Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 2
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983 KristniboAarnir, hjónin Hrönn Siguröardóttir og Ragnar Gunnarsson, en í milli þeirra gestirnir að heiman, hjónin Hermann og Inga með litla nafna sinn. Kveðjur firá Kenýa til kristniboðsvina Kristniboðarnir, hjónin Valdís Magnúsdóttir og sr. Kjartan Jónsson, og dæturnar Heiðrún og Ólöf Inger. Með á myndinni eru einnig synir Hrannar og Ragnars, Sigurður — í bakgrunni — og hinn nýskírði Hermann Ingi. Siggi og innfæddur félagi hans athuga málin. — eftir Hermann Þorsteinsson í gróðursælu fjalllendi við Cheparería í Pokot-héraði í Kenýa hafa íslenskir kristniboðar nú starfað í 5 ár og með miklum stórhug, dugnaði og myndarskap byggt þar upp fyrirmyndar starfs- stöð: kirkjuhús, skólahús, 2 íbúð- arhús fyrir íslensku fjölskyldurn- ar tvær, lítið gestahús, mótorhús og geymsluskála. Öll þessi hús bera af öðrum bústöðum manna þar um slóðir, en eru þó öll — nema íbúðarhúsin — eins íburð- arlaus og einföld og hugsast getur. Með tilkomu sendiboðanna frá ís- landi hefur á skömmum tíma orð- ið gjörbreyting til batnaðar á lífi og lífsháttum gjörsnauðra og fá- kunnandi manna, sem áður lifðu í myrkri heiðninnar, þekktu ekki hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, þótt það lifði undir hinni björtu og brennheitu miðbaugssól. Vert væri að íslenskir fjölmiðl- ar beindu i vaxandi mæli athygli að ofangreindu starfi og greindu oftar frá því, sem menn íslensku kirkjunnar með hljóðlátum hætti vinna þarna og í Eþíópíu, þar sem nú hefur verið starfað í 30 ár. Ekki skal fjölyrt um þetta kristni- boðsstarf hér og nú, nema — vegna yfirstandandi söfnunar Hjálparstofnunar kirkjunnar — að geta þess að nýja skólahúsið í kristniboðsstöðinni í Cheparería er byggt fyrir gjafafé frá þeirri góðu stofnun. Þar fer nú fram skipulegt uppfræðslustarf, sem gjörbreyta mun lífi og framtíð mikils fjölda unglinga, sem þar stunda nú nám. Sjaldgæft er að íslensku kristniboðsstöðvarnar í Afríku fái heimsóknir frá íslandi, en stöðin í Cheparería fékk þó eina slíka í nóvember sl. í þeirri heimsókn voru gestirnir beðnir fyrir óteljandi kveðjur frá kristni- boðunum og fjölskyldum þeirra, hinum innlendu samverka- mönnum þeirra, svo og frá söfnuð- inum og skólabörnunum til fórn- fúsra vina þeirra á íslandi, að ógjörningur er að koma því öllu til skila nú fyrir jólin nema með hjálp öflugs fjölmiðils og því eru þessar línur sendar Mbl. með vin- samlegri beiðni um birtingu, ásamt með myndum til að lífga upp á kveðjurnar. Um helgina 20. nóvember sl. var mikið um að vera í Cheparería. í sunnudagsguðþjónustunni voru skírð 5 ungbörn, 3 stúlkur og 2 drengir, börnin voru öll svört, nema annar drengurinn og er hann fyrsti hvítinginn, sem skírð- ur er í kirkjunni i Cheparería. Hann er yngri sonur kristniboð- anna Hrannar Sigurðardóttur og Ragnars Gunnarssonar, fæddur í Nairobi 3. júlí sl., og var þá strax gefið nafnið Hermann Ingi í höf- uðið á hjónum heima á Islandi, vinum foreldranna. Og þá vorum við hjónin heima á Islandi enn einu sinni hvött til að koma í heimsókn til að sjá litla nafnann og vera við skírn hans, og til að kynnast af eigin raun akrin- um sem íslensku kristniboðanir vinna á, og til þess — eftir heim- sóknina — að geta enn betur sagt frá og hvatt til aukins stuðnings heima á íslandi við þetta mikils- verða starf, sem þyrfti að eignast fleiri og enn örlátari vini og vel- unnara. Skírnarhátíðin í kirkju þessa