Morgunblaðið - 24.11.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
79
Ljósrit úr gjörðabók flokksþingsins 1948. Skístrikin eru dregin yfir það sem
niöur var fellt. Breytingartillagan, sem samþykkt var með 63 atkvæðum gegn
48, var svo: „Eftir 1. námsgrein komi: „Þess vegna felur það þingflokknum
að vinna að því með löggjöf og á annan hátt að áfengisnautn landsmanna
minnki og stefna að útrýmingu áfengis." Önnur málsgrein tillögu nefndar-
innar og til enda falli niður.“
Doktor Gunnlaugiir
leiddur í sannleika
— eftir Halldór
Kristjánsson
Það voru mistök Morgunblaðs-
ins en ekki mín að tillaga mennta-
málanefndar á flokksþingi Fram-
sóknarmanna 1946 var ekki birt
orðrétt eins og hún kom fram. Ég
verð nú að biðja Mbl. að gera bet-
ur svo að Gunnlaugur sjái hvað
um var að ræða.
Það kemur þá í ljós að heimildir
dr. Gunnlaugs um að ég hafi flutt
tillögu um að „ekki mættu aðrir en
bindindismenn vera í framboði
fyrir flokkinn" hafa enga stoð. Sé
það rétt að „flokksbræður Hall-
dórs Kristjánssonar" hafi sagt
honum þetta hafi þeir verið að
rugla.
Dr. Gunnlaugur segir að það sé
ódrengilegt af mér, að leiðrétta
frásögn Bernharðs Stefánssonar
þar sem hann sé látinn. Nú er það
svo að ég skrifaði eitthvað um
minningar Bernharðs að honum
lifandi, a.m.k. fyrra bindið. Hins
vegar mun ég ekki hafa gert at-
hugasemd við frásögn hans um til-
löguna 1946. Þó ég væri ekki höf-
undur hennar né flutningsmaður
var ég fylgjandi henni. Man ég
ekki heldur hvort ég skrifaði
nokkuð um seinna bindið sem kom
út þremur árum seinna en hið
fyrra. En annað leiðrétti ég og nú
skal að því vikið að gefnu tilefni.
Frá flokksþinginu 1941 segir
Bernharð m.a. svo:
„Á þessu flokksþingi var deilt
um fleira en sambandsmálið, m.a.
um áfengismál. Einn fulltrúanna
bar fram tillögu um, að allir fram-
bjóðendur flokksins skyldu vera
bindindismenn. Steingrímur
Steinþórsson taldi, að sama ætti
að ganga yfir alla flokksmenn, og
bar fram breytingartillögu um að
allir flokksmenn skyldu vera í
bindindi og hver maður rækur úr
flokknum, sem bragðaði áfengi.
Þegar þessi tillaga kom fram var
málið tekið af dagskrá og kom þar
ekki framar."
í umsögn minni um bók Bern-
harðs leiðrétti ég þessa frásögn.
Þarna var ekki um neinar tillögur
að ræða. Runólfur Sveinsson
sandgræðslustjóri varpaði því
fram í umræðu að farsælast
myndi vera að allir frambjóðend-
ur flokksins væru bindindismenn.
Auðvitað gat enginn flutt breyt-
ingartillögu við það sem engin til-
laga var. Bernharð fellir niður að
Steingrímur kvaðst vera reiðubú-
inn að neita sér um áfengi ef
flokkurinn vildi samþykkja það,
en efnislega segir hann rétt frá
orðum hans. Hitt er auðvitað rugl
að málið hafi verið tekið af
dagskrá. Þetta var alls ekki sér-
stakt mál á dagskrá.
Ég get hugsað mér að þessi frá-
sögn Bernharðs liggi til grundvall-
ar margendurteknu rugli dr.
Gunnlaugs um tillöguflutning
minn.
Bernharð svaraði á sínum tíma
ritdómi mínum og féllst á það að
ekki myndi hafa verið um form-
legar tillögur að ræða.
Þetta er heldur fáfengilegt karp
en dr. Gunnlaugi virðist vera
þetta næsta stórt mál og tilefnis-
laust er allt tal hans um það að
mig hafi brostið einurð til að leið-
rétta Bernharð meðan hann var á
foldu.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða
um þann smekk dr. Gunnlaugs að
ekki megi tala um veilur og veik-
leika mætra manna látinna. Það
er ljóst að hann vill ekki sannar
sögur og réttar. Hann vill ekki
horfast í augu við veruleikann.
Hann vill ekki sjá sannleikann ef
hann er sár og óþægilegur. Hann
verður að hafa sína lífsskoðun
fyrir sig. En ég er ekki með Jónas
Hallgrímsson í neinni meðferð þó
að ég viti og viðurkenni að hann
dó drykkjumannsdauða langt um
aldur fram.
Hins vegar held ég að vilji menn
draga rökréttar ályktanir og
dæma rétt þurfi þeir að viður-
kenna og meta allar forsendur.
En mér virðist að dr. Gunnlaug-
ur Þórðarson hirði ekki um það.
Halldór Kristjánsson
M
5 Áskriftarsíminn er 83033
Snorrabraut s. 13595 Glæsibæ s. 34350 Miövangi s. 53300 Hamraborg s. 46200
FORD ESCORT
Mest seldi bíll í heimi síðastliðin tvö ár
Eigum fyrirliggjandi nokkra Ford Escort 2ja dyra
árgerö 1983 á mjög góöu verði, kr. 269.000.-
Eigum einnig hinn stórglæsilega sportbíl Escort
XR3i árgerö 1984.
Verö kr. 429.000.- (gengi 15/11 ’83).
Ford Escort — Þýskur gæöabíll
Sveinn Egilsson
SKEIFUNNI 17 — SÍMI 85100