Morgunblaðið - 19.02.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.02.1984, Blaðsíða 24
72 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 Brynja Ned Kellys Verölaunum heitiö fyrír upplýsingar sem geta leitt til handtöku Ned Kellys og félaga hans. Sagan af Ned Kelly, stigamanninum og útlaganum sem varð þjóðhetja Ástralíu Eitt mesta hrós, sem Ástralíumenn geta fengið, er að segja að þeir séu „óstöðvandi eins og Ned Kelly“. Kelly þessi var stigamaður og útlagi, skaut lögreglumann til bana og var hengdur fyrir morð. Samt varð hann þjóðhetja í Ástralíu og einhverjir fræg- ustu listmálarar landsins hafa málað mörg málverk um atburði úr lífi hans. Hér verður stuðzt við Graham Seal, höfund nýlegrar bókar um Ned Kelly. Ned Kelly, tvítugur ad aldri. Eftir dauöa sinn varö Ned Kelly söguhetja í ótal kvæðum, bókum, leikrit- um og loks kvikmyndum. Hér er atriöi úr fyrstu kvikmyndinni um hann, „Sögu Kelly-flokksins“ fri 1906. Kelly skýtur Fitzpatric lögregluþjón. Dauða bankaræningjans Ned Kelly var minnzt I Astrallu fyrir rúmum þremur árum. Edward Kelly, eins og hann hét fullu nafni, var hengdur I fangelsinu I Melbourne 11. nóv- ember 1880 og þar með lauk ævintýralegu tlmabili ástralskra útilegumanna, svokallaðra „búskara" (bushrangers) eða skógarmanna, sem höfðust við ( kjarrskógum öræfa og óbyggða Astrallu og urðu hetjur alþýöufólks. En hann einn náði svo langt að verða hetja allrar þjóðarinnar — og raunar eina þjóðhetja Astralíu. Sérstæð saga býr á bak við það hvernig þessi irsk-ástralski áflogahundur varð að reiðum, ungum manni, lét llfið og varð síðar að þjóðartákni. Ned Kelly var stigamaður og útilegumaður á borð við Dick Turpin á Englandi á 18. öld og Jesse James I „villta vestrinu". A þeim árum þegar Ástralla var fanganýlenda flúðu margir fangar inn I kjarrlendið. Þeir sem ekki urðu geðveikir og dóu ekki úr vosbúð eða af öðrum orsökum I óbyggðunum rændu ferða- menn eða afskekkt sveitabýli til að draga fram llfið, oft með aðstoð vina sem enn voru I haldi. Fáir fangar voru lokaðir inni, flestir unnu ýmis störf fyrir landnema og yfirvöld og höfðu talsvert ferðafrelsi. Fyrsti „búskarinn" úr fanganýlendunni, sem varð frægur að endemum, var Jack Donahue. Hann var fluttur frá Dyflinni 1824- 25 fyrir ásetning um að fremja ótiltekinn glæp, en flúði til skógar 1828. Hann safnaði um sig ððrum föngum, sem voru sama sinnis og hann, og næstu tvö ár lék hann á riddara- liða, sem reyndu að hafa hendur I hári hans, og stundaði stigamennsku umhverfis byggð- ina Sydney, sem þá var I mótun. Uxalest með viöarboli skammt frá Richmond- ánni íNýju Suður-Wales.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.