Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 „Mínútu-stjórnun“ Bók um nýja stjórnunaraðferð „Sextán dagar í september“ — Ný unglingabók Bókaforlagið Svart á hvítu hefur gefið út unglingabók er nefnist Sextán dagar í september, og er hún eftir Bibi og Franz Berliner. Bók þessi hlaut bók- menntaverðlaun stórra skandinavískra bókaforlaga árið 1980, segir í fréttatilkynningu frá forlaginu. f sögunni segir frá táningum, sem hafa átt erfiða æsku vegna heimilisaðstæðna. Þetta eru heilbrigðir og kraft- miklir krakkar og hafa áhuga- mál eins og gengur og gerist í þeirra aldurshópi. Söguhetjurn- ar, Brjánn og Pía, kynnast ást- inni saman og með hana að vopni sigrast þau á erfiðleikum sínum. Höfundarnir sýna mikinn skiln- ing á hugsunarhætti unglinga í þessari sögu, sem þýdd er af Sig- urði Á. Friðþjófssyni rithöfundi. Bókarkápa er hönnuð af Mar- gréti Á. Áuðuns. Ritið er 160 blaðsíður að stærð og unnið hjá Guðjónó og Félagsbókbandinu. Bóksöluskrá Bókavörðunnar: Meira en 1300 bókatitlar 134? BÆKUR, í sumum tilvikum fleir* en eitt bindi, eru auglýstar til sölu i nýjustu bóksöluskrá verslun- arinnar Bókavörðunnar í Reykjavík, en hún er 25. skrá verslunarinnar frá upphafí. í frétt frá Bókavörðunni segir svo meðal annars: „Bókavarðan er verzlun í Reykjavík með gamlar og nýlegar bækur í öllum greinum fræða, vís- inda og skáldskapar. í þessari 25. bóksöluskrá er bókunum skipt eft- ir efnum í eftirtalda flokka: Hér- aðasaga, ættfræði, þjóðsögur, ís- lenzk fræði og norræn, færeyskar bækur og rit, nótur og sönglaga- hefti, ævisögur fslendinga, nátt- úrufræði, skáldsögur erlendra höfunda og Blanda nýkominna rita í öllum greinum. í þessari skrá er t.d. að finna um 220 skráðar ævisögur um ís- lendinga og til gamans má geta þess, að algengasta verð þeirra er milli 100 og 200 kr. Mikið og gott val erlendra skáldsagna er einnig hér kynnt og má t.d. nefna höf- unda eins og Balzac, Bj. Björnson, Dickens, Faulkner, Galsworthy, Hamsun, Heinesen, Kazantsakis, Kástner, Lagerkvist, Lagerlöf, Maeterlinck, Maupassant, Sagan, Maugham, Steinbeck, Söderholm, Oscar Wilde, Mika Waltari, Stefan Zweig o.m.fl. Af fágætum bókum, sem sjald- an koma fram í seinni tíð má t.d. greina frá: Bækur Pálma Hannes- sonar, Skuggsjá og ráðgáta eftir Brunjúlf frá Minna-Núpi, rit dr. Magnúsar Jónssonar um Hallgrim Pétursson, 1.—2. bindi, Ljóðmæli Herdísar og ólínu, Stokkseyringa saga 1—2 eftir Guðna Jónsson, Saga Eyrarbakka 1—3 eftir Vig- fús Guðmundsson, Saga Reykja- víkur 1—2 eftir Klemens Jónsson, íslenzkir samtíðarmenn 1—2, bækur Jónasar Svafárs Það blæðir úr morgunsárinu og Geislavirk tungl, allar ljóðabækur Stefáns Harðar Grímssonar í frumútgáf- um, flestar bækur Árna óla, Ár- bók Þirgeyinga og ótal margt fleira. Alls eru í skránni greindir rúmlega 1300 bókatitlar." BÓKAÚTGÁFAN Vaka hefur gefið út bókina Mínútu-stjórnun eftir Kenneth Balanchard og Spencer Johnson í þýðingu Grétars Oddsson- ar. Bókin kennir á einkar aðgengi- legan hátt nýja stjórnunaraðferð, sem nefnd hefur verið Mínútu- stjórnun. Hún byggist á rannsókn- um sem gerðar hafa verið á þvf, hvernig árangursríkast er að haga mannlegum samskiptum á vinnu- stöðum eða í öðru samstarfí fólks. 1 kynningu á bókarkápu segir: „Þessi athyglisverða stjórnun- arbók er þegar orðin margföld metsölubók víða um lönd. Ástæð- an er einfaldlega sú, að hún hefur ekki brugðist. Hér er kennt hvern- ig á að stjórna samstarfsmönnum með markvissum hætti; hvernig á að virkja áhuga þeirra og hvetja þá til dáða. Allir verða ánægðari og árangurinn ótrúlegur." Þess má geta, að bókin Mínútu- stjórnun hefur verið meðal þriggja efstu bóka á metsölulist- um í Bandaríkjunum undanfarna mánuði. Bókin um mínútustjórnunina hefur komið út í mörgum Evrópu- löndum undanfarna mánuði og ekki hitt þar síður í mark en vest- Jlínútu sfj®mun KennethBlanchaitl SpencerJohnson VAKA i mnt/ an hafs. Þá hafa námskeið byggð á þessari nýju stjórnunaraðferð fylgt í kjölfar bókarinnar erlendis og mun hið sama verða upp á ten- ingnum hér. Mínútu-stjórnun er sett og prentuð í Steinholti hf., Prent- tækni hf. prentaði kápuna, sem Ragnheiður Kristjánsdóttir hann- aði, en Bókfell hf. annaðist bók- band. iMfógtiitWitfrife MetsöluUad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.