Morgunblaðið - 29.10.1983, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
- TIL FÖSTUDAGS
Vona að hinar mörgu kon-
ur á alþingi vilji efla
siðmenningu þjóðarinnar
— með því að greiða fyrir því að lítilmagnanum sé sýnd mannúð
Lesandi skrifar:
„Kæri Velvakandi!
í útvarpsumræðunum á alþingi
um daginn sagði einn ræðumaðurinn
eitthvað á þessa leið: „Siðmenningu
þjóðar má marka af þeirri mannúð
sem sýnd er lítilmagnanumÞað
mun hafa verið einn fulltrúi kvenna-
iistans sem komst svo að orði.
Nú bíð ég þess spenntur að þessi
kona og stöllur hennar styðji Þor-
vald Garðar Kristjánsson i viðleitni
hans til að fá því framgengt að
minnsta lítilmagnanum, ófædda
barninu, verði sýnd meiri mannúð en
reyndin er og ekki hreinlega grandað
með fóstureyðingu af svokölluðum
félagslegum ástæðum, eins og nú er
leyfilegt ef fólki býður svo við að
horfa. Samkvæmt skilgreiningu al-
þingiskonunnar eru sumar núver-
andi reglur vægast sagt ómannúð-
legar og ískaldar, enda getur það
ekki verið í anda siðmenningarinnar
að deyða barn þótt ófætt sé, nema líf
móðurinnar sé í veði.
„Nema líf móðurinnar sé i veði“ —
e.t.v. er allt að þvi óþarfi að gera þá
undantekningu, vegna þess að að-
stæður eru nær aldrei með þeim
hætti að nauðsynlegt sé að grípa til
fóstureyðingar til að bjarga móður-
inni.
Bandarískur skurðlæknir, C. Ever-
ett Koop, hefur sagt: „Það er blekk-
ing að afsaka fóstureyðingu með því
að verið sé að vernda líf móðurinnar.
Ég hef starfað að handlækningum í
36 ár og þekki ekki eitt einasta dæmi
þess að nauðsynlegt hafi reynst að
deyða barnið til að bjarga lífi móð-
urinnar. Ef hættu ber að höndum
þegar komið er að lokum meðgöngu-
tímans, reynir læknirinn annað
hvort að koma af stað fæðingu eða
framkvæmir keisaraskurð. Markmið
hans er að bjarga lífi beggja, móður
og barns. Menn reyna aldrei af
ásettu ráði að granda barni vegna
þess að tvísýnt sé um líf móðurinn-
ar.“
„Það er trú okkar að manngildið
sé mesti fjársjóður jarðar," eru
niðurlagsorð greinar sem birtist í
Mbl. í dag, 21. okt. Er þetta ekki
dýrmætt sjónarmið? Jú, vissulega.
Hlýtur það ekki að ná til „byrjunar"
mannsins, ófædda barnsins, lítil-
magnans?
í dálkum þínum í dag er vitnað til
kaldranalegra ummæla konu sem
óttast að „frelsi" kvenna til fóstur-
eyðinga verði nú skert og segir það
„ábyrgðarhlut" að halda þessum
„rétti", hér sé um að ræða „frelsis-
mál“ kvenna. En er þetta ekki líka
„frelsismál" barnsins? Nei, sam-
kvæmt þessu á konan að hafa allan
rétt, jafnvel vald á lífi barnsins sem
hún gengur með, það er réttlaust.
Þarna er einmitt grafið undan sið-
menningunni. Við lendum á stigi
dýrsins.
Þessar konur ættu m.a. að hlusta á
kveinstafi sumra kynsystra sinna
sem gengust undir fóstureyðingu —
en hjartanu blæðir. „Hvers vegna
sagði enginn mér þetta?“ Þetta er
réttmæt spurning stúlku sem þjáist
af afleiðingum fóstureyðingar.
„Hvers vegna sagði enginn mér að
mér mundi finnast ég eins og móðir
með tóman faðminn?" „Hví sagði
enginn mér frá því að ég ætti á
hættu að geta ekki átt fleiri börn
vegna líkamlegra afleiðinga fóstur-
eyðinga?"
Þetta eru ekki fræðilegar eða póli-
tískar spurningar. Þær snerta lífið
sjálft. Vissulega hugsum við með
sársauka til barna sem voru svipt
lífsréttinum strax á fósturskeiði. En
konurnar sem gengust undir fóstur-
eyðingu eru líka aumkunarverðar.
Sumar verða beiskar, jafnvel harðar.
Aðrar verða miður sín af sorg eða
samviskubiti. Því fer fjarri að flest
eða öll vandamál leysist og konan
verði frjáls þegar hún kemur heim
af spítalanum. Margar konur hafa
áfram sterka móðurkennd þó að
barnið sé ekki lengur til. Það er stað-
reynd.
Fóstureyðing leysir ekki öll
vandamál. Hún veldur oft nýjum.
Einu gildir hvað menn gera úr orð-
inu „sekt“. Það er eitt af því sem
gerir okkur að mönnum, þrátt fyrir
spillt eðli okkar og hæfileikann til að
gera sjálfum okkur og öðrum illt, að
við eigum vonir og þrár, við óttumst
og gleðjumst, við gerum mun á réttu
og röngu. Má ekki segja að móðurk-
enndin feli þetta allt í sér? Ef konur
bæla hana niður, eiga þær á hættu
að verða harðlyndar og fráhrindandi
þó að þær ætli sér það ef til vill ekki.
