Morgunblaðið - 23.12.1983, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983
Demantsbrúðkaup:
Sigrídur Guðmundsdóttir
Og
Ingimar Finnbjörnsson
Á rómantísku Þorláksmessu-
kvöldi, hinn 23. des. 1923, voru gef-
in saman í hjónaband tveir ungir
og gervilegir Hnífsdælingar, þau
Sigríður Guðmundsdóttir og Ingi-
mar Finnbjörnsson.
„Þá birtist snót með blíðuþokka,
með bjarta kinn og fagra lokka.“
Síðan eru því liðin full 60 ár, og
í dag minnast þau þess. Slík
hjúskaparafmæli eru nú heldur
fátíð, en þó líkiega miklu sjald-
gæfara hitt, að brúðhjónin á þess-
um aldri búi ein sér í eigin húsi
sjálfstæð og engum háð nema mis-
kunn Guðs og tillitssemi góðra
granna, skyldra og vandalausra.
Bæði verða hjónin að teljast há-
öldruð: hún varð áttræð 13. júní sl.
sumar, en hann verður 87 ára
gamall 4. janúar nk. ef Guð lofar.
Hér er um mikil merkishjón að
ræða. Þau hafa alla sína löngu ævi
verið með styrkustu stoðum
mannlífsins í kringum sig; lifað
heilshugar með samferðafólkinu í
blíðu og stríðu, gleði þess og sorg.
Ingimar hefur verið dugmikill
athafnamaður, bæði á sjó og landi.
Barnungur byrjaði hann sjó-
mennsku og stuttu síðar for-
mennsku og skipstjórn í einni erf-
iðustu verstöð landsins og hélt það
út í 45 ár. Má nærri geta, að á
þeim árum hefur margt drifið á
dagana, enda kann Ingimar frá
mörgu að segja á sinn skemmti-
lega og húmoríska hátt, og getur
vart skemmilegri sögumann.
Eftir sjómennskuna í hálfan
fimmta áratug, tók við auk eigin
útgerðarstjórnar 17 ára verk-
stjóraferill í hraðfrystihúsi þeirra
Hnífsdælinga, sem hann átti sinn
mikla þátt í að stofna 1942 ásamt
mörgum helztu frammámönnum í
Dalnum, eins og Einari heitnum
Steindórssyni sem var fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins frá
byrjun og í áratugi til nálega
dauðadags — og þeim mikla dugn-
aðarmanni Jóakim Pálssyni skip-
stjóra og útgerðarmanni, sem
mörg síðustu árin hefur verið aðal
forystumaður starfseminnar. Hef-
ur þetta 40 ára gamla fyrirtæki
þeirra félaga alla tíð verið helzti
burðarásinn í atvinnulífi Hnífs-
dælinga og getið sér góðan orðstír
fyrir framleiðslugæði. Verkstjórn
í hraðfrystihúsi er vandasamt
ábyrgðarstarf, sem mikið veltur á.
Það er því ekki heiglum hent, sízt
svo lengi sem Ingimar hélt út af
alkunnum dugnaði sínum, árvekni
og samvizkusemi.
Að loknu ævistarfi við sjósókn
og fiskvinnslu hélt Ingimar áfram
eigin útgerðarstjórn meðan kraft-
ar leyfðu. Það má því með fullum
sanni segja, að hann hafi ekki gert
það endasleppt.
Og þó er sagan hvergi nærri
fullsögð. Ingimar hefur alla tíð
verið leiðandi maður á breiðu sviði
almennra félags- og menningar-
mála síns byggðarlags:
ungmennafélagsformaður í mörg
ár, hreppsnefndarmaður í hinum
forna Eyrarhreppi í 40 ár, og þá í
fjölmörgum nefndum, m.a. lengi
skólanefndarmaður. Formennsku
í slysavarnadeild gegndi hann í
fullan aldarfjórðung, leiðandi í
sinni deild Fiskifélags íslands og
sótt, þing á hennar vegum, og
virk r áhugamaður um stofnun og
stari ækslu hins myndarlega fé-
lagsh ‘imilis í Hnífsdal, sem mér
skilst að nú síðan það kom til
sögu, hafi það verið einn helzti
sarnk, mustaður ísfirðinga. Af öllu
þessu má sjá, að Ingimar hefur
komið víða við sögu enda fyrir
nokkri.; í árum sæmdur riddara-
krosbi Hinnar íslenzku fálkaorðu
fyrir unriin störf.
í ölh þessu lífsstríði hefur Ingi-
mar riotið dyggilegs stuðnings
sinnar ’rábæru eiginkonu. Sigríð-
ur hefur staðið óhvikul við hlið
hans allt frá því þau ung að árum
léku með glæsibrag álfakon-
ungshjónin í hinum einstæðu álfa-
dönsum UMF Hnífsdælinga um
hver áramót, með tilheyrandi
blysför og brennu. Var það ein-
mitt á formennskuárum Ingimars.
