Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 20

Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 Rita Hay worth Hún var fyrrum falleg og fræg en er nú farin að heilsu Rita Hayworth heitir að skírn- arnafni Margarita Cansino og fæddist í New York árið 1918, það er óhætt að segja að hún hafi fæðst inn í skemmtanaiðnaðinn, þar sem foreldrarnir stunduðu bæði slík störf. Cansino-fjölskyldan átti upp- runa að rekja til Sevilla á Spáni, þar sem listamenn úr ættinni höfðu skarað fram úr í dansi í marga ættliði. Afi Ritu rak dansskóla í Madrid og var hann þekktur um allan heim. Faðir Ritu, Eduardo, og systir hans El- isa héldu til Bandaríkjanna og sýndu þar dans við góðan orðstír. Volga Haworth, móðir Ritu, kom frá efnaðri fjölskyldu en hafði ung hlaupist að heiman til að reyna fyrir sér á leiksviðinu. Ungi spánski dansarinn Eduardo Cansino kynntist Volgu þegar hún kom fram með Ziegfeld-flokknum, sem frægur var á sínum tíma. Þegar þau gengu í hjónaband bannaði hann konu sinni að fást við leikstarfsemi, hún hlýddi en féll það þungt. Cansino-fjölskyldan stækkaði ört, átján mánuðum eftir fæðingu Ritu fæddist hjónunum drengur- inn Eduardo Jr. og síðan annar sonur, Vernon. Fjölskyldan settist að í Jackson Heights-hverfinu í Queens í New York og gekk allt 1 haginn. Bræður Eduardo Cansino fluttu til Bandaríkjanna og mynduðu þau systkinin dansflokk, „The Dancing Cansino", sem sýndi víða. Margarita litla hóf dansnám að- eins fjögurra ára gömul og þegar hún var sjö ára tók hún þátt í sýningum flokksins. Litla stúlkan er sögð hafa verið gott og hlýðið barn, alin upp á spænska vísu, og gerði sér ung grein fyrir að til mikils var ætlast af henni á listasviðinu. Árið 1926 voru þau systkinin Eduardo og Elisa beðin um að dansa í einni fyrstu dansmynd- inni, sem gerð var með tali. Skömmu síðar flutti fjölskyldan til Hollywood þar sem Eduardo Cansino setti á stofn dans-„stud- io“, þar sem hann, ásamt kennslu sá um æfingar og stjórnun dans- Hún var sannar- lega falleg stúlkay leikkonan Rita Hagworth, eins og hún birtist okkur á hvita tjaldinu fgrir nokkrum áratug- um. Lífið hefur ekki farið mjúk- um höndum um allar stjörnur kvikmgnda- og skemmtiiðnaðar- ins, eins og allir vita, fegurð, frægð og auður hefur ekki orðið þeim trygging fyrir hamingju og góðu lífi, öðru nœr, líf sumra þeirra hefur ein- kennst af von- brigðum og sorg. sýninga þekktustu dansara þeirra tíma, sem komu fram í kvikmynd- um. í kreppunni miklu, árið 1929, missti Eduardo allt það sem hann hafði fjárfest í sambandi við skól- ann, hann hélt þó áfram að starfa við danssýningar í kvikmyndum. Það var vorið 1931 að Cansino lét Margaritu dóttur sína hlaupa í skarðið á síðustu stundu í forföll- um dansmeyjar. Það varð föðurn- um mikil upplifun að sjá dóttur sína dansa þarna, eins og þaulæfð- ur dansari, og ákvað á stundinni að hefja að nýju sýningar með hana sem dansfélaga, hann var þá 36 ára gamall en hún aðeins 13 ára. Erfiðlega gekk að komast að á skemmtistöðum í Bandaríkjunum með sýninguna, stúlkan var yngri en leyfilegt var fyrir skemmti- krafta. En það giltu aðrar reglur í Mexíkó og þar komu þau fyrst fram í klúbbi í borginni Tijuana. Það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir ungan aldur vakti stúlkan mikla athygli og aðdáun, bæði sem dansari og sakir fegurð- ar. Foreldrarnir gættu hennar vel, henni var t.d. ekki leyft að fara með út eftir sýningar á kvöldin heldur send heim í háttinn. Sem fyrr hlýddi hún foreldrum sínum í einu og öllu. Þegar stúlkan var orðin 15 ára gömul vakti hún athygli mikils- metinna manna úr kvikmynda- heiminum, hún leit út fyrir að vera mexíkönsk, hár hennar var litað svart og greitt aftur frá and- litinu, hún virtist einnig eldri en hún var. Henni bauðst að koma fram í nokkrum myndum teknum í Mexíkó, sem „statisti" og einnig í Hollywood. Foreldrana tók að dreyma um að gera ungu stúlkuna að kvikmyndastjörnu. Kvöld eitt var Winfeld Sheehan, forstjóri Fox Studios, viðstaddur danssýninguna og bað foreldrana um að fá að tala við stúlkuna á eftir. Hún var sjálf yfir sig feimin, svo það var faðir hennar sem tal- aði fyrir hennar hönd. En for- stjórinn bauð ungu stúlkunni að koma til Hollywood til kvik- myndatöku. Reynslutakan tókst mjög vel og Margarita var ráðin til sex mánaða, sem svo yrði fram- lengt ef allt gengi vel. Það kom í hlut föðursins að skrifa undir samning fyrir hennar hönd, þar sem hún hafði ekki lögaldur til. í kvikmyndaverinu fékk hún kennslu og leiðbeiningar hjá kunnáttufólki og hún lagði sig alla fram við leiklistina, svo hún væri jafnvíg á dans og leik. Hún lagði af og þótti það gera hana enn feg- urri, það var endalaust verið að taka af henni myndir í auglýs- Hún var 15 ára þegar hún lék fyrst í kvikmynd. ingaskyni og þótti hún alla tíð myndast sérlega vel. Nafn hennar þótti nokkuð langt og var stytt í Rita Cansino og und- ir því nafni kom hún fram í Spenc- er Tracy-mynd, sem hét Dante’s Inferno, sýndi þar dansatriði. í kvikmyndinni Under the Pampas Moon fékk hún svo lítið leikhlutverk, kom fram í einu at- riði myndarinnar. Sheehan forstjóri hafði hug á að gera að nýju kvikmyndina Ram- ona, sem hafði verið sýnd á dögum þögulla mynda við miklar vin- sældir, og hann vildi láta Ritu leika þar aðalhlutverkið en sam- starfsmenn hans voru ekki allir sammála því. Teknar voru reynslumyndir og unga stúlkan lagði sig alla fram um að læra hlutverkið og standa sig vel. Það urðu henni því mikil von- brigði þegar Darryí Zanuck, eftir að hann varð ofan á í valdabaráttu innan fyrirtækisins, taldi hana

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.