Morgunblaðið - 24.01.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
19. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Káre Willoch, forsætisráðherra Noregs, um Treholt-njósnamálið:
iýsi fiilíri ábyrgð
á hendur Rússum
Frá fundi norsku ríkis-
stjórnarinnar með frétta-
mönnum í gær þar sem
fjallað var um njósnamálið.
Frá vinstri á myndinni eru:
Sven Stray utanríkisráð-
herra, Káre Willoch forsæt-
isráðherra, Mona Rökke
dómsmálaráðherra og And-
ers Sjaastad varnamálaráð-
herra.
(Símamynd: Verdens Gang)
Arne Treholt (til vinstri) á Rauða torginu í Moskvu 1976
ásamt Jens Evensen, þáverandi hafréttarráðherra Noregs, (til
hægri). Með þeim á myndinni er ennfremur rússneskur túlk-
Uf. (Símamynd VG)
Segir Wörner varna-
málaráðherra af sér?
Bonn, 23. jan. AP.
MANFRED WÖRNER, varnarmála
ráðherra Vestur-Þýzkalands ræddi í
dag við Helmut Kohl kanslara um
hugsanlega afsögn sína vegna þeirra
deilna, sem komið hafa upp vegna
brottreksturs hershöfðingjans Giint-
ers Kiessling úr embætti. Peter Bön-
isch, talsmaður vestur-þýzku stjórnar-
innar tók það hins vegar fram í dag,
að Wörner hefði ekki borið fram
neina formlega afsagnarbeiðni og að
Kohl kanslari styddi hann áfram sem
varnarmálaráðherra.
Franz Josef Strauss, leiðtogi
bræðraflokks kristilegra demó-
krata í Bayern sagði í dag, að það
væri „ekki ljóst", hvort meðferð
málsins gegn Kiessling hefði verið
stjórnað á rettan hátt. Skoraði
Strauss á Wörner, að „leggja öll
spilin á borðið“ varðandi ástæðurn-
ar fyrir brottrekstri Kiesslings.
Sjá einnig erl. fréttir
á bls. 34 og 35.
Osló, 23. janúar. Frá Per A. Borglund, fréttaritara Morjfunbladsins og AP.
„SOVÉTRÍKIN verða að bera fulla ábyrgð á því tjóni, sem
land okkar hefur orðið fyrir með þessum njósnum. Enn er of
snemmt til þess að unnt sé að gera sér grein fyrir því, hve það
er mikið, en víst er, að það er óbætanlegt.“ Þannig komst
Káre Willoch, forsætisráðherra Noregs, m.a. að orði á fundi
sem norska stjórnin hélt með fréttamönnum í dag, þar sem
fjallað var um njósnamál Arne Treholt, er játað hefur á sig
stórfelldar njósnir í þágu sovésku leyniþjónustunnar, KGB.
Sagði Willoch ennfremur, að mál þetta hlyti að hafa mjög
alvarleg áhrif á samskipti Noregs og Sovétríkjanna og spilla
mjög fyrir eðlilegum samskiptum ríkjanna í framtíðinni.
Norska stjórnin ræddi við
fréttamenn að loknum lokuðum
fundi, þar sem Willoch, Svenn
Stray, utanríkisráðherra, Mona
Rökke, dómsmálaráðherra, og
Anders S. Sjástad, varnarmála-
ráðherra, gerðu öðrum ráðherrum
stjórnarinnar grein fyrir njósna-
málinu.
„Eftir það sem nú hefur gerst
verður erfitt að halda uppi trú-
verðugum viðræðum við Sovét-
stjórnina," sagði Stray utanríkis-
ráðherra við fréttamenn. Ekki er
nema mánuður síðan Stray féllst á
að Treholt yrði gerður að skrif-
stofustjóra við ráðuneyti hans.
