Morgunblaðið - 24.01.1984, Side 40
Tölvupappír
EURQCARD
V____________/
STADFEST1ÁNSTRAUST
llll FORMPRENT
H verfisgotu 78. simar 25960 25566
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Miklar viðræður formanna ASÍ og VSÍ:
Kjarasamningar
í burðarliðnum?
FORYSTUMENN Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasam-
bands íslands, þeir Ásmundur Stefánsson, forseti, og Magnús Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri, hafa átt með sér marga og tíða fundi að
undanfbrnu, m.a. nú um helgina. í gær reifaði Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, samningamálin á fundi með forráðamönnum þeirra átta
landssambanda, sem aðild eiga að ASÍ og í gærkveldi var fyrirhugað
að boða til miðstjórnarfundar sambandsins árdegis í dag.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
hann og Ásmundur hefðu átt
miklar viðræður saman um kjara-
málin að undanförnu í þeim til-
gangi að freista þess að finna flöt
til samkomulags. Því miður hefði
slíkt samkomulag ekki náðst.
Samkvæmt öðrum heimildum
Morgunblaðsins mun þó komin
einhver mynd á niðurstöður við-
ræðna þeirra og nefndi einn heim-
ildarmanna blaðsins þrjár áfanga-
hækkanir í þessu sambandi,
4—5% hækkun við undirritun
samningsins, 3% hinn 1. júlí og
3% hinn 1. desember. Þó sagði
hann, að enn gætu þessar tölur
tekið breytingum og eftir væri að
fá þær samþykktar bæði innan
ASI og VSÍ. Þriðji aðilinn, sem
rætt var við, kvaðst þó óttast að
raddir um að komið væri að sam-
komulagi milli aðilanna væri
óskhyggja.
Það mun vera áhugi forystu-
mannanna að ná samkomulagi um
heildarkjarasamninga áður en
verkfallsboðunin í ÍSAL, sem boð-
uð hefur verið hinn 27. janúar,
skellur á. Á fimmtudagskvöld
óskaði ÍSAL eftir samningafundi
við viðmælendur sína, en á föstu-
dagsmorgun kallaði félagið óskina
aftur og vildi þá helst ekkert
ræða. Er talið að þessi afturköllun
standi í sambandi við vitneskju
þeirra ÍSAL-manna um viðræður
forystumanna ASÍ og VSÍ. Hins
vegar hefur nú verið boðaður
sáttafundur í ÍSAL-deilunni í dag
klukkan 14.
Þeir heimildarmenn Morgun-
blaðsins sem halda því fram að
mjög lítið beri í milli aðila og að
samkomulag geti verið á næsta
leyti sögðu jafnframt, að stærsta
félagið innan Verkamannasam-
bands íslands myndi hugsanlega
standa utan samkomulagsins. Er
það verkamannafélagið Dagsbrún,
en forysta Dagsbrúnar mun ekki
geta gengið að samkomulaginu
vegna sterkra hópa sem krefjast
lagfæringa á kjörum miðað við
hliðstæð störf í öðrum félögum.
Eru þetta m.a. vélamenn og verka-
menn við Reykjavíkurhöfn.
Forystumenn innan heildar-
samtaka vinnumarkaðarins töldu
að forseti ASÍ og framkvæmda-
stjóri VSÍ hefðu hugsanlega ekki
aflað sér umboðs til þessara
áþreifinga, en ætli sér síðan að fá
samkomulagið samþykkt — gera
eins háa samninga og frekast er
kostur án þess þó að verðbólgu-
markmið ríkisstjórnarinnar rask-
ist svo mjög og til verkfalla komi.
Samingur þessi, ef af verður, er þó
allmiklu hærri en sá rammi, sem
ríkisstjórnin hefur sett, sem er
4% grunnkaupshækkun á árinu
1984.
Forystumenn ASÍ og VSÍ hafa
reynt að fara mjög leynt með
þessar viðræður sínar og hafa
fundir verið haldnir á fjölmörgum
stöðum. Morgunblaðinu er kunn-
ugt um að fundirnir hafi verið
haldnir á skrifstofu Sóknar, skrif-
stofu ÍSTAKS, skrifstofu FÍI og á
einkaskrifstofum þeirra Ásmund-
ar og Magnúsar, einnig á hótel-
herbergjum og á skrifstofu kjara-
rannsóknanefndar.
