Morgunblaðið - 08.12.1983, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1983
28
KSI-þingið
á Húsavík
Deildarfyrir-
komulag
innanhúss
íslandsmótiö í knattspyrnu
innanhúss veröur með örlítið
öðru sniði í vetur en áður hef-
ur veriö. Nú verður leikiö með
deildarfyrirkomulagi. A-, B-,
C- og D-riölarnir heita því hér
eftir 1., 2., 3. og 4. deild.
Keppni 2. og 4. deildar fer
fram 21. og 22. janúar en 1. og
3. deild verður leikin 25. til 26.
febrúar og þá fer einnig fram
keppni í 1. deild kvenna.
Mestar tekjur
voru af
Spánarleiknum
SÁ landsleikur sem KSÍ hafði
mestar tekjur af í sumar var
vitanlega leikurinn við ira í
haust. Þá greiddu 13.706
áhorfendur aögang að Laug-
ardalsvellinum og voru tekj-
urnar kr. 1.568.880. Tekjurnar
af leiknum viö Spán í maí voru
906.520 en þá greiddu 7.055
áhorfendur aögang. Hagnað-
urinn var hins vegar nokkuö
meiri af Spánarleiknuml Þá
fékk KSÍ 319.077,08 kr. í kass-
ann en 204.504. kr. eftir íra-
leikinn.
Þeir útgjaldaliöir sem mest
hækka milli leikja eru vallar-
leiga sem fer úr 154.108,40 kr.
í 266.709,60 kr. (sem stafar vit-
anlega af áhorfendaaukningu),
fargjöld fyrir íslensku leikmenn-
ina hækka úr 70.231,50 kr. í
125.651 kr., og síöan er mesta
stökkiö i kostnaöi viö gestina.
Kostnaöur vegna Spánverj-
anna var aöeins 53.137 kr., en
við írana hvorki meira né minna
en 421.184,50 kr. Þess má geta
aö KSÍ greiddi engin fargjöld
fyrir Spánverjana en fargjöld
vegna Iranna voru 252.786 kr.!
Því má slá hér fram (til gam-
ans) aö útgjaldaliöurinn „öl eftir
leik“ hækkaöi úr 408 kr. í 786.
Hlutur KSÍ í
getraunum 1,5%
HAGNADUR KSÍ af getraunum
á starfsárinu voru 384.937,83
krónur — en hlutur sam-
bandsins í íslenskum getraun-
um er 1,5%. Fyrir þetta starfs-
ár var hlutur KSÍ hækkaður úr
0,75% í 1,5%.
Hugmynd um
ferðakostnað
í einn pott
JÓN Arnþórsson lagði til á
þinginu að ferðakostnaði í 1.
deild yrði jafnað niður milli
allra liöa — settur í einn pott
sem geröur yrði upp að
hausti. Jón, sem er formaöur
KA, sagði aö feröakostnaöur
Þórs og KA á Akureyri væri
vel yfir helmingi allra útgjalda
knattspyrnudeilda félaganna,
og sér fyndist það almenn
mannréttindi að allir stæðu
jafnir hvað þátttöku í ís-
landsmóti varðaði.
Jón lagöi til aö tillögunni yröi
vísaö til stjórnar KSÍ til athug-
unar — og var sú hugmynd
borin undir atkvæöi. 31 var
meö tillögunni og 31 á móti —
og voru þá greidd atkvæði aö
nýju. Tillagan var þá felld meö
40 atkvæöum gegn 33.
Alfreð Þorsteinsson:
Fullt samkomulag um að keppendur
Islands a Olympíuleikunum verði
allir lyfjaprófaðir fyrir leikana"
VEGNA fréttar Mbl. í gær um
sænska lyftingamenn, sem flúðu
af hólmi, þegar framkvæma átti
„dóptest" á lyftingamóti ( Gauta-
borg um sl. helgi, sneri Mbl. sér
til Alfreðs Þorsteinssonar, for-
manns lyfjaeftirlitsnefndar ÍSÍ, og
spurðist fyrir um störf nefndar-
innar, og hvort einhverjar sér-
stakar aðgeröir væru framundan
vegna þátttöku ísl. íþróttafólks í
komandi Ól-leikum.
