Morgunblaðið - 24.01.1984, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984
39
Þorsteinn Díómedes-
son — Minningarorð
Opinber störf höfðu þegar hlað-
ist á Sæmund meðan hann bjó í
Heydal. Hann varð endurskoðandi
Kaupfélags Hrútfirðinga 1920 og
gegndi því í 50 ár. Ungur kosinn í
hreppsnefnd, sat í henni í 40 ár,
þar af 30 ár oddviti. Einn af stofn-
endum Umf. Hörpu og fyrsti ritari
þess. En fyrst að marki bættust á
hann opinber störf, eftir að hann
fluttist til Borðeyrar. Vandfundið
var það er máli skipti í einu
byggðarlagi, sem Sæmundur var
ekki í forystu. Hreppstjóri, sýslu-
nefndarmaður, í skattanefnd og
umboðsmaður skattstjóra, í stjórn
ýmissa félaga í byggðarlaginu um
áratugaskeið. Forstöðumaður og
gjaldkeri Sparisjóðs Hrútfirðinga
frá 1938 til 1976 er Pálmi sonur
hans tók við því starfi.
Sýnt er að frátafasamt hefur
vprið frá bústörfum og gestanauð
mikil vegna svo fjölþættra opin-
berra starfa, en þrátt fyrir það
náði hann með hjálp barna sinna
að byggja og bæta jörð sína með
ágætum.
f skólanefnd Reykjaskóla var
Sæmundur í 38 ár. Var það síðasta
opinbera starfið, sem hann lét af
hendi. Reikningshaldari skólans
var hann frá 1946 og þar til er
Ríkisbókhaldið tók í sínar hendur
bókhald allra opinberra stofnana.
Fáa traustari stuðningsmenn hef-
ur Reykjaskóli átt en Sæmund á
Borðeyri. Þegar verst gegndi fyrir
skólanum var Sæmundur einn öt-
ulasti talsmaður þess, að hann
skyldi endurreistur, en ekki af-
hentur til annarra nota. Jafnan
fylgdist hann með því, sem var að
gerast í málefnum skólans, og
ávallt hollráður þegar vanda bar
að höndum og hinn öruggi reikn-
ingshaldari þar sem aldrei skeik-
aði eyri. Ég minnist þess eitt sinn
er ég afhenti reikninga skólans til
ríkisendurskoðunarinnar, að sá er
við tók, sagði þegar hann leit á
reikningana: „Já, þetta er frá skól-
anum, sem skilar alltaf svo vel
frágengnum reikningum." Þannig
var Sæmundur í hverju því starfi,
sem honum var til trúað.
Það var gott að eiga Sæmund að
vini og leita trausts og halds hjá
honum. En nú er hann horfinn og
við, sem eftir stöndum og horfum
inn í hið óræða, söknum vinar í
stað, en gleðjumst jafnframt að
nú er það orðið, sem hann var
mjög búinn áð þrá.
Ég enda þessar línur með því að
vitna í Spámanninn: „Þú' skalt
ekki hryggjast, þegar þú skilur við
vin þinn, því að það, sem þér þykir
vænst um í fari hans, getur orðið
þér ljósara í fjarveru hans, eins og
fjallgöngumaður sér fjallið best af
sléttunni."
Guð blessi minningu Sæmundar
Guðjónssonar.
Olafur H. Kristjánsson
30. desember sl. lézt gamall
vinnufélagi minn og tryggðavinur,
Þorsteinn Díómedesson á
Hvammstanga á sjúkrahúsinu
þar, 83 ára að aldri. Hann fluttist
þangað í þorpið meðan það var
enn ungt að árum og þar átti hann
heima alla tíð síðan, og mátti kall-
ast einn af frumbyggjum þess.