Kvótaskiptingin:
Hald lagt
á ávexti
í vínlegi
LÖREGLAN í Reykjavík hefur
lagt hald á 88 flöskur af ávöxtum
í vínlegi úr fímm verslunum f
Reykjavík. „Alkóhólmagnið í
vínleginum gaf tilefni til þess að
stöðva söluna. Unnið er að rann-
sókn málsins og að henni lokinni
verður það sent ríkissaksóknara
til ákvörðunar," sagði Arngrímur
fsberg, fulltrúi við embætti lög-
reglustjórans í Reykjavík, í sam-
tali við Mbl. í gær.
Mbl. birti skömmu fyrir
helgi frétt um ávexti í 16%
vínlegi og í kjölfarið hóf lög-
reglan í Reykjavík rannsókn
málsins og hefur nú lagt hald á
88 flöskur. „Við létum rann-
saka alkóhólinnihald vökvans
og kom i Ijós, að alkóhólmagn
hans var 16% og því var lagt
hald á ávextina," sagði Gylfi
Jónsson, lögreglufulltrúi við
embætti lögreglustjóra, í sam-
tali við Mbl.
Nefndin mælir
með aflamarki
Snjór er með allra mesta móti suðvestanlands eftir snjókomuna um helgina. Færð er slæm og tepptist alveg um tíma á
sunnudaginn. Myndin hér að ofan er dæmigerð fyrir ástandið í Árbæjar- og Breiðholtshverfi í Reykjavík. Nánar um
óveðrið á miðopnu í dag. Morgunblaðió/ Friftþjófur.
RAÐGJAFANEFND sjávar-
útvegsráðherra um stjórnun
fiskveiða mun væntanlega
Ijúka störfum í dag og skila
tillögum sínum til ráðherra.
Skv. upplýsingum Mbl. er
meirihluti nefndarinnar þeirr-
ar skoðunar, að rétt sé að miða
við aflamark fremur en sókn-
armark og verður það skv. því
tillaga nefndarinnar til ráð-
herra. Á fundi nefndarinnar sl.
Vestur-Eyjafjöll:
Reykskynjari og handslökkvi-
tæki komu í veg fyrir stórslys
Vestur Kyjafjöllum, 23. janúar.
ROSKINN maður brenndist
mikið á handlegg og í andliti er
eldur kviknaði í kyndiklefa á
bænum Fitjamýri undir Vestur-
Eyjafjöllum aðfaranótt sunnu-
dags. Á Fitjamýri búa feðgarnir
Björn Lárusson og Baldur
Björnsson félagsbúi. Var það
Björn sem brenndist og hlaut
þriðja stigs bruna á handlegg og
annars stigs bruna í andliti.
Talið er að kviknað hafi í út
frá olíukyndingu Yngra fólkið
á bænum var sofnað, en vakn-
aði við að reykskynjari fór af
stað. Er fólkið kom að kyndi-
klefanum lá Björn þar brennd-
ur og er talið að hann hafi ver-
ið að reyna að slökkva eldinn
er hann brenndist. Heimilis-
slökkvitæki var til á bænum og
með því varð eldurinn að
mestu slökktur og með því að
fá að láni handslökkvitæki á
næstu bæjum tókst að slökkva
eldinn með öllu.
Björn Lárusson var fluttur í
sjúkrahús til Reykjavíkur.
Segja má að reykskynjarinn og
handslökkvitækið hafi þarna
komið i veg fyrir að stórslys
yrði. FrétUriUrí.
laugardag kom þessi afstaða
nefndarmanna fram.
Fulltrúar sjómanna eru þó
fylgjandi þvi, að sett verði sókn-
armark, en afstaða þeirra mun
helgast af atvinnuöryggi um-
bjóðenda þeirra, að því er heim-
ildarmenn Mbl. segja.
Nefndin heldur síðasta fund
sinn kl. 15 í dag. Að honum
loknum skilar hún ráðherra til-
lögum sínum — það gæti þó
dregist þar til á morgun. Síðan
kynnir ráðherra þingnefndum
tillögurnar og „fljótlega eftir
það ættu línur að fara að skýr-
ast,“ að því er einn nefndar-
manna sagði í samtali við Morg-
unblaðið.
Fundur í
bókagerd-
ardeilunni
Fundur verður með samninga-
nefndum Félags prentsmiðjueig-
enda og Félagi bókagerðarmanna
hjá ríkissáttasemjara í dag. Hefst
fundurinn klukkan 14.00.