Morgunblaðið - 19.02.1984, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
Dansinn leyfir allt: líkamsæfingar, heljarstökk
og látbragösleik.
Óvinaflokkar í fátækrahverfun-
um í Suður-Bronx í New York tóku
upp á því fyrir um 10 árum að gera
af og til hlé (break) á slagsmálum
sínum og keppa í staðinn um hvaða
hópur gæti dansað best. Þetta voru
sterkir og stæðilegir strákar, liðug-
ir og í góðri þjálfun, taktfastir og
furðu góðir dansarar. I*eir hristu
sig og skóku, fóru heljarstökk,
stóðu á höndum og haus og komu
með þessu af stað nýrri dansdellu
sem nú hefur breiðst út um öll
Bandaríkin og borist til Evrópu.
Farþegar með neðanjarðarlestun-
um í I’arís geta skemmt sér við að
horfa á „break-dansinn“ í Metró
og sjónvarpsáhorfendur sjá honum
bregða fyrir í auglýsingum.
En mest er dellan í Bandaríkj-
unum. New York er enn „höfuð-
borgin". Dansflokkar troða upp í
klúbbum en þó aðallega á götum
úti og vegfarendur gefa vel fyrir
sýninguna. í stúdentabæjum
verður þröngin í kringum dans-
Stelpur eru ný-
farnar að taka
þátt í break-dans-
inum.
DansaAí
Los Angeles
Dansflokkur í Metro í París.
hópa stundum svo mikil að lög-
reglan þarf að skerast í leikinn
til að dreifa hópnum.
Það eru enn aðallega svartir
unglingsstrákar sem dansa og þá
um sex í hverjum hópi.
Spænskumælandi jafnaldrar
þeirra, og aðrir hvítir strákar,
eru að fá bakteríuna og stelpur
eru jafnvel farnar að æfa.
Músíkin er háttstillt rhythm og
blues eða rokk af ferðastereó-
tæki og listin er að gera sem
fjölbreyttastar kúnstir. „Þetta
er nýtt menningarfyrirbæri,"
sagði Bill Castellino, leikstjóri í
San José í Bandaríkjunum.
„Þetta er ekki lengur tískufyr-
irbrigði, þetta er ný líkamsæf-
ing, næstum því ný íþrótt."
Þótt betur settir unglingar
hafi fengið áhuga á dansinum
eru enn flestir sem stunda hann
atvinnulausir. Sálfræðingar
telja dansinn góða aðferð fyrir
krakkana til að losna við spennu
úr líkamanum og sumir þora að
vona að hann dragi nokkuð úr
slagsmálum og bardögum í fá-
tækrahverfum. Krakkarnir
hugsa lítið um það. Þeir vonast
til að verða svo góðir í listinni að
það verði tekið eftir þeim og þeir
fái hlutverk í sjónvarpsauglýs-
ingu eða bíómynd. Michael
Jackson, söngvari, er mjög fimur
break-dansari og dansinum brá
fyrir í myndinni „Flashdance"
sem var ein vinsælansta myndin
á Vesturlöndum í fyrra, og talið
er að hvort tveggja hafi hjálpað
til að breiða break-dans-áhug-
ann út um heimsbyggðina.
(Heimild: Herald Tribune. ab.)
Ferðastereotæki sjá um undirspilið.
„Break“-
dansinn
grípur um sig
Vita- og hafnamálastjóm:
Ekki á áætlun að dýpka höfn-
ina á Höfn í Hornafirði
EKKI stendur til á þessu ári að
dýpka höfnina og innsiglinguna á
Höfn í Hornafirði, samkvæmt upp-
lýsingum sem Mbl. fékk hjá Daní-
el Gestssyni, yfirverkfræðingi hjá
Vita- og hafnarmálastjóra, en
ástæða þess er sú að ekki er fyrir
hendi fjárveiting í ár til dýpkunar-
framkvæmda.
Hins vegar sagði Daníel að
fram hefði komið að þörf væri á
dýpkun hafnarinnar á Höfn, en
sjómenn og heimamenn hefðu
kvartað yfir því að höfnin og
innsiglingin væru of grunnar.
