Morgunblaðið - 25.11.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
51
Flashdance
í Súlnasal
Dansflokkur frá J.B.S. sýnir á laugardagskvöld danssýningu sem
byggö er á kvikmyndinni Flashdance. í sýningunni, sem fjallar um líf
og baráttu dansara úti í hinum stóra heimi, fléttast saman söngur,
dans og leikur.
Aö lokinni danssýningunni leikur hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar fyrir dansi, en hljómsveitin annast tónlistina í verkinu.
Síðustu sýningar
á Tröllaleikjum
Leikbrúöuland sýnir Tröllaleiki í
lönó á sunnudag kl. 15 og á mánu-
dag kl. 20.30. Veröa þaö síöustu
sýningar fyrir jól.
Leikfélag Kópavogs:
Gúmmí-Tarsan
Leikfélag Kópavogs sýnir nú um
helgina tvær sýningar á söngleikn-
um Gúmmí-Tarsan. Veröa þær
báöar á sunnudag.
Revían á
Hótel Borg
Revíuleikhúsiö sýnir „islensku
revíuna" í Gyllta salnum á Hótel
Borg föstudags- og laugardags-
kvöld kl. 20.30. Höfundur er Geir-
haröur markgreifi, en leikstjóri er
Gísli Rúnar Jónsson. Leikarar eru
Þórhallur Sigurösson (Laddi), Guö-
rún Þóröardóttir, Örn Árnason,
Saga Jónsdóttir, Pálmi Gestsson,
Guörún Alfreösdóttir og Kjartan
Bjargmundsson. Magnús Kjart-
ansson útsetti tónlistina, en Guö-
mundur Haukur Jónsson sér um
undirleikinn. Lýsingu annast Ingvar
Björnsson. Sérstakur Reviumat-
seðill er á boöstólum og dansað á
eftir.
SAMKOMUR
Aöventkirkjan:
Lúthersminning
Minningarsamkoma um Martin
Lúther veröur í Aðventkirkjunni
Ingólfsstræti 19 á sunnudaginn kl.
17.00. Þar syngur Ólafur Ólafsson,
bassi, einsöng og tvísögn meö
Jóni Hjörleifi Jónssyni. Kvikmynd,
litskyggnur og veggmyndir úr lífi
Lúthers veröa sýndar. Um andlega
vakningu sem Lúther skóp flytur
Jón Hjörleifur Jónsson stutta hug-
leiöingu.
Norræna félagið:
Ýlisvaka í
Kópavogi
Norræna félagiö í Kópavogi efn-
ir til haustvöku sunnudaginn 27.
nóvember nk. kl. 20.30 í Þinghóli
viö Álfhólsveg.
Kór Kársnes- og Þinghólsskóla
syngur undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur.
Minnst veröur Norræna bók-
menntaársins sem stendur fram á
næsta ár. Hjörtur Pálsson dag-
skrárstjóri flytur norræn Ijóö í eigin
þýöingu.
Þá veröur minnst 75 ára afmæl-
is Klakksvíkur sem er vinabær
Kópavogs. Kolbrún á Heygum
syngur færeysk lög.
Axel Jónsson fyrrum alþingis-
maður, einn aöalhvatamaöur
tengslanna viö Klakksvík, flytur
þankabrot úr byggöinni þar.
Kristján Guðmundsson bæjar-
stjóri bregöur upp nokkrum lit-
skyggnum frá hátíðahöldunum í
Klakksvík í sumar.
Loks veröur stiginn færeyskur
dans, félagar úr Færeyingafélaginu
stjórna.
Torfan:
Fundur um kyn-
fræðslu, getnað-
arvarnir og
fóstureyðingar
Torfan, aöildarfélag aö Banda-
lagi jafnaöarmanna, heldur á
morgun fund í Norræna húsinu um
„kynfræöslumál, getnaöarvarnir
og fóstureyöingar". Fundurinn
hefst kl. 13.00 og veröa þar flutt
sjö framsöguerindi, m.a. um starf-
semi kynfræösludeildar Heilsu-
verndarstöövarinnar, fóstureyö-
ingar á Kvennadeild Landspítal-
ans, kynfræöslu í skólum, undir-
búning tilvonandi kennara undir
kynfræöarahlutverkið, námskeiö
Sjálfsbjargar um kynlíf fatlaöra og
þverpólitískan hóp kvenna, sem
starfaö hefur aö þessum málum
undanfarna mánuöi. Þá veröur
flutt erindi um starfsemi stofnunar
í Lundúnum, sem veitir konum
fræöslu og aöstoö varöandl kynlíf,
getnaöarvarnir, kynsjúkdóma og
fóstureyöingar.
Aö framsöguerindum loknum
munu frummælendur sitja fyrir
svörum.
Fundarstjóri veröur Arnar
Björnsson, háskólanemi.
Aðventuhátíð
KFUM og K
Fjölskyldusamvera, sem ber yf-
irskriftina „Aöventuhátíö fjölskyld-
unnar", veröur í húsi KFUM og K á
Amtmannsstíg 2b á sunnudag.
Húsiö veröur opnaö kl. 15.00. Á
dagskrá veröa leikir, spil, aöventu-
föndur fyrir börn og fulloröna, veit-
ingasala og fjölskyldusamkoma kl.
16.30.
Um kvöldiö kl. 20.30 veröur síö-
an aöventustund á sama staö.
