Morgunblaðið - 29.01.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1984
5
SJONVARP
KLUKKAN 18:
Stundin
okkar
Nú er Eiríkur Fjalar
mættur aftur, hress og
kátur, þrátt fyrir flensuna
sem lagði hann í rúmið
síöast. Hann aðstoðar Ásu
við kynningar, kastar
fram gátum og bröndurum
og þau Ása skoða myndir
sem Stundinni okkar hafa
borist af Eiríki að
ógleymdum fjölmörgum
aðdáendabréfum. Að öðru
leyti er efni Stundarinnar
á þessa leið:
Ása og Eiríkur fara í
heimsókn í Ásmundar-
safn og fylgjast með 11
ára krökkum sem eru að
skoða safnið.
Brúðubíllinn kemur
aftur og sýnir síðari
hluta leikritsins „Á sjó“,
sem töfrabrögð Eiríks
Fjalars spilltu um dag-
inn.
Þá byrjar nýr teikni-
myndaflokkur um Daní-
el nokkurn sullskó.
Sögumaður er Viðar
Eggertsson.
Ása ræðir við Eygló
Sverrisdóttur um her-
ferð og plakatasam-
keppni sem JC Vík
gengst fyrir gegn vímu-
gjöfum.
Úrslitin í plakatasam-
keppninni verða kynnt í
Stundinni okkar 11.
mars. Að lokum má geta
Smjattpattanna, sem að
sjálfsögðu verða á sínum
stað.
Hópferð á völlinn
Fortuna Diisseldorf —
Bayern Miinchen
Einstök knattspyrnuferð 3.-6. febrúar
Nú er Atli Eðvaldsson kominn í gamla góða formið aftur og af því tilefni efnum við til hópferðar á völlinn í
Dusseldorf um næstu helgi.
Við fljúgum til Amsterdam á föstudagsmorgun og bókum okkur á gott hótel í miðborginni áður en ekið er til
Dusseldorf, þar sem stórleikur risanna fer fram um kvöldið. Eftir leikinn rennum við til Amsterdam aftur þar
sem við njótum helgarinnar í góðu yfirlæti.
Verðið er ótrúlegt: kr. 9.980
Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, gisting með morgunverði, rútuferð til og
frá Dusseldorf og aðgöngumiðar á leikinn.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Utsalan
hefst
á mánudag
VISA
I "í