Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
5
Virkið í norðri
kemur út á ný
í fímm bindum
Aldrei
höfum við haft jafn stórglæsilegt úrval af
fatnaði og nú. Sjón er sögu ríkari.
Ljóftm.
Kanadískur hermaður á tali við felenzkar konur.
Fyrsta bindi þessa rit-
verks Gunnars M.
Magnúss að koma í
verslanir
VIRKIÐ í norðri eftir Gunn-
ar M. Magnúss kom út á ár-
unum 1947—50 í þremur
stórum bindum. Þar var rak-
in samtímafrásögn af her-
námi íslands, þrfbýlisárun-
um og styrjaldarslysum ís-
lendinga, einkum vegna sæ-
fara. í þeirri útgáfu voru birt-
ar myndir sem snertu her-
námið og slys á sjó og landi á
þessu örlagaríka tímabili, um
það bil fjögur hundruð mynd-
ir.
Virkið í norðri seldist fljótt
upp og nú hefur Helgi Hauksson
bóksölumaður hafist handa um
nýja útgáfu og safnað til hennar
ásamt höfundi margs konar við-
bótarupplýsingum og þó einkum
miklum fjölda nýrra mynda.
Helgi hefur í því sambandi leitað
til erlendra hermanna, sem hér
voru á stríðsárunum og orðið
drjúgt til fanga. Er áætlað að hin
nýja útgáfa verði fimm bindi í
stóru broti og er hið fyrsta þeirra
að koma í bókaverzlanir þessa
dagana.
Jón úr Vör hefur ritað formála
fyrir útgáfunni. Hann er í við-
Gunnar M. Magnúss rithöfundur.
talsformi og rekur Gunnar M.
Magnúss ritferil sinn í stórum
dráttum og segir frá lífsskoðun-
um sínum af hreinskilni.
f fyrsta bindi Virkisins eru um
það bil 400 myndir og nákvæmur
annáll um viðburði styrjaldar-
innar varðandi ísland og íslend-
inga. Nýja útgáfan telur 1200
lesmálssíður með nálega 1500
myndum. Heiti bindanna eru
Hernámsárin, Þríbýlisárin, Sæ-
farendur, Samtíð og saga og Þeir,
sem féllu og fórust á styrjaldar-
árunum.
Ljósm. Þorsteinn Jósefsson.
Sandpokar fyrir gluggum safnahússins og Þjóðleikhússins á styrjaldarárun-
um, en birgðastöð hersins var f Þjóðleikhúskjallaranum.
Viö tökum á móti Eurocard- og Visa-korthöfum
meö brosi á vör.
Viö viljum minna viöskiptavini okkar á greiöslu-
skilmálana og skoöanakönnunina og aö allt getur
skeð hjá okkur.
Aö lokum vekjum viö athygli á innihaldi einkunnar-
oröa batamerkis desember: „ÁFRAM MIÐAR í ANDA FRIÐAR“