„Störf lyfjaeftirlitsnefndar eru
þess eölis, aö þaö er afar óheppi-
legt aö auglýsa þau fyrirfram,"
sagöi Alfreö. Hann kvaöst þó geta
upplýst þaö, aö fullt samkomulag
væri milii lyfjaeftirlitsnefndar og
Ólympíunefndar íslands um nauö-
syn þess, aö væntanlegir þátttak-
endur íslands í næstu Ol-leikum,
bæöi vetrar- og sumarleikum, yröu
„dóptestaðir" og raunar heföi þeg-
ar fariö fram „dóptest" á nokkrum
íslenzkum skíöamönnum, sem lik-
legir þættu til aö taka þátt í vetrar-
leikunum.
„Helstu erfiöleikar okkar í sam-
bandi viö lyf jaeftirlitspróf eru
gagnvart þeim íslenzku frjáls-
íþróttamönnum, sem stunda nám
og æfingar í Bandaríkjunum, því
aö þeir munu sennilega ekki koma
neitt heim fyrir sumarleikana í Los
Angeles. En í þessu sambandi hef-
ur veriö rætt um, aö læknir lyfja-
eftirlitsnefndarinnar, Páll Eiriks-
Coe stakk af
BRESKI stórhlauparinn Sebast-
ian Coe og þýska skíðakonan
kunna Irene Epple voru yfir sig
ástfangin um tíma og allt stefndi
í giftíngu. Síðan hljópst Coe á
brott og Epple var alveg miöur
sín. Hún segist aldrei hafa trúaö
því að svo erfitt væri að sætta sig
við þetta, en hún myndi reyna að
gleyma þeim breska — sem hef-
ur undanfarið veriö með tennis-
konunni Linda Greeves.
Coe og Épple áöur en hann stakk
af.
son, færi til Bandaríkjanna og
framkvæmdi lyfjaeftirlitspróf þar á
íslenska frjálsíþróttafólkinu."
Varöandi prófun á ööru íþrótta-
fólki, t.d. lyftingamönnum, sund-
mönnum og júdómönnum sagöi
Alfreö, aö þaö væri miklu auöveld-
ara mál, því aö hana væri hægt aö
framkvæma hér heima hvenær
• Alfreð Þorsteinsson, formaður
lyfjaeftirlitsnefndar iþróttasam-
bands fslands.
Tveir frá Stoke?
SAMMY Mclllroy og Mickey
Thomas, fyrrum leikmenn Man.
Utd., vilja báðir komast frá Stoke.
Stoke hefur gengiö illa aö undan-
fðrnu, og nú hyggst félagið
byggja upp nýtt lið þannig að
báðir þessir leikmenn fara senni-
lega á næstunni frá Victoria
Ground.
Getrauna- spá MBL. C 3 O J o i ». 1 5 >. 1 3 tf> Sunday Exprass News ol the World 1 f ». 1 3 (O SAMTALS
Coventry — Liverpool X 2 X 2 2 2 0 2 4
Everton — Aston Villa 1 1 1 2 2 X 3 1 2
Ipswich — Man. Utd. X X 1 2 X 2 1 3 2
Leicester — Wolves 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Notts. County — Sunderland 1 1 2 X 1 1 4 1 1
Stoke — Luton X X X 2 1 2 1 3 2
Tottenham — Southampton 2 1 1 1 1 1 5 0 1
Watford — Nott. Forest 2 X 2 X X X 0 4 2
WBA — QPR 1 1 1 X 1 1 5 1 0
West Ham — Arsenal 2 1 1 1 1 X 4 1 1
Barnsley — Chelsea 2 X 1 2 X 2 1 2 3
Man. City — Sheff. Wedn. X 1 1 X 2 1 3 2 1
sem væri. Sagöist Alfreö vera
mjög ánægöur meö undirtektir
Ólympíunefndar íslands, undir for-
ystu Gísla Halldórssonar, sem
legöi mikla áherzlu á, aö gengiö
væri úr skugga um, aö ekkert ís-
lenzkt íþróttafólk, sem þátt tæki í
væntanlegum Ól-leikum, notaöi lyf
til aö bæta árangur sinn. „Enda er
gagnslaust fyrir íþróttafólk aö taka
þátt í Ólymptuleikum undir slíkum
kringumstæöum, þvi aö mjög
strangt eftirlit veröur varöandi
þetta atriöi, og hafa Bandaríkja-
menn t.d. lagt í mikinn tækja-
kostnaö fyrir sumarleikana í Los
Angeles vegna lyfjaeftirlits," sagði
Alfreö aö lokum. ÞR.
