Morgunblaðið - 19.02.1984, Side 17

Morgunblaðið - 19.02.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 65 Blanda af austri og vestri í framhaldi af þessu berst talið að þjóðlífi í Japan, siðvenjum og menningu, en um það segir Erling m.a.: „Eins og ég sagði áðan er Japan sérkennileg blanda af austri og vestri, en þó er landið gjörólíkt öllum öðrum Asíulöndum og einn- ig gjörólíkt Ameríku og Evrópu. En þegar Japanir tala um hinn vestræna heim eiga þeir yfirleitt við Bandaríkin. Þetta á sér sínar sögulegu rætur því það var Kan- inn sem vann þá í stríðinu og kom síðan efnahagslífi þeirra aftur á réttan kjöl. Þegar hvítur maður kemur til Japans er hann talinn vera Ameríkani þar til annað kemur í ljós. Um útlendinga er notað orðið „geijin" og það nafn loðir við menn á meðan þeir dvelja í landinu, jafnvel þótt þeir flytji þangað á unga aldri og búi í land- inu alla sina ævi, í augum Japana eru þeir og verða alltaf „geijin". Japan er búddhiskt samfélag, en hefur einnig sín sérstöku trúar- brögð sem nefnast „Shinto". Shintoisminn er upprunninn í landinu sjálfu en búddhisminn er innfluttur frá Kína og Kóreu. Sakura (Þegar kirauberjatrén blómstra) þá kætist þjódin og sest aó í almenningsgöróunum. ingu sína berum orðum. Viðmæl- andinn verður síðan að geta í eyð- urnar og ráða af tilfinningum og blæbrigðum raddarinnar hvað hinn meinar. Þannig eru sam- skipti milli manna talsvert frá- brugðin því sem við eigum að venjast. Til að komast að þessum hlutum að eigin raun, er nauðsyn- legt fyrir athugandann að kunna málið og þetta á liklega við um allar þjóðir. Nauðsynlegt er því að komast af „túristastiginu" til að skilja hugsunarhátt þjóðar, en það tók mig marga mánuði. Á meðan ég vann á hælinu bjó ég um tíma hjá yndislegri fjöl- skyldu og þar kynntist ég hinu raunverulega japanska heimilis- lífi. Þær siðvenjur rikja í Japan, eins og víða annars staðar, að brúðurin fylgir manni sínum til fjölskyldu hans, tilheyrir henni eftir það og hefur mestum skyld- um að gegna gagnvart ættingjum eiginmannsins. Fjölskyldan er mjög samheldin og mun sterkari eining í samfélaginu en t.d. hér á íslandi. Vald foreldra yfir börnun- um er mikið og orðið „mongen", sem er notað yfir þann tíma sem börn eiga að vera komin heim á kvöldin, er mikið notað, og börn og unglingar hlýða því skilyrðislaust. Þetta gera þau fram eftir öllum Japanir hafa dálæti á öllu nýju og fleygja því heilum bílum til aö rýma fyrir nýjum. jnsr*. Z. ■■■■■ Einn af vistmönnum hælisina þar sem Erling vann um skeiö, á „ökutúr í lóöráttri rigningu Ellen Marteinsdóttir og Erling ásamt ábóta zen-musteris. Einnig gætir þar nokkuð áhrifa frá konfúisma, sem kemur m.a. fram í aga og hlýðni gagnvart yf- irboðurum, hvort heldur það er forstjórinn eða heimilisfaðirinn. Innan við eitt prósent af þjóðinni er kristin, en samt sem áður hefur kristnin meiri áhrif en ætla mætti í fyrstu og það stafar af því að það þykir fínt og „menntaðri" hluti fólksins er oft kristinn. En jafnvel í trúarbrögðunum verður maður var við þessa einkennilegu blöndu af austri og vestri. Japanir eru mjög umburðarlyndir í trúarefn- um og blanda trúarbrögðum oft saman í daglegum