Sigríður var og er mikil fríðleiks-
kona, og ber aldur sinn með ein-
dæmum vel. Þá er hún fræg fyrir
sitt mikla og fallega hár, munu
fáar konur, ef nokkrar, vera svo
hárprúðar sem hún. Mikil hús-
móðir hefur Sigríður alla tíð verið,
og er heimili þeirra Ingimars um
þjóðbraut þvera rómað fyrir
gestrisni og myndarskap. Á marg-
ur þaðan góðra stunda að minn-
ast.
En þótt umrædd demantsbrúð-
kaupshjón hafi þannig um sína
daga verið styrk stoð í lífsönn
Hnífsdælinga, hafa þau þó fyrst
og fremst verið skjöldur og skjói
barna sinna og annarra ættingja.
Kunnugur hefur sagt mér að leit-
un myndi á foreldrum, er svo vel
fylgdust með lífi og líðan síns
fólks sem þau Sigríður og Ingi-
mar. Börn þeirra hjóna urðu 5:
Guðmundur, fyrrverandi stýri-
maður hjá Eimskip, nú starfsmað-
ur Fiskifélags ísiands, býr í Kópa-
vogi, Hrefna, íþróttakennari í
Kópavogi, Björn Elías, skipstjóri í
Hnífsdal, Margrét, húsmóðir, Lúx-
emborg, og Inga, húsmóðir í Daln-
um, látin fyrir nokkrum árum.
Auk þess gengu þau elztu dóttur-
dóttur sinni í foreldrastað; Krist-
ínu, húsmóður í Hnífsdal. Öll eru
börnin myndarlegt dugnaðarfólk,
eins og þau eiga kyn til. Barna-
börnin eru 11.
Ingimar Finnbjörnsson er með
allra skemmtilegustu mönnum, að
jafnaði léttur í lund með yljandi
spaugsyrði á vörum og svo hnytt-
inn í tilsvörum, að ýmsir brandar-
ar hans gleymast ekki, og vekja
mönnum stöðugt bros á vör. Ekki
sízt þótti góð skemmtun að frjóum
gamanmálum þeirra bræðra,
Markúsar og hans, meðan báðir
lifðu. Einnig fyrir það framlag í
daganna þraut, má margur vera
þakklátur. Ég hefi alltaf verið
hreykinn af smitandi lífsgleði
þessara móðurbræðra minna.
Að lokum árna ég demants-
brúðhjónunum, Sigríði og Ingi-
mar, allra heilla, þakka þeim
marga góða stund og bið þeim
bjarts og friðsæls ævikvölds,
„hvort lánað líf oss ber langt eða
skammt". Við Hnífsdælingar full-
vissum ykkur um, kæru vinir, að
„þið eigið bæði, heiðurshjón,
í húsi hverju vin.
Baldvin Þ. Kristjánsson
Á Þorláksmessu árið 1923 voru
þau Ingimar 'Finnbjörnsson og
Sigríður Guðmundsdóttir í
Hnífsdal gefin saman í heilagt
hjónaband. Var það Sigurgeir Sig-
urðsson þáverandi prestur á ísa-
firði, síðar biskup, sem vígði þau.
Þau halda því upp á demantsbrúð-
kaup sitt í dag heima á Bakkavegi
1 í Hnífsdal, en Ingimar kallar það
oft „spýtuhúsið". Er það þó mynd-
arlegt timburhús og er útsýni það-
an hið fríðasta, út til hafs, inn í
Djúp og norður í Jökulfirði. Þarna
hafa þessi merku hjón og gömlu
vinir mínir búið í tæp 50 ár við
mikið ástríki, barnalán og gest-
risni.
Ingimar er ættaður úr Sléttu-
hreppi, fæddur í Görðum í Aðalvík
árið 1897, en Sigríður er fædd á
Fossum í Skutulsfirði árið 1898.
Þau eignuðust 6 börn og eru fjögur
þeirra á lífi. Látin eru Guðmundur
er dó í bernsku og Halldóra Inga,
er lést fyrir tveimur árum. Á lífi
eru Guðmundur fulltrúi í Fiskifé-
lagi íslands, Hrefna íþróttakenn-
ari í Kópavogi, Elías skipstjóri í
Hnifsdal og Margrét búsett í Lux-
emborg. öll eru þau mikið mann-
dóms- og dugnaðarfólk.
Meginhluta ævinnar stundaði
Ingimar sjómennsku, lengstum
sem farsæll skipstjóri á vélbátum
frá Hnífsdal. En hann hefur haft
fjölþætt afskipti af öllu athafna-
lífi byggðarlags síns, setið í
hreppsnefnd Eyrarhrepps í 40 ár,
átt ríkan þátt í byggingu og
rekstri Hraðfrystihússins hf., sem
er meðal best reknu frystihúsa á
Vestfjörðum og þótt víðar væri
leitað. í félagslífi Hnífsdælinga
hefur hann tekið mikinn þátt, var
lengi formaður Ungmennafélags-
ins og stofnandi og formaður
Slysavarnafélagsins í Hnífsdal í
25 ár, í skólanefnd og fleiri félaga-
samtökum.