frumsafnaðar mun ekki gleymast okkur gestunum. Hið einfalda kirkjuhús og búnaður hindraði ekki þennan söfnuð í að syngja Guði lof og dýrð með slíkri gleði og fögnuði, að jafnvel steinhjörtu munu hafa hrifist og fagnað með. Daginn eftir var haldinn héraðsfundur kristniboð- anna íslensku og norsku í Pokot í stöðinni í Cheparería. Þar gafst kostur á að hitta og ræða við hina norsku samverkamenn íslensku krisniboðanna í Pokot og það reyndist valinn og góður hópur. Um kvöldið var almenn samkoma í kirkjunni, sem reyndist mikill viðburður, því svo mikinn fjölda fólks dreif að úr öllum áttum; eldri og yngri, konur og karlar, að Norðmennirnir kváðust ekki áður hafa séð og upplifað annað eins í Kenýa. Sú samkoma er efni í langa og líflega frásögu, sem bíða verður, en þarna flutti ég sérstaka kveðju fyrstu íslensku kristniboð- anna í Cheparería, hjónanna Skúla og Kjeldrúnar, sem allir virtust þekkja, elska og virða, bæði hvítir og svartir, yngri sem eldri. Og þarna flæddu svo yfir kveðjur aftur heim til íslands, til hjónanna og til kristniboðsvin- anna allra — til Hjálparstofnunar kirkjunnar — svo hlýjar og glaðar og góðat að ófyrirgefanlegt væri að koma þeim ekki til skila fljótt og meðan þær eru enn svo ferskar og heitar. Og mættu nú þessar langt að komnu kveðjur, kæru kristniboðsvinir, auka við jóla- gleðina hjá ykkur. En hafið í huga, að enn deyr helmingur allra ung- barna í Pokot vegna vannæringar og sjúkdóma og fákunnáttu for- eldranna, og að enn er um helm- ingur skólabarnanna í Cheparería svo fátækur, að hann hefur ekki ráð á að útvega sér skólabúning- inn, tómatlitar léreftsskyrtur og bláar stuttbuxur eða pils. ÖIl ganga þessi börn enn berfætt og þekkja ekki annað. En þau gleðj- ast yfir „öllu“ því sem þau njóta nú. Eg finn til sektar, en veit jafn- framt að auðvelt er að minnka þá vondu tilfinningu með því að gera eitthvað í málinu. Kristniboðs- sambandið og Hjálparstofnun kirkjunnar eru öruggir farvegir til reiðu fyrir mína gjöf og þína til hinna snauðu sem svo mikið er hægt að gera fyrir með svo tiltölu- lega litlu á okkar mælikvarða. „Hungraður var ég ... nakinn var ég ... og þér ... ? Hugsum um það ... og framkvæmum ... nú, fyrir jólin, og í framtíðinni. „Vertu fús bæði og frár, til að framkvæma allt, sem þú finnur að rétt styður mál ..." Hermann l’orsteinsson er m.a. framk væmdastjóri Hins íslenska biblíufélags og sóknarnefndarmad- ur Hallgrímssafnaðar í Reykjavík. Gerpla ákveður að kaupa íþróttahúsið NÚ eftir að fyrir liggur samþykki Alþingis og bæjaryfirvalda í Kópa- vogi um fjárstuðning til íþróttafé- lagsins Gerplu til kaupa á íþrótta- húsi við Skemmuveg, þar sem gert er ráð fyrir að hvor aðili greiði 40% kaupverðs, hefur stjórn Gerplu ákveðið að kaupa húsið. Sú óvissa, sem ríkt hefur um starfsemi félags- ins á næsta ári er því ekki lengur til staðar, segir í fréttatilkynningu frá Gerplu. Gerpla þakkar af alhug öllum þeim aðilum, sem veitt hafa fé- laginu stuðning við að gera kaup- in möguleg, bæjaryfirvöldum í Kópavogi, Menntamálaráðherra, íþróttanefnd, fjárveitinganefnd og fjölmörgum öðrum, sem ekki verða upp taldir Félagið hefur jafnframt hrint af stokkunum fjársöfnun til að greiða þann hluta kaupverðsins, sem á vantar. Er velunnurum fé- lagsins bent á að snúa sér til starfsfólks íþróttahússins, eða leggja fé inn á gíróreikning í Sparisjóði Kópavogs nr. 1136 26 3223, vilji þeir hjálpa til við söfnunina með peninga- gjöfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.