Morgunblaðið - 25.11.1983, Blaðsíða 10
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
5Q MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
SÝNINGAR
Málverkasýning
Benjamíns
Jónssonar
Listamaöurinn Benjamín Jóns-
son sýnir nú málverk sín í rakara-
stofunni Hárbæ aö Laugavegi 168.
Verður sýningin opin á morgun,
laugardag, og á sunnudag frá kl.
14.00—22.00. Sýningarskrá liggur
frammi og eru allar myndirnar til
sölu.
ísafjörður:
Myndlist
Valgarös
Gunnarssonar
Valgaröur Gunnarsson opnaöi,
mánudaginn 21. nóvember, mynd-
listarsýningu í Bókasafni ísa-
fjaróar. Sýndar eru gouache-
myndir unnar á pappír, auk nokk-
urra mynda í olíu+akríl, einnig á
pappír. Sýningin er opin á sama
tíma og bókasafnið og stendur til
loka mánaöarins.
Bókasýning í
MÍR-salnum
Sýningunni í MÍR-salnum, Lind-
argötu 48, á sovéskum bókum,
hljómplötum og frímerkjum, lýkur
um helgina. Hún veröur opin á
föstudag kl. 17—19, laugardag kl.
16—19 og sunnudag kl. 15—19.
Kvikmyndasýning veröur á sunnu-
dag kl. 16 og þá sýndar frétta- og
fræöslumyndir frá Sovétríkjunum.
Hans Christian-
sen sýnir í
Ásmundarsal
Myndlistarmaöurinn Hans
Christiansen opnaöi nú í vikunni
málverkasýningu í Ásmundarsal
viö Freyjugötu. Þar sýnir hann
vatnslitamyndir og eru rúmlega 30
myndir á sýningunni, allar unnar á
síöastliönu ári.
Þetta er fimmta einkasýning
listamannsins og stendur hún til
30. nóvember. Sýningin er opin
daglega frá kl. 14.00—22.00.
Listasafn íslands:
Málverk Haröar
Ágústssonar
Ákveöiö hefur veriö að fram-
sngja yfirlitssýningu Haröar Ág-
stssonar í Listasafni fslands, um
eina viku.
Á sýningunni eru 144 verk, olíu-
myndir, gvassmyndir, límbanda-
myndir, teikningar og tússmyndir
og sýningin spannar rúm 30 ár af
listferli Haröar.
Sýningin stendur til 4. desember
og veröur opin virka daga frá
13.30—16.00 og laugardaga og
sunnudaga frá 13.30—22.00.
Hallgrímskirkja:
Sýningu Leifs
Breiðfjörö
framlengt
Sýningu Leifs Breiöfjörö í Hall-
grímskirkju á frumdrögum, vinnu-
teikningum og Ijósmyndum, hefur
nú verið framlengt til 11. desem-
ber.
Sýningin er opin frá kl.
10.00—12.00 á virkum dögum og
frá kl. 14.00—17.00 um helgar.
Gunnar Gunnarsson:
Ljósmyndir í Gallerí Lækjartorgi
Gunnar Gunnarsson opnar a
morgun kl. 19 Ijósmyndasýningu
í Gallerí Lækjartorgi. Sýningin er
opin frá kl. 14—19 virka daga og
frá kl. 14—22 laugardaga og
sunnudaga.
Á sýningunni verða 37 myndir,
28 svart/ hvítar myndir og 9 lit-
myndir. Viöfangsefni myndanna
eru fyrst og fremst mannlýsingar
auk nokkurra kyrrlífsmynda.
Gunnar lauk Ijósmyndanámi
voriö 1983 frá Napier College í
Edinborg. Hann hefur haldiö
einkasýningu í Edinborg og auk
þess tekið þátt í samsýningum
þar. Síöastliöiö vor hlaut hann
fyrstu verólaun í hinni árlegu
POLAROID-keppni sem haldin er
í Bretlandi.
Sýningunni lýkur 4. desember.
Málverkasýning
Siguröar Hauks
í Skeifunni
Málverkasýningu Siguröar
Hauks í húsgagnaversluninni
Skeifunni, Smiöjuvegi 6 í Kópa-
vogi, lýkur á sunnudag. Sýningin
veröur opin um helgina frá kl.
14.00—17.00.
Listmunahúsið:
Sýning á verk-
um Þorbjargar
Höskuldsdóttur
j Listmunahúsinu stendur yfir
sýning Þorbjargar Höskuldsdóttur
á málverkum og teikningum.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10.00—18.00, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 14.00—18.00.
Lokaö mánudaga.
Sýningunni lýkur 4. desember.
