Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBEIÍ1983 55 Kór Langholtskirkju Kór Langholtskirkju: Jólaóratoría Bachs flutt á þriðjudag ÞRIÐJUDAGINN 27. desember flytur Kór Langholtskirkju Jólaórat- oríuna eftir Johann Sebastian Bach, ásamt kammerhljómsveit í Fríkirkj- unni í Reykjavík. Stjórnandi tónleik- anna er Jón Stefánsson. Tónleikarn- ir hefjast kl. 20.30, segir í fréttatil- kynningu frá kórnum. Einsöngvarar að þessu sinn eru þau, Ólöf K. Harðardóttir, Sólveig Björling, Jón Þorsteinsson og Kristinn Sigmundsson. Nú verður í fyrsta sinn leikið á obó d’amore við flutning jólaóratoríunnar, en slík hljóðfæri hafa ekki verið til í landinu. Úr þeim skorti hefur nú verið bætt og leika þeir Kristján Stephensen og Daði Kolbeinsson á nýju hljóðfærin, sem eru eign Sin- fóníuhljómsveitar íslands og Kórs Langholtskirkju. Aðgöngumiðar tónleikanna fást í Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar, ístóni og í Langholtskirkju. „Og sagði ekki eitt einasta orð“ Nýútkomin skáldsaga eftir Heinrich Böll HJÁ Máli og menningu er komin út skáldsagan Og sagði ekki eitt ein- asta orð eftir þýska Nóbelsskáldið Heinrich Böll. Þetta er fyrsta skáld- saga hans sem kemur út á íslensku. Böðvar Guðmundsson þýddi. í frétt frá Máli og menningu segir: „Meginviðfangsefnið í flestum bókum Böll er Þýskaland stríðsára og eftirstríðsára, í kjölfar hernað- arlegs og siðferðilegs ósigurs, og svo er einnig í þessari sögu. Þetta er átakanleg og nærgöngul saga um hjón sem virðast að niðurlot- um komin af fátækt og örvænt- ingu. Þau segja frá til skiptis og lýsing beggja verður skýr og heill- andi. En þrátt fyrir eymd og niðurlægingu fjallar sagan fyrst og fremst um mannlega reisn og þrautseigju — og heitar, ósviknar tilfinningar. Þetta er ein frægasta saga þessa mikla höfundar og ekki að ófyrirsynju." Bókin er í flokki sígildra 20. ald- ar skáldverka Máls og menningar. einasta oró Hún er 151 bls., sett í Prentsmiðju Þjóðviljans, högun annaðist Repró, Formprent prentaði og Bókfell batt. Framleiðsla kálfafóðurs á Blönduósi talin hagkvæm FRAMLEIÐSLURAÐ landbúnaðar ins samþykkti á fundi fyrir skömmu að hafin verði framleiðsla á kálfa- fóðri í Mjólkursamlaginu á Blöndu- ósi en eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu þá hefur Mjólkursamlagið verið með kálfa- fóðursframleiðslu í undirbúningi og leitaði í því sambandi til Fram- leiðsluráðs. Framleiðsluráð leitaði til ráð- gjafarfyrirtækisins Hagvangs hf. til að fá lagt mat á hagkvæmni slíkrar framleiðslu á Blönduósi. Að sögn Gunnars Guðbjartsson- ar framkvæmdastjóra Fram- leiðsluráðs benti könnun Hag- vangs til að framleiðslan yrði hag- kvæm og samþykkti Framleiðslu- ráð því að framleiðsla kálfafóðurs yrði hafin á Blönduósi sem fyrst og hét Mjólkursamlaginu stuðn- ingi með útvegun lánsfjár til stofnunar verksmiðjunnar. Plmrgnwlulilli Metsö/ublaó á hverjum degi! Tónlist á hverjti heimili umjélin Kempston stýripinnarnir ásamt tengi fyrir Sinclair Spectrum tölvuna komnir. Ómissandi fyrir tölvuleiki. Pantanir óskast sóttar. Stýripinni meö tengi kr. 1.360. Rafsýn hf., Síöumúla, sími 32148. Þægileg afgreiðsla í Húsi Versiunarinnar. Staðsetning okkar hér í glæsilegu Húsi Verslunarinnar og aðstæður allar eru hinar ákjósanlegustu. Það gerir þér sérlega létt fyrir að sinna bankamálum þínum, jafnt innlendum og nú einnig að hluta til erlendum, á þægilegan og öruggan hátt. Hér erum við m MIÐSVÆÐIS, þar sem er | AUÐVELD AÐKEYRSLA, I NÆG BÍLASTÆÐI og LIPUR BANKAÞJÓNUSTA. I Við erum mættir á ,,miðsvæðið“, til þjónustu reiðubúnir. , Verið velkomin. i V/6RZLUNRRBRNKINN Húsi Verslunarinnar - nýja miðbænum. Símanúmer til bráðabirgða eru: 84660 & 84829. Endanlegt símanúmer verður 687200.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.