Sumar konur taka út sálarkvalir
af löngun til að bera aftur barn und-
ir belti og leyfa því að fæðast. Er það
ekki í raun og veru versta grimmd,
hjúpuð í innantóma vinsemd, að
ganga út frá því að allar konur vilji
hafa aðgang að fóstureyðingu og
gefa einhver yfirborðsleg ráð — eins
og stundum er.gert — nema tekin
séu fyrir þau alvarlegu og raunveru-
legu vandamál sem eru þessu sam-
fara?
Já, hvað skyldu hinar mörgu kon-
ur á alþingi gera í þessum málum?
Ég vona innilega og bið að þær vilji
efla siðmenningu þjóðarinnar með
því að geiða fyrir því að lítilmagnan-
um sé sýnd mannúð.
Lesandi."
Vonum að gatna-
málastjóri geti veitt
okkur hughreystingu
íbúi við Þórsgötu (7620—0904)
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Mig langar til að koma
smáathugasemd að í dálkum þín-
um um götuna okkar. Það var
byrjað að eiga við Þórsgötu sfðast
í maí eða byrjun júní og enn er
hún lítið annað en holur og grjót
og mikið steinkast frá umferðinni.
Gangstéttir eru allar ófrágengnar.
Ökutækjum er nú lagt beggja
vegna götunnar, svo að útilokað er
fyrir bíla að mætast þar. Við erum
afar óhress með ástandið hérna,
íbúarnir, og vonum að gatnamála-
stjóri geti veitt okkur hughreyst-
ingu með fregnum um að það sé
bjartara framundan.
Inneignina verð-
ur að sækja nið-
ur í Tryggvagötu
Jakob Hólm hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Mig langar
til að orða við þig mál sem snertir
a.m.k. allt Reykjavíkursvæðið.
Eins og kunnugt er, er aðeins lesið
af rafmagns- og hitaveitumælum
einu sinni á ári, yfirleitt, en fólk
greiðir samkvæmt áætlun milli
álestra. Þannig eignast sumir inn-
stæðu, en aðrir skulda, eftir því
hvort áætlað hefur verið of eða
van hjá þeim. Hinir síðarnefndu,
skuldararnir, geta greitt það sem
á vantar í hvaða sparisjóði eða
pósthúsi sem er, og hafa þá gíró-
seðil í höndunum til þess. Þeir,
sem eignast hafa innstæðu á
reikningum sínum, verða hins veg-
ar að gera sér ferð niður í
Tryggvagötu til þess að ná í pen-
ingana. Þeir geta ekki einu sinni
komið því í kring, að upphæðin
gangi upp í næsta reikning, t.d.
með einu símtali. Nei, og þá virð-
ist gírógreiðslukerfið einnig ónot-
hæft. Og þetta á jafnt við um þá
sem búa í miðbæ Reykjavíkur og
hina sem búa í Kópavogi, Mosf-
ellssveit, Garðabæ og Hafnarfirði.
Ég er að hafa orð á þessu, af því að
það hringdi til mín gamall maður
úr Hafnarfirði og bað mig um að
sækja fyrir sig 101 krónu niður í
Tryggvagötu. Ég er í Kópavogi,
svo að það er sýnt, að kostnaðar-
samt verður að nálgast þessa pen-
inga. Þessu þarf að breyta.
Opið í kvöld frá 9—3.
Nesley diskótekari
poppmúsik.
Aldurstakmark 20 ár. ^
Miðaverð kr. 80,- \ fl J JJ
Lokað f kvöld
vegna einkasamkvæmis
l /<IA5ÓLWIL
(Café Rosenberg)
Sovéskir dagar
Tónleikar
og danssýning
listamanna frá Sovétlýðveldinu Litháen í Gamla bíói sunnudag-
inn 30. okt. kl. 14.
Einsöngur og tvísöngur: Regina Matsioute, heiöurslistamaður
litháíska Sovétlýöveldsins og óperusöngvarinn Eduardas
Kaniava, þjóðlistamaöur Sovétríkjanna.
Einleikur á píanó: Muza Rubackyte, verðlaunahafi í alþjóölegri
samkeppni píanóleikara.
Þjóödansar og þjóðlög: Söng- og dansflokkurinn „Vetrunge".
Aðgöngumiöar á kr. 170.- seldir i Gamla bíói og á litháísku
listsýningunni í Ásmundarsal við Freyjugötu. Sýningin er opin
virka daga kl. 17—22, um helgar kl. 15—22.
Stjórn MÍR.
M
I
®
®
®
®
®
®
®
®
®
m
m
NY OG BETRI BORG
Nú bjóðum við upp á lystauka meðan
þú velur eitthvað af okkar fjölbreytta
matseðli.
Sýnishorn af matseðli:
Forréttur:
Innbakaður hörpuskelfiskur, framreiddur
með krydduðum hrísgrjónum og ítalskri
koníaksrjómasósu.
Aðalréttur:
Heilsteiktar grísalundir a la Borg, fram-
reiddar með fylltum tómötum, kartöflu-
krókettum og rjómapiparsósu.
Eftirréttur:
Melónur í portvíni.
Lifandi
tónlist
Hinn sívinsæli
Guðmundur
Ingólfsson
leikur fyrir mat-
argesti
frá kl. 19-22.
VERIÐ
VELKOMIN
Borðapantanir
í síma 11440
151
m
S
I
i
i
s?
s
i
i
S
m
1
i
i