Gerðuberg:
Listiönaöur,
málverk og
teikningar
Nú um helgina lýkur sýningu ís-
lenskra listamanna á listiönaöi
sem staöiö hefur yfir undanfariö.
Þeir sem sýna eru: Jens Guöjóns-
son, sem sýnir brennt silfur, Sören
Larsen og Sigrún 0. Einarsdóttir,
sem sýna blásiö gler, Sóley Eiríks-
dóttir, sýnir steinleir, Kristín ís-
leifsdóttir, sýnir silkiprent og
postulín. Um helgina lýkur einnig
sýningu Kristjáns Guömundssonar
og Birgis Andréssonar, sem sýna
teikningar og olíumálverk.
Báöar sýningarnar eru opnar
mánudaga — fimmtudaga frá kl.
16.00—22.00 og föstudaga til
sunnudaga frá kl. 14.00—18.00.
LEIKHÚS
Brúðubíllinn
í síöasta sinn
Brúöubíllinn sýnir í næstsíöasta
sinn laugardaginn 26. nóvember
kl. 3 aö Fríkirkjuvegi 11, þetta eru
tveir einþáttungar, Leikið með liti
og Á sjó.
Helga Steffensen og Sigríöur
Hannesdóttir sjá um sýningarnar.
Síöasta sýningin veröur laugar-
daginn 3. desember kl. 3.
Leikfélag Reykjavíkur:
Fjórar sýningar
um helgina
Leikfélag Reykjavíkur sýnir í
kvöld allra síöustu sýningu á leik-
ritinu Úr lífi ánamaökanna. Annaö
kvöld er 25. sýning á leikriti Jökuls
Jakobssonar Hart i bak og sama
kvöld er einnig miönætursýning á
forsetaheimsókninni í Austurbæj-
arbíói.
Á sunnudagskvöld er sýning á
nýjasta verki Leikfélagsins, leikriti
Mark Medoff Guð gaf mér eyra.
Með aöalhlutverk í sýningunni fara
þau Sigurður Skúlason og Berg-
lind Stefánsdóttir, en leikstjóri er
Þorsteinn Gunnarsson.
Þjóðleikhúsíð:
Sex sýningar
um helgina
Á fjölum Þjóöleikhússins veröa
sex sýningar um helgina. í kvöld
veröur gamanleikurinn Skvaldur
eftir Michael Frayn sýndur. Tíu ára
afmælissýning íslenska dans-
flokksins verður síöan á dagskrá í
næstsíðasta sinn á morgun kl. 15,
en í sýningunni eru nýir íslenskir
ballettar eftir Nönnu Ólafsdóttur
og Ingibjörgu Björnsdóttur.
Annað kvöld veröur leikrit Odds
Björnssonar Eftir Konsertinn, sýnt
og á sunnudag kl. 15 er 60. sýning
á barnaleikritinu Línu langsokk. Á
sunnudagskvöld verða síöan tvær
sýningar. Á aöalsviöi veröur Ná-
vígi, leikrit Jóns Laxdal og á Litla
sviöi Þjóöleikhússins veröur leikrit
Svövu Jakobsdóttur, Lokaæfing,
sýnt.
Stúdentaleikhúsið:
Draumar í
höfðinu
í Stúdentaleikhúsinu veröur sýn-
ing á dagskránni „Draumar í höfö-
inu“ í kvöld og hefst hún kl. 20.30.
Þá veröur einnig sýning á mánu-
dagskvöld á sama tíma.
„Draumar í höföinu“ er dagskrá,
byggö á nýútkomnum og væntan-
legum skáldverkum og Ijóöum
ungra íslenskra rithöfunda. Eru
leikin atriöi úr skáldsögum, fluttar
smásögur og Ijóö, en tónlist tengir
dagskrána saman.
Leikstjóri er Arnór Benonýsson,
en tónlist samdi Jóhann G. Jó-
hannsson.
„Bláa stúlkan“
á Kjarvalsstöðum
Sýning Messíönu Tómasdóttur
„Bláa stúlkan" veröur sýnd tvisvar
sinnum á Kjarvalsstööum á morgun,
laugardag. Fyrri sýningin hefst kl. 17
og hin síöari kl. 18. Á sunnudag
veröa einnig sýndar tvær sýningar,
kl. 18 og 20.
Þetta veröa síöustu sýningar á
Kjarvalsstöðum, en aö viku liðinni
veröur sýningin sett upp í menning-
armiðstöðinni Geröubergi.
Litla leikfélagið:
Spanskflugan
Litla leikfélagiö í Garöinum sýnir
gamanleikinn Spanskfluguna í
kvöld og hefst sýningin kl. 20.30.
Leikritiö veröur einnig sýnt á
sunnudag og hefst sú sýning kl.
14.