Morgunblaðið - 24.11.1983, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
77
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
Ct, „ TIL FÖSTUDAGS
n h? usni'iJYi
Fullkomin
falsspámennska
Sóley Jónsdóttir, Akureyri,
skrifar:
„f ágætri „Hugvekju", er nefn-
ist „Varist falsspámenn", eftir
sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, í
Mbl. 24. júlí, má lesa eftirfarandi
orð, sem eru í niðurlagi hugvekj-
unnar: „Það er engin önnur leið
inn í himininn en einmitt þessi,
Jesús Kristur."
Vissulega fer sr. Jón Dalbú
með rétt mál, þar sem þetta er
kenning Heilagrar ritningar. En
því miður er þetta ekki kenning
kirkjunnar, sem hann þjónar,
þ.e. íslensku þjóðkirkjunnar.
Kenning hinnar íslensku þjóð-
kirkju er sú, að barnaskírnin sé
hjálpræðisleið.
Til staðfestingar fullyrðingu
minni vísa ég til hinnar nýju
kirkjuhandbókar; þar segir svo í
kaflanum um skírnina: „Almátt-
ugur Guð, faðir Drottins vors
Jesú Krists, sem nú hefur endur-
fætt þig fyrir vatn og heilagan
anda, tekið þig í ríki síns elskaða
sonar, þar sem er fyrirgefning
syndanna, líf og sáluhjálp ...“
Þessi orð úr handbókinni eru
höfð yfir eftir að barnið hefur
verið skírt. Þarna kennir kirkjan
greinilega að endurfæðingin sé
fólgin í barnaskírninni. Þegar
Drottinn Jesús var að útskýra
endurfæðinguna fyrir Nikódem-
usi (sjá Jóh. 3.1.—19.), sagði
hann honum í hverju endurfæð-
ingin væri fólgin, þ.e. að trúa á
þann sem Guð sendi í heiminn.
„Því svo elskaði Guð heiminn, að
hann gaf son sinn eingetinn til
þess að hver, sem á hann trúir,
glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“
Jóh. 3.16.
Að fæðast „af vatni og anda“
(Jóh. 3.5.) er því að trúa á Guðs
eingetinn son. Orð Guðs og andi
Guðs koma þessu til leiðar í
mannshjartanu. Orði Guðs er oft
líkt við vatn í hreinsun í Biblí-
unni, sbr. „Þér eruð þegar hreinir
vegna Orðsins...“ (Jóh. 15.3.).
Um hreinsandi mátt Guðs Orðs
getum við líka lesið í Sálm. 119.9.
„Með hverju getur ungur maður
haldið vegi sínum hreinum? Með
því að gefa gaum að Orði þínu.“ I
Efesus-bréfi 5.25.—26. lesum við:
„... Kristur elskaði söfnuðinn og
lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir
hann, til þess fyrir vatnslaugina,
með Orðinu, að hreinsa hann og
helga hann síðan ...“ Og í Títus-
Þessir hringdu . . .
Mætti endur-
sýna
þennan þátt
Helga Guðmundsdóttir
hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — Mig langar til að
koma á framfæri þakklæti til
Sigurveigar Jónsdóttur
fréttamanns og Sjónvarpsins
fyrir fíkniefnaþáttinn á
föstudagskvöld, í Kastljósi.
Það veitir ekki af að láta
unglingana sjá hlutina eins
og þeir eru. Gjarna mætti
endursýna þennan þátt og
það oftar en einu sinni.
arbréfi 3.5.: „Þá frelsaði hann
(Kristur) oss, ekki vegna réttlæt-
isverkanna, sem vér höfðum unn-
ið, heldur samkvæmt miskunn
sinni fyrir laug endurfæðingar
og endurnýjunar heilags
anda...“
Báðir þessir textar svara til
þess, sem við lesum um í Jóh. 3.5.
Það er alrangt á álykta að þarna
sé um skírn að ræða, laug endur-
fæðingar er ekki skírnarlaug.
Við lesum einnig í Jakobsbréfi
1.18.: Eftir ráðsályktun sjálfs sín
fæddi hann oss með sannleiks-
orði...“ Þ.e. andleg fæðing fyrir
Guðs Orð. Og í 1. Pétursbréfi 1.23.
standa þessi orð: „... Þér eruð
endurfæddir ekkí af forgengilegu
sæði, heldur óforgengilegu, fyrir
Orð Guðs, hans sem lifir og var-
ir.“
íslenska þjóðkirkjan kennir að
skírnin (barnaskírnin) sé inn-
gönguathöfn í söfnuð Guðs.