Þorsteinn fæddist 20. nóvember
árið 1900 á Ytri-Völlum í Kirkju-
hvammshreppi. Hann var sonur
hjónanna Astu Jónatansdóttur,
sem ættuð var af Vatnsnesi, og
Díómedesar Davíðssonar frá Gilá
í Vatnsdal. Þau áttu heima á ýms-
um stöðum, oft stutt í hverjum
stað, voru í húsmennsku á Ytri-
Völlum, Litla-ósi og síðast á Ána-
stöðum, en þaðan fluttu þau til
Hvammstanga 1918 og byggði
Díómedes sér bæinn Marberg í út-
jaðri þorpsins þar sem þau bjuggu
síðan. — Díómedes var fróðleiks-
maður eins og fleiri ættmenn hans
og náttúrufróður meira en al-
mennt gerðist og ritaði um nátt-
úrufræði. Synir þeirra erfðu það
fróðleikseðli, en þeir voru: Stefán,
lengst af verkamaður á Hvamms-
Fljót í Skagafirði eru fögur
sveit og fá byggðarlög jafn fá-
menn hafa skilað jafn mörgu
hæfileikafólki út í þjóðlífið.
Fljótamenn Iáta gjarnan lítið yfir
sér, eru hógværir og af hjarta lít-
illátir, en skila engu að síður full-
um skerfi til samfélagsins. Rósa
Halldórsdóttir, sem hér er kvödd,
var slíkur þegn, vinnusöm og vel-
virk.
Hún fæddist 15. dag janúar-
mánaðar 1894 að Bjarnargili í
Fljótum, dóttir hjónanna Þórönnu
Gunnlaugsdóttur og Halldórs
Jónssonar er þar bjuggu þá. Þau
hjón eignuðust þrettán börn en
þrjú þeirra dóu í æsku, þar af tvær
Rósur, og var sú, sem hér er um
rætt, sú þriðja með því nafni í
systkinahópnum.
Rósa Halldórsdóttir lifði æsku
og uppeldi eins og þá var títt í
íslenzkri sveit kringum aldamótin,
við fábreytni og vinnusemi, en
menningarhefð, sem einkenndi
allt mannlíf í Fljótum.
tanga, enn á lífi háaldraður, Þor-
steinn næstur og yngstur Konráð
kaupmaður á Blönduósi, sem lézt á
miðjum aldri.
Þorsteinn átti engan kost skóla-
göngu í æsku frekar en svo margir
af hans kynslóð. Hann stundaði
allt fram á efri ár hvers konar
erfiðisvinnu, var á yngri árum til
sjós á vertíðum í Vestmannaeyj-
um eða reri nyrðra, ýmist einn eða
með öðrum á smátrillum, en að
sumarlagi vann hann þá dag-
launavinnu, sem var að hafa.
Mörg sumur vann Þorsteinn við
brúarsmíðar og þar hófust raun-
verulega kynni okkar, því að við
urðum þar samstarfsmenn í níu
sumur og vann ég undir handar-
jaðri hans mörg seinni sumrin.
Hann var „gervismiður“ og er ég
var puntaður upp í þá stétt unnum
við ýmis smíðastörf saman við
uppslátt og slíkt. Og þar að auki
vorum við tjaldfélagar mörg síð-
ustu sumrin.
Kynnin við Þorstein, eða Steina
Dí, eins og hann var tíðast nefnd-
ur af kunnugum, voru góður skóli.
Hann var mikill kappsmaður við
Fljótin eru snjóþung sveit en
jörðin kemur græn undan fönn og
ar eru í dag stærri bú en fyrrum.
æsku Rósu var útræði helft
brauðstrits, bæði á bolfisk og há-
karl. Hún ólst því jöfnum höndum
upp við tvær undirstöðugreinar ís-
lenzks atvinnulífs, búskap og sjáv-
arútveg, en Fljótamenn vóru ann-
álaðir sjósóknarar.
Ung að árum flyzt hún til Siglu-
fjarðar, sem þá var að breytast úr
smáþorpi í stækkandi sjávarpláss
og síðar höfuðstað síldveiða og
síldariðnaðar. Þar hefja þau bú-
skap hún og maður hennar, Kjart-
an Stefánsson frá Móskógum í
Fljótum, togaraskipstjóri, bróðir
Jóhanns Stefánssonar, sem lengi
var skipstjóri á togaranum Geir.
Sambúð þeirra varð ekki löng því
Kjartan lézt eftir fárra ára sam-
búð, 30. apríl 1934. Hann hafði
siglt skipi sínu til Englands með
fiskfarm, eins og títt var þá og
síðar og veikzt í hafi á heimleið
vinnu. Leit helzt aldrei upp frá
verki. Hann þoldi ekki slugs eða
slór og sendi stundum beitt skeyti
þeim, sem slæptust um í vinnu-
tíma eða voru hysknir við vinnu.