athöfnum sín- um. Þannig er ekki útilokað að einstaklingi sé gefið nafn í Shinto- musteri, giftur í kristinni kirkju og útför hans gerð frá Búddha- musteri." Húsmóðirin tekur sjaldan af sér svuntuna „Eftir aðlögunartíma minn i Tókýó fór ég að vinna á hæli fyrir fatlaða og þar lærði ég mína jap- önsku. Þarna voru fimmtíu vist- menn og enginn talaði orð í ensku þannig að það var ekki um annað að ræða en að komast niður í mál- inu. Ég hafði ágætan kennara, sem kunni ensku, og eftir tvo mán- uði var ég farinn að geta bjargað mér sæmilega í málinu. Japanska er að vísu erfitt mál fyrir vestur- landabúa, þar sem maður þarf að læra hvert einasta hugtak upp á nýtt, en samt er hún auðveldari i meðförum en ætla mætti. Mál- fræðin er tiltölulega létt og sama er að segja um framburð. Þannig er talmálið ekki svo ýkja erfitt en öðru máli gegnir um ritmálið. Það er margra ára nám að læra jap- anskt ritmál og til að geta lesið dagbl'að þarf maður að læra nokk- ur þúsund tákn þannig að ég lærði aldrei að skrifa japönsku að neinu ráði. Eftir að ég fór að geta bjargað mér í málinu komst ég að raun um að Japanir tala saman á allt ann- an hátt en vesturlandabúar. Við segjum yfirleitt meiningu okkar og tölum hreint út, en þeir tala yfirleitt undir rós og gefa hlutina | í skyn fremur en að segja mein- aldri og þó er tiltölulega hættulít- ið fyrir börn og unglinga að vera úti á kvöldin því það er ekki mikið um ofbeldi á götum úti í Japan. Samt sem áður þykir það sjálf- sagður hlutur að hlýða „mongen“ foreldranna. Húsmóðirin framkvæmir öll heimilisverkin og tekur sjaldan af sér svuntuna. Það er hennar deild og ekki við hæfi að húsbóndinn taki til hendinni við slík verk. Þannig eru viðhorfin hjá þorra þjóðarinnar þótt þetta sé ef til vill eitthvað að breytast meðal yngra fólksins. Konan verður að vera undir það búin að hafa matinn til á hvaða tíma sólarhringsins sem er, því atvinnulífið krefst þess að fyrirtækið gangi fyrir öllum öðr- um þörfum mannsins. Yfirvinna er því algeng, og oft án þess að greitt sé sérstaklega fyrir hana. Konan verður því auðvitað að laga sig að þessum aðstæðum og bíða þolinmóð með matinn. Eftir að hafa kynnst þessu varð mér stund- um hugsað til þess að konur á ís- landi væru heppnar miðað við kynsystur þeirra í Japan, þó jafn- rétti kynja eigi enn langt í land hér á landi. Fyrirtækin skipa mjög veiga- mikinn sess í daglegu lífi Japana. Þau eru ekki aðeins vinnustaður sem sjá mönnum fyrir efnahags- legri afkomu heldur sækja menn þangað félagsskap auk þess sem þau annast allar tryggingar fyrir starfsmenn sína og fjölskyldur þeirra. Félagslegt öryggi fjöl- skyldunnar er því miklu háðara fyrirtækinu heldur en ríkinu, hlutfallslega ef miðað er við ís- land. í Japan er fyrirtækið allt í senn: vinnustaður, „félagsmið- stöð“ og velferðarstofnun. Venjan er sú, að þegar námi lýkur, um tvítugt, fara menn að vinna hjá einhverju fyrirtæki og eru þar á meðan þrek og starfsorka leyfa. Þeir fórna sér í þágu fyrirtækisins og vinnufélagarnir eru oft bestu vinirnir. Þegar vinnu er lokið hverfa þeir á vit heimilisins og þá vilja þeir líka fá að vera í friði. Það er fremur formleg athöfn að fara í heimsókn