Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
69
rv
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/7'-’' UtrW 'lJ If
Tákn þolgæðis og hóg-
værðar, friðar og starfs
Árelíus skrifar:
„Það hringdi maður til mín
síðastliðinn sunnudag (4. des.)
og spurði, hvers vegna ég hefði
nefnt jötuna, sem Jesús fæddist
í, asnastall, þegar ég ræddi um
jólin í sjónvarpi.
Mér var fátt um svör, taldi
þetta útúrsnúning. Nú vil ég
svara.
Ég hef komið að jötunni, sem
helgisögnin telur hann hafa
fæðst í. Það er asnastallur. Jötur
eru vart notaðar handa öðrum
dýrum í landinu. Þarna krjúpa
pílagrímar gjarna til bæna líkt
og við altari. Hið hversdagslega
verður hið allra helgasta. Það er
einmitt kjarni jólaboðskaparins.
í öðru lagi má geta þess, að
asninn kemur að sjálfsögðu
mjög við sögu Jesú. Móðir hans
kemur auðvitað á asna til Betle-
hem frá Nazaret hin fyrstu jól,
til manntalsins.
Þau flýja auðvitað einnig á
asna til Egyptalands, þegar
morðæðið grípur Heródes kon-
ung.
Og síðast við aðventu eða
komu hans til Jerúsalem á
pálmasunnudag velur hann
formlega og undirbúið til hátíð-
legan hátt þetta áburðardýr
þjóðar sinnar til sigurfararinn-
ar, í stað herfáks valdhafa.
En hvers vegna asna? Þetta
orð eða nafn er mörgum heimsk-
um hneyksli.
Asninn er tákn, meira að segja
í trúarbrögðum okkar, um þol-
gæði og hógværð, sem enga upp-
gjöf kann.
Hann er einnig lifandi tákn
friðar og starfs.
En atvinna og friður eru
frumþættir heilla og gæfu ein-
staklinga og þjóða í allri veröld á
öllum öidum.
Þakka spyrjanda og óska hon-
um gleðilegra jóla.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hugsa þarf til nýtingu auðlinda.
Rétt væri: ... til nýtingar auðlinda.
Þessir hringdu . . .
Smámunasemi og
ekkert annað
Arnar Kristjánsson, ísafirði,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Mér finnst það hneisa að
virða hugmyndir eins og fram
koma í nefndaráliti meirihluta
fjárveitinganefndar um breytingu
\ á greiðslu sjúkrakostnaðar. I lang-
flestum tilfellum hiýtur þetta að
lenda á eldra fólki og lasburða, því
að það þarf oftast á sjúkrahúsvist
að halda. Og svo mikið er víst, að
það er ekki þetta fólk, sem hefur
fulla vasa af peningum. Þing-
mennirnir mættu snúa sér annað
og líta sér nær. Þeir mættu einnig
hætta að hugsa um þvottaþjón-
ustu og matseld á sjúkrahúsunum.
Nærtækara væri að snúa sér að
ráðuneytunum og ofeyðslunni þar.
Um það mundi muna. Og Alþingi.
Það er ekki langt síðan það hafði
, heimild til að hafa 24 manngildi í
| þjónustuliði sínu, en þau hafa
óvart dottið upp í 45 á skömmum
tíma. Það er ekki vert að vera að
eltast við tittlingaskft, þegar hægt
er að spara stórar fúlgur á réttum
stöðum.
„Nu
mð danskerne
vare sig“
b
Spægipylsan okkar er svo góö aó nú gefa menn
unnvörpum, vinum sínum í Danmörku, íslenska
spægipylsu í jólagjöf.
Svo er verðió líka lægra, enda Vörumarkaðsverd.
Fáóu þér aö smakka —
bragóið kemur þægilega á óvart.
Vorumarkaðurinn hf.
ÁRMÚLA 1a EÐISTORG111
Krabbameinsfélag
íslands
auglýsir eftir konu til aö aöstoöa á heimili hjá ungri
fjölskyldu þar sem annaö foreldriö er á sjúkrahúsi.
Hjálpina vantar strax. Hlutastarf kemur til greina.
Upplýsingar gefa: Halldóra Thoroddsen, sími 10269
og Snorri Ingimarsson læknir, sími 29000.
Gjöfin sem gleður
er falleg grávara
Feldskerinn
Skólavörðustig 18,
simi 10840.
FRÖNSK SKRAUT-Á
KERTI
í MIKLU ÚRVALI