Hann var víðlesinn og fróður og
notaði flestar stundir til bóklestr-
ar, einkum las hann hvers kyns
fróðleik og þá ekki sízt um nátt-
úrufræði, sem honum var mjög
hugleikin. Mun hann hafa borið
manna bezt skyn á náttúrufræði-
(botnlangabólga) og lézt af þeim
kvilla.
Þau Rósa og Kjartan eignuðust
tvo syni, Friðrik, bifreiðarstjóra á
Akureyri, og Kjartan, fram-
kvæmdastjóra, sem búsettur er í
Garðabæ. Var yngri sonurinn
skírður í höfuð föður síns við kistu
hans.
Síðar eignaðist Rósa dóttur,
Stellu Klöru Thorarensen, sem
búsett er í Kanada. Börn hennar
þrjú gengu öll í hjúskap og eiga
þrjá afkomendur hvert.
Eftir að Rósa var orðin ein
fyrirvinna tveggja sona vann hún
margvísleg störf, sem til féllu,
lengst af verzlunarstörf og vöku-
störf við Sjúkrahús Siglufjarðar.
Hún var ósérhlífin og tókst að
koma börnum sínum vel til
manns.
Árið 1957 flyzt hún til Reykja-
víkur og hefur störf á Landakots-
spítala, þar sem hún vann meðan
aldur og heilsa leyfðu, lengst af
við vökustörf. Þeir vóru ófáir
sjúklingarnir sem hún hafði hlúð
að, áður en lauk. Sjálf lézt hún á
sjúkrahúsi 3. janúar sl., eftir erfið
veikindi. Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey.
Ævi Rósu Halldórsdóttur var
leg efni norður þar á unglingsár-
um mínum og voru það greinilega
áhrif frá föður hans.
Þorsteini lét vel að segja frá
mönnum og atburðum frá liðinni
tíð, ef hann hafði þá áheyrendur,
sem honum líkaði. Fléttaði hann
oft kímnisögur og smáskrýtlur inn
í frásögnina. Hann var hagmæltur
og hafði gaman af kveðskap og
kunni býsn, einkum af lausavís-
um.
Þorsteinn kvæntist ekki né átti
afkomendur. Hann bjó alllengi
einn á Marbergi eftir andlát for-
eldra sinna, en síðan fluttist hann
í hús bróðursonar síns, Benedikts
Stefánssonar, þar sem hann átti
síðan athvarf alla tíð hjá þeim
Benedikt og Guðnýju Benedikts-
dóttur konu hans.
Hin síðari árin hafði Þorsteinn
sér til dundurs og afþreyingar að
tálga íslenzka fugla og mála síðan.
Hafa þessir fuglar hans orðið
þekktir og komizt inn á mörg
heimili og að auki á sýningar. Mun
hann hafa gefið þá flesta vinum og
kunningjum.
Þetta eru í fáum orðum ævi-
þættir Þorsteins Díómedessonar.
Hann var jarðsettur frá
Hvammstangakirkju laugardag-
inn 14. janúar sl. Honum verð ég
ævinlega þakklátur fyrir langa og
trygga vináttu.
Þór Magnússon
ekki samfelldur dans á rósum,
frekar en einstæðra mæðra á
þeirri tíð. Hún gekk engu að síður
sinn æviveg til enda sjálfbjarga og
hafandi goldið hverjum sitt. Hún
skuldaöi engum neitt á kveðju-
stundu. En ófáir vóru í skuld við
hana fyrir hjálp og vinarþel.
Börn hennar og barnabörn sjá
nú á bak góðrar móður og ömmu.
Ég og mitt fólk sendi þeim inni-
legar samúðarkveðjur.
Stefán Friðbjarnarson
Rósa Halldórs-
dóttir — Minning
Að lokum þakka ég allt sem þið
hjónin hafið gert fyrir okkur fjöl-
skylduna á Beigalda, ég þakka
liðnar samverustundir okkar
hjónanna með ykkur þegar við
nutum gistivináttu ykkar á glað-
værum stopulum stundum, þegar
við vorum stödd í Reykjavík, en
allt tilheyrir þetta hinu liðna sem
geymist en glatast ekki.
