Morgunblaðið - 24.01.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984
13
Iceland Seafood Limited í Bretlandi:
57% söluaukning í
erlendri mynt ’83
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi fréttatilkynning
frá Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga:
Á árinu 1983 seldi Iceland
Seafood Limited í Bretlandi ís-
lenskar sjávarafurðir fyrir 9,4
milljónir sterlingspunda, en ár-
ið 1982 var salan 6 milljónir
punda. Miðað við meðalgengi
sterlingspunds gagnvart krónu
nemur salan á síðasta ári 355
ruilljónum króna. Söluaukning í
erlendri mynt er 57 af hundraði
en í magni 35 af hundraði.
Iceland Seafood Ltd., sem er
sölufyrirtæki Sambandsins og
sambandsfrystihúsa, var stofn-
að á árinu 1980 og hóf starf-
semi sína í ársbyrjun 1981. Tók
fyrirtækið þá við þeim fisk-
viðskiptum, sem áður höfðu
farið um skrifstofu Sambands-
ins í London og verður ekki
annað sagt en það hafi ávaxtað
sitt pund vel. Fyrirtækið tók
við um 2,5 milljóna sterlings-
punda ársveltu frá Lundúna-
skrifstofu Sambandsins og nú,
þrem árum síðar, er ársveltan
nær 10 milljónir punda.
Sölusvæði Iceland Seafood
Ltd. er Bretlandseyjar, Frakk-
land, Holland og Belgía. Lang-
mestur hluti sölunnar er í
Bretlandi en þó fer hlutur
Frakklands mjög vaxandi, jókst
t.d. um 85% að verðmæti á sl.
ári. Iceland Seafood Ltd. hefur
skrifstofur í Hull. Fram-
kvæmdastjóri er Benedikt
Sveinsson.
n9**
g4l
YX-
^a>Wl9-
ðVÖrn
6 ára
BILABORG HF.
Smiðshöfða 23 sími 81299
„Það er skemmtilegast að
hafa lagt bseði Verslunarskól-
ann og Menntaskóla Reykja-
víkur að velli í ræðukeppn-
inni, en þessir skólar hafa
einokað keppninna í mörg
ir,“ sögðu þessir 19 ára
sveinar úr Menntaskólanum
við Hamrahlíð, en þeir
tryggðu skóla sínum sigur í
ræðukeppni JC í Reykjavík,
sem fram fór í Háskólabíói á
föstudagskvöld. Þeir Bene- "
dikt Stefánsson (t.v.), Þór
Sandholt, Páll Þorhallsson og
Eiríkur Hjálmarsson, halda
þarna á verðlaunagripnum úr
keppninni á milli sfn.
Morgu nbladið/Gu nn laugur.
Vetrartilboð Bílaleigu Flugleiða er ekki af lakara taginu:
Bíltegund Daggjald Gjald pr/km Söluskattur
Golf 550 kr. 5.50 kr ekki innifalinn
Jetta 700 kr. 7.00 kr. ekki innifalinn
Mitsubishi 4WD 975 kr. 9.75 kr. ekki innifalinn
SÉRTILBOÐ TIL HELGARREISUFARÞEGA:
Bíltegund Innifalinn akstur Verd med söluskatti
Golf í 2 daga 100 km 1.360 krónur
Ótakmarkaður 2.200 krónur
Golf í 3 daga 150 km 2.040 krónur
Ótakmarkaður 3.300 krónur
Allar nánari upplýsingar í síma 21190 eða hjá
afgreiðslustöðum og umboðsmönnum Flugleiða.
FLUGLEIDIR Sm BÍLALEIGA