Morgunblaðið - 24.01.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984
37
Minning:
Ellert Ólafsson
bifreiðastjóri
Fæddur 24. aprfl 1917
Dáinn 17. janúar 1984
í dag verður til moldar borinn
Ellert ólafsson bifreiðarstjóri,
Hrauntungu 89, Kópavogi, sem
lést á Landspítalanum 17. þ.m.
Hann var fæddur á Stóra-
Knarrarnesi, Vatnsleysustrandar-
hreppi 24. apríl 1917, þriðja barn
foreldra sinna í hópi 14 er þau
eignuðust.
Foreldrar Ellerts voru sæmdar-
og merkishjónin Þuríður Guð-
mundsdóttir og Ólafur Pétursson,
Þuríður var frá Bræðraparti í
Vogum, en Ólafur var frá Tuma-
koti í sömu sveit. Þuríður og Ólaf-
ur festu kaup á jörðinni Stóra-
Knarramesi ári eftir að þau gengu
í hjónaband. Með mikilli elju
stækkuðu þau jörðina og juku
landgæði hennar, eftir því sem
börnunum fjölgaði. Á Stóra-
Knarrarnesi bjuggu þau í hálfa
öld. Þeim hjónum tókst að koma
öllum börnum sínum vel til
manns, en það var þeim mikil sorg
þegar þau misstu eitt barna sinna,
14 ára gamlan son, ólaf, og sökn-
uður foreldra og systkina var mik-
ill.
Ellert ólst upp í hinum stóra
barnahópi. Á uppvaxtarárum
hans voru ekki afþreyingarmið-
stöðvar fyrir unglinga eins og
þjóðfélagið býður uppá í dag.
En þessi mörgu systkini voru
fundvís á ýmsa þá leiki sem
glöddu hið saklausa geð, þegar
tími gafst til frá hinum mörgu
störfum, sem þau gátu tekið þátt í
með foreldrum sínum.
Systkinin minnast með mikilli
hlýju þegar þau undu glöð við hina
skemmtilegu og heilnæmu leiki
bernsku- og unglingsáranna, enda
höfðu þau alltaf nóg fyrir stafni.
Ellert fór snemma að taka til
hendinni og vinna ýmis störf sem
til féllu, enda var lífsbaráttan erf-
ið á þessum árum og oft var hann
viljugur og ósérhlífinn og skilaði
allri vinnu þannig úr garði að til
fyrirmyndar var.
Árið 1942 hóf hann starf við
akstur vörubifreiða hjá Þrótti, en
árið 1949 byrjaði hann leigubif-
reiðaakstur hjá Hreyfli og hefur
stundaði það starf óslitið síðan,
eða þar til hann kenndi þess sjúk-
leika á óveðursdaginn 4. janúar sl.
er leiddi hann til dauða.
Hann kvæntist árið 1956 eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu
Júlíusdóttur kjólameistara.
Hjónaband þeirra var ham-
ingjuríkt, enda var gagnkvæmur
skilningur og virðing hvors til
annars, sem skapaði hlýju og kær-
leika í lífi þeirra.
Ingibjörg bjó þeim fagurt og
hlýlegt heimili sem gaman var að
heimsækja.
í faðmi fjölskyldunnar og á hinu
góða heimili þeirra leið Ella ávallt
best.
Með sameiginlegum dugnaði og
mikilli elju byggðu þau Ingibjörg
og Elli sér hús að Hrauntungu 89,
Kópavogi, og þar hafa þau búið
síðan.
Tvo syni eignuðust þau, Ólaf,
bifvélavirkja og vélstjóra, unnusta
hans er Guðmunda Árnadóttir
snyrtifræðingur, og Baldur, sem
er blikksmiður.
Áður hafði Ingibjörg eignast
dóttur, Ágústa Högnadóttur. Það
hefur ávallt verið mjög kært með
þeim. Hún er gift yngsta bróður
Ella, Eyjólfi, börn þeirra Ágústu
og Eyjólfs voru mjög hænd að Ella
afa.
Ellert var mjög dagfarsprúður
maður og barngóður svo af bar.
Alltaf gaf hann sér tíma til þess
að spjalla við börnin og hlusta
með næmleika á þau, þegar þau
vildu segja honum frá því, sem
þau höfðu fyrir stafni, enda var
alltaf tilhlökkunarblik í augum
þeirra þegar Elli frændi kom.
Alltaf átti hann eitthvað handa
þeim, góðgæti eða annað sem
gladdi þau.
Ellert var vinsæll maður, hrein-
í dag verður til moldar borinn
Haukur Kristjánsson, fyrrum
skipstjóri og síðast næturvörður í
húsi sjónvarpsins.
Andlát hans bar að með snögg-
um hætti þegar hjarta þessa góða
drengs fékk eigi lengur gegnt hlut-
verki sínu, en áður hafði Haukur
oftar en einu sini haft betur í við-
ureigninni við sláttumanninn
slynga.