Blóm og ávextir:
Aðventu-
skreytingar
Verslunin Blóm og ávextir efnir
aö vanda, fyrsta sunnudag í aö-
ventu, til kynningar á aöventu-
krönsum og aöventuskreytingum.
Veröur í tilefni dagsins boðiö upp á
heitt súkkulaði og meölæti.
Norræna húsið:
Fárödokument
Kvikmyndaklúbburinn Noröur-
Ijós sýnir Fárödokument 1979 í
Norræna húsinu, laugard. 26. nóv.
kl. 17.15.
Þetta er heimildarkvikmynd,
önnur í rööinni, um sænsku eyjuna
Fárö, sem Ingmar Bergman geröi
1979. Fyrri myndin um Fárö var
tekin 1969.
Myndin fjallar um íbúa eyjarinn-
ar, smábændur, sjómenn og fjöl-
skyldur þeirra, en einyrkinn Valter
Broman á áttræöisaldri er miö-
punktur myndarinnar.
i sýningarsölum Norræna húss-
ins er sýningin „100 sessur í 100
ár“, frá finnska heimilisiönaöarfé-
laginu. Opin daglega kl. 14—19.
í anddyri Norræna hússins er
Ijósmyndasýning sænska Ijós-
myndarans Hans Hammarskiöld
sem sýnir Ijósmyndir frá Gotlandi.
Aðventuhátíð
í Skálholtsskóla
Aventuhátíö veröur haldin í
Skálholtsskóla á morgun kl. 20.30.
Þar kemur m.a. fram Wilma Young
og flytur írsk og skosk þjóölög á
fiðlu og nemendur sjá um
skemmtiatriöi.
Týrólakvöld
Flugleiöir, Samvinnuferðir —
Landsýn og feröaskrifstofan Úrval
halda í kvöld Týrólakvöld í Súlna-
sal Hótel Sögu. Á dagskrá kvölds-
ins eru m.a. ferðakynning, bingó,
óperusöngur, tískusýning og fleira.
Kynnir á Týrólakvöldi er Magnús
Axelsson.
TÓNLIST
Tónleikar Tón-
listarskólans í
Reykjavík
Tónlistarskólinn í Reykjavik
heldur tónleika í Austurbæjarbíói
mánudaginn 28. nóvember kl. 7
síðdegis. Sigrún Eövaldsdóttir
leikur einleik á fiölu og er þaö fyrri
hluti einleikaraprófs hennar frá
skólanum. Snorri Sigfús Birgisson
leikur með á píanó.
Á efnisskrá eru verk eftir J.S.
Bach, Áskel Másson, Ysaýe, Fauró
og Ravel.
Ábending
Að gefnu tilefni þykir rétt aö
benda þeim aðilum sem hyggj-
ast senda fréttatilkynningar í
þáttinn „Hvaö er aö gerast um
helgina“ á aö fréttatilkynning-
um veröur aö skila í síöasta lagi
fyrir kl. 10.00 á fimmtudögum.
Fréttatilkynningar eiga aö ber-
ast skriflega. Undantekningar
eru aðeins geröar fyrir aöila á
landsbyggöinni ef svo ber und-
ir.
Söngskemmtun
í Fríkirkjunni
Söngskemmtun verður haldin í
Fríkirkjunni á sunnudag til styrktar
orgelsjóði. Á skemmtuninni koma
fram þær Dóra Reyndal, sópran-
söngkona, og Hólmfríöur Sigurö-
ardóttir, píanóleikari. Á efnisskrá
eru meöal annars „Söngvar úr
Ljóöaljóöum" eftir dr. Pál ísólfsson
og „Exultate Jubilate" eftir W.A.
Mozart. Söngskemmtunin hefst kl.
17.00:
FEROIR
Útivist:
Aðventuganga
um Miðdalsheiði
Austan Reykjavíkur eru heiöa-
lönd meö fjölbreyttu vatnasvæði
sem nefnast einu nafni Miödals-
heiöi. Þangaö ætlar Utivist í aö-
ventugöngu á sunnudaginn kl. 13.
Gönguferöin er öll á láglendi.
Brottför er frá bensínsölu BSÍ. Kl.
20 í kvöld fer Útivist í aðventuferð
í Þórsmörk.
Feröafélag íslands:
Gengið um
Reykjanes-
fólkvang
Feröafélagiö fer á sunnudag í
gönguferö um Reykjanesfólkvang.
Brottför frá Umferðarmiöstöðinni
kl. 13. Ekið veröur aö Kaldárseli og
gengið þaöan á Helgafell (338 m),
Valahnúka aö Valabóli. Valaból er
hellir sem Farfuglar í Reykjavík
höföu sem gististaö lengi vel.
íslenska óperan:
La Traviata
íslenska óperan sýnir La Travi-
ata á föstudags- og sunnudags-
kvöld kl. 20.00. Sú breyting verður
á aö í staö Ölafar Kolbrúnar Harö-
ardóttur syngur óperusöngkona
frá Italíu aö nafni Jean Bennett.
Hún hefur sungiö í óperum og á
hljómleikum víöa um heim.
Leikfélag Rangæinga:
Skjaldhamrar
I tilefni 60 ára afmælis Jónasar Árnasonar mun Leikfélag Rang-
æinga frumsýna leikrit hans Skjaldhamra 25. nóv. í Hellubíói kl. 21.
Leikstjóri er Arnór Egilsson. 2. sýning er í Hellubíói 26. nóv. kl. 21.
Áætlað er aö sýna á eftirtöldum stööum: Hvoli, Árnesi, Heimalandi
og Gunnarshólma.