í Japan. Þú „droppar" ekki inn, eins og tíðkast hjá okkur." í klaustri hjá zen-búddhistum „Eftir að ég hafði unnið í fjóra mánuði á hælinu fór ég í klaustur hjá zen-búddhistum og var það einhver merkilegasta reynsla sem ég hef upplifað um ævina. Þar kynntist ég einna best hinum sanna japanska hugsunarhætti. Lífið í japönsku Búddhaklaustri byggist á gömlum hefðum og venj- um sem eru baksviðs í iðnaðar- samfélaginu en blunda samt alltaf í vitund þjóðarinnar. Ég byrjaði á því að fara á námskeið í zen- búddhisma í gömlu og rótgrónu klaustri, sem er í sögufrægum bæ, skammt frá Tókýó, sem nefnist „Kamakura". Námskeiðið stóð í sex daga og að þvi loknu dvaldi ég í öðru klaustri í mánuð, með munkum af þessari reglu. Þetta var að mörgu leyti hápunkturinn á dvöl minni í Japan. Þarna voru fimmtíu japönsk ungmenni saman komin til að kynnast þessu fyrirbæri undir handleiðslu zen-munka, sem eru krúnurakaðir og ganga í sérstök- um kuflum, en þeir njóta mikillar virðingar meðal almennings. í stórum dráttum gekk þetta þannig fyrir sig, að maður var vakinn klukkan þrjú á nóttunni, og siðan var hugleiðsla, „zazen“, sem stóð í þrjá og hálfan tíma, hálftíma í senn, með stuttum hléum á milli. Maður átti að tæma hugann og einbeita sér að andardrættinum, þ.e. þindaröndun. En þegar líða tók á þennan hálftíma hjá mér þá beindist hugurinn æ meir að sársaukanum í fótunum, því við áttum að sitja í „lótus-stellingu" á sefmottu með þunnan púða undir sitjandanum, bein í baki, hreyf- ingarlaus með hálflokuð augun. Þetta var hin mesta eldraun fyrir „stólabarnið" frá íslandi, enda tókst mér ekki sem skyldi að tæma hugann undir þessum kringumstæðum. Japanarnir við hliðina á mér hörkuðu af sér af þjóðlægum sjálfsaga og ég varð að gera slíkt hið sama, samanber máltækið „þegar þú ert í Róm verður þú að haga þér eins og Rómverji". Meðan á hugleiðslunni stendur gengur einn munkanna hljóðlega um eins og vofa með léttan tréspaða. Ef einhver er óþolinmóður eða dottandi er hon- um gefið merki, hann beygir sig fram, heldur um herðablaðið og fær fjögur þéttingsföst högg á bakið frá hendi munksins. Þetta var sársaukafullaðferð, sem stundum roðnaði undan, en árang- ursrík til að halda mönnum við efnið. Til marks um sjálfsaga Jap- ana kom það stundum fyrir að þeir gáfu sig sjálfir fram við munkana og báðum um slíka með- ferð ef þeir voru syfjaðir. Eftir að sólin kom upp var unn- ið við að höggva eldivið og taka til í garðinum, en í hádeginu var svefn í eina klukkustund. Síðan var hugleiðsla frá sólarlagi til klukkan tíu um kvöldið, en sam- tals var hugleiðsla í sjö tíma á sólarhring. Hver maður hafði sína sefmottu, og þar var einnig borðað og sofið. í þessum klaustrum er lögð áhersla á mjög einfalt líferni. Zen-búddhisminn felur í sér heim- speki sem er gjörólík okkar hugs- unarhætti og má segja að kjarn- inn í henni sé „skyndileg hugljóm- un“. Þessari hugljómun ná menn með hugleiðslunni, en þeir telja að þetta taki mörg ár og jafnvel svo að sumir ná aldrei fyrsta stiginu þótt þeir stundi hugleiðsluna alla ævi. Æðsta stig hugljómunarinn- ar er „Nirvana“, þ.e. alheimsvit- SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.