Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 16
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983 Börnin í Vestra-Stokkseyrarseli. Haraldur Blöndal (1882—1953) hlýtur að teljast lítt þekktur ljós- myndari. Myndir eftir hann hafa ekki birst víða og þegar þær hafa birst hefur hann sjaldnast verið nefndur til sögunnar sem höfundur þeirra. Má geta þess að í einni jóla- bókinni í ár eru ekki færri en fjórar myndir sem Haraldur tók, en aðeins staklega var byggt til ljósmynda- stofureksturs. A þessu árabili varð ljósmyndarinn að treysta á dags- birtuna við myndatökur, og gluggar urðu því að vera sérstaklega stórir til að veita nægri birtu inní stofuna. Ljósmyndastofur voru því oft í hús- næði sem var sérstaklega til þess byggt. Hverfisgata 16 sem hýsti Haraldur Blöndal (1882—1953). ein þeirra er eignuð honum. Þess eru jafnvel dæmi að syni Haralds, Sölva, séu eignaðar myndir sem Haraldur tók meðan Sölvi var enn innan við fermingu. Haraldur er einn af fjölmörgum ljósmyndurum, sem starfað hafa hér á landi sem hafa fallið í skugg- ann af þeim fáu starfsbræðrum sín- um sem nafnþekktir eru hér á landi. Útgáfa þókar með sýnishorni, úrvali eða hvað menn kjósa að kalla það, af ljósmyndum Haralds er tilraun til að sýna að til er fjöldi ljósmynda sem hafa gleymst óverðskuldað. Af skiljanlegum ástæðum eru þeir ljósmyndarar oftast nefndir á nafn sem lengst ráku ljósmyndastofu eða voru svo lánsamir að starfa á fjöl- mennum stöðum, eða þá stöðum sem síðan hafa fengið aukna þýð- ingu vegna vaxandi búsetu. Það er líka betri markaður fyrir þeirra myndir, viðskiptahópurinn sem þekkir staðinn, sem myndirnar eru frá, er stærri. En því má ekki gleyma að frá því um 1880 hafa starfað ljósmyndarar um landið allt, þó varðveisla á plötusöfnum þeirra sé vægast sagt misjöfn. Á síðustu öld voru síst færri ljós- myndarar starfandi, til dæmis á ísafirði, Seyðisfirði og Akureyri, en hér í Reykjavík og atvinnuljós- myndarar bjuggu þá einnig til sveita. Heiti bókarinnar um Harald, Ijósmvndarinn í þorpinu á umfram allt að vísa til þessa, honum er stillt upp sem dæmi fyrir tiltekinn hóp í ljósmyndarastétt, þá sem-bjuggu í þorpum um land allt. Haraldur er aðeins einn af mörgum. Röð tilvuljana olli því að farið var að athuga ljósmyndaplötur hans nán- ar, gera eftir þeim myndir, safna upplýsingum um myndefnið og síð- an gefa það út á bók. Til þessa hafa ljósmyndabækur aðailega verið helgaðar Reykjavík, einnig Akureyri, en það er víðar fjölbreytt mannlíf. Ljósmyndarinn í þorpinu veitir okkur innsýn í mann- líf á Suðurlandi, en þar starfaði Haraldur við ljósmyndun á árabil- inu 1917 til 1924. Áður, 1905 til 1910, rak hann ljósmyndastofu í Reykja- vík á Laugavegi 46 í húsi sem sér- Fjölskyldan i Hlemmiskeiði i Skeiðum fyrir utan hlöðudyrnar vorið 1919. Konur í íslenskum kvenbúningum i 19. júní i Stokkseyri. Ljósmyndastofu Pjeturs Brynjólfss- onar hafði í þyí enga sérstöðu þó því hafi verið haldið fram í Morgun- blaðinu nýverið í viðtali við Sigur- geir Sigurjónsson sem rekur þar nú ljósmyndastofuna Svipmyndir. Á Suðurlandi hafði Haraldur að- alaðsetur á Eyrarbakka, en rak einnig ljósmyndastofu á Stokkseyri og ferðaðist um héraðið þvert og endilangt á sumrin til að taka myndir. Ljósmyndir hans sýna því fjöibreytt mannlíf, húsakost, klæðnað, hátíðahöld, atvinnulíf og fólk. Hér eru ekki mörg þekkt and- lit, en andlit sem eiga ekki síður rétt á að komast á bók, en andlit lista- eða stjórnmálamanna. Ljósmyndirnar í bókinni spanna tímabilið frá lokum fyrri heims- styrjaldar fram að kreppu. Þetta voru um margt erfiðleikatímar. Þeir staðir sem myndirnar eru frá eins og til dæmis Eyrarbakki fóru ekki varhluta af því. Árin eftir fyrra stríð léku staðinn grátt og uppúr 1925 færist þungamiðja héraðsins í vaxandi mæli frá Eyrarbakka. Það átti ekki fyrir Eyrarbakka að liggja, að spá Boga Th. Melsteð rættist, en hann hafði spáð að þar yrði höfuð- staður landsins. í þessum ljósmyndum birtist Ijóslifandi bæði staðurinn og fólkið, allt frá sýslumanni til skólabarna. Byggðahlutföllin áttu eftir að breytast, þessar myndir eru teknar rétt áður og meðan það gerðist. Það eykur gildi þeirra enn. Annars lags breytingar hafa orðið á Stokkseyri frá þessum tíma, því oftar en einu sinni hafa þar orðið stórbrunar. Svo myndir þaðan hafa sýnu meira heimildargildi. Þannig mætti tína til fjölda dæma um gildi mynda Haralds. Fyrir utan það almenna gildi sem allar gamlar myndir hafa, og þær þurfa reyndar ekki að verða svo ýkja gamlar til að öðlast það, að þær sýna hvernig allt er breyting- um undirorpið. Val mynda í bókina er bundið við ljósmyndaplötur sem varðveittar eru úr safni Haralds. Það er geymt í Þjóðminjasafninu. Þar voru fyrir um tólfhundruð plötur frá Haraldi, Hópur skólabarna fri Stokkseyri (heimsókn i Eyrarbakka vetur- inn 1919—1920. Guðlaugur Pi sína í Sjónarb

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.