Treholt var í dag úrskurðaður í
12 vikna gæsluvarðhald og eiga
réttarhöldin yfir honum að fara
fram í húsakynnum öryggislög-
reglunnar í Osló. Jafnframt var
lagt bann við því að nokkur fengi
að heimsækja hann í fangelsið. Þá
var honum einnig bannað að taka
við bréfum og að skrifa öðrum
bréf. Er þetta fyrst og fremst gert
í því skyni að vernda Treholt fyrir
hugsanlegum hótunum og hefnd-
um af hálfu KGB.
Samkvæmt ákærunni á hendur
honum getur Treholt átt í vænd-
um að minnsta kosti 15 ára fang-
elsi fyrir njósnir.
Arne Treholt, sem er 41 árs
gamall, var handtekinn sl. föstu-
dag á Fornebu-flugvelli við Osló,
þar sem hann beið eftir áætlunar-
flugi til Vínarborgar. Norska ör-
yggislögreglan hafði fylgst með
honum frá því á miðjum síðasta
áratug og síðustu vikurnar var all-
ur póstur til hans skoðaður og
símtöl hleruð. Treholt hefur verið
í stöðugum yfirheyrslum alla
helgina. Viðurkenndi hann þar að
hafa átt marga fundi með útsend-
urum KGB og afhent þeim afar
mikilvæg skjöl og skýrt þeim frá
margs konar ríkisleyndarmálum
Noregs.
Sjá nánar ítarlegri fréttir
um Treholt-njósnamálið á bls.
18 og 19.
„Gátum ekki þolað
ófrelsið lengur“
A-þýzku flóttamennirnir komnir til V-Berlínar
Berlín, 23. jan. AP.
YFIRVÖLD í Vestur-Berlín neituðu
í dag að skýra frá dvalarstaö 6
Austur-Þjóðverja, sem fengu að fara
frá Austur-Berlín á sunnudag,
tveimur dögum eftir að þeir höfðu
beðið hælis f bandaríska sendiráð-
inu í Austur-Berlín. Sagði Richard
von Weizsacker, borgarstjori í
Vestur-Berlfn, í útvarpsviðtali í dag,
að það kynni fremur að verða til
tjóns en til góðs, ef greint yrði í
einstökum atriðum frá flóttanum.
Flóttamennirnir, fimm karl-
menn og ein kona, komu til
bandaríska sendiráðsins í Aust-
ur-Berlín á föstudag og báðu þar
um pólitískt hæli. Sögðust flótta-
mennirnir ekki fara úr sendiráð-
inu, fyrr en þeim hefði verið veitt
heimild til þess að flytjast frá
Austur-Þýzkalandi. Afhentu þeir
bréf, sem stílað var til Ronald
Reagans Bandaríkjaforseta, þar
sem hann var beðinn hjálpar, svo
að flóttamennirnir „gætu farið
frá landi, þar sem ófrelsið er slíkt,
að við gátum ekki þolað það leng-
ur“.
Flóttamennirnir sex eru Rene
Faccin, 19 ára, Bernd Apel, 43 ára,
Jörg Heikal, 23 ára og Bernd
Macke, 28 ára, öll frá Austur-
Berlín, og svo hjónin Petra og
Daniel Klingenberg frá Potsdam.
Talið er víst, að austur-þýzk
stjórnvöld muni efla vörð við er-
lend sendiráð í Austur-Berlín til
þess að koma i veg fyrir flótta
með þeim hætti og nú hefur gerzt.
Sannspá
völva
Osló, 23. janúar. Frá Per A. Borglund,
frétlarilara Mbl.
Enn einu sinni hefur sannast að
völvan Anna Elisabeth Wester-
lund hefur haft á réttu að standa.
I grein í vikublaði rétt fyrir
áramótin sagði hún að starfsemi
stórtæks norsks njósnara yrði
afhjúpuð á árinu 1984. Þar sagði
völvan að njósnamálið yrði al-
varlegasta mál ársins.
„Ekki átti ég von á því að
verða sannspá svo snemma árs,“
sagði völvan í samtali við Berg-
ens Tidende í dag.