Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983 59 Á 9. þúsund félagsmenn í SÍDS MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá SÍI)S, félagi íslendinga á Norður- löndum, en í félaginu eru nú á 9. þúsund félagsmenn: „8. ársþing SÍDS, félags íslend- inga á Norðurlöndum, var haldið helgina 11.-13. nóvember sl. í húsi íslendingafélagsins í Ósló, við Noresund. SÍDS var stofnað árið 1976 af íslendinga- og námsmannafélög- um í Danmörku og Suður-Svíþjóð. Árið 1980 gengu íslendinga- og námsmannafélög í Noregi og Vest- ur- og Norður-Svíþjóð í félagið og voru þá aðildarfélögin orðin 15. Nú eru aðildarfélögin 18 og félags- menn hátt á níunda þúsund. Fé- lagið starfar að sameiginlegum menningar- og félagsmálum ís- lendinga á Norðurlöndum. Ársþingið sátu um 30 fulltrúar PIA Cramling, sem af mörgum er talin sterkasta skákkona heims í dag, mun tefla á Reykjavíkurskák- mótinu og skákmóti Búnaðarbank- ans í byrjun næsta árs. Hún er stór- meistari kvenna og alþjóðlegur skákmeistari. Ásamt henni mun bandaríski skákmeistarinn De félaganna í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Á þinginu kom fram að á síðasta ári var úthlutað styrkjum til menningarmála að upphæð 37.000 Dkr. eða um 110.000 ís- lenskar krónur. Sem dæmi má nefna að veittir voru styrkir til sameiginlegra íþróttamóta, til ráðstefnu íslenskra móðurmáls- kennara á Norðurlöndum og til út- gáfustarfsemi íslendinga- og námsmannafélaganna á félags- svæðinu. Auk þess hefur félagið styrkt myndlistarsýningar og tónleikahald félagsmanna. Menn- ingarmálasjóður SÍDS hefur þannig gegnt stóru hlutverki í menningarsamskiptum Íslendinga á Norðurlöndum. Ársþingið ákvað að veita um 40.000 Dkr. til menn- ingarmála á næsta ári, þar af eru framlög íslenska ríkisins um 7.000 Dkr. Flug- og ferðamál hafa einnig Firmian tefla á þessum mótum. Líklegt er að fjórir aðrir sterkir skákmenn tefli á þessum skák- mótum, þeir Larry Christiansen, Bandaríkjunum, Guyala Sax, Ungverjalandi, John Nunn, Eng- landi og Knezevic frá Júgóslavíu. verið stór hluti af starfsemi fé- lagsins. SÍDS samdi við danska flugfélagið Maersk Air um leigu- flug um páskana og tóku um 130 manns þátt í því. Þá náðust samn- ingar við Flugleiðir um sumarflug og voru farþegar með því á fimmt- ánda hundrað. SÍDS hefur einnig átt ánægjuleg samskipti við Ferðaskrifstofu stúdenta í Reykjavík í flugmálum. Nú um jólin sjá Flugleiðir að mestu leyti um flug fyrir félagið en þó er ein leiguferð frá Kaupmannahöfn með SAS. SÍDS er langstærsta félag ís- lendinga á erlendri grund. Þó menningar- og flugmál hafi verið aðalviðfangsefni félagsins hyggst það nú einnig beita sér á ýmsum öðrum sviðum s.s. í alls konar réttindamálum íslendinga erlend- is. Þingfulltrúar voru sammála um að starfsárið hafi verið árang- ursríkt og að full þörf sé á sterk- um hagsmunasamtökum íslend- inga á Norðurlöndum. Á ársþinginu var Árni Þór Sig- urðsson, Ósló, endurkjörinn for- maður og aðrir í stjórn eru: Sigur- þór Hafsteinsson, Gautaborg, varaformaður, Pétur G. Gunn- arsson, Kaupmannahöfn, gjald- keri, Yngvi Magnússon, Málmey, ritari, Jóhannes Pálsson, Álaborg, meðstjórnandi og Jóhann Guð- mundsson, Uppsölum, meðstjórn- andi.