Morgunblaðið - 19.02.1984, Side 19

Morgunblaðið - 19.02.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 67 Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON Vínberjakaka meö hnetum Botninn: 100 g kalt smjör eða smjörlíki 200 g hveiti '/2 tsk hjartarsalt 1 msk sykur 1 '/2 dl súrmjólk 'k dl einhvers konar heilbaunir til að setja yfir botninn meðan hann er að bakast svo að hann þrútni ekki um of (hægt er að sleppa því). 1. Blandið sykri, hjartarsalti og hveiti saman í skál. Skerið kalt smjörið í flögur með ostaskera. Blandið saman við þurrefnin með hnífi. 2. Hellið súrmjólkinni út í, hnoðið lauslega og setjið á botninn á eldföstu fati eða kökumóti. Þrýstið niður á botninn og 2—3 sm upp með börmunum. Geymið í kæliskáp í 1 klst. 3. Hitið bakaraofninn í 180°C. Stráið baunum yfir botninn, setjið í heitan bakaraofninn og bak- ið í 10 mínútur á neðstu rim. Fyllingin: 400—500 g vínber 2 egg 'k bolli sykur 50 g hnetur eða möndlur 4. Skerið vínberin í tvennt, fjarlægið steinana með oddmjóum hnífi eða nöglunum. 5. Þeytið eggin með sykrinum í nokkrar mínút- ur, saxið hneturnar og blandið út í. 6. Takið botninn úr ofninum, fjarlægið baun- irnar. 7. Stráið helmingi vínberjanna á botninn, hellið síðan soppunni yfir. Raðið hinum helmingi vín- berjanna fallega ofan á. 8. Minnkið hitann í bakaraofninum í 150°C og bakið botninn í 15—20 mínútur. 9. Berið kökuna fram heita eða kalda. Meðlæti: ís, þeyttur rjómi eða sýrður rjómi með örlitlu hunangi. Athugið: Baunirnar er hægt að nota aftur á sama hátt eða sjóða eins og aðrar baunir. Guö lét fögur vínber vaxa, vildi gleðja dapran heim. A þessum árstíma draga réttir úr vínberjum úr vetrar- drunganum. Vínber standa alltaf fyrir sínu. Oft er hægt að gera góð kaup fyrir helgar með því að kaupa vínber, sem eitthvað eru farin að láta á sjá. í salat og köku eins og hér er boðið uppá, gerir ekkert til þótt vínberin séu ekki mjög falleg, en fleygið þeim sem eru orðin lin eða mygluð. Fallegt er að nota græn vínber í þessa rétti. Vínberjakökuna er hægt að bera fram sem eftirrétt eða með kaffi. Salatið er mjög gott með alls kyns kexi og ostum, en einnig er hægt að bera það fram með kjötréttum. Vrnber Vínberjakaka með hnetum. Salat með vínberjum, mandarínum, hnetum og selleríi 'k kg græn vínber 1 lítil dós niðursoðnar mandarínur, sem betra er að nota en ferskar. 1 dl rifið súrsað sellerí (shredded celeriac), fæst í krukkum. 50 g valhnetukjarnar safi úr 'k stórri sítrónu 2 tsk hunang 1 msk matarolía 5 dropar tabaskósósa, fæst víða í smáflöskum. 1. Hellið selleríinu í sigti og látið renna vel af því. 2. Hellið mandarínunum í annað sigti og látið renna af þeim. 3. Skerið vínberin í tvennt, takið úr þeim stein- ana með oddmjóum hnífi eða nöglunum. 4. Merjið hnetukjarnana örlítið með kökukefli. 5. Þeytið saman sítrónusafa, matarolíu, hunang og tabaskósósu. 6. Setjið vínber, mandarínur, sellerí og hnetur í glæra skál. Hellið safanum yfir og blandið vel saman með tveimur göfflum. Salat með vínberjum, mandarínum, hnetum og selleríi. Vorum að taka upp kjóla, einrúg samkvæmisíatnað frá Tískuverslunin Reykjavík Simi 28980

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.