Guðs Orð, Biblían, kennir að
við verðum börn Guðs með því að
trúa á Drottin Jesúm. „En öllum
þeim sem tóku við honum (Jesú)
gaf hann rétt til að verða Guðs
börn, þeim sem trúa á nafn
hans ...“ (Jóh. 1.12.). Ekki eitt
orð um skírn í sambandi við
Guðs barna rétt.
Jesús lýsti því yfir (sjá Matt.
19.14., Mark. 10.14. og Lúk. 18.16.)
að börnunum tilheyrði Guðs ríki.
Þessi börn hljóta að hafa verið
óskírð, vegna þess að hvergi í Bibl-
íunni er boðið að skíra börn.
Margir kirkjunnar þjónar hafa
að engu orð Drottins Jesú, en
treysta á athöfn, sem menn hafa
fundið upp og ekki getur hjálpað
neinum í andlegum málum. Það
er biblíulegt að færa börnin
Drottni í helgri athöfn og biðja
hann að blessa þau, en það á ^kki
að skíra þau.
Kirkjan kennir að barnaskírn-
in sé til synda fyrirgefningar.
Biblían kennir aftur á móti að
fyrir trú á Drottin Jesú fáist
syndafyrirgefning. „Honum bera
allir spámennirnir vitni, að sér-
hver, sem á hann (Jesú) trúir, fái
fyrir hans nafn syndafyrirgefn-
ingu.“ Post. 10.43. Trú þú á Drott-
in Jesúm, og þú munt verða hólp-
inn.“ Post. 16.31.
«Ég er vegurinn ...“ (Jóh.
14.6.) sagði Drottinn Jesú. Takið
eftir, ekki bara vegur, heldur „...
vegurinn ...“, eini vegurinn.
Guði sé lof fyrir það.
Að boða barnaskírn sem hjálp-
ræðisleið, eins og lútherska
kirkjan gerir, er því ekkert ann-
að en fullkomin falsspá-
mennska."
Bandslípivélar!
Eigum fyrirliggjandi ýmsar stærðir
af bandslípivélum.
Ætlar reyk-
ingavarna-
nefnd ekki
að standa
við það sem
hún lofaði?
JÓ.JÓ. skrifar:
,;Kæri Velvakandi.
I janúar sl. var efnt til
samkeppni milli skóla-
barna á vegum reykinga-
varnanefndar og voru veitt
peningaverðlaun fyrir 12
veggmyndir og 6 mynda-
sögur.
Ástæðan fyrir því að ég
skrifa þér er sú, að í öllum
auglýsingum, sem reyk-
ingavarnanefnd sendi frá
sér, stóð: Allir þátttakend-
ur í samkeppninni eiga að
fá viðurkenningarskjal.
Nú er ég búinn að bíða í
næstum eitt ár eftir þessu
skjali, og svo er um fleiri,
sem ég veit um. Og því er
mér spurn: Ætlar reyk-
ingavarnanefnd ekki að
standa við það, sem hún
lofaði. Og önnur spurning:
Fá börnin myndirnar sínar
aftur?
Virðingarfyllst."
-H
VéLAVERSLUN
Grensásvegur 12, 108 Reykjavík, s. 91 85840
Bladburðarfólk
óskast!
I'
1
Austurbær Ingólfsstræti og Neöstaleiti
Ármúli Þingholtsstræti
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hvorugt er gott, og ég er andvígur
báðu.
Rétt væri:... ég er andvígur hvorutveggja.
G3P SIGGA V/öGA £ A/LVtRAU
unga fólki
biður um!
l0- «6 86Fy'0,f'" Kr* bls ss 45 Gu
□ Hvað segja popp-
stjörnurnar?
□ Hvaða plotur eru ■
bestar? /I ai
S " Tor» ■ r 8°ÍU " 1
QHvað er skaHapopp^^r
.
Þessum spurnmgum og ót£
Poppbókin - í fyrsta sæti.
ÆSKAN
í3- 55, Sg J?'' b
Gur<narr( 1S>,
OG HVTO VIKU-
DflGUR ER ÞflD RFTUR;
SlGGfl VIGGR?
OG BÚÐIR ERU
EKKERT OPNRR fl
SUNNIUDÖGUM.ER ÞRD
NOKKUR SI6GR
VI6GR'