Morgunblaðið - 29.01.1984, Síða 41

Morgunblaðið - 29.01.1984, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1984 41 Helgi Björnsson, Kjartan Bjargmundsson og Arnór Benónýsson í hlutverk- um sínum í Jakob og meistarinn. öðrum leikritum en Jakobi hér og öðrum einþáttunga Alþýðuleik- hússins, Tilbrigði við önd sem Al- þýðuleikhúsið sýnir, a.m.k. ekki í burðarhlutverki. En hann býr augljóslega yfir miklu sem von- andi fær að njóta sín. Áslaug Thorlacius var dálítið sniðug týpa í Húsfreyjunni og Ingileif Thor- lacius gerði hinni grimmlyndu/- ástföngnu markgreifafrú hin hugnanlegustu skil. Arnór Ben- ónýsson í hlutverki meistarans virtist taugaóstyrkur framan af, en náði sér allvel upp þegar leið á og átti ágætar senur innan um. Kjartan Bjargmundsson sem ridd- arinn Sankti Venni var afgerandi og skörulegur, en ég saknaði meiri mýktar og meiri sjarma: þó að hann eigi að vera bévaður svikari og sullumbullari á hann sennilega að vera viðfelldnari, og Kjartan dró upp full einlita hlið. Hér hafði leikstjóri líka átt að koma til skjalanna. Ýmsar skemmtilegar týpur komu við sögu; nefna má Ara Matthíasson og Jústínu svo og gleðikonumæðgurnar, þjónustu- stúlkur á Stóra hirtinum og fleiri. Leikmynd, lýsingu og texta virð- ist semja hið bezta. Og þá er í raun og veru ekki að orðlengja það meira. Og mikið var gaman. Almennur stjórn- málafundur í Valhöll um borgarmálin Hvöt, félag sjálfstæöiskvenna í Reykjavík, heldur almennan stjórn- málafund í Valhöll um málefni Reykjavíkurborgar mánudaginn 30. janúar nk. kl. 8.30. Frummælendur veröa Davíö Oddsson, borgarstjóri, og Ingi- björg Rafnar, borgarráösmaður. Aö framsöguræöum loknum veröa almenn- ar umræöur og fyrirspurnir. Fundarstjóri: Dögg Pálsdóttir. Fundarritari: Bergþóra Grétarsdóttir. Allt sjálfstæðisfólk velkomiö Davíö Oddsson Ingibjörg Ratnar Úr Kynórum. bragði að hafa séð Ellert A. Ingi- mundarson, Kjartan Bjarg- mundsson og Sólveigu Pálsdótt- ur í viðamiklum hlutverkum. Skemmst er frá því að segja að þau, ásamt Sólveigu Halldórs- dóttur, sem er þarna í smærra hlutverki, skila vel unnu verki. Framsögn og hreyfingar áreynslulausar og býsna fag- mannlegar. Og leikstjóri hefur leyst hraðar skiptingar og náð góðu tempói. í seinni þættinum: Tilbrigði við önd, eru það leikararnir Helgi Björnsson og þó kannski umfram allt Viðar Eggertsson, sem halda athyglinni og eiga drjúgan þátt í, hversu þátturinn lánaðist vel. Þeim eru að sönnu lagðar margar snjallar replikkur í munn, en þátturinn er lang- dreginn og endurtekningarnar missa ljóma sinn þegar á líður. . Að öllu samanlögðu: þetta er spennandi höfundur, David Mamet; leikstjóri, þýðendur og leikarar standa fyrir sýningu, sem er tæknilega vel gerð og frá leikrænu sjónarhorni öldungis bæði vel unnin og ánægjuleg. Öndinni hefði mátt þjappa meira saman, að mínu viti. En þetta varð engu að síður eftir- minnilegt kvöld og vonandi að þessari sýningu verði sýnd sú eftirtekt sem hún á skilið. tim HEIMINGURINN FYRIR HEIMINGSVERD: Hjónasæla fyrir eitt og hálft gjald Nú bjóða Flugleiðir hjónaafslátt á flugfargjöldum til New York, Chicago og Baltimore. Hjónaafsláttur hefur til þessa aðeins gilt á Evrópuleiðum, en Flugleiðir bjóða nú einnig fjölskylduafslátt vestur um haf. Fyrir hjón sem ferðast saman Ef hjón ferðast saman, þarf annað hjóna að greiða skráð fargjald en hitt aðeins hálft fargjald: Eitt og hálft gjald fyrir hjón. Afslátturinn gildir aðeins fyrir hjón sem ferðast saman báðar leiðir. Svo eru það blessuð börnin Pessi helmings afsláttur gildir einnig er foreldri ferðast með barni sínu á aldrinum 12-22 ára: Eitt og hálft gjald fyrir foreldri og barn. Þetta gildir auðvitað einnig þegar báðir foreldrar ferðast með börn sín: Einn borgar fullt gjald, hinir hálft gjald. (raun þýðir þetta að ungmenni á aldrinum 12 til 22 ára njóta nú sömu kiara og börn undir 12 ára aldri, ef ferðast er í fylgd með foreldrum. - Er ekki Ameríkudraumur fjölskyldunnar að rætast? Allarfrekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. FLUGLEIÐIR Gott fólk hjá traustu félagi 11:1 ilíiOlíS \ IbJlk't

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.