Hulda mín ég veit að það er sárt
að sjá á bak ástkærum eigin-
manni, þegar síðdegi ævidagsins
er í augsýn með hinni eftirvænt-
ingarfullu tilhlökkun sem það
æviskeið vekur að mega sitja á
friðarstóli, líta yfir farinn veg og
gleðjast yfir unnum sigrum á lífs-
leiðinni. En láttu ekki sorgina
villa þér sýn, láttu ekki erfiðleik-
ana smækka þig. Megi góður guð
hjálpa þér til að koma sterkari en
nokkru sinni fyrr úr hinni miklu
þolraun, þar sem minningin um
góðan dreng verður sú huggun
sem veitir helgi og frið, sem tím-
inn einn er fær um að lækna.
Gulla, Addi, Binna og eftirlif-
andi foreldrar hins látna, Lilja og
Andrés, Beigaldafjölskyldan
sendir ykkur innilegar samúð-
arkveðjur.
Árni Guðmundsson
Er við kveðjum vin okkar Guð-
mund Andrésson þá er margs að
Skartgriparánið í Christies:
Ekkert á myndbandinu að græða
minnast. Hann var gæddur þeim
góða eiginleika að geta verið vinur
og félagi okkar en haft samt
stjórn á okkur í vinnu sem
kannske hefur ekki oft verið auð-
velt, en þar hjálpaði hið góða skap
og létta lund hans mikið til. Það
lýsir honum ef til vill bezt er ég
sagði einum vinnufélaga í annarri
deild frá lá.i hans. Hann kom hon-
um ekki vel fyrir sig, en spurði
hvar hann hefði verið staðsettur í
deildinni. Ég sagði við gluggaborð-
ið í fremra verkstjóraherberginu.
Þá áttaði hann sig á því og sagði:
já, hress og snöggur í hreyfingum,
passar. Það er sagt að maður komi
í manns stað og má það rétt vera,
en við erum ekki aliir eins sem
betur fer og veit ég að við eigum
eftir að sakna hans við glugga-
borðið er við mætum á morgnana,
því það var oft hressilega talað
þar, er hann útbýtti vinnuseðlum
af miklu örlæti til okkar. Það er
svo að við verðum víst aldrei sáttir
við dauðann og stundum þegar
kallið kemur þá finnst manni
þetta vera tímaskekkja. En eitt er
víst að við lifum allt af nema
dauðann.
Að lokum viljum við þakka hon-
um allt gott og biðjum guð að
styrkja Huldu konu hans, börn og
barnabörn í sorg þeirra.
Kveðja frá strákunum
í gömlu deildinni
Lundúnum, 23. janúar. AP.
MIKLAR vonir voru bundn-
ar við myndsegulbands-
upptöku af skartgriparáninu í
Christies-uppboðshöliinni á
dögunum, er fjórir bófar
vopnaðir stutthlaupa hagla-
byssum þustu inn í salinn,
brutu glerhirslur og höfðu á
brott með sér skartgripi að
verðmæti 2,5 milljónir
punda. Nú er Ijóst að á
myndsegulbandinu er ekkert
að byggja og lögreglan stend-
ur uppi ráðþrota.
Atburðurinn hjá Christies náð-
ist á myndsegulband, það vantaði
ekki, en gefum talsmanni Scotland
Yard-lögreglunnar orðið: „Ræn-
ingjarnir voru allir með skíða-
grímur og hefði verið erfitt að
þekkja nokkurn mann þannig til
fara þó að myndgæði hefðu verið
upp á það allra besta. Þar er líka
komið að aðalvandamálinu,
myndgæðunum. Þau eru hörmuleg
og ekkert á myndbandinu að
græða."
Lögreglan veit nú lítið hvert
hún á að snúa sér, fyrrgreindur
talsmaður staðfesti það og sagði
jafnframt, að enn væri lýst eftir
vitnum.
t
Þökkum auösýnda samúö vlö andlát og útfðr
EGILS EGILSSONAR,
Krókí, Biskupatungum.
Þórdfs ívarsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega hlýhug og vináttu vlö andlát og útför
ÓLAFS MAGNÚSSONAR,
Hvanneyrarbraut 62, Siglufirfti.
Júlfana Siguróardóttir,
Sigrún Ólafsdóttir, Sigurftur Jónason,
Arnar Ólafsson, Guftrún Árnadóttir
og barnabörn.