Haukur var fæddur 2. júní 1923.
Aðeins sjö ára gamall varð hann
að sjá á bak föður sínum í sjó-
mannsins votu gröf. Kröpp munu
kjör hafa verið hjá móður hans
með fjögur ung börn á aldrinum 6
mánaða til sjö ára á þessum tím-
um. Elstur systkina sinna hóf
hann aðeins 14 ára að aldri lífs-
starf sitt á sjónum og stýri-
mannspróf tók hann árið 1945.
Haukur stundaði sjómennsku á
bátum og togurum og síðasta ára-
tug sjómannsævi sinnar var hann
skipstjóri á bátum frá Suðurnesj-
um.
skiptinn og heill í allri umgengni,
skemmtilegur í tilsvörum, með
ívafi græskulausrar fyndni.
Hann hafði mikla ánægju af að
taka í spil, enda var hann góður
bridgespilari og tók gjarnan þátt í
mótum bridgefélags Hreyfils.
Og nú að leiðarlokum, þegar Elli
frændi er horfinn þá þökkum við
fyrir hinar hlýju og björtu minn-
ingar um góðan frænda, þær
minningar munu ylja okkur á
komandi árum.
Það er þungur harmur og mikill
söknuður kveðinn að Ingibjörgu
og börnunum við fráfall Ella.
Við biðjum góðan Guð að hugga
og styrkja þau í sorg þeirra.
Ella og Kristín.
í dag er til moldar borinn Ellert
Ólafsson bifreiðastjóri. Hann lést
í Landspítalanum þann 17. þ.m.
eftir stutta legu. Ellert var bif-
reiðastjóri á Bifreiðastöðinni
Hreyfli og þar kynntist ég honum.
Hann var farsæll í starfi sínu,
Árið 1974 varð Haukur fyrir
fyrstu atlögu mannsins með ljá-
inn, en tókst þá að verjast þótt
tæpt stæði. Hann fór þá í land, en
hélt áfram nánum tengslum við
hafið, i starfi sem vaktmaður hjá
Eimskip.
Þegar Haukur hóf störf hjá
sjónvarpinu fyrir tæpu ári, var
hann okkur ókunnugur, en með
ljúfmennsku sinni, brosmildi og
elskulegri framkomu ávann hann
sér fljótt virðingu og væntum-
þykju samstarfsmanna sinna og
urðu þau hughrif æ sterkari með
auknum kynnum.
Undirritaður var svo lánsamur
að eiga sameiginlegt áhugamál
með Hauki og í hópi góðra félaga
áttum við margar ánægjustundir
við skákborðið. Þegar hann skráði
sig til þátttöku í hraðskákmóti
Ríkisútvarpsins í fyrravetur, lét
hann lítið yfir getu sinni í svo
snörpum leik. Úrslitin urðu þó á
þann veg, að Haukur stóð uppi
sem ótvíræður sigurvegari, þegar
Minning:
Haukur Kristjáns-
son fv. skipstjóri
gætinn og öruggur bifreiðastjóri,
mjög hlédrægur og dagfarsprúður
maður, en harðduglegur og fylg-
inn sér, sem sést best á því að
hann var við vinnu sína í óveðrinu
4. þ.m. er hann veiktist. Það var
hjartað sem gaf sig í átökunum
við náttúruöflin, en það var hann
sjálfur sem gat kallað til sjúkrabíl
til að komast undir læknishendur,
en álagið var orðið of mikið til að
líkaminn réði við það.
Ellert var mikill félagshyggju-
maður og lét sig ekki vanta þar
sem haldnir voru fundir er vörð-
uðu bifreiðastjóra, né heldur ef
mannfagnaður var.
Ellert var í bridgefélagi Hreyf-
ils og starfaði þar af miklum
áhuga, hann var góður spilamaður
og fór í keppnisferðir fyrir félagið
bæði innanlands og utan. Hann
var kosinn féhirðir félagsins og
gegndi því starfi til dauðadags.
Ellert var fæddur að Stóra-
Knarrarnesi, Vatnsleysuströnd,
þann 24. apríl 1917, 3. elstur 14
systkina. Hann ólst upp í foreldra-
húsum, en liðlega tvítugur flutti
hann til Reykjavíkur og gerðist
bifreiðastjóri, fyrst á vörubílum,
en um 1949 hóf hann störf á
Hreyfli. Síðustu ár ævinnar bjó
hann að Hrauntungu 89 í Kópa-
vogi. Hann giftist eftirlifandi
konu sinni, Ingibjörgu Júlíusdótt-
ur, 1956. Þau hjón eignuðust 2
syni, ólaf, bifvélavirkja og vél-
stjóra, og Baldur, blikksmið. Með
Ingibjörgu kom einnig á heimilið
dóttir hennar Ágústa Högnadótt-
ir, húsfrú.