“ Skák: Pia Cramling til íslands 12 stúdentar braut- skrást í Garðabæ LAUGARDAGINN 17. desember sl. voru brautskráðir 12 stúd- entar frá fjölbrautum Garðaskóla. Bestum árangri náði Guð- finna Björnsdóttir náttúrufræðibraut. Hún var með 158 eining- ar og fékk einkunnina A í öllum áföngum nema einum. Myndin er af stúdentunum tólf. Sinclair Spectrum 48 K. Pínutölvan. Ótrúlega fullkomin tölva bœði fyrir leiki, nám og vinnu. Verð kr. 8.508.- Samlokurist frá Philips. Pú þarft ekki út í sjoppu til þess að fá samloku með skinku, osti og aspas. Verð kr. 1.811.- Forrit fyrir Sinclair. Leikja- og kennsluforrit, t.d. skák, pacman, stjörnustríð, flug og stœrðfræði. Verð frá kr. 400,- Jólagjafimar frá ' fii. Heimilistækjum Útvarpsklukkur frá Philips Morgunhanann frá Philips þekkja flestir. Hann er bœði útvarp og vekjaraklukka í einu tæki. LW, MW og FM bylgjur. Verð frá kr. 2.577.- Brauðristir frá Philips eru með 8 mismunandi stillingum, eftir því hvort þú vilt hafa brauðið mikið eða lítið ristað. Verð kr. 1.243. Rafmagnsrak - vélar frá Philips Þessi rafmagns- rakvél er tilvalinn fulltrúi fyrir hinar velþekktu Philips rakvélar. Hún er þríggja kamba með bartskera og stillan- legum kömbum. Hún er nett og fer vel í hendi. Verð frá kr. 2.604.- Hárblásarasett frá Philips Fjölbreytt úrval hársnyrtitækja. Verð frá kr. 1.090.- Philips kassettutæki. Ódýru mono kassettutækin standa fyrir sínu. Verð frá kr. 3.463.- KafTivélar frá Philips Þær fást í nokkrum gerðum og stærðum sem allar eiga það sameiginlegt að laga úrvals kaffi. Verð frá kr. 2.250.- Teinagrill frá Philips snúast um element, sem grillar matinn fljótt og vel. Grillið er auðvelt í hrein. og fer vel á matborði. Verð kr. 2.191.- Útvarpstæki frá Philips fyrir rafhlöður, 220 volt eða hvort tveggja. Mikið úrval. LW, MW og FM bylgjur. Ryksuga frá Philips gæðaryksuga með 830 W mótor, sjálfvirkri snúruvindi og 360 snúningshaus. Útborgun aðeinmfaþOO. - Verð kr. 4.916.- f !í-U Philips Maxim með hnoðara, blandara, þeytara, grænmetiskvörn, hakkavél og skálum. Verð kr. 5.236.- TS: - Philips solariumlampinn til heimilisnota. Aðeins 2.500 kr. útborgun. Verð kr. 11.160.- fvrir tölvur. Ödýru Philips kassettu- tækin eru tilvalin fyrir Sinclair tölvurnar. Verð frá kr. 2.983.- Handþeytarar frá Philips með og án stands. Þriggja og fimm hraða. Þeytir, hrærir og hnoðar. Verð frá kr. 1.068.- Steríó ferðatæki Úrval öflugra Philips sterríótækja. Kassettutæki og sambyggt kassettu- og útvarpstæki með LW, MW og FM bylgjum. Gríllofnar frá Philips. / þeim er einnig hægt að baka. Þeir eru sjálfhreins- andi og fyrirferðarlitlir. Verð kr. 3.737.- Tunturi þrek- og þjálfunartæki. Róðrabátar, þrekhjól, hlaupabrautir og lyftingatæki. Verð frá kr. 4.947,- Philips eru afar létt og meðfœrileg. Verð frá kr. 846.- Gufustraujárn. Verð frá kr. 1548.- Heyrnatólin frá Philips. Tilvalin jólagjöf handa unga fólkinu í fjölskyld- unni. Heyrnatólin stýra tónlistinni á réttan stað. Verð frá kr. 535.- Café Duo. Frábær ný kafftvél fyrir heimilið og vinnustaðinn. 2 bollar á 2 mínútum. Verðkr.= Djúpsteikingarpottur frá Philips. Tilvalinn fyrir frönsku kartöflurnar, fiskinn, kleinurnar laufabrauðið, kjúklingana, laukhringina, camembertinn, rækjurnar, hörpufiskinn og allt hitt. Verð kr. 4.157.- heimilistæki hf Hafnarstræti 3 — 20455 Sætúni 8 — 15655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.