Heimili þeirra Ingimars og Sig-
ríðar hefur eins lengi og ég man
verið eitt myndarlegasta heimilið
í byggðarlaginu. Gestrisni þeirra
og Ijúfmennska hefur mótað alla
framkomu þeirra. Sigríður er
fyrirmyndar húsmóðir. Hógværð
hennar og hlýja gleymist engum
er henni hafa kynnst.
Ingimar Finnbjörnsson er um
marga hluti sérstæður maður.
Áhugi hans á hagsmunamálum
byggðarlags síns, gestrisni hans
og félagshyggja hefur verið
Hnífsdælingum mikils virði um
langan aldur. Gamansamur er
hann og orðheppinn. Það leiðist
engum sem heimsækir þau hjón á
heimili þeirra.
Við ólöf óskum þeim innilega til
hamingju með 60 ára hjúskapar-
afmælið, lífshamingju þeirra og
samhug á langri og gifturíkri ævi.
Lifið heil og sæl, gömlu og tryggu
vinir.
Sigurður Bjarnason
frá Vigur.
Runólfur Þórðarson, verksmiðjustjóri Áburðarverksmiðjunnar:
Ammoniaktankurinn betri
en nýr eftir viðgerðina
Vinnueftirlitið kannar málið frekar
„ÞESSI ammoníaktankur hefur ver-
ið hér í 18 ár og skoðun sú og við-
gerð, sem fram fór í sumar, er ein-
faldlega gangur þessara mála. Það
þarf að kanna þessa tanka með
vissu millibili og lagfæra þá. Alltaf
kemur meira og minna í Ijós af
sprungum í suðurnar og við þær var
gert í sumar og eftir það er tankur-
inn eins og nýr. Hér var aðeins um
fyrirbyggjandi viðhald að ræða.
Hins vegar er hættan af þessum
tanki hvorki meiri né minni nú en
hún hefur alltaf verið," sagði Kun-
ólfur Þóröarson, verksmiðjustjóri í
Áburðarverksmiðjunni, er Morgun-
blaðið innti hann eftir því hvort
borgarbúum stafaði hætta af amm-
oníaktanki verksmiðjunnar.
Pétur Reimarsson, deildarverk-
fræðingur hjá vinnueftirlitinu,
sagði í samtali við blaðið, að
stofnuninni hefði borizt skýrsla
um þessar sprungurannsóknir
fyrir skömmu. Ekki lægi fyrir
hvað gert yrði í málinu, en ætlun-
in væri að afla upplýsinga um
hvernig þessum málum væri hátt-
að erlendis og ennfremur að ræða
við forráðamenn Áburðarverk-
smiðjunnar. 1 framhaldi þess yrði
svo tekin ákvörðun um hvort og
hvað yrði gert. Þá kæmi til álita
að gera úttekt á því hvað gerðist,
færi tankurinn að leka.
Runólfur Þórðarson sagði
ennfremur, að þegar þessi tankur
hefði verið reistur 1964 til 1965,
hefði verið fjallað um það af borg-
aryfirvöldum og hafnaryfirvöld-
um. Hefðu þeir aðilar gert sér
ljóst hvað þar hefði verið á ferð-
inni og ekki séð ástæðu til að
koma í veg fyrir byggingu hans.
Stjórnendur verksmiðjunnar
fylgdust með eftirliti og viðhaldi
sams konar tanka í öðrum löndum
og komið hefði í ljós að þeir
þyrftu viðgerðar við er þeir nálg-
uðust tvítugsaldurinn. Þess vegna
hefði verið keypt sérstakt tæki til
að kanna styrkleika tanksins í
sumar. Við viðgerðina hefði verið
fengin aðstoð manna, sem til
slíkra hluta þekktu og að henni
lokinni væri tankurinn eins og
nýr.
Hlutir sem þessir eða fyrir-
byggjandi viðhald væri að frum-
kvæði verksmiðjunnar en vinnu-
eftirlitinu væri síðan gefin
skýrsla um viðgerðina. Hér væri
því ekkert óvenjulegt á ferðinni.
Þetta væri aðeins hluti af eðli-
legum rekstri verksmiðjunnar.
Það væri því varla ástæða til að
hrökkva við þegar tankurinn
hefði staðið þarna í tæp 20 ár.
y
■
.
SENDUM
IJM ALLT
LAUD.
llerðfrá
krónum 2.374
Takkasímar meö 10 númera minni. Hringir síðasta
númer aftur ef þaÖ var á tali.
Mjög tær hljómur. VandaÖir
símar, samþykktir af
Póst og Síma.
SKIPHOLTI 19,
SÍMI 29800