Epple sigraði
„ÉG TRÚI þessu varla,“ sagði
Irene Epple, hin kunna 26 ára
vestur-þýska skíðakona, í gær,
eftir að hún haföi sigrað í fyrsta
brunmóti kvenna í heimsbikarn-
um í vetur. Keppt var í Val d’ Is-
ere í Frakklandi. Tími hennar var
aðeins átta hundruöustu úr sek-
úndu betri en tími svissnesku
stúlkunnar Ariane Ehrat. Meðal-
hraöi Epple var 100,26 km, meðal-
hraöi 100,17 km á klst.
Epple haföi rásnúmer eitt og
bjuggust menn viö því aö þaö
geröi henni erfitt, en þvert á móti.
Snjórinn var mjög haröur og kalt
var í veöri, en fljótlega eftir aö
keppnin hófst braust sólin fram úr
skýjunum og brautin mýktist aö-
eins. Sólin geröi keppendum sem
á eftir komu nokkuö erfitt fyrir meö
því aö blinda þá.
Tímar efstu keppenda voru
þessir:
Irene Epple, Vestur-Þýskal.
Ariane Ehrat, Sviss
Carolyn Attia, Frakkl.
Lea Soelkner, Austurr.
Jana Gantnerova, Tékkósl.
Hanni Wenzel, Liechtenst.
Sylvia Eder, Austurr.
Marie Walliser, Sviss
Michela Figini, Sviss
Sieglinde Winkler, Asturr.
1:21,27 mín.
1:21,80 mín.
1:22,34 mín.
1:22,38
1:22,46 mín.
1:22,49 mín.
1:22,54 mín.
1:22,59 mín.
1:22,59 mín
1:22,81 mín.
„Eg heföi aldrei trúaö því aö ég
ætti sigurmöguleika í bruni,“ sagöi
Epple, en hennar sterkasta grein
hefur hingaö til verið svig.
Enskir vilja gömlu
góðu treyjuna aftur
NOKKRIR forráðamanna enaka
knattspyrnusambandsins hafa nú
hug að því að breyta enska
landslíösbúningnum enn einu
sinni, og fara aö spila aftur í ein-
litum hvítum skyrtum eins og
enska landsliðið lék í til fjölda ára
— og varö heimsmeistari í 1966.
Treyjan sem landsliöiö leikur í í
dag var fyrst notuö gegn Argent-
ínu á Wembley í maí 1980 — gafst
reyndar vel þá, en England vann
heimsmeistarana 3:1. En forráöa-
menn knattspyrnusambandsins
eru íhaldssamir og vilja nú fá
gömlu „góöu" treyjuna aftur. Leik-
iö veröur í „nýju“ treyjunni út þetta
• Colin Bell í gömlu „góöu“
treyjunni.
keppnistímabil, þar sem ekki er
leyfilegt aö skipta um búning á
miöju tímabili. Samningur sam-
bandsins viö Admiral-fyrirtækiö
rennur út í október, og hvort sem
hann veröur framlengdur eöa ekki,
má telja næsta öruggt aö enska
landsliöiö leiki aftur í einlitum hvít-
um treyjum næsta vetur.
Alan Ball, fyrrum fyrirliöi enska
landsliösins segir: „Ég var vanur
aö fara í einlitu hvitu treyjuna meö
enska landsliðsmerkinu á, og þaö
var stórkostleg tilfinningu. Þegar
ég lék í nýju treyjunni fannst mér
ég vera aö leika meö úrvalsliöi úr
skemmtanaiðnaöinum."
• Mike Duxbury ( nýjustu gerð
ensku landsliðspeysunnar.