Þessar línur eru fátækleg
kveðja til vinar míns og
samstarfsmanns, Ellerts ólafs-
sonar, og bið ég Guð að styrkja
konu hans, börn og systkini í
að ólokinni síðustu umferð, sem
engu gat breytt þar um. Haukur
stóð í bréfskákarsambandi við
tugi manna víðsvegar um heim og
nýlega fékk hann staðfestan Is-
landmeistaratitil sinn i bréfskák.
Er hann lést, var hann í efsta sæti
í aðalskákmóti Ríkisútvarpsins
með fullt hús vinninga.
Því hef ég látið mér svo tíðrætt
um iðkun Hauks á þessari göfugu
íþrótt hugans, að á þeim vettvangi
urðu okkar helstu kynni, sem ég
finn með söknuði að hefðu mátt
verða svo miklu lengri en þetta
tæpa eina ár. Þegar við starfsfé-
lagar hans rifjum nú upp þennan
þeirra djúpu sorg, er þau sjá á
eftir þessum góða dreng, en end-
urminningin er björt.
Birgir Sigurðsson
Á mínum yngri árum leitaði
maður um margt til þeirra eldri.
Ellert var þriðji elsti í okkar stóra
systkinahópi. Nú rifjast margt
upp, og þá fyrst og fremst hvað
gott var að hafa hann að vini. Við
systkinin vorum mjög samrýnd og
einlægt samband var á milli okkar
allra. Fljótt fækkaði samveru-
stundunum, leiðin lá í vinnu vítt
og breitt og þá fjarri heimili
okkar. Ég á Ijúfar minningar úr
foreldrahúsum. Vil ég þakka Ella
allt sem hann var mér, og þá ekki
síður það sem hann var foreldrum
okkar. Alltaf hafði hann tíma
fyrir þau og leit inn til þeirra
hvenær sem hann gat því við kom-
ið. Þótt ætlunin væri að stoppa
stutt gat Elli sjaldan neitað kaffi-
bolla, og væru til staðar nógu
margir til að slá í spil, ódrýgðist
dagurinn gjarnan, þá var bara
vinna lengur fram eftir kvöldinu
eða nóttunni. Öldruðum og ungl-
ingum var hann viljugur að sinna.
Þegar ég kom í heimsóknir með-
an ég dvaldist erlendis fylgdist
Elli ávallt með ferðum mínum, og
aldrei var ég fyrr komin heim en
hann birtist reiðubúinn til að að-
stoða mig og hjálpa á allan hátt.
Þannig var Elli, ávallt kominn þar
sem rétta þurfti hjálparhönd. Ég
þakka Élla innilega samfylgdina
og óska honum góðrar heimkomu
á nýjar slóðir.
Ingibjörgu, konu hans, sonum
og öðrum nákomnum votta ég
samúð mína og bið þeim guðs
blessunar.
Hrefna
stutta tíma, er það einkennandi
hve mörgum liggja sömu orð á
tungu: Hlýr maður, innilegur og
elskulegur í allri framgöngu. Við
minnumst hans fyrir hlýtt viðmót,
glaðlegar kveðjur og upplífgandi
spjall þegar við komum til vinnu í
grárri skímu vetrarmorgna.
Haukur hafði fyrir skömmu orð
á því, að meðal sinna nýju vinnu-
félaga mætti hann aðeins ein-
stakri vinsemd og indælu fólki. Nú
er starfsfólk sjónvarpsins sjálf-
sagt aðeins venjulegt fólk, svona
eins og gengur og gerist. En við-
brögð manna gagnvart gistifélög-
um sínum hér á Hótel Jörð mótast
gjarnan af gagnkvæmum áhrifum.
Sú Ijúfmennska, sem einkenndi
Hauk Kristjánsson hlaut að laða
fram hið besta í flestum þeim, er
samskipti áttu við hann, svo þar
sem skiptust á heiðar og dalir í
mannlegri lund, mættu sjónum
hans grænar grundir og friðsæl
vötn, hvar næðis mátti njóta.
Fyrir hönd okkar skákfélaga
hans og sjónvarpsstarfsfólks vil
ég flytja eiginkonu Hauks, Jónu
Sigurðardóttur, afkomendum,
tengdabörnum og systkinum, okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Þótt hann Haukur sé nú horfinn
á braut, mun hann áfram lifa í
huga okkar, sem af honum höfðum
kynni.
Sverrir Kr. Bjarnason
í
I
Valgarður
Leirubakka
T
laugardaga kl. 9——16
Verið ávallt velkomin í verslanir okkar
■P" ■■■
E . bubocapo. V/SA
Straumnes Vesturbergi Bætt þjonusta í Breiðholti Hólagarður Lóuhólum
1 1
Kjöt og fiskur Seljabraut Nú höfum viö breytt opnunartíma verslana okkar sem hér segir: virka daga kl. 9—"19 föstudaga kl. 9—19-30 Ásgeir Tindaseli
I
Breiðholtskjör
Arnarbakka
I