttars Ragnarssonar í
blaðinu sl. miðvikudag er hún birt
hér aftur.
Soma kallaði Aldous Huxley
vímuefni „framtíðarinnar" í
sinni mögnuðu skáldsögu Brave
New World.
Með „soma“ er höfundurinn að
gefa í skyn að ekkert þjóðfélag
nú á tímum fái staðist án vímu-
gjafa einhvers konar.
Áfengi og saga
Hinn lögskipaði vímugjafi
Vesturlanda er auðvitað áfengi.
Gleymist sú staðreynd oft í um-
ræðum um áfengismál.
Áfengið var einkum notað í
Gamla heiminum og er a.m.k.
8000 ára. Notuðu norðlægar
þjóðir einkum bjór en suðlægar
létt vín.
{ Nýja heiminum voru aðrir
vímugjafar algengir, þ. á m.
kókablöð, þar til Evrópumenn
fluttu vínviðinn a milli*.
MilHsterku og sterku vínin
náðu svo fótfestu á 16. og 17. öld
og urðu sums staðar algengasta
áfengið, m a. á íslandi.
Taflan hér á síðunni sýnir
þessa fjóra aðalflokka ífengis og
meóalhlutfall vínanda (dreifingin
er innan sviga), í hverjum fyrir
sig.
Áfengi sem lyf
Áfengi var upphaflega notað
sem lyf og má kalla það elsta lyf
mannkynsins. Var það m.a. not-
að til að stilla kvalir.
Enn þann dag í dag er áfengi
mikið notað til að sporna gegn
streitu, kviða og svefnleysi svo
eitthvað sé nefnt.
FÆÐA
OG
HEILBRIGÐI
En vínandi er ekkert venjulegt
orkuefni því hann brennur að-
eins í lifur og er brennslugetan
aðeins um 200 ml i dag.
Þetta samsvarar um % flösku
af sterkum drykk á dag og jafn-
gildir um 50% af meðalorkuþörf
fullorðins fólks.
Við stöðuga neyslu eykst þolið
smám saman þar til vínandinn
getur fullnægt allt að 100% af
orkuþörfinni.
En með þessari orku fylgir lít-
ið af bætiefnum og þess vegna
þjást áfengissjúklingar oft af ill-
kynjuðum bætiefnaskorti.
Verst er þetta þegar sterkra og
millisterkra drykkja er neytt því
hollustugildi þeirra er því sem
næst núll.
Létt vín eru hins vegar þokka-
leg uppspretta fyrir sum stein-
efni (m.a. járn) og bjór fyrir sum
steinefni og B-vítamín.
Áfengi sem orkugjafi
Virka efnið í áfenginu er vín-
andinn. Er hann m.a. öflugt
orkuefni (næringarefni) og gefur
hvert gramm 7 he.
Þannig fá Vesturlandabúar allt
frá 3% (fslendingar) f 14% (Frakk-
ar) af hitaeiningunum úr áfengi að
jafnaði.
Áfengi sem vímugjafi
í hófi er áfengi frábær vímu-
gjafi sem vinnur gegn streitu og
feimni og eflir samkennd og
styrkir félagsleg tengsl.
f stærri skömmtum koma gall-
arnir í ljós: Truflun á tali, hreyf-
ingum og dómgreind með auk-
inni slysahættu og ofbeldis-
hneigð.
f enn stærri skömmtum hlýst
af svefn eða dá, oft með slæmum
eftirköstum, timburmönnum eða
fráhvarfseinkennum.
Harðast bitnar neyslan á lifr-
inni og veidur í fyrstu fitulifur og
lifrarbólgu en að lokum ólækn-
andi sjúkdómi: skorpulifur.
Skorpulifur getur hæglega
leitt til dauða og kemur fram
þegar dagsneysla meðalmann-
sins fer yfir 70 ml af hreinum
vínanda að staðaldri.
Áfengi sem fíkniefni
En löngu áður en dagsneyslan
nær þessu marki (5—6 sjússar á
dag) getur viðkomandi hafa
ánetjast áfenginu.
Þeir sem verða háðir áfengi
kynnast að lokum fjórðu og
skuggalegustu hlið áfengisins:
áfenginu sem fíkniefni.
Þrátt fyrir lægstu meðalneyslu á
Vesturlöndum hafa fslendingar
kynnst áfengissýkinni í ríkum
mæli.
Það er nefnilega ekki aðeins
magnið af áfengi sem drukkið er
sem máli skiptir, heldur einnig
hvernig það er drukkið.
Lokaorð
í þessari grein var fjallað um
hin fjögur andlit áfengisins. f
þeirri næstu verður fjallað um
hinar hrikalegu afleiðingar
áfengissýkinnar og varnir gegn
henni.
Helstu gerðir
Tef»DÓ
Bjór
Léttvfa
Milliflterk rin
Sterk rín
áfengis
% Vfnaodi
S (2—8)
10 (8—12)
20 (18—21)
40 (40-50)
*í Nýjn heiminum óx önnur vínviöartegund
(sbr. Vínland hrf) góda) sem hentar ekki
eins vel til víngerðar eins og hinn forni (og
hreini) vínviður Gamla heimsina.
FljóLsdalur:
Unnið að vega-
gerð vegna
Fljótsdals-
virkjunar
Geitagerði í október.
SUMARIÐ reyndist hér mjög hag-
stætt til heyöllunar. Sláttur hófst á
flestum bæjum hér í sveit viku af
júlí, sem er með seinna móti, en það
voru afleiðingar af köldu vori. Hey-
fengur mun vera vel í meðallagi og
mikill að gæðum.
