Morgunblaðið - 25.11.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
-u ir
Hrapalleg mistök
Séra Halldór S. Gröndal skrifar:
„„Látum oss biðja."
Þessi orð eru úr messu kirkj-
unnar og sennilega þau orð sem
prestar nota mest. Bænin er lang-
stærsti þátturinn í mínu starfi,
„Látum oss biðja" og svo er beðið,
oftast fyrir sjúkum og sorgmædd-
um og þeim sem eiga í erfiðleik-
um.
„Látum oss hlæja" er niðrandi
skopstæling á þessum helga texta
messunnar og bænarinnar.
Annar stór þáttur starfsins er
að fræða og kenna fólki, börnum
og unglingum. Í slíku starfi þarf
bæði aga og virðingu. Titill og
kápumynd bókarinnar er lúmskur
áróður, sem dregur úr aga og virð-
ingu fyrir starfi prestsins og
kirkjunnar í heild.
Það getur því ekki samrýmst til-
gangi kristlega útgáfufyrirtækis-
ins Salts að gefa svona bók út. Eða
Hamingja
og líf margra
er í veði
Fyrirspurn til
dómsmálaráðherra
Faðir skrifar:
„Velvakandi.
Mig langar að gera svohljóðandi
fyrirspum tl dómsmálaráðherra:
Fíkniefnafaraldurinn eykst
stöðugt og lítið virðist unnt að
gera til varnar. f því sambandi
spyr ég:
1. Er ekki unnt að beita dóms-
kerfinu hraðar og ákveðnar,
þegar um alvarleg brot er að
ræða, s.s. sönnun fyrir dreif-
ingu og sölu?
2. Eru sektir og dómar fyrir brot
af þessu tagi, einkum ítrekuð
brot, ekki alltof vægir, og þarf
ekki að beita harðari viðurlög-
um?
3. Er ekki unnt að koma á fljót-
virkara og nánara sambandi
milli hinna einstöku rann-
sóknaaðila, hvort sem er úti á
landi eða á höfuðborgarsvæð-
inu?
Mér virðist sambandsleysið í
þessum máium milli umdæma og
deilda innan lögreglunnar vera al-
veg ótrúlega mikið.
Askorun mín, sem faðir, til ráð-
herra, er sú, að hann bregði hart
við, því hamingja og líf margra er
í veði.“
Skrifiö eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
aó skrifa þættinum um hvaóeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til fostudaga, ef þeir
koma því ekki vió að skrifa.
Meóal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fvrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki aó vera vélrituó, en
nöfn, nafnnúmcr og heimilisföng
verða aö fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó aó höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaösins
utan höfuöborgarsvæöisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
mun bókin hjálpa okkur prestum
við að boða fagnaðarerindið um
Jesúm Krist eða i bænastarfi
okkar? Hér hafa orðið hrapalleg
mistök.
Ég bið enn að auglýsingin verði
tekin niður. Og ég vil áminna
stjórn Salts með orðum ritningar-
innar þar sem hún talar um for-
stöðumenn (presta) kristinna
safnaða:
Guöjón frá Hofi skrifar:
„Velvakandi góður.
Hinn 9. nóv. sl. birtist grein í
dálkum þínum undir yfirskrift-
inni „Látum rjúpuna lifa“, eftir
Rósu B. Blöndals. Ég vil þakka
henni þennan pistil, sem var
þörf hugvekja, svona rétt fyrir
jólin. Ég er undrandi á því, að
ekki skuli vera búið að alfriða
rjúpuna fyrir löngu. Hún er ein-
hver indælasti fugl sem ég hefi
kynnst.
Þegar ég byrjaði búskap árið
1928, komu rjúpnahjón upp 8
ungum í heygarðinum hjá mér.
Og alltaf fór hópurinn stækk-
andi eftir því sem árin liðu.
Þetta var orðið eins og alifuglar,
enda alltaf látnir í friði.
Síðan kom minkurinn og fór
að valsa um allar jarðir. Eftir
það áttu ýmsar fuglategundir
mjög í vök að verjast.
Ásókn veiðimanna í rjúpu um
fjöll og heiðar hefur stundum
orðið dýrkeypt, þegar þurft hef-
ur að gera út leitarflokka þeim
til bjargar. Og er mál að linni.
Að endingu ætla ég að biðja
þig að birta eftirfarandi erindi
um rjúpuna eftir Sólveigu frá
Niku:
„Vér biðjum yður, bræður, að
sýna þeim viðurkenningu, sem erf-
iða á meðal yðar og veita yður for-
stöðu f Drottni og áminna yður.
Auðsýnið þeim sérstaka virðingu
og kærleika fyrir verk þeirra.“ 1.
Þess. 5.12.
Látum oss biðja að svo megi
verða í Jesú nafni."
Rjúpan
Hann er svo fallegur fuglinn
sem fæddist í hreiðrinu og bjó
og undi þar einnig á vetrum,
þó allt væri þakið í snjó.
Á vorin er laufblöðin lifna
og lyngið er grænt undan snjó,
þá er svo ljómandi að lifa
og lífsbjörg á heiðinni nóg.
Á haustin er heiðin er fögur,
hún heillar mann til sín og knýr.
Sá ætti ekki að ganga um þær grundir,
sem grandar því lífi er þar býr.
Fyrsti snjórinn er fallinn,
á fönnina glitrar og skín.
Það má ekki flekka þá fegurð,
það fjallanna drifhvita lin.
En ef þú átt ferð yfir fjöllin,
þá farðu ekki annarra slóð.
Hún er kannski blettuð af blóði;
þeir brenna sem logandi glóð.
Svo höldum við hátíð því Frelsarinn
fæddist;
menn fagna og birtan er skær.
Á borðinu frammi er bringa af rjúpu,
sem barðist við dauðann í gær.
Með þökk fyrir birtinguna.
HEILRÆÐI
Rjúpnaveiðimenn
Á þessum árstíma skipast veður oft skjótt í íofti. Kynnið
ykkur því veðurútlitið áður en lagt er upp í veiðiferðina.
Klæðist ávallt ullarfötum og hafið meðferðis léttan hlífðar-
fatnað í áberandi lit. Grandskoðið allan búnað ykkar og vand-
ið hann af stakri umhyggju. Sýnið forsjálni og gætni á öllum
leiðum og tillitssemi við þau er heima bíða.
Rjúpan einhver indælasti
fugl sem ég hefi kynnst
Vdrumarkaöurinnhf.
J Ávallt á undan
ÁRMÚLA 1a EOSTORG111