Daníel sagði að ef það ástand
skapaðist, að þjóðarhagur krefð-
ist framkvæmda, þá væri ekki
útilokað að útvegað yrði fé til
framkvæmdanna, en ákvörðun
um það væri alþingis.
f nýlegu tölublaði Eystra-
horns, sem gefið er út fyrir aust-
an, er fjallað um þessi mál og
segir þar m.a.:
„Mikið hefur vejðst af loðnu
undanfarna daga og hefur loðn-
an verið að veiðast hér skammt
undan. Lítið hefur samt verið
landað af þessari loðnu hér á
Höfn. Það hlýtur að vera mikið
hagsmunamál fyrir byggðarlag-
ið að fá loðnuna hingað til
vinnslu. Hver er skýringin á því
að bátarnir koma ekki hér inn
með loðnuna. Heyrst hefur að
það sé vegna þess að höfnin hér
sé of grunn og eins að skipstjór-
ar þessara báta séu smeykir við
innsiglinguna hérna."
Eystrahorn hafði samband við
Sverri Guðnason en hann er for-
maður hafnarnefndar og óskar
Valdimarsson hafnarvörð og
spurði þá hver skýringin væri á
þessu.
Þeir voru báðir sammála um
að nauðsynlegt væri að dýpka
höfnina, og hefði þurft að vera
búið að því, nýbúið væri að mæla
hana og kom í ljós að hún er
grunn. Síðast var höfnin dýpkuð
árið 1980, en það virðist hlaðast
fljótt í hana aftur. Það stendur á
fjármagni til þessara fram-
kvæmda, eins og í svo margt
annað. Sverrir sagði að það hefði
verið í bígerð á sl. sumri að
kaupa hingað dýpkunarskip er-
lendis frá, en ekki fékkst inn-
flutningsleyfi fyrir því, það þótti
of gamalt. „Best væri að hafa
slíkt tæki hér á staðnum, þá
væri hægt að beita því þegar á
þarf að halda," sagði Sverrir.
„Það eru næg verkefni fyrir slíkt
skip hér. í hvert sinn sem höfnin
hefur verið dýpkuð hefur um '/i
af þeim kostnaði sem í það hefur
farið, farið í að flytja dýpkun-
artækin hingað.
f þau skipti sem höfnin hefur
verið dýkuð virðist aldrei hafa
verið tími til að gera verkið al-
mennilega, þetta hefur oft verið
unnið á óheppilegum árstíma og
ekki verið tekið nóg úr höfninni í
hvert sinn. Innsiglingin er líka
að verða slæm og veitir ekki af
að dýpka hana.“
Kvikmynda-
eftirlitið
setur ekki
starfsreglur
í fréttatilkynningu sem Kvik-
myndaeftirlit ríkisins hefur sent frá
sér segir m.a. að vegna þess mis-
skilnings sem virðist gæta í umræðu
um starf og valdsvið eftirlitsins þyki
rétt að benda á nokkur atriði varð-
andi starf þess. Segir að gæta verði
þess að Kvikmyndaeftirlitið setur
sér ekki reglur sjálft, heldur vinnur
samkvæmt lögum nr. 53/66 um
vernd barna og ungmenna.
í þeim reglum segir m.a. að
enga kvikmynd megi sýna börnum
innan 16 ára aldurs nema með
undangenginni athugun, sem
framkvæmd sé af mönnum sem
ráðherra hefur tilnefnt til þeirra
starfa. Skulu skoðunarmenn meta
hvort kvikmynd geti haft skaðleg
áhrif á siðferði og sálarlif barna.
Þá afli það ekki barni aðgang að
mynd sem því er bönnuð vegna
aldurs að vera í fylgd með full-
orðnum. Þá segir enfremur að
barnaverndarnefndir á viðkom-
andi stöðum skuli hafa eftirlit
með að þar séu aðeins sýndar
myndir sem kvikmyndaeftirlitið
hefur leyft.
Ennfremur er í tilkynningunni
bent á að samkvæmt lögunum skal
miða aldur barna við fæðingarár,
en ekki fæðingardag. Þá tekur
Kvikmyndaeftirlitið fram að það
hefur ekki með skoðun kvikmynda
fyrir sjónvarpið að gera.
^uglýsinga-
síminn er 2 24 80