Fyrstu frost komu í ágústiok og
spilltu berjum og annarri upp-
skeru.
Hreindýraveiðar hófust upp úr
20. ágúst og gengu sæmilega.
Fljótsdælingum var úthlutað 75
dýrum að þessu sinni og hafa þau
nær öll verið veidd. Svo virðist
sem hreindýr haldi sig minna á
Fljótsdalsheiði en áður var, hvað
sem veldur.
Farið var í göngur 16. septem-
ber og hrepptu smalamenn miklar
þokur og úrfellli. Réttað var í Mel-
arétt 22. sept. í björtu veðri og
logni. Fé þykir frekar vænt, en
heimtur eru slæmar enn sem kom-
ið er. f seinni göngur verður farið
strax og veður leyfir, en hér hefur
verið hvöss austanátt ásamt
nokkru úrfelli í þrjá eða fjóra
daga. Nokkur snjór er á fjöllum,
þó ekki svo að hann torveldi
smalamennsku.
Barnaskólinn á Hallormsstað
hefur tekið til starfa. Starfslið er
óbreytt frá fyrra ári. Nemendur
eru úr Fljótdals-, Skriðudals- og
Vallahreppi.
Vegna fyrirhugaðrar Fljótsdals-
virkjunnar hefur nokkuð verið
unnið að vegagerð á heiðinni og þá
fyrst og fremst lagðar slóðir að
stíflustæðum.
G.V.Þ.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgedeild
Sjálfsbjargar
Nú stendur yfir tvímennings-
keppni hjá deildinni með þátt-
töku 14 para og er tveimur um-
ferðum lokið.
Staða efstu para:
Sigurður Björnsson
— Jóhann P. Sveinsson 343
Einar Magnússon
— Jóhannes Skúlason 340
Katrín Þórðardóttir
— Georg Kristjánsson 332
Guðmundur Þorbjörnsson
— Þorbjörn Magnússon 330
Meðalskor 312
Þriðja umferð verður spiluð
mánudaginn 31. október og hefst
stundvíslega klukkan 19.30.
Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
Staða 10 efstu para í aðaltví-
menningskeppni félagsins (32
pör) eftir 3 umferðir:
Viðar Guðmundsson —
Arnór ólafsson 719
Ragnar Jónsson —
Ulfar Friðriksson 714
Sigurbjörn Ármannsson —
Helgi Einarsson 695
Birgir Magnússon —
Björn Björnsson 690
Ingvaldur Gústafsson —
Þröstur Einarsson 690
Ingólfur Lillendahl —
Jón Ingason 673
Stefán ólafsson —
Kristján ólafsson 663
Þórarinn Árnason —
Ragnar Björnsson 654
Hannes Guðnason —
Reynir Haraldsson 645
Benedikt Benediktsson —
Guðni Sigurhjartarson 640
Mánudaginn 31. október verð-
ur spiluð 4. umferð og hefst
keppni kl. 19.30 stundvíslega.
Spilað er í Síðumúla 25.
Bridgefélag
Suðurnesja
24 pör mættu til leiks í Butl-
er-tvímenningskeppni sem ný-
lega er hafin hjá félaginu.
Eftir 11 umferðir af 23 er
staða efstu para þessi:
Einar Baxter —
Hreinn Ásgrímsson 132
Jóhannes Sigurðsson —
Karl Hermannsson 130
Árni Hermannsson —
Ingvar Oddsson 128
Elías Guðmundsson —
Kolbeinn Pálsson 128
Karl Einarsson —
Sveinbjörn Berentsson 125
Sigurhans Sigurhansson —
Arnór Ragnarsson 125
Heimir Hjartarsson —
Hafsteinn ögmundsson 124
Kjartan Ólason —
Maron Björnsson 122
Meðalskor 110.
Næstu 6 umferðir verða spil-
aðar á þriðjudaginn í húsi karla-
kórsins og hefst keppnin klukk-
an 20.
Bridgefélag kvenna
Mánudaginn 24. okt. var spiluð
3. umferð í Barómeterkeppni fé-
lagsins. Stigatala níu efstu para
í keppninni er nú þessi: stig.
Ása Jóhannsdóttir
— Lilja Guðnadóttir 257
Júlíana ísebarn
— Margrét Margeirsdóttir 224
Alda Hansen
— Nanna Ágústsdóttir 173
Guðrún Jörgensen
— Erla Guðmundsdóttir 147
Ingibjörg Halldórsdóttir
— Sigríður Pálsdóttir 135
Lovísa Eyþórsdóttir
— Ester Valdimarsdóttir 135
Guðríður Guðmundsdóttir
— Kristín Þórðardóttir 133
Gunnþórunn Erlingsdóttir
— Ingunn Bernburg 123
Sigrún Ólafsdóttir
— Elín Jónsdóttir 105
Næst verður spilað mánudag-
inn 31. okt.
\ 3H
Sendum um
allan heim!
Yfir 25,ára
reynsla
kominn
í gluggann
til að minna
á að ...
Nú er
rétti tíminn
til að láta Rammagerðina ganga
frá jólasendingunum til
vina og ættingja erlendis
Við göngum frá og sendum
jólapakkana um allan heim.
Allar sendingar eru fulltryggðar
yður að kostnaðarlausu.
RAMMAGERÐ1N